pælingar, nöldur og skemmtilegheit...

miðvikudagur, mars 31

Ég er að reyna að sleppa tökum á reiði minni gagnvart fólki sem setur klósettrúllur öfugt á klósettrúllustatív! Alltaf ef einhver setur nýja rúllu hérna í vinnunni, snýr hún öfug. Og þá meina ég að arkirnar koma niður veggjamegin, það er óþolandi... þær eiga að koma á móti manni!
Svona eiga þær að vera:

Ok þetta var semsagt týpískur morgun fyrir mig, snúsað fram í rauðan dauðann, fór á fætur 7.16 og fór í sturtu og allt og var komin út 7.28..haaah geri aðrir betur! Svo bara þessi jólasnjór dauðans mættur.. djís! Fer í strætó, fjarkann eins og vanalega, get sagt ykkur milljón strætósögur en núna ætla ég að minnast á einn fyndinn mann sem ég sá í morgun. Svona lítill smágerður maður um fertugt, af erlendu bergi brotinn.. jafnvel af spanjólsku kyni.. en anyways.. hann er í skallaafneitun greinilega, því að hann er með svona svartan hýjung yfir skallanum skipt í miðju!!!! Getið rétt ímyndað ykkur!
Svo er líka einn strákur sem vinnur hjá Samskip sem er með þeim huggulegri í þessum strætó alltaf, en ég hef bara heyrt hann tala ensku (örugglega búin að vera samferða honum í meira en ár) því hann er alltaf með einhverjum breta í vagninum.. en viti menn í morgun, þá hringdi síminn hans og jú hann er íslenskur! Og það sem mér finnst ógeðslega fyndið er hvað margir breytast í málrómnum þegar þeir tala ensku.. hann er voða dimmraddaður þegar hann talar ensku og svo allt í einu venjuleg íslensk strákarödd í símann! Sumir tala ensku mjög lágt og sumir svona rólega eins og ein norsk lessa sem ég og Anna B. kynntumst sumarið '96!
En allavega vá hvað ég get bullað mikið hérna, þegar ég var að labba niður sundabrekkuna, þá keyrði fokkings bíll oní slabbið og yfir mig alla!!! ARG.. ég varð frekar pisst og kreppti hnefana eins og geðsjúk væri og næsti bíll sá það (gaur á Stjörnusalat bíl) og hann varð geðveikt smeykur og lúsaðist framhjá mér.. ég sver.. ég hefði sparkað í bílinn hans ef hann hefði skvett á mig líka! Og hananú!

þriðjudagur, mars 30

Ég mæli með að þið kíkið inná Føroyar linkinn hérna til hægri og farið inní Lýsingartorgið og hakið við hvað þið viljið skoða.. ótrúlega fyndið tungumál! hehe
Dæmi:
VEGNA FEILKEYP
eru einar nýggjar svartar buksur við hvítum strípum til gentu 12-14 ár til sølu fyri 50 kr.

Fór í heimsókn til m&p í gærkvöldi, það var fínt, fékk venjulegan mat til tilbreytingar, ekki bara frosna pizzu eins og alltaf er heima hjá mér! Mamma mín er ótrúlega góð, hún gaf mér inneignarnótu í Vero Moda fyrir 4.390 kall sem hún keypti af konu í vinnunni á 3.000 kall.. því að konan sagðist aldrei muna nota hana... furðufólk sko! En ég er geðveikt ánægð, maður getur alltaf fötum á sig bætt!
Svo keyrði pabbi mig heim, sem er ekki í frásögur færandi, nema það að þau eru svo fyndin foreldrar mínir, þau reka mötuneyti í ónefndum framhaldsskóla á höfuðb.svæðinu. Og pabbi sagði mér að það væri ein stelpan í skólanum alltaf í svartri kápu, með svart hár og svört máluð og í þvílíkt rifnum gallabuxum sem sæist í gegn að hún væri í svörtu korseletti og sokkum með sokkaböndum innanundir og að hún væri alltaf með stórt hálsmen sem væri hringur með stjörnu inní.. og pabbi er nú ekkert að skafa af því.. neinei hann bara spurði hana hvort að þetta hálsmen væri eitthvað tákn og hún sagði honum að þetta væri félagsskapur á Íslandi sem héti Wicca og pabbi spurði hvort þau væru með heimasíðu.. og jújú hún er HÉR og þetta er einhver nornaklíka (að ég held).. ég er reyndar ekki búin að skoða þetta neitt, en allavega pönsjlænið er að pabbi skyldi spurja stelpuna útí þetta.. aldrei hefði ég þorað því!!

mánudagur, mars 29

Ég ætti nú kannski að segja ykkur frá því að ég fór í svakalega árshátíðarferð á laugardaginn. Fyrst var farið til Stokkseyris (rétt beygt?) og þar fórum við í Draugasetrið, sem er safn með draugasögum og allskonar spooky stöff.. mæli með því! Svo farið í hestavörubúð sem heitir Baldvin og Þorvaldur (frí auglýsing) sem er á Selfossi, og ekki fór ég þangað til að kaupa mér mél eða hnakk, nei þar var boðið uppá bjór og með því.. og ég náði að slátra 4 bjórum held ég á rúmum klukkutíma (geri aðrir betur!) Svo var farið á Hótel Örk og skellt sér í pottinn (auðvitað með bjór) og sagði ég brandara þar sem sló í gegn! Þá farið uppúr og byrjað að dubba sig upp fyrir matinn og ballið og vorum við Bogga sem vinnur með mér heldur betur fínar! Þarna var maður orðinn ansi léttur á því og hoppaði inní fordrykkinn og hitti þar foreldra vinkonu hennar Svölu vinkonu, þeim fannst ég nú bara fyndin! En allavega svo var borðhaldið og bara fínn matur! Nei svo fannst mér ekki nóg fjör, þannig að ég vippaði mér uppá svið og söng 2 lög í míkrófóninn (aldrei sungið í míkrafón) og tók semsagt lögin "Ég hitti þig á balli í gærkvöldi..." og "Þú varst tengdamamma mín..." sem hreinskilni trúbadorinn Helgi flutti svo eftirminnilega í Fóstbræðrum á sínum tíma. Ég fékk auðvitað mikið lófaklapp, hvort sem það var fyrir að ég var svona góð eða fyrir að vera trúður.. veitiggi... svo var bara dansiball með hljómsveitinni Þúsöld sem allir þekkja... svo var ég bara orðin fremur þreytt og fór að sofa fyrir kl. 2 ... en svona var þetta nú skemmtilegt!

Hvað skal segja, ég ætla að byrja að blogga aftur.. eftir langt hlé! Ég hreinlega fékk ógeð á þessu í haust, þá búin að blogga í heilt ár eins og djöfullinn sjálfur... En núna langaði mig bara í splúnkunýtt blogg og hér er það. Ekki eru nú margir vinir manns eftir sem eru að blogga en endilega látið mig vita með einhverja skemmtilega linka, því að ég man ekkert í augnablikinu!
Svo vona ég bara að ég get rövlað nógu mikið hérna.. til þess er leikurinn gerður!!
I´m back from outer space!!!!!!!!!!!!!!!

gá hvort að klukkan sé rétt

Jæja þá er maður byrjaður að blogga aftur, vonandi eru mínir dyggu aðdáendur ennþá til staðar!