Mér finnst rigningin góð, na na na na oooó ó! Ég held að Helgi Björns hafi verið eitthvað gaga þegar hann söng þetta... ekki finnst mér hún góð og ekki segja við mig
"þetta er gott fyrir gróðurinn" - ömurlegur frasi!
Annars er ég voða sæt í dag að mínu mati (alltaf gott að vera með egó), er öll í stíl, í gallabuxum með
rauðum rassvasasaumum,
rauðri peysu og með
rauða teygju í hárinu, eina sem vantar er
rauður varalitur og
rautt naglalakk....... en ég á ekki svoleiðis, því miður!
En talandi um þessar gallabuxur sem ég er í, ég keypti þær í fyrrasumar í Vero Moda á 5.990 kall, svo sá ég mér til
ómældrar óánægju að það voru komnar svona
eftirlíkingabuxur í Hagkaup.. týpískt.. þá held ég að allir haldi að ég hafi keypt þær í hagkaup... sem mér finnst samt engin skömm, bara pirr af því að ég keypti þær ekkert þar!
Öllu get ég nöldrað yfir!
En svo líka eitt, ég keypti mér
Sítrónu Topp í morgun og það er búið að gera flöskurnar gular en svo setti ég venjulegt vatn í hana og þá er hún aðeins ljósgulari, þannig að það er greinilega gult litarefni í sódavatninu líka! Pælið í því! Og líka eitt (vá hvað ég get skrifað mikið núna) þá finnst mér þessar nýju
topp auglýsingar eitthvað dúbíos....
"Toppur, þú hreyfir þig og lærin hætta að snertast" Hvað er verið að meina???
Og líka ég var að skoða aftan á
Special K pakka áðan í kaffinu, og þar er verið að tala um að ef maður fær sér 2 skálar á dag af því, í morgunmat og hádegis- eða kvöldmat (og ekkert annað), þá geti maður farið niður um
eitt gallabuxnanúmer á einungis
2 vikum! Er þetta nú gott í öllu þessu
átröskunarveseni sem er nú til dags?