pælingar, nöldur og skemmtilegheit...

föstudagur, maí 28

Hey, hún Ásdís maur er að byrja að blogga!! Komdu fagnandi plöggsystir góð!

Ohh ég er að deyja úr öfundssýki núna! Ég var að tala við Einar bróðir og Lilju, sem eru stödd útí Orlando, Flórída ásamt mömmu og Auði Aþenu. Og það er heví gaman hjá þeim, versla og fara í einhverja skemmtigarða og þau eru á leiðinni í rússíbanagarð á eftir! Ohh ég hefði átt að slá öllu uppí kæruleysi og fara með þeim!!!

Ég sá alveg stórundarlegt dæmi í gær en samt fremur fyndið. Fór í heimsókn í vinnuna til vinkonu minnar og sá þá í fyrsta skipti mann sem vinnur með henni, sem ég hef heyrt hana mikið tala um á msn, og hann hefur nú ekki fengið góða dóma hjá henni. En allavega, þá kem ég og þetta er bara hinn myndarlegasti maður, með fallegt bros og augu og hann var í svona verkstæðisgalla, dáldið svartur og skítugur.. en svo kom það! Þau voru að loka, og hann fór úr gallanum, þá var hann bara í ljótustu gallabuxum sem ég hef séð, víðar og þröngar að neðan, girtar upp á bringu (ég er ekki að ýkja) og með vínrauða skyrtu girta oní.. þvílíkur hillbilly, "hann er úr sveit, ég var búin að segja þér það", sagði vinkona mín svo. En er það nú einhver afsökun fyrir að klæða sig svona og afskræma lúkkið. Ef þessi strákur færi í svona "breytt útlit" þá yrði hann geðveikt handsome!

Og talandi um hillbilla þá tók ég mynd á leigu í gær, Wrong turn, fremur spennandi og svona öðruvísi tryllir um fólk sem villist einhversstaðar í skógi í BNA og lenda í baráttu við inbreeds, sem eru fremur ógó! Ágætis B-mynd með engum þekktum leikurum! Ég hefði allavega ekki viljað horfá hana í myrkri ein allavega!
Mikið er annars fimmtudagskvöld leiðinleg tv-lega séð núna, eftir að Piparsveinninn og Beðmál hættu!!

fimmtudagur, maí 27

Mikið assgoti er ég búin að vera duggó í ræktinni, fór 3 síðustu daga en núna í dag ætla ég ekki, því leikfimisfötin eru á snúrunni, mjög góð ástæða. Reyndar er kannski óþarfi að fara alla daga og springa á limminu! En mér finnst þetta ótrúlega gaman.. eins og það er alltaf erfitt að byrja!
Svo fór ég að þrífa í gærkvöldi og hjakkaðist þvílíkt til að ná einum vaski alveg hvítum og það tókst, og núna er ég komin með upphandleggsvöðva dauðans.. nei segi svona! Hafiði heyrt að ef maður þrífur vaska og svoleiðis með Coca-Cola þá virkar það! Sumstaðar er notað kók til að þrífa vélar... og svo er maður að drekka þetta... hvernig ætli maginn á manni sé? Reyndar drekk ég bara diet-kók... það er kannski ekki eins mikið að sýrum í því!

En ég fór í bíltúr, með Ragnheiði vinkonu minni í gær á nýja kagganum mínum og hún tók þessa fínu mynd af mér! Mér finnst mjög fyndið að ég sé með spékopp, og nota bene bara öðru megin! Svo er líka mynd af mælaborðinu.. rosa flott mar!!

Maður er ekkert lítið montinn að keyra!

miðvikudagur, maí 26

Ég fór á Troy í gærkvöldi og hún er geeeeðveik... Brad er bara foli dauðans... naaaammmmm hann er svo mikill kroppur að ég dey! Orlando er bara kidstöff við hliðina á honum!

Ég vona að fólk viti að ég bulli eins og mófó stundum... ég er svo mikill bælli að þegar ég er td að syngja með í bílnum og stoppa svo á rauðu ljósi, með bíl við hliðina á, þá hætti ég að syngja upphátt og raula inní mér og svo um leið og kemur grænt þá bara "ÉG SÁ HANA Á HORNINU Á MÁNABAR, HÚN MINNTI MIG Á BRENDU LEE .." :)

Einu sinni lenti ég í mjög hallærislegu, ég var stopp á rauðu ljósi við hliðina á Sprengisandi, á leið uppí Breiðholt. Þetta var seint um kvöld og fáir á ferli, nema hvað að það kemur annar bíll við hliðina á og ég lít yfir og sé að þetta er ágætis foli.. og hann lítur á mig og þá lít ég undan og voða eitthvað feimin og er að bíða eftir græna ljósinu.. þá kemur sko grænt á hitt ljósið þvert yfir götuna og ég spíttaði af stað í stressi.. útaf því að ég var í kleinu yfir þessum augngotum á rauðu ljósi... og fattaði svo að það var ennþá rautt og snarskransaði á miðjum gatnamótum og svo var ég að deyja... þorði ekki að hreyfa mig og var bara útá miðjum gatnamótum þangað til að það kom grænt hjá mér... og svo bara AF STAÐ!!!! vúúmmmm.... guð strákurinn hefur örugglega grenjað úr hlátri!

þriðjudagur, maí 25

"Heyrðu mig Halla, hvað ert þú að malla? Viltu ekki malla eitthvað oní mig? Ég er hungraður, og mikill matmaður, merkilegt hvað maginn getur melt mikinn mat! Heyrðu mig Halla, ég hef einn galla, ef galla skyldi kalla, harla varla myndi ég slá met! Ég vil fá reyktan snák og sniglamauk, geðveiku gæsina sem afi skaut, refahakk í rófustöppu og rifinn ost og þetta kallar maður þrumu veislukost!"

Gott lag með honum Ladda vini mínum! Ég er stundum að hlusta á Ladda í nýja bílnum, með einkanúmerið DENGSI (já, Hemmi minn) og syngja með, með rúðuna rennda niður keyri ég niður Laugaveginn, í HLH bol með vængjagreiðsluna og útvarpið í botni að hlusta á td. þetta:

"Upp undir Laugarásnum, á ég eitt lítið kot, dekorerað með djásnum, dæmalaust fallegt slot! Ég þarf ekki lán í bönkum, bankar fá lán hjá mér.... rærærí rærærí ræræræ lalallalalaaaa!!"

"Austurstræti ys og læti, fólk á hlaupum í innkaupum, fólk að tala, fólk að mala og fólk sem ríkið þarf að aaaaaaaaala! Ég eftir Austurstræti slaga slétt á strigaskónum.... "

Finnst ykkur nokkuð skrítið að ég sé einhleyp?

mánudagur, maí 24

Je dúdda mía, helgin var aðeins öðruvísi en ég hafði áætlað! Byrjaði með vægum beinverkjum og hita og kuldaköstum á föstudaginn í vinnunni, hafði það þó að ná í nýja bílinn minn eftir vinnu (weeeeeeee fyrsti bíllinn minn) og rétt komst heim og var undir teppi allt kvöldið! Svo vaknaði ég kl. 5 um nóttina með ónot í maganum og svo bara inná klóst og bara böööaaaahhhh (gubbuhljóð) og svo nokkrum sinnum í viðbót og svo lá ég bara allan laugardaginn, var svo ágætlega hress þegar ég vaknaði í gær og fór að rúnta með Auði Aþenu beibí og svo um kvöldið var ég aftur orðin frekar slöpp eikkva og er ennþá með enga lyst. Og það kemur sko eigilega aldrei fyrir að ég verði lystarlaus!

Ég fór í sund í hádeginu í gær, í nuddpottinn í Breiðholtslauginni, þar sem ég var komin með leguvöðvabólgu eftir allt liggið um helgina.. ja hver andskotinn þetta er bara besti nuddpottur landsins, I love it! En það er ótrúlegt hvað gamlir karlar glápa mikið í sundi, og kommenta svo á holdafar og húðliti fólks, bölvaðir dónarnir! Enda fá þeir illt sporðdrekaaugnaráð frá henni Önnu, enda er ég örugglega mjög grimm í framan í sundi, gleraugnalaus, pírandi augun!

föstudagur, maí 21

Góðan dag krakkar mínir, ég er nýji kennarinn ykkar og ég heiti R A S S G A T !!!!
Einu sinni fannst mér þetta brjálæðislega fyndinn brandari.... finnst það eigilega ennþá!

Vó ég fór á Mamas Tacos "express" í hádeginu.... ég held þetta lið viti nú ekki hvað express þýðir. Við vorum komnar inn kl.12.16 og sögðum; "yes við náum örugglega að borða þetta hérna", þar sem við erum bara í mat til 12.30. Neinei.. gellan var svo slow að ég held að selur án hreifa hefði verið fljótari að rúlla saman þessum burritóum. Við vorum ekki komnar með þetta út (í take away) fyrr en kl. 12.37! Og það var ekkert að gera þarna... 21 mínúta!! Hef aldrei vitað annað eins, enda var þetta 2. tilraunin til að fara þarna og í hitt skiptið var líka svona hæg þjónusta! Framvegis ætla ég bara á Serranos þegar ég ætla að fá mér skyndiburritó, þar er sko góður matur og almennileg þjónusta og hananú!

miðvikudagur, maí 19

Já allur lurkum laminn geng ég leiður heim til mín, nú er búið næturgaman, tssjaááááaaaaa!
Ég byrjaði fyrir alvöru í nýju aukavinnunni minni í gærkvöldi, sem er að ræsta eina verslun hér í bæ 2svar í viku, og úff ég hélt ég kæmist ekki á lappir í morgun, alveg búin í skrokknum.. sem sýnir hvað ég er nú aktív í þessum ræstingarhreyfingum!

Stundum finnst mér ég vera að sóa bestu árunum mínum í rugl, akkuru á ég ekki kall? Ég get örugglega fengið mér bara einhvern.. sem mér finnst leiðinlegur og ljótur.. en maður hefur nú sinn standard.
En finnst ykkur eðlilegt að 27 ára gamalli stúlku hlakki til að fara uppí rúm á kvöldin til að spila Tetris í 15 ára gömlu tölvuspili?
Sorry ég fæ svona kærastaþráhyggjur af og til, þið verðið bara að þola það. Mér finnst bara ömó að vera einhleyp á sumrin og um jólin og já kannski líka á veturna, vorin og haustin.... en maður verður bara að reyna að vera jákvæður og segja eins og hún Jóka sagði um árið: MINN TÍMI MUN KOMA!!

þriðjudagur, maí 18

Jæja krakkar mínir nú er komið að því að finna sér eitthvað nýtt að gera á mánudagskvöldum kl. 21 !! Úrslitin í Þraukaranum-Allar stjörnur voru nebblega í gærkvöldi. Fyndið að sjá liðið eftir að smá tími er liðinn frá keppninni, allir virka voða pattaralegir.. en eru örugglega bara normal.. því þau voru orðin pínku mögur í keppninni.
Ég er mjög sátt við úrslitin, enda er ég (og Rósa) Boston Rob aðdáandi nr. 1. Og í raun skipti ekki máli hvort hann eða Amber ynni, þar sem þau eru greinilega heví dúdí in love! En mér finnst frábært að Boston Rob eða Rob eins og ég kýs að kalla hann, hafi komist í 2. sætið með því að vera lygari dauðans og með fáranleg plott. Hann er svo svalur, mig langar ííí hann! :)
En hinsvegar er ég líka orðin húkt á unglingaþættinum O.C. sem er kl. 20 á mánudögum, yndislegt að horfá svona þætti með svona ríkum, fallegum krökkum og vandamálum þeirra. Þá er maður bara feginn að vera fátækur og ljótur og með engin vandamál... yeah right!

mánudagur, maí 17

Jæja ég er öll að koma til, er aðallega á pínu peningabömmer eftir helgina.... stundum lifi ég eins og ég sé með milljón á mánuði.. keypti mér buxur.. kostuðu reyndar bara 2500 kall og linsur 2400 kall, ríkið 1200 kall, svo tók ég ein leigubíl úr grafarvoginu og fattaði þegar ég var næstum komin að gullinbrú að ég gleymdi veskinu í partíinu, þannig að ég þurfti að snúa við, þannig að taxinn niðrí bæ kostaði 3000 kall og keypti ég mér eitt glas á 1200 kall og svo 2000 kall taxinn heim... úffffff ..og þetta gera svo mikið sem: 12300 kall aðeins...

Mig langar að benda á, þar sem ég var að tala við eina sem les bloggið mitt og sú er ekki mikil tölvukona.. að kommentin eru hérna fyrir neðan þessa klausu, þar sem stendur "Posted by: Anna/08.37 Allt að verða kreisí (4)" klikka þar og þar er hægt að segja sínar skoðanir eða bara bulla eitthvað og taka þátt í umræðunni, endilega allir sem vilja! :)

Annar í þynnku dauðans.is
Ég fór í þrælskemmtilegt Eurovision partei hjá Hildi og Jónsa, það var hörkufjör, ég er alveg sátt við Ruslönu, flottur taktur í laginu. Annars hélt ég með Bosníu, in the disco.. mér fannst það fremur cool! Mér fannst Jónsi algjör foli og rosaflott hjá honum, fannst hann ekki eiga 19. sætið skilið! Svo eftir ágætis sprell þarna fór ég að hitta Svölu mína í partí niðrí bæ.. þar var líka stuð og svo fórum við á 22 og vorum frekar haugadrukknar að venju.. en það var bara gaman. Ég kom heim rétt fyrir kl. 7 í gærmorgun... og var gærdagurinn eftir því.. og er ég ennþá alveg búin á því og langar helst að vera heima hjá mér sofandi. Það er mikið á sig lagt segi ég!
Svo dreymdi mig í gær að Jónsi væri byrjaður að vinna með mér og hann vildi endilega bjóða mér með sér í leikhús og ég spurði hvað konan hans myndi segja, þá sagði hann; "jahh hún verður auðvitað fúl.. en mig langar bara svo að fara með þér" og ég var geðveikt ánægð og svo vorum við bara heví ástfangin og jájá.. ROSA GÓÐUR DRAUMUR MAÐUR!

föstudagur, maí 14

Anna að hugsa í strætó...

1. Ég lenti við hliðina á bíl á ljósum í strætó í morgun og í honum var gaur að keyra, með pínkulítinn sætan tsjívává hund í aftursætinu (meiri að segja mér fannst hann sætur..) og hundurinn var í hundaöryggisbelti að mér sýndist. Þá fór ég að pæla.. afhverju er það ekki skylda líka að hafa hunda og ketti í öryggisbeltum líka? Hörmulegt ef að maður myndi lenda í árekstri og dýrið, sem er að öllum líkindum frekar létt, myndi fljúga beint í framrúðuna eða eitthvað...
(ég held ég sé að linast, ég sem er engin dýrakona)

2. Hver í ósköpunum ákvað að áklæði á sætum í strætóum og rútum verði að vera svona ótrúlega ljót alltaf hreint, skræpótt og ógeðsleg. Ég var í glænýjum vetnisvagni í morgun en samt eru áklæðin óóógeð.. gul, rauð, svört og grá skræpuógeð...
Og líka á hótelum, alltaf hallæris skræpóttar gardínur og rúmteppi og púðar í stíl...
tískuslys dauðans!

3. Það er að koma helgi.... weeeeee frábært.. ég fattaði allt í einu í strætó í morgun að það væri föstudagur.. það er mergjað!

fimmtudagur, maí 13

Ef þið vissuð það ekki, þá er ég svoooo mikill lúði stundum! Ég var að labba fram hérna í vinnunni og það stendur maður þarna greinilega af indversku bergi brotinn og hvað segi ég? Jú ég sagði með smá enskum hreim; "Hello" og brosti til hans.... og þá sagði hann; "Góðan daginn" .............

...þetta er bara ekta ég! ..eins og með grifflurnar í fyrra....

miðvikudagur, maí 12

Ógeðslegustu handsápur í heimi eru með rósarilmi frá frigg og svo svona sápur með white musk lykt... ojjj! langaði bara að segja þetta!

Jæja núna er maður búinn að fara tvisvar í ræktina og mér líst bara heví vel á þetta allt. Þetta er flottasta stöð sem ég hef farið á hingað til, Laugar semsé, engin bið í tækin, gott loft, góður andi, flottir klefar og bestu sturtur sem ég hef prófað.
En það er eitt sem lét mig fá smá sjokk í gær, það er nebblega frítt í Laugardalslaugina fyrir korthafa, sem er frábært! En þá er gengið útúr klefanum í World Class og upp tröppur, og hvar lendir maður þá? Jú maður þarf að labba á göngubrú sem er akkúrat fyrir framan öll hlaupabrettin, hjólin, stigvélararnar og það!!! Og í gær, labbaði einhver flott beiba í bikíní þar og maður tók vel eftir að allir gaurarnir á brettunum snéru sér úr hálslið liggur við! úff ég verð að fá mér sundslopp ef ég ætla að labba þarna, ætla ekki að flagga mínum skvapmaga þarna! En kannski er þetta einhver markaðssálfræði, að maður æfi meira til að líta betur út á þessari göngubraut!

Ég ætla að setja inn nýja spurningu hér til hliðar, og þið vitið að þetta er nafnleynd, ég get ekkert fattað hver svarar hverju... ætla bara að gera smá könnun á skapahárum lesenda minna! (...eru strákar líka með skapahár, eða heitir það punghár?) hehehe.....

þriðjudagur, maí 11

Ég var að láta mig dreyma áðan hvernig líf mitt verður þegar ég eignast bíl, þá get ég bara farið í Smáralind þegar mér sýnist án vesens, skroppið uppí Borgarnes til Svölu, kíkt í heimsóknir og allt án strætóvesens.... ég veit að þetta er mjög sjálfsagður hlutur hjá bílaeigendum, en mér finnst þetta rosalega merkilegt. Ég er búin að vera bíllaus síðan í janúar 2002.. og geri aðrir betur! Ég var með mömmubíl eigilega allt árið 2001.. það var ljúft! En þótt mér finnist þvílík forréttindi að eiga bíl núna, þá veit ég að það er fljótt að venjast og þykja sjálfsagt.. En ég ætla að hugsa vel um bílinn minn og ekki nota hann fyrir geymslu eða rusl.. það þykir mér ekki flott!

Annað mál, það var verið að bjóða mér í árlegt Eurovision teiti hjá Hildi og Jónsa vinum mínum og ég fékk ansi skemmtilegt komment eða hvað:
"Það verður ekkert Eurovisionpartý nema Anna verði þar, vel í því, að gera einhvern skandal!"

mánudagur, maí 10

Vááááá hvað ég er ekki að nenna þessu private dæmi... eru þetta ekki bara lúðulakar og dusilmenni....nei kannski ekki, kannski til einhverjir ágætismenn þarna...
Ég held ég verði bara að bíða áfram.. minn tími mun koma!
Annars settist ég ekki á horn í gær (ef maður sest við horn á borði þýðir að maður giftist ekki næstu 7 árin) og fékk börnin (síðustu droparnir í könnunni) af kaffinu hjá ömmu í gær... hehehe... best að gerast hjátrúarfull!
Helgin var róóóóleg og næs, fór í sund og hjólaði á föstudaginn og glápti svo á ruglað Idol.. Höffsterinn rekinn... æji.. hefði frekar viljað sjá Yasmine fara..
Laugardagurinn fínn, hitti hana Sollu sætu og við fengum okkur að borða á Enricos (þar sem Kaupfélagið var), ógeðslega góður matur og ekkert svo dýr svona dagréttarseðill.. svo bara chill og hangs og labb allan daginn :)
Fór að skoða bíla með pabba í gær... djöfull finnst mér það ekki skemmtilegt að skoða bíla!
Annars er ég að fara eftir vinnu og kaupa mér kort í Laugum... vúhúúúú :)

föstudagur, maí 7

Það var fjör í kaffitímanum áðan, ekki verið að kvarta og kveina eins og oft, heldur vorum við stelpurnar hér að skiptast á gömlum fyndnum hösslarasögum... það er nú alltaf gaman. Maður ætti að gefa út bók með svona sögum frá fullt af stelpum, hún myndi örugglega slá í gegn!
Svala vinkona kom í heimsókn í gærkvöldi, það var mjög næs, kjaftað saman og horfðum á lokaþátt Sex and the City... jeiiii loksins náði Big í Carrie!!!! En hvað á maður nú til bragðs að taka á fimmtudagskvöldum, ég held að lokaþáttur Piparsveinsins hafi verið í gær líka... Kannski að reyna að fara á kaffihús eða eitthvað?!? Meira tv-glápið alltaf á manni!

Annars í sambandi við fuglafóbíuna þá ætla ég að reyna að taka á henni og ef það er hrafn (ekki samt Hrafn vinur hennar Svölu) uppá ljósastaur á gangstéttinni þar sem ég labba, þá mun ég labba undir hann, ekki fara hinum megin við götuna! Læt ykkur vita hvernig það tekst!

Skráði mig á Private í fyrradag, nú á að gá hvort ég finni folann þar... er þegar búin að fá yfir 50 skilaboð! En örugglega 90% af því eru eymingjar og lúðar og gamalmenni!
Læt ykkur vita ef ég fer á deit!

fimmtudagur, maí 6

Ég var að taka persónuleikatest á þessari heimasíðu og þetta voru niðurstöðurnar:
Þú hefur hlotið 41 stig
Persónuleiki þess sem fær á milli 41-50 stig:
Fólki finnst þú frískleg, lifandi, heillandi, skemmtileg og ætíð áhugaverð persóna. Þú ert gjarna miðpunktur athyglinnar án þess þó að það stigi þér til höfuðs. Fólki finnst þú einnig góðhjörtuð, tillitssöm og skilningsrík manneskja sem gleðji fólk auðveldlega og sért ávallt tilbúinn til aðstoðar og hvers kyns hjálpar.

Verð nú að segja að ég er svo sammála, ég er svo æææææðisleg!!!

Annars var ég í þrítugsafmæli í gærkvöldi, og ég verð nú bara að segja að ég er farin að hlakka til bara.. þó það séu 2 og hálft ár í það... og það er sko BARA útaf gjöfunum, þvílílar gjafir sko!

miðvikudagur, maí 5

Ég hélt að það væri alltaf svo gott veður þegar próftíminn er.... það er eitthvað annað núna!

Ég vona að það fari að hlýna eftir 12. maí, því þá rennur græna kortið mitt út og þá ætla ég að byrja að hjóla um bæinn, hjóla í vinnuna og svona, búa mér til smá vöðva! Ekki veitir af!
Eins og sumir vita sem þekkja mig hef ég misst nokkur kíló á undanförnu ári, sem er bara gott mál en ég er samt heví slöpp og þarf að fara að styrkja mig og æfa. En ég er búin að vera að fresta að fara að hreyfa mig síðan um áramótin.. alltaf með eilífar afsakanir.. og núna er það veðrið.. of kalt eða rigning - get ekki hjólað! Mig langar ótrúlega að fara að æfa í Laugum, en samt tími ég ekki að borga fyrir kort! Ég velti mér alltof mikið upp úr allskonar smáatriðum fyrir afhverju ég ætti ekki að kaupa kort en samt er ég alltaf að ákveða að byrja næsta mánudag eða um mánaðarmótin eða eða eða eða og svo gerist ekkert!
Ég reyndar labba mjög mikið, þar sem ég er strætóandi alla daga, en það er ekki nóg! Mig langar í six pack og upphandsleggsvöðva (losna við vængina)!
Verð að taka mig á, stefni nebblega á Miss Fitness 2005 !
Hvað með ykkur, eruð þið duglegar að fara í ræktina eða hreyfa ykkur reglulega?

þriðjudagur, maí 4

Húsráð:
Ég er búin að vera spá mikið í því afhverju parketið heima er búið að vera heví sleipt undanfarið, ég sem var nýbúin að skúra þegar það byrjaði að vera svona. Ég flaug einmitt á hausinn á því um daginn þegar ég var að dansa, meiddi mig og fékk risa marblett! En svo var ég að tala við móður mína um þetta og hún spurði; "varstu að breyta um skúringarefni?" og ég sagði; "Já ég keypti sítrónu Ajax síðast!" og þá sagði hún; "Aha! Þar er skýringin, ég er búin að heyra þetta áður að ef maður skúrar með sítrónu ajax verða gólfin rosa sleip, hvort sem það eru flísar eða parket!"
-Langaði bara svona að segja ykkur þetta, svo þið slasið ykkur ekki!

Niðurstaða rigningarkönnunarinnar (vá langt orð) var mjög jöfn, eigilega sama í öllum liðum! Sem ég skil ekki .. Rigning er Ömurleg ömurleg Ömurleg!

Ég keypti mér brúnkukrem frá Hawaian Tropic um helgina, en núna þori ég ekki að setja það framan í mig, ég er svo geðveikt hrædd um að vera gul eða flekkótt.. eða bara bæði! Hefur einhver prófað þetta og viljiði segja mér hvort þetta sé í lagi?

mánudagur, maí 3

Vá hvað mér finnst mömmur vera miklar hetjur! Ég var að passa Auði Aþenu frænku frá kl. 16 á laugard. til kl. 12 í gær, sem var æðislega gaman, ég elska litlu músina mína. Við fórum í sund, fyrsta skipti sem ég fer ein með barn í sund, það gekk bara mjög vel, nema það að hún vildi bara vera að spóka sig um á bökkunum, Önnu frænku fannst það nú ekkert gaman....
Svo var farið heim að elda og svo að sofa, svo vaknaði mín kl. 23.30 og fékk að koma uppí og þá var veltingur í svona 1-2 tíma en svo steinsofnuðum við og sváfum til 8.45.. þá var það bleyjan og morgunmatur, svo að leika. Svo kúkableyja sem varð til þess að ég skellti henni í bað, froðubað.. hún var nú frekar hrædd við froðuna en svo allt í lagi. Svo kom pabbi hennar kl. 12 og við keyrðum austur á Geysi að sækja afa og ömmu. Svo seinnipartinn var Anna frænka búin á því og sofnaði! Og þetta voru nú bara 20 tímar með henni...... en ég hlakka til næst!
Þess vegna finnst mér allar mömmur (og auðvitað pabbar) vera algjörar hetjur!!