pælingar, nöldur og skemmtilegheit...

miðvikudagur, júní 30

Vitiði hvar ég get fengið einhverjar töff svartar buxur sem kosta ekki milljón og tvær???
Ekki svona fínar.. heldur úr öðruvísi efni.. úff... erfitt að lýsa..

I hate you so bad
you are the "I hate you so bad" happy
bunny. You hate everyone and eveything and your
not ashamed of it.


which happy bunny are you?
brought to you by Quizilla


Ég held að ég sé draumaóð, mig dreymir alltaf svo mikið. Og mig dreymir ótrúlega oft Seljaskóladrauma og td. í nótt, þá var mig að dreyma Rósu á einhverju reunioni og ég var að öfundast útí eitthvað mba próf sem hún var með.. Og alltaf þegar ég er að dreyma eitthvað sem á að gerast heima hjá mér, þá er það heima í Kleifarseli... furðulegt maðurrrr!

Annars var ég bara lasin í nótt, mér var skítkalt, var í langermabol, náttbuxum og þykkum sokkum. Alltaf að vakna og hríslast til og í morgun þá var ég komin með verki í kinnarnar... en maður getur ekki leyft sér að verða veikur hérna í vinnunni, mánaðarmótin á morgun og 2 í fríi og 1 að hætta og enginn sumarstarfsmaður, þannig að ég og stelpan sem er á símanum (sem er með alveg eins verki og ég) við hörkum af okkur og mætum hingað!

Og af því að ég elska vinnuna mína svona mikið, þá er þetta nýja útlit hérna alveg keimlíkt bókhaldsforritinu sem ég vinn með. Ég var bara að fatta það í morgun! múhahahha :)

Ps. prófaðu að setja músarbendilinn yfir grísastelpuna!

þriðjudagur, júní 29

gettu nú snöggvast Snati minn, ég fór eftir tveimur ráðum varðandi vöknunarerfiðleika mína sem ég fékk frá Ásdísi og Önnu B., sem sagt að fara fyrr að sofa og draga ekki fyrir gardínurnar. Ég fór í rúmið kl. 23 og dró bara öðru megin fyrir og ég gat vaknað kl. 6.50 !!! Dreif mig þá niðrí Klassann og brenndi rúmlega 200 kalóríum á 23 mínútum, tók svo 60 magaæfingar.. er ég ekki duggó? betra en ekkert allaveganna.....

Hvað þýðir samt þetta að brenna 200 kalóríum, væri það til einskis að borða 200 kalóríur aukalega þann daginn?

En núna er maður kominn aftur í þessa últra skemmtilegu vinnu þar sem mórallinn er í hæsta gæðaflokki, NOT ! En mikið er gott að vera búinn í ræktinni í dag, svo er stefnan tekin á pallafjör kl. 6.30 í fyrramálið!!

Rosalega er gott að fá sér Burger hrökkbrauð með kotasælu og íslenskum tómötum... mmmMmMMmm

mánudagur, júní 28

Ohh ég var að skoða hvaða hljómsveitir eru á Reading festivalinu í ár, sem er í lok ágúst og MIG LANGAR SVO AÐ FARA! Sjáiði hljómsveitirnar sem eru að troða upp þarna!
Ég auglýsi hér með eftir ferðafélögum ef einhverjir vilja koma með mér á þetta gigg!

Yndisleg helgi er búin, ég fékk að hafa dúlluna mína hana Auði Aþenu alla helgina og það var heldur betur gaman, hún er svo æðisleg, enda náskyld mér! :)

Annars, mikið að gera í vinnunni og verður líklegast í allan júlí, ekki gaman. Hlakka bara til að komast í fríið mitt í ágúst.

Er einhver með góð ráð við því að geta vaknað á réttum tíma á morgnana??? Ég er búin að eiga svo erfitt með að vakna að það er ekki eðlilegt, ég er eitthvað svo orkulaus á morgnana. Einhver önnur ráð en herbalife orkute?? kannski Gingseng?

föstudagur, júní 25

Ég er að reyna að skapa smá viðbrögð hérna, það er eins og allflestir lesendur séu farnir í sumarfrí frá bloggheimum....

Bestu líkamlegu hlutirnir sem mér finnst við fólk:
1. Góður ilmur; bæði góð karlmannslíkamslykt og svo snyrtivörulykt og sjampólykt.
2. Húmor fyrir prumpi og ropi; það er möst að geta hlegið að þessum hlutum, svo lengi sem það kemur ekki eggjalykt eða grillroplykt.
3. Hreinar tennur og góð andremma; hverjum finnst ekki gaman að sjá fallegt bros með fallegum tönnum og ferskan mintuandardrátt?

!!!!!!!!!! VARÚÐ - EKKI FYRIR VIÐVÆMA !!!!!!!!!!!

Ógeðslegustu líkamlegu hlutirnir sem mér finnst við fólk:
1. Hor úr öðrum; ég gubba við tilhugsunina um fólk sem borar í nefið og hvað þá að éta það... Og mér finnst viðbjóðslegt þegar karlmenn halda fyrir aðra nösina og snýta sér útá götu.. ojj ég æli!
2. Bólur og gröftur úr öðrum; hvernig getur sumt fólk kreist bólur á öðru fólki, ég gæti það aldrei!
3. Hráki úr öðrum; viðbjóður, skyrp á götu eða skyrpulykt og kokhljóð þegar fólk er að safna hráki.

fimmtudagur, júní 24

Ég sé á könnununni hér til hliðar að ég er ekki ein í heiminum sem er "nunna", það eru greinilega 5 aðrir lesendur sem fá ekkert heldur! Hvort sem það er eitthvað sem maður kýs eða ekki, skiptir ekki máli, þvílík sóun að eyða bestu árunum í skírlífi. En reyndar hef ég heyrt að konur eru á hátindi kynorkunnar um 35 ára aldurinn, þannig að maður hefur ekki miklar áhyggjur... ENNÞÁ!

Það er 3 lesendur sem gera það bara 2svar í mánuði.. það held ég að sé fjölskyldufólkið, sem á 1-2 börn og hefur hreinlega ekki tíma né orku til að vera að standa í þessu.

Það eru 3 lesendur sem gera það á hverjum degi, það eru örugglega barnlausu pörin!

Svo eru það 2 lesendur sem gera það einu sinni í viku, ætli það sé svona fólk sem gerir það alltaf á sama tíma? Alltaf kl. 23 á fimmtudagskvöldum eða eitthvað svoleiðis.. maður spyr sig?!

Og svo eru þeir sem eru kannski mest normal í þessu, eða hvað? Það eru þeir sem eru að gera það 2.-5. sinnum viku.. en samt, það er kannski ekkert norm hjá fólki, þar sem það voru bara 2 sem svöruðu því!

Og svo er einn kynlífsbrjálæðingur í hópnum sem gerir það oft á dag, það geta samt verið 2 ástæður fyrir því, annaðhvort alveg nýbyrjuð saman eða að karlinn sé kynlífsfíkill!

Ég er allavega mjög fegin að engum finnist kynlíf ógeð, það er gott mál!

hehehe.. en þetta eru nú bara mínar pælingar hérna.. en hvað haldið þið?

þriðjudagur, júní 22

Afhverju í ósköpunum er verið að láta mann hanga inná skrifstofu í svona góðu veðri?? Maður spyr sig! Mig langar að fara í sund núna, ég tók meiri að segja sundfötin með ef það kraftaverk myndi gerast að vinnan myndi gefa mér frí eftir hádegi!

Annars vissi ég eigilega ekki að það væri svona gott veður í gær þegar ég var í vinnunni, þar sem ég sit ekki sólarmegin og er greinilega ekki mikil veðurkella og fékk hálfpartinn sjokk þegar ég labbaði út kl. 16. Það var eins og þegar maður fer útúr flugvélinni í sólarlöndum, svona hiti á móti manni, mér bara dauðbrá.

Eftir vinnu fór ég með foreldrum mínum í smá sumarfíling. Við fórum að borða úti fyrir utan Póstbarinn á Austurvelli, í steikjandi hita: 24°gráður. Ég fékk mér lax, ógeðslega gott. Mæli með þessum stað, pabbi minn þekkir líka eigandann.. nannananan ligga ligga lái. Svo var strákur sem var að þjóna okkur, frekar myndó og ég kannaðist svo við hann. Svo mundi ég allt í einu, þetta var strákur sem söng lag í undankeppninni í Júróvisjón í fyrra, hann er ljóshærður og spilaði hresst lag eftir sjálfan sig á gítar! Og hvað kom til, mér fannst ljóshærður gaur sjarmerandi og líka annar ljóshærður sem ég sá í gær!... hmm kannski er það mitt thing bara... ljóshærðir gaurar! :)

En ég vil ítreka, svona hiti (24° kl. 17) gerist kannski 2svar á lífsleið manns á Íslandi;
VINNUVEITENDUR GEFIÐ OKKUR FRÍ!!!!!!!

mánudagur, júní 21

Hver man ekki eftir þessari skemmtilegu fjölskyldu?


Jú mikið rétt gott fólk, þetta er fjölskyldan í þáttunum Life goes on sem voru sýndir á RÚV á árunum '89-'93 og ef ég man rétt þá voru þeir eftir fréttir á mánudögum. Corky, eða Chris Burke eins og hann hét, er látinn og lést fyrir nokkrum árum. Hann var með down syndrom. Ég man bara hvað þetta voru hugljúfir þættir og að hann var alltaf að metast við Beccu systur sína sem var aðeins yngri en hann og hún mátti samt gera hluti sem hann mátti ekki. Ég man t.d. eftir einni setningu sem hann sagði hálfgrátandi: "Why can Becca drive and not me??" Mig minnir nú samt að þetta hafi verið óttalegt drama. Svo átti Becca kærasta sem hét Tyler og hann var með sítt að aftan.. og eftir það hef ég og bróðir minn og nokkrar vinkonar alltaf kallað sítt að aftan hár, tæler!

Læt fylgja með sér mynd af Corky:

Fín helgi alveg hreint.. þrátt fyrir smá þynnkubömmer í gær.. en var samt helvíti spræk.. Það er bara þannig ef maður liggur heima í rúminu í þynnku þá verður maður helmingi þynnri en ef maður drífur sig á lappir og út og fer að gera eitthvað, þá er maður miklu betri, bara pínku ryðgaður!

Ég fór með Auði frænku í klippingu á laugardaginn, og hún var svo dugleg, smá hrædd fyrst þar sem hún sat alein í stól en ég hélt í hendina á henni og svo fékk hún að drekka úr vatnsspreykönnunni, það var heilmikið sport. Og núna er hún komin með topp og hár og er bara heimsins sætasta mús!

Það er eitt sem ég á erfitt með að þola og það er á Skjá einum þegar þættir eru að byrja, td. Presio Med í gærkv., þá var sýnt úr síðustu þáttum og eitthvað og svo kom kynningarlagið og svo auglýsingar!!! Hvað á það að þýða að hafa auglýsingahlé áður en þátturinn byrjar?!?!

föstudagur, júní 18

Hvernig var þetta eiginlega í den tid þegar gemsar voru ekki til? Núna ef maður svarar engum síma þá er bara eins og himinn og jörð séu að farast. Ég náðist td. ekki í síma í 2 tíma í gær, vegna þess að ég var í ræktinni, og það var bara 5 missed calls allt frá sömu manneskjunni.. "Hvar varstu eigilega?" og fólk byrjað að ímynda sér hvað maður sé að gera, eða eitthvað hafi komið fyrir og allskonar.. ég meina, ég er líka svona.. fæ alveg paranoijur ef viðkomandi svarar ekki í einhvern tíma.. ótrúlegt!

Fyrir utan það að ég hefði ekki boðið í það ef ég hefði verið með gsm þegar ég var unglingur, guð minn góður, ég hefði svo misnotað hann og sms eða MSN (alveg eins og unglingarnir í dag), maður lá nú alveg í heimasímanum þangað til að mamma skipaði manni að hætta.. en þá var allavega ekkert hægt að gera ef það náðist ekki í fólk, þá bara hringdi maður aftur eftir klukkutíma, núna ef það er á tali heima hjá fólki, þá hringir maður í gemsann!

Mér finnst frábært að muna hvernig lífið var fyrir gsm síma, internetið og geisladiska, krakkar undir tvítugu í dag þekkja ekki þá tíð (nú getur maður hljómað eins og amma)! :)

miðvikudagur, júní 16

Alltaf jafnskemmtilegt þegar það er farið að sjást í rótina á hárinu á manni, þegar maður er semsé með litað hár. Ég þarf nauðsynlega að fara að koma mér í litun og klippingu, en klippikonan mín er erlendis og kemur ekki fyrr en 25. júní í vinnuna! Oh my gad! Ég verð orðin algráhærð fyrir þann tíma.. en ég harka það af mér! Svo er alltaf yndisleg tilfinning þegar maður er kominn með splúnkunýtt hár!

Já krakkar mínir það er seytjándi sjúní á mörgún! Hvað skal maður þá gera, taka brauð og skera? Nei ég býst við að það verði familíday, með gasblöðru í annarri og rellu í hinni! Það er víst spáð ágætisveðri, en ég tek því með fyrirvara, þar sem það er alltaf einhver rigning á þessum blessaða degi!

Annars er ég í djammfílingarham, ég var að fatta að það er mánuður síðan síðast, á Eurovision... maður verður að fara að kippa því í lag, verst að ég á engan pening og maður fer aldrei með minna en 5000 kall á djamminu... taxi og bús og dót...... Er einhver annar í djammfíling sem vill bjóða mér í partí með fríu áfengi og driver?? Let me know!
Kveðja, ein bjartsýn!

þriðjudagur, júní 15

Jibbí ég þurfti ekki að fara að vinna uppí búð!!! Er mjög fegin núna, því að ég var að byrja á túr og er að fá þetta skemmtilega mígreni í kaupbæti eins og vanalega!
Ég veit þetta ég hef sagt þetta áður hérna, en afhverju ... whyyyy geta konurnar sem vinna með mér ekki sett klósettrúlluna rétt á klósettrúllustatívið ??
Gæti verið að ég sé með túrpirr?

Ég fór í gærkvöldi á thailenskan stað að borða. Kruai Thai, (Solla leiðréttu mig ef ég skrifa vitlaust) og semsagt geðveikt góður matur og þvílíkt vel útilátið, ég gat ekki nærri því klárað minn skammt og svo var þetta líka á rosa fínu verði! Þetta er þarna á Vesturgötunni, í hvíta húsinu rétt fyrir neðan þar sem Amigos var... stóð svona hálf flugvél útúr veggnum einu sinni! Mæli með þessum stað!
Annars verð ég ekki við í vinnunni minni heldur var ég beðin um að leysa af í MR-búðinni eftir hádegi, er með dáldið í maganum... þar sem ég er ENGIN hestakona, en ég á bara að vera á kassa held ég!
Ég setti inn fleiri myndir í albúmið í morgun ef þið viljið kíkja! :)

mánudagur, júní 14

Ég ætlaði að reyna að setja inn mynd af mér og Auði Aþenu hérna, en það tókst ekki. Þannig að ég bjó bara til albúm og ég á eftir að setja inn fleiri myndir, ég bara búin að haaaaanga dáldið mikið á netinu í vinnunni í dag.. þannig að það verður að bíða...
ohhh núna langar mig í diggí vél!!!

Baldvin Ágústsson vann í forsetakönnuninni minni, ég er svo aldeilis hlessa.. ég veit akkúrat ekkert um þennan mann! Ástþór fékk ekkert stig.... i wonder why?!

Annars er ég eitthvað svo eymdarleg núna, það er eitthvað tómarúm inní mér sem þarf að fylla.. vonandi lagast þetta þegar líður á daginn, ómögulegt að vera svona.

Ég ætla að skella mér í bodyshape eftir vinnu! Svo er það OC í kvöld, fyndið að vera húkt á þessum þætti. Hey ég var að horfá Law and Order SVU í gærkv. og þar var aukaleikari sem lék í Melrose Place, sá sem átti veitingahúsið.. man ekki hvað hann hét!

Rosalega er erfitt að byrja aftur að blogga eftir svona frí, á maður að segja frá öllu sem hefur skeð á meðan eða bara steinhalda kjafti og rokka áfram! hehe...
Þetta var allavega ekki besta frí sem ég hef farið í, þar sem ég fékk mígreniskast á mánudaginn sem varði í 3 daga (vorkenna mér, komaso!!), svo vaknaði ég með kvef og slappleika á fimmtudaginn, fór samt í bústað með Einar bró og fjölsk. fram á laugardag, það var fínt. Annars bara hangs og chill...

Svo er ég að skrifast á við þrítugan barnlausan smið sem ég hitti á Prívatinu, hann hljómar sem hinn besti maður.. nema að ég er ekki búin að sjá mynd af honum, vona að hann sé ekki einhver gígalúði!
Skrifa kannski meir seinna í dag! :)

föstudagur, júní 4

Alltaf þegar ég kveiki á íslensku rásinni fm 94.3, þá er Bjartmar að syngja þetta:
"Hún var fimmtán ára á föstu, sextán ára í sambúð, sautján ára fríkaði hún út, hún var átján ára lamin, nítján ára skilin, tvítug kvænt og komin í kút. Já rómantíkin gæskur, róóómantíkin getur verið sjúúúúk".
Ahhhhhh gott að losa þetta úr systeminu!

Annars er ég að springa úr stolti af sjálfri mér, ég, já ég sagði ÉG fór í Pallafjör kl. 6:30 í morgun!!! Lét klukkuna hringja kl. 6 og var ekki á því að fara á lappir, þá byrjuðu samningaviðræðurnar í hausnum á mér, svefnpúkinn á öxlinni sagði; "farðu bara aftur inní rúm og snúsaðu í 10 mín" (það þýðir að snúsa í 1 og hálfan tíma) en vakniengillinn sagði; "neineinei, farðu bara framúr, þetta gengur ekki!". Svo fóru þeir í smá slag meðan ég sat hálfsofandi á klósettinu og losaði mig við morgunpissið. Og ég var hálfsofandi þegar ég tannburstaði mig og klæddi mig (fór samt ekki í neitt á röngunni) og fór útí bíl og bara AF STAÐ! Og þar með var ég lögð af stað og allt í gúddí fíling!
Fyndið í tímanum, þá vorum við að gera hnébeygjur með stöng á öxlunum og kennarinn sagði okkur að kreista rassinn og allt inní okkur (grindarbotninn) og svo sagði hún alltaf; "og skvíííiz og skvíííz", mér fannst það allavega fyndið. Mér finnst nefnilega svona kvensur sem segja alltaf Zkvíz með svona ezzzzzi fyndnar! Svona pæju ess!

En vitiði hvað, það er föstudagur!!!!!!!! weeeeeeeee og ég er að fara í frí í viku (eins og ég er búin að nefna hérna kannski nokkrum sinnum). Og mamma og Einar bró & co, komu heim frá Orlando í morgun, ég hlakka svo til að hitta þau eftir vinnu, sérstaklega dúlluna mína!

fimmtudagur, júní 3

Í dag ætla ég að ræða ákvörðun Ólafs Grísmunds um þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlafrumvarpið góða... nei dííííjók, veit voða lítið um þetta mál! En ég hef það á tilfinningunni að hann hafi tekið þessa ákvörðun til að snapa sér inn prik fyrir forsetakosningarnar... en þetta er bara mín skoðun! Eins ópólítísk og ég er!

Ég er með nögunarveiki, ég er alltaf að naga húðina í kringum neglurnar og ég er orðin frekar þreytt á því, mig langar að hætta þessu en svo áður en ég veit af er ég byrjuð! Kann einhver ráð við þessu? Á ég að maka einhverju ógeði á puttana á mér til að ég get ekki farið með munninn í þetta?

Annars er ég bara að bíða eftir sumarfríinu mínu í næstu viku, ohh það verður svo ljúft.. en ég veit að þessi vika á eftir að líða svo hratt.. en svo fer ég sko aftur í 3-4 vikur í ágúst.. það verður brill!

Með hverju er best að þrífa burstað stál?

miðvikudagur, júní 2

Brad er með yfirburðarsigur í spurningunni minni! Ég er nú alveg sátt við það, enda er ég ennþá að slefa og að dreyma blauta drauma með honum í aðalhlutverki eftir að ég fór á Troy um daginn.

En ég fór á Day after tomorrow með pabba á föstudaginn, ég get ekki sagt annað en að ég hafi orðið fyrir vonbrigðum með þá mynd. Ég var búin að bíða eftir henni í 2 mánuði, mér fannst reyndar veðurkonseptið og allt það cool, en væmnari og klígjulegri söguþráð hef ég varla vitað... úúúúfffff..... nenni ekki einu sinni að fara útí það! En þeir sem eru viðkvæmir fyrir amerískri vellu.. ekki fara á hana! Bíðið frekar eftir að hún kemur sem jólamyndin á RÚV næst!

Ég fór með pabba á Rossopomodoro að borða í gærkvöldi, rosalega góður matur maður! Mæli hiklaust með þessum stað, ég fékk mér pizzu með allskyns ostum (ég er líka ostalover dauðans) og svo var sett hráskinka og klettasalat oná þegar hún kom útúr ofninum (þetta er sko eldbakað) og þetta er alls ekki dýr staður, við vorum með sitthvorn réttinn, 2 gos og 2 kaffi og þetta kostaði 3.900 kall.. það er ekki mikið, miðað við hvað þetta var gott! Svo er líka svona stemmari þarna inni, og flott hannað pleis!

Já það eru pabbadagar, ef þið skilduð hafa tekið eftir því! Mamma og Einar bróðir og Lilja og Auður Aþena eru í útlöndum nebblega og ég og pabbi eru voðalega vængbrotin.. þannig að við erum búin að skemmta okkur saman hérna á Íslandi í góða og vonda veðrinu!

þriðjudagur, júní 1

Helgin var frábær og æðisleg, get ekki sagt annað! Ég gerði ótrúlega margt, fór í bíó, eyddi monní, fór oft útað borða (eldaði semsé ekkert), ræktin, sund, Borgarnes, grillpartí, fékk 2 geðveikt flottar buxur gefins, tók hreingerningaræði heima og ýmislegt fleira!
Svo núna vinn ég þessa 4 daga og er þá komin í 1 viku sumarfrí! weeee næs!
Annars mikið að gera í dag, mánaðarmót, hef ekki tíma til að skrifa meira!