pælingar, nöldur og skemmtilegheit...

föstudagur, júlí 30

Er að spá í að kaupa mér gítar á 2500 kall í Hagkaup eftir vinnu... prófa að byrja að glamra sjálf.. mig langar á gítarnámskeið!

Ég var í bíltúr með Sigrúnu og fjölskyldunni hennar í Grafarholtinu. Svo þurftu þau að skreppa eitthvað og ég fékk að bíða þarna og ákvað að skoða eina blokk þarna. Fer inní hana og uppá 150. hæð en þegar ég kem þangað var eitthvað ógeð, þannig að ég fór einni hæð neðar og þar var líka ógeð og svo er ég að reyna að komast alla leið niður en stoppa alltaf og kemst ekki burt. Svo allt í einu er ég inní íbúð og Fjölnir tattoo ætlar að drepa mig.. hann reynir að kyrkja mig en ég öskra "láttu mig vera ég þekki mömmu þína!!!" og þá sleppti hann mér og ég náði að hlaupa útúr þessari ógeðslegu blokk... svo stend ég á planinu og sé Fjölni með hárið flaksandi og í hlýrabolnum fara útá svalir og henda sér fram af......

Ég vaknaði í svitabaði, bolurinn blautur á bakinu og lakið þvalt... ógeðsleg martröð, ég lá líka á bakinu, ég fæ alltaf (eða oft) martraðir þegar ég sef á bakinu!

Annars verð ég að monta mig af einu, mér tókst að fara í pallafjör mán, mið og fös (í morgun) kl. 6.30!!!!!! Weeeeee :)
Hlakka til að vera í 3 daga helgarfríi, svo vinna 4 daga og svo 4 vikur frí! jibbí

fimmtudagur, júlí 29

Mikið verður gott að lúra í sínu eigins rúmi um helgina..... þegar hinir verða fullir og blautir og þunnir og ógeðslegir í tjöldum! múhahahhaha :)
Er samt hrædd um að ég verði lonlí blú görl þar sem flestir sem maður þekkir eru útúr bænum... en þá er það bara dvd og kúr! Ætla samt á djammið á lau.. veit ekki hvort ég eigi að klína mér enn eina ferðina með Svölu og hennar vinum, en þau ætla á Innipúkann 2004 í Iðnó... eða hvort maður eigi bara að fara á plein djamm eða bara ekki...... eða eða eða eða.. ég læt þetta bara ráðast!

Annars lenti ég á ágætis spjalli við eina stelpu í gærkvöldi, sem er líka einhleyp eins og ég og við gátum deilt saman reynslum okkar.. mjög gaman. Og merkilegt hvað fólk hefur miklar áhyggjur af manni, hún var meira að segja spurð mjög alvarlega hvort hún væri lesbía... ég meina kommon!
Svo líka þessi spurning "afhverju áttu ekki mann, ég bara skil það ekki.. þú sem ert svona og svona???", hvernig á maður að geta svarað því... "hmm, kannski af því ég breytist í geimveru þegar ég sef!!!".

Ég slysaðist til að horfá brúðkaupsþáttinn í gær og þá fékk ég kærastaþráhyggju, þetta var meiri að segja strákur sem ég var skotin í þegar ég var í FB og hann var geðveikt næs og góður við konuna sína. Elín spurði með sinni einstaklegu væmnu röddu "Og afhverju ertu að giftast henni?" og hann svaraði; "hún er bara svo hlý og góð, og skemmtileg og yndisleg og hún er bara stelpan mín, besta sem komið hefur fyrir mig í lífinu" og ég dó og bráðnaði og öskraði: "AFHVERJU ERTU EKKI MAÐURINN MINN????!! WHYYYY?"

Jæja best að hætta þessu rövli!

miðvikudagur, júlí 28

Fyrirgefið en, ég fíla nú alveg þungarokk, en Mínus finnst mér horror. Ég er einmitt að hlustá Rás 2 í gegnum netið og ég er svona að hlusta og ekki að hlusta, en áðan voru einhver óhljóð farin að bögga mig og ég lækkaði, þá var sagt að þetta væri Mínus... ég er kannski ekki þungarokkspía eftir allt.. allavega ekki heavy metal!

Áðan fórum við tvær hérna úr vinnunni í Krengluna á Serranos, sem er mexikanskur skyndistaður fyrir þá sem ekki vita, og allt í lagi. Svo heyri ég í konukind sem labbar framhjá segja við son sinn "nei við skulum ekki fá okkur svona ítalskt!!" og var að meina burritos... ítalskt?? Misskilningur lífs hennar og ekki leiðrétti ég hana múhahhaha!

Svo var gellan sem afgreiddi okkur að gera báðar burriturnar (rétt beygt?!) í einu og þær voru aðeins mismunandi, svo pakkar hún þeim inn og skellir þeim á afgreiðsluborðið og þær voru alveg eins í álpappír. Og ég spurði; "hvor er hvað?" og þá sagði hún með svona idontgiveflyingfokk,ijustworkhere-tón; "guð ég bara man það ekki, jú þessi var þín, nei annars... " og við bara OK OK, því að við vorum að flýta okkur, því að 30 mín. matartími flýgur eins og fluga í helvíti þegar maður þarf að fara eitthvað. Svo komum við hingað niðrettir aftur og svo þegar ég opna minn, þá blasir við pintobaun sem ég vildi EKKI á minn og fór fram, neinei þá var Ranný búin að opna MINN og byrjuð á honum!!!!!!! ég er geðveikt brjáluð! Djók, ég át bara hennar með baununum og hann var bara helvíti fínn, fæ örugglega prump í kaupbæti gæti ég trúað!! weeee :)

þriðjudagur, júlí 27

Saga úr raunveruleikanum?!?
Ég er 18 ára gömul, foreldrar mínir og ég og litla systir búum í stóru flottu húsi á Arnarnesinu. Ég á kærasta sem er jafngamall mér, hann er rosa sætur og er líka ríkur eins og ég. En svo flytur strákur í næsta hús, vandræðagemlingur úr Rimahverfinu sem heitir Rúnki. Ríka konan í næsta húsi og lögfræðingurinn maðurinn hennar tóku hann inná sig, svo hann þyrfti ekki að fara í fangelsi. Sonur þeirra tekur því mjög vel og Rúnki fær meiri að segja að byrja í skólanum okkar.
Ég hitti Rúnka útá bílaplani um daginn þegar ég var að bíða eftir að kærastinn minn sótti mig og það bara gerðist eitthvað á milli okkar Rúnka, það var ekki aftur snúið. Kærastinn minn og Rúnka kemur ekki vel saman, þeir eru alltaf í slag. Þannig að ég dömpaði bara kærastanum fyrir Rúnka, við erum geðveikt happy.
En þá er pabbi handtekinn fyrir að stela peningum af kúnnum sínum. Mamma verður brjáluð og skilur við pabba. Ég þoli ekki mömmu fyrir það, þannig að ég tek of stóran skammt af pillum og dey næstum því. Þá vildi mamma senda mig á geðveikrahæli, en Rúnki fékk hana ofan af því. En ég fer samt til sálfræðings og ég hitti hann Óla sem er líka geðveikur eins og ég á biðstofunni, ég vorkenni honum og byrja að vera vinkona hans. Rúnki er ekki að fíla það, sérstaklega ekki þegar Óli byrjar í sama skóla og við, ég bara skil ekki afhverju Rúnka kærastinn minn getur ekki fílað Óla, þótt ég sé alltaf að taka upp hanskann fyrir Óla greyið. En svo snappaði Óli greyið og var sendur á hæli, þannig að núna erum við Rúnki geðveikt happy aftur.
Svo þurfa Rúnki og fyrrverandi kærastinn minn að vinna verkefni saman í skólanum og þá komast þeir að því að fyrrverandi tengdapabbi minn er hommi! Þá verður fyrrverandi voða leiður og verður fyrir áreiti í skólanum, þannig að hann hætti að vera töffari og er núna vinur okkar.
Svo byrjar mamma að deita pabba konu nágrannans og þau ætla að gifta sig og svo fer pabbi að deita dóttur kærasta mömmu minnar... ég bara skil þetta ekki... ég á svo bágt.
Og svo kom gömul kærasta hans Rúnka úr Rimahverfinu allt í einu að vinna á kaffihúsi hérna á Arnarnesinu og Rúnki er alltaf að verja hana af því að Eddi úr Rimó kærastinn hennar er geðveikt vondur við hana. Ég var fyrst geðveikt abbó út í hana, en svo bara skildi ég að Rúnki og hún eru bara geðveikt góðir vinir og núna ætla ég líka að vera vinkona hennar. Og hún var að komast að því að hún er ólétt og hún sagði mér það fyrst. Ég samgladdist henni og fékk hana til að hugsa um sig og barnið, þangað til í gærkvöldi því að þá sagði hún mér að hún er ekki viss hver á barnið, Eddi eða .. Rúnki!
Nú er ég brjáluð, hvað gerist næst.. kemur bara allt fyrir mig, ég spyr?


Þetta er ég!


mánudagur, júlí 26

Hver þarf á alvöru tengdamömmu að halda þegar hann á eina tannhvassa tengdamömmu eins og ég?

Fyndin svona almenn para/hjónaþróun. Fyrst þegar fólk er að byrja saman þorir það varla að ropa, svo kemur fyrsta prumpið (kannski eftir mánuð) voða neyðarlegt og þá er ballið byrjað; þá fara bæði að prumpa hægri vinstri og ropa eins og herforingjar. Svo hætta þau að loka klósetthurðinni þegar þau fara, nema þegar þau eru að kúka en svo eftir smá tíma verður það líka voða frjálst.
Svo eins og ég sá í gær, hjón um sextugt á ljósum bakvið mig, hún að brjálað bora í eyrað á sér og hann að bora í nefið, en bæði horfðu beint fram eins og ekkert hefði ískorist, og maður veit ekki hvort þau hafi kannski verið að prumpa í leiðinni.. allt alveg orðalaust..

Jæja frekar lonely helgi er liðin, fyrir utan föstudagskvöldið, þar sem ég lét slag standa og fór í teitið til Önnu K. Það var helvíti fínt og svo var haldið á Sirkus og einhvern veginn tekst mér alltaf að verða frekar mikið drukkin á þeim stað! Og mér finnst alltaf eins og helmingurinn af tímanum þar fari í að finna sæti og/eða borð.. þetta er nú líka ein af minnstu búllum Íslands.. en allavega mér tókst að kveikja á toppnum á mér.. skildi ekkert hvað var á hárinu á mér þegar ég fór fram úr á laugardaginn.. hélt þetta væri flasa sem lægi utan á hárinu.. but noooo þetta voru sviðnir endar.. frekar ógó!

Ég dreif mig samt á lappir og fór á Makkann í Kringlunni (maður hverfur meira í fjöldann þar, meika ekki að sitja ein á makkanum í faxafeni eða eitthvað) og fékk mér tjísara. Þá sat þar ská móti mér stúlka sem er vangefin (annars kann ég ekki að vita hvað er að fólki, held hún hafi verið vangefin og þetta er ekki sagt í gríni hérna). Og hún var ein og var alltaf að fylgjast með mér og fékk sér sopa af kókinu sínu þegar ég fékk mér sopa og svo var hún alltaf að segja eitthvað við sjálfa sig og hlæja, svo missti ég bíllykilinn í gólfið þá benti hún mér á hann æst og ég tók hann upp og stóð svo upp, þá stóð hún líka upp.. ég var farin að halda að hún myndi elta mig en hún gerði það nú ekkert blessunin! Þá skaust ég útúr krenglunni og fór að keyra.. (þetta er greinilega frásögn í smáatriðum), nema hvað ég tók upp símann og hringdi í hana Ragnheiði vinkonu mína og hún var til í að gera eitthvað, þannig að við kíktum í sund!
Svo sofnaði ég um 6 leytið til kl tíu og þá kíkti ég útá leigu og náði mér í Stuck on You, sem er grínmynd um síamstvíbura (Matt Damon og Greg Kinear), hún var ágæt, ekkert spes.

Svo í gær svaf ég til hádegis, fór svo að væflast ein í Limalind að kaupa afmælisgjöf og fór svo heim og hékk og hékk, tók svo Somethings gotta give (Jack Nicholson og Diane Keaon) og hún er æði, æðisleg rómantísk gamanmynd. Og já við getum sagt að ég er ekki eins örvæntingarfull að ná mér í karl eftir að ég sá hana, því að þau voru um sextugt og lifðu frábæru kynlífi og létu alveg eins og tvítug!

En svona heildarniðurstaða helgarinnar, frekar lonely gella ég, ein að hanga, sérstaklega í gær og í gærkvöldi var orðið hálfdimmt um tíuleytið.. sem segir mér að sumarið er að verða búið! og ég sem er að fara í sumarfrí eftir 2 vikur!

föstudagur, júlí 23

Já þegar ég var pínulítill patti var mamma vön að rugga mér í vöggu, í þeim gömlu kartöflugörðunum heima!!!!

Árna Johnsen í sjónvarpinu í gærkvöldi, hann á víst að stjórna brekkusöngnum í ár.. það er ekki laust við að manni langi á Þjóðhátíð.. svo er líka Jónsi í Svörtum fötum að spila.. namm!
En ég held ég tími því ekki, þetta er svo dýrt dæmi, kostar að koma sér til Eyja, inná svæðið, matur og vín ... úff!! Svo myndi ég helst ekki nenna að vera í tjaldi, vildi bara vera á hóteli eða gistiheimili og eitthvað kostar það!

Mig langar líka til útlanda, m&p eru að fara til Portúgal í 2 vikur í næstu viku og mig langar með, mig langar að flatmaga á strönd allan daginn og borða á veitingastöðum á kvöldin, reyndar væri kannski ekkert fjör að fara með m&p í svoleiðis ferð, því að þau nenna ekki að hanga í sólbaði og það er nú skemmtilegra að hafa félagsskap á ströndinni!

Helgin er að byrja og ég er rosa mikið að velta því fyrir mér hvort ég eigi að fara á djammið í kvöld (Anna Katrín, takk fyrir boðið) eða hvort ég eigi að vera skynsöm, spara pening og vera fersk á morgun... samt maður verður líka sýna sig og sjá aðra til að maður hitti eitthvað fólk.. stráka... ég er aldrei neinsstaðar þar sem eru strákar... þannig að það er kannski engin furða að ég eigi ekki kærasta... vangaveltur maðurrr!!

fimmtudagur, júlí 22

Þessi vika er búin að líða ofurfljótt, það er alveg magnað! Mikið að gera alltaf, já líf mitt hefur breyst heilmikið síðustu mánuði. Í vetur gerði ég lítið annað en að vinna, sofa og borða, en núna er ég alltaf að gera eitthvað skemmtilegt, það er svona þegar maður er kominn á kagga sko! Þá er maður ekki svona heftur.. glætan að maður nenni að vera að skutlast eitthvað fram og tilbaka í strætó!

Svo dó ég úr hlátri þegar ég sá þessa mynd af mér og Hrafni.... eitthvað furðulegt andlitið á mér..... hahahaha!

En annars eru semsé fleiri myndir úr ferðalaginu hérna í albúminu hennar Svölu.

Ég er alveg komin með grænar á vinnunni minni, þannig að ef einhver þekkir einhvern sem veit um góða skrifstofu/bókhaldsvinnu með góðum launum og skemmtilegum starfsanda, endilega látið mig vita!
Ég væri helst til í að fá sent umslag með atvinnutilboði sem hljómar eins og ég var að telja upp, ég nenni ekki að fara í dragt og sleikja upp bossa í viðtölum útum allan bæ... en það endar örugglega með því!
Ég er núna búin að vera hérna í rúm 3 ár (sem er met á sama vinnustað í fullu starfi) og ég er hrædd um að ég fari að skjóta rótum og verði helmygluð eins og hinir sem eru búnir að vinna hérna lengi......
SOMEBODY SAVE ME!!

þriðjudagur, júlí 20

Það eru komnar nokkrar myndir úr ferðalaginu á veraldarvefinn fólkenz, skoðið á blogginu hennar Valdísar!

...já ég gleymdi semsé að minnast á að það var líka fólk í ferðalaginu sem á maka en það voru bara 2 af 9 sem eiga maka.
Ég - makalaus
Svala - makalaus
Anna Katrín - makalaus
Valdís - makaföst
Hrafn - makalaus
Ólöf - makalaus
Ingunn - makalaus
Álfheiður - makaföst
Sigurbjörg - makalaus

Jæja kominn tími til að plögga smá hérna!
Ég fór í yndislegt ferðalag um helgina, sem byrjaði á því að hann Hrafn (ég er ekki hrædd samt við hann.....) sótti mig og við brunuðum uppí Borgó að sækja Svölu þar og fórum svo á veitingastaðinn Kiljan sem er við hliðina á Hyrnunni, mér fannst nú þjónustan þar og frekar dræm og mæli ekki með þessum stað beint.. td. voru 2 sem pöntuðu núðlur og svo kom þjónninn (sem var enskumælandi, þoli ekki að þurfa að panta á ensku á Íslandi...) og sagði að það væri bara til einn skammtur af núðlum og þær þyrftu þá að slást um hann.. mér fannst það nú frekar haddló!
En allavega svo brunuðum við útá Snæfellsnesið, nánar tiltekið að Arnastapa. Tjölduðum, tjilluðum og fórum að sofa. Svo vöknuðum við um 10 leytið í glampandi sól og þá bjuggum við okkur undir göngu. Og lögðum af stað kl. 11.30 frá Sönghelli og löbbuðum til Ólafsvíkur (5 tímar upp og niður fjall)og enduðum á að skella okkur í sund. Og frekar mikil vonbrigði þegar við komumst að því að þetta var innilaug! En engu að síður sturtur til að skola skítinn af sér.
Valdís var þá með okkur og á bíl, þannig að hún selflutti okkur aftur á tjaldsstæðið. Þá fórum við að grilla og drekka smá bjór og fínerí með. Sungum svo og spiluðum á gítar og má til gamans geta að ég tók eitt frumsamið lag á gítarinn með tilheyrandi söng!
Morguninn eftir vaknaði ég í svitabaði í tjaldinu, hálfmygluð með hausverk og alveg í spreng. Fengum okkur morgunmat og fórum svo að Hellnum og fengum okkur svalandi drykki þar á kaffihúsi. Svo lágum við eitthvað í sólinni og ég var komin heim kl. 18.
Þetta var alveg frábær ferð og ég kynntist 3 nýjum fínum stelpum og fyndið var að við vorum þarna 7 eða 8 stykki öll einhleyp og jafngömul mér.. það gerist nú ekki oft.. en bara gaman að hitta fólk sem er í sömu stöðu og maður sjálfur!
Náði smá lit í framan og á handleggina, það var algjör bónus!

föstudagur, júlí 16

Já ég er mjög reið yfir að vera með lítið typpi!
 

 
Annars hef ég eigilega ekkert að segja, hlakka bara til að fara í útilegu í kvöööld!
Góða helgi fólkenz!
 

fimmtudagur, júlí 15

Var að spekúlera.... þegar stelpur og konur segja; "hann er geðveikt góður að kyssa" og svo um þá sem kunna það ekki "ojj hann var geðveikt ömurlegur að kyssa".
.. ætli þeir sem kunni ekki að kyssa vel eignist aldrei konur eða ætli það séu einhverjar konur sem láta sig hafa það og eiga kærasta/menn sem kyssa eins og stífar hrærivélar??


Meika ekki að skrifa meira um sparnaðarátakið.... ég borða alltof oft úti og mér finnst óþarfi að allir viti það! hehehe :)

Ekki veit ég hvað er í gangi hjá mér núna né í draumalandinu mínu heldur.. en allavega þá hitti ég Ingu Rún, sem var alltaf með mér í bekk í Seljaskóla, í sundi í gær og Gísla í fyrradag... Svo dreymdi mig í nótt að ég væri í partí hjá Eddu Gunnu og þar vorum ég og Svala og Magga Linda en svo fór ég á ball á Loftleiðum, þá kom Anna B. óvænt frá Hollandi og var að djamma með Möggu og Haffa í mínum bekk.... furðulegur andskoti!
... en fyndið að vera að rekast á gamla bekkjarfélaga 2 daga í röð, ég sem hitti aldrei neinn, ég held ég hafi td. aldrei rekist á AuðiRósu td. á Laugaveginum í milljón ár!

Ég er að fara í útilegu um helgina!! weeeee gaman gaman, maður verður nú að fara í amk. eina á ári.. Svala og vinir hennar úr MR buðu mér að koma með á Arnarstapa.. ohh ég hlakka heví til.. þetta verður sko fjör, nú er bara að redda sér svefnpoka og pumpu!

miðvikudagur, júlí 14

"Ég vel hiklaust ólívuolíu, ástæðan er einföld, mér þykir hún góð og svo benda rannsóknir til að hún sé holl!" - Svo hellir hún fullt af olíu yfir salatið... ooojjj

Ein af aðalástæðunum fyrir því að ég nenni yfirleitt ekki að borða epli og appelsínur oft, er sú að eplahýðið festist alltaf á milli tannanna á mér og ég nenni ekki að afhýða það og ég þoli ekki fyrstu stunguna með nöglinni í appelsínubörkinn..... djöfull er maður klikk!

Annars er ég að ljúka við einn hollasta morgunmat sem ég hefi borðað en það er skyr.is vanillu, banani og appelsína og vatnsglas!!

Annars hitti ég gamlan bekkjarfélaga úr Seljaskóla í gær, Gísla Steinar, og ég ætlaði varla að þekkja hann og við áttum eitthvað skrítið misskilningasamtal að ég held.. furðulegt.. eins og það var nú alltaf mikill húmor í bekknum í den að ég og Gísli værum kærustupar..... kannski þess vegna sem þetta var svona skrítið samtal! En ég hitti hann kannski aftur þar sem hann er víst að æfa í Laugum!

þriðjudagur, júlí 13

Slap me around and call me Suzie en hvað er með fólk sem getur ekki sagt orð rétt?!

Fólk sem segir túmatur í staðinn fyrir tómatur og skenka í staðinn fyrir skinku og pitsa í staðinn fyrir pizza og kjet í staðinn fyrir kjöt og smér í staðinn fyrir smjör og könguló í staðinn fyrir kónguló og fólk sem ber Y fram eins og Uj ?!?!

Sem minnir mig á það þegar ég var á Subway á sunnudagskvöldið. Þá var kona (frekar vel í holdum) að kaupa fyrir sig og kallinn og þeim hefur örugglega fundist þau vera að borða hollt, þar sem þau voru á Subway.. en hún pantaði 2 stóra bræðinga í hvítu brauði og extra beikon og extra ost og svo extra majónes.... og hún sagði einmitt TÚMATUR !!!
(ok, ég er kannski vond og fordómafull.... but so what!)

Sparnaðarátak - dagur 8:
Bílaþvottur það var möst, hefði reyndar getið þrifið bílinn sjálf.....en hann var orðinn mjög skítugur! 1.430 kr.
Leysigeisli - til að drepa kóngulær, sérstaklega eina kónguló sem var búin að hertaka svefnherb.gluggann og hamlaði að ég gæti haft hann opinn, ég kom að henni um daginn, þar sem hún var á leiðinni inn.. oh my gad! 339 kr.
Kústhaus - þar sem ég fékk æði í leiðinni og reif gervigrasið af svölunum (loxins, búin að ætla að gera það í 2 ár) og þurfti að sópa rykið undan teppinu! 739 kr.
Samtals: 2.508 kr.
Samtals eyðsla í sparnaðarátaki: 11.938 kr.

mánudagur, júlí 12

Að það skuli vera eitt hár á höfði mínu er magnaður andskoti.. ég er svona eins og dýrin held ég, tek svona hárlostímabil og núna er eitt í gangi.. eftir hvern hárþvott detta af mér örugglega ca. 200 hár.. sem er BARA niðurdrepandi. Því að mín mesta martröð er að vera eins og ISG fyrrverandi borgarstjóri.....

Helgin var ótrúlega fljót að líða, og bara alveg ágæt. Hafði litlu músina mína yfir laugardagsnóttina og sú er að vera erfiðari og erfiðari (fyrir ykkur sem vitið ekki hver músin er smellið hérna) hún vildi sko ekki fara að sofa á laugardagskvöldið, öskraði eins og það væri verið að pína hana. Ég sem ætlaði að hafa það huggó og horfá Lost in Translation...neinei ég gat ekki verið svona vond og látið hana bara öskra úr sér lungun og þar sem það er nokkuð hljóðbært í húsinu, hvað hefðu grannarnir eigilega haldið! hehehe! Þannig að ég lagðist með henni í rúmið mitt og viti menn, auðvitað steinsofnuðum við báðar!
Í gærmorgun fórum við svo í heimsókn til Hildar Bjarkar og Jakobs Freys.. en það eru bara 3 mánuðir á milli þeirra Auðar og Jakobs.. og ég vildi aðeins monta mig af litlu frænku og líka hitta Jakob, sem ég hafði ekki séð síðan hann var 3ja vikna (og skammast mín fyrir framtaksleysið)... en það var semsé heví fínt og stórfurðulegt fyrir mig að fara í heimsókn kl. 10 á sunnudagsmorgni!! En svo fórum við í læri til m&p og svo kláraði ég myndina og hún er heví góð, mæli með henni.. mjög falleg og sæt mynd.

Sparnaðurinn var í lágmarki miðað við helgi, en samt taldi þetta.. ótrúlega fljótt að koma.

Sparnaðarátak - dagur 5:
Salat og pepsi max í hádegi: 800 kr.
Bíó - Metallica: 800 kr.
Sólgleraugu: 1200 kr.
Samtals: 2800 kr.

Sparnaðarátak - dagur 6:
KFC með Lilju og Auði: 800 kr.
DVD (Lost in Translation): 450 kr.
Samtals: 1250 kr.

Sparnaðarátak - dagur 7:
Morgunmatur, bakarí: 350 kr.
Kvöldmatur, Subway: 440 kr.
Samtals: 790 kr.

Samtals eyðsla í sparnaðarátakinu: 9.425 kr.

föstudagur, júlí 9

Ég er búin að vera að horfá gamla Friends þætti undanfarið og er alltaf bara ein heima að glápa þetta 2-3 þætti í einu.. og ég er nú ekki mikið að hlæja upphátt svosem.. en í gærkvöldi dó ég úr hlátri.. það var í 1. eða 2. þætti í 2.seríu, þegar Ross eignast kærustu sem heitir Julie sem hann kynntist í Kína, og kom með heim þegar Rachel ætlar að fara að játa honum ást sína og sem sé þá er Rachel ekki að fíla hana. En svo biður Julie Monicu um að koma með sér í búðarráp og Monica segir já, fyrst hún er kærasta bróður hennar en þorir ekki að segja Rachel frá því. Svo daginn eftir búðarrápið í Bloomingdales hringir Julie heim í Monicu og Monica svarar í símann "Hi Jul.. hi Jew (sem var þýtt sem hæ júði)" Og svo heldur hún áfram.. "yes jew.." og svo þegar hún er búin að tala í símann þá spyr Rachel "ehh did u say hi jew?" og þá sagði Mon "Yes this was my friend Eddie Moskowitz.. he likes to be called Jew, it sthrengtenes his religion"!
Og ég dó úr hlátri í sófanum.... u must see this show!!


Vá hvað ég er eitthvað trøtt, það er ekki eðlilegt! Fór að sofa samt kl. 22.30 í gærkvöldi, svo ég gæti vaknað fersk kl. 6 ....but no - snúsaði til 7.10 og svaf svo til 7.45 ..uffa meg!

Annars var ég að rifja það upp hérna áðan, þar sem ég fékk kjöt í karrí hjá m&p í gærkvöldi (sem var btw ógeðslega gott, elska heimilismat núna), já að semsagt hvað maður var alltaf brjálaður þegar það var eitthvað í matinn sem manni langaði ekki í.

Mamma greyið, þurfti að elda fyrir mig og Einar bróðir í 14 ár alltaf á mán-fim kvöldum, því að pabbi var alltaf að vinna á kvöldin (fyrir þá sem vita ekki, er pabbi kokkur og mamma mín drullusokkur...mjehehehehe). Og mömmu finnst nú ekkert sérstaklega gaman að elda (og ég fékk það í arf) og alltaf þegar hún kallaði "krakkar, maaaaaatur", sem var eigilega alltaf þegar maður var að horfá Santa Barbara eða Nágranna, þá öskraði maður fúll á móti "jáááá" með frekjutón, kom svo 5 mínútum seinna niður og þá voru kannski kjötfarsbollur með brúnni sósu og rauðkáli og þá byrjaði maður: "ojjjj, það er aaaalltaf kjötbollur!!" og mamma alveg brjáluð eða sár...
Sko ef börnin mín verða svona... þá verð ég alveg brjál.. Fyrirgefðu mamma mín, ef þú ert að lesa...

Sparnaðarátak - dagur 4:
Fór í mat til m&p..
Eyðsla: 0 kr. !!!!!!! Yes ég gat það!
Samtals eyðsla í átaki: 4.585 kr.

fimmtudagur, júlí 8

Ég veit að ég mun seint teljast vera normöl mannsveskja en í gærkvöldi, þá fór ég alveg með það.
Ég nebblega skaust aaaaaðeins í IKEA eftir vinnu af því að ég þurfti bráðnauðsynlega að kaupa mér felligardínur (eða fellagardínur eins og ég kýs að kalla þetta). Og jújú ég fann þessar fínu ódýru gardínur, fyrir stofugluggana semsé.
Svo kíkti ég aðeins til Sollu litlu í vinnuna og skutlaði henni í bæinn, (er ég ekki góð?) ég veit líka manna best hvað það er gaman að fá far, þegar maður er bíllaus. Tja þá skellti ég mér í mat til Einars og mággunnar og litlu múslunnar. Svo skruppu hjónin í bíó og ég passaði.
Ég missti mig aðeins í að taka til í eldhúsinu hjá þeim, er nefnilega "stundum" með nett tiltektaræði (eins og kemur í ljós bráðum hérna) og þau komu svo heim um hálf ellefu. Þá fór ég uppí búð að þrífa til að vera tólf. Þá loksins komst ég heim og ég bara GAT EKKI beðið með að setja upp nýju gardínurnar. Enda lítið mál að mæla og setja upp króka.. ég er líka svo klár kella!

En þegar ég var búin að setja þær upp og stofan stækkaði um helming (og ég er ekki að grínast) þá gat ég ekki hætt. Heldur sneri ég öllu við í stofunni, reif allt úr hillunum og tók efri hillurnar af hillusamstæðunni og bjó til skenk. Og færði til.. og ég gat ekki hætt, ég bara meika ekki að fara að sofa fyrr en allt er orðið eins og ég vil.. þannig að ég var til kl. 2 að þessu.. þurfti samt að bíta í það súra epli að geta ekki gengið alveg frá!
En ég er semsé ógeðslega ánægð og nú vantar mig bara hraustan kall til að bera með mér hillurnar niðrí kjallara.. get svosem rogast með þær sjálf samt... en ég er þreyttur!!

Sparnaðarátak - dagur 3:
Fellagardínur: 2.660 kr.
Húsasmiðjan: Síll, ljósapera og krókar: 500 kr.
Samtals eyðsla í átaki: 4585 kr.

miðvikudagur, júlí 7

GIRLY GIRL - Clever Kitty
A GIRLY-GIRL. You dont have a lot of self-esteem
and people are always bringing you down for
being sad. What do they know, anyway? You feel
like youre too mature for your age and are
frustrated by the trend-followers who refuse to
accept you because youre not like them.

Your virtues: Intelligence, understanding nature, modesty.
Your flaws: Lack of social life, inferiority
complex, timidity..

What kind of girl are you?
brought to you by Quizilla

Jæja, við stöllurnar hérna í vinnunni töluðum við forstjórann í gær og spurðum hvort það ætti ekki að vera neinn matur hérna í boði í júlí, og jújú þá var hann nýbúinn að taka eftir því, af því að það vantaði mjólk í kaffið.. iss og svo sagðist hann láta okkur fá pening og við ættum að skreppa í búð (sko yfirmaðurinn minn var ekki við e.hád. í gær) BUT NOOOOO hann náttúrulega gleymdi því og fór í frí í dag! Og maður kemur hingað hungurmorða og já, ég bara tók af skarið og strunsaði inn til yfirmannsins og bara "yo bitch gimme some money for food meeeeeen" og viti menn, hún lét mig fá 10 þús og ég fór í 10-11 Lágmúla áðan og bara fyllti kerruna og djöfull er ég nákvæm, þetta kostaði 10.017 kr. Geri aðrir betur HAHH! Og núna er ég að fara í kaffi og það er til FULLT af mat!

Ástæðan fyrir spurningunni sem var hérna, hvað það tæki ykkur langan tíma að mála ykkur hversdags, var útaf því að ég var að horfá Ísland í bítið um daginn og það var svona "breytt útlit"-dæmi og einhver gella frá No Name að farða og svona og það átti semsé að farða gelluna svona hversdagsmálningu sem ætti að taka enga stund. Þá sagði Þórey (eskimo, sem er núna að vinna í Ísl.í bít): "er til eitthvað sem heitir 5-10 mínútna förðun?" Og No Name gellan bara: "já ég ætla að kenna ykkur það" ... eins og maður sé í klukkutíma að setja á sig púður, maskara, gloss og kannski smá augnskugga eða hvað sem konur setja á sig ?!?!?! Uhhh nei ekki samkvæmt minni könnun, þá voru 5 sem sögðust vera 2 mín. og 5 sem sögðust vera 5-10 mín. (rosa þátttaka) en by the way... Þórey I proofed u wrong honey! :)

Sparnaðarátak - dagur 2:
Hádegi; Hammari 495 kr.
Kvöldmatur; borðaði kjúklingabringur sem ég átti, pasta og mini-maís.. já maður lumar á ýmsu í skápunum heima.
Eyðsla: 495 kr.
Samtals eyðsla í átaki: 1425 kr.

þriðjudagur, júlí 6

Það er svo mikill skítamórall (eða skímó, eins og sumir vilja kalla)hérna í vinnunni að það er nú engu lagi líkt. Sú sem er vön að versla í matinn hérna í sumarfríi og þá er bara ekkert verslað í matinn. Vegna þess að bossinn minn er að mótmæla því að hún fékk ekki sumarstarfsmann á skrifstofuna.. alveg magnað. Og ekki ætlum við að sleikja rassgatið á henni með því að bjóðast til að fara í búð (því það er það sem hún vill), heldur getur hún bara beðið okkur um það! Þannig að það er ekkert til að éta hérna og þá þarf maður að fara og kaupa sér sjoppumat sem er yfirleitt rándýr og óhollur andskoti! Fyrir utan það að maður er bara með hálftíma í mat, sem líður eins og 1 mínúta þegar maður fer eitthvað. Og maður er sko látinn finna fyrir því með þögninni ef maður kemur 2 mín. of seint úr matnum... ohh pirrrrrrrr!

Sparnaðarátak - dagur 1:
Lilja dró mig í Ikea í gær og þar sem ég átti þúsund króna seðil tók ég hann með mér inn, ekki kortið og ég þurfti náttúrulega að kaupa mér 2 blómapotta, ísmoladæmi, uppþvottabursta og hanska og 2 kertastjaka....... sem var reyndar bara 5% þess virði sem Lilja verslaði fyrir múhahahha!
Eyðsla: 930 kr.

mánudagur, júlí 5

Ég var að komast að því að ég á eigilega engan pening eftir af laununum mínum og það er 5. júlí í dag... þannig að nú byrjar sparnaðarátak, ég á líka fullt af mat heima og nú er kominn tími til að borða hann. Mig langar nebblega aldrei í það sem ég á, heldur fer ég og kaupi eitthvað annað. Ég ætla að reyna að kaupa ekki neitt næstu daga og er þetta því fyrsti dagurinn í þessu prógrammi. Ég ætla að reyna að vera heiðarleg og skrifa hérna á hverjum degi hvort ég hafi keypt eitthvað og hvað það verður... úfff!! Fyrsta skýrslan kemur á morgun!

Jæja fólkenz, ég er komin aftur. Það var brjúlett að gera hérna í vinnunni á föstudaginn, óþarfi að láta mann vinna svo mikið að maður geti ekki einu sinni bloggað, ég segi ekki annað! *hneykslissvipur*

Annars virkar hárið miklu dekkra á myndunum en það er.. held ég. Ég er nú ekki alveg svarthærð, ég var spurð; "hvar er ljósa hárið?" sko.. það er of mikið vesen að vera með ljósar strípur þegar maður er með dökka músarót undir, samt fílaði ég vel að vera ljóshærð líka. En eins og ég sagði, "Brunettes do better" stendur á bol sem ég keypti á útsölu um daginn, þannig að ég ætla að láta reyna á það!

Annars er ég búin að taka nett flipp á sumarútsölunum, keypti 2 boli, pils og tösku og föt á Auði... hmm held samt ekki meira.. gæti hafa verið verra! Samt þá finn ég engar svartar buxur, það er alveg merkilegt. Ef maður bítur í sig eitthvað þá finnur maður það ekki. Það eru bara gallabuxur í boði eigilega!

Annars var föstudagur og laugardagur tveir af ömurlegustu dögum lífs míns, var með hausverk frá helvíti, mígrenisvöðvabólgusamtvinningur dauðans.is .. en ég hressti mig aðeins við í gærmorgun og sótti hana Auði mína og fór með hana í sund í Grafarvogslaugina, það er fín laug til að vera með krakka! Svo fórum við heim og lögðum okkur og skelltum okkur á Makkann og Auður fékk barnabox með kærleiksbirni í! Hún alveg elskar þessa litlu bangsa, knúsar þá í spað!
Annars vona ég bara að þessa vika verði fín, plííííís!

fimmtudagur, júlí 1

Já mig langar líka að segja að ég var í klippingu og litun í gær, hjá henni Thelmu vinkonu minni sem er með stofuna Punk í Laugum sem er alveg súperstofa (þetta var ekki auglýsing..) og ég er geðveikt ánægð og er með breytt útlit og alles!
Stefnan er að láta brósa taka mynd í kvöld og setja í albúmið góða!

Ok ég veit ég er klikk, en ég var ekki að meika þetta svarta dimma lúkk.. vil frekar hafa þetta bjart og fallegt!

En eníveis.... ég hef verið að hugsa um svona fyndna hluti sem fólk bítur í sig.
Til dæmis er yfirmaðurinn minn kona sem er 64 ára, býr hérna í Hlíðunum og hefur aldrei farið í Smáralind og hún mun örugglega aldrei fara þangað. Hún segist bara vilja versla við sína nábyggð, s.s. Kringluna og miðbæinn. Samt veit ég að henni langar geðveikt að fara í Debenhams.. því hún fer alltaf í þá búð þegar hún er td. í London. Ég kunni nú ekki við að segja henni að það væri nú sérinngangur inní Debó....

Og svo er það hún mamma mín, hún hefur aldrei farið í Kolaportið og mun aldrei fara þangað. Hún er búin að bíta það í sig fyrir löngu og þar við stendur. Og hún verður bara æst og reið ef maður er að djóka í henni að kíkja þangað. En ég meina kommon, það verða nú allir Íslendingar að sjá þessa skrítnu veröld sem Kolaportið er!