Ég er bara ennþá í sumarfríi, þetta er bara endalaust.. og mjög lovely skal ég segja ykkur!! Ég á eftir eina viku í viðbót!!
Núna í vikunni var ég að ormast í bókabúðinni Grímu á Garðatorgi (sem er btw ein besta bókabúðin á stór höfuðborgarsvæðinu - þetta er ekki auglýsing). Var ég að vinna þarna eina 5 daga og það var bara fínt... það er líka einhvern veginn þannig að þegar maður er að vinna annarsstaðar en í vinnunni sinni, þá er eins og maður sé ekki að vinna.. hmm.. skiljiði.. það er bara gaman og tíminn líður hratt!
Verkefni vikunnar er að mála eldhúsið, ég ætla að mála það hvítt, það er reykblátt núna og ég er komin með nett ógeð á þeim lit. Ég las einhversstaðar að maður ætti ekki að mála eldhús í bláum lit vegna þess að blár passar ekki við neinn lit á mat... en það skiptir nú ekki miklu máli í mínu tilviki þar sem ekki er mikið um matargerð á mínu heimili.. erhhmm.. ég var einmitt að segja það við mággu mína og bróður rétt áðan, að ég er með ógeð á take-away mat.. eða tilbúnum mat.. ég nenni aldrei að nenna.. eða eftir að ég fékk bílinn þá hef ég bara eigilega ekkert eldað heima hjá mér.. kannski 4 sinnum á 3 mánuðum!
Bæði er þetta dýrt og oftast óhollur matur.. þegar ég var bíllaus þá var ég meira að versla mikið í bónus og frysta og vera dáldið hagsýn.. en það er búið greinilega.. það verður næsta verkefni þegar ég byrja aftur að vinna.. ekki kaupa tilbúinn mat.. mesta lagi 1 sinni í viku.. er það ekki gott plan??
Jæja þetta er orðið eins og ég sé að skrifa í prívat dagbók eða til Kæra sála.. annars er ég bara hress og gaman að vera til! :)
Reyni að skrifa aftur í vikunni!
Ps. Það er komin ný könnun!


