Djöfull finnst mér verðið á salatbarnum í 10-11 og Hagkaup hafa snarhækkað, 329 kall lítið box!!! Svo kaupir maður sér kannski eitthvað brauð með og hálfan líter af pepsi Maxi þá er þetta orðið næstum 600 kall!!!!! Helvítis okur.. (best að róa sig aaaaðeins) samt sem áður er ég rosalega ánægð með salatbarinn í 10-11 Lágmúla, mjög girnilegur og vel hugsað um hann. Allskonar pasta, grænmeti, fetaostur, sólþurrkaðir tómatar, hnetur og brauðteningar og sticks og ýmislegt annað gott! Ok ég er sátt við að borga 329 kr.
Eftir að ég kom úr sumarfríinu er ég búin að gera margar tilraunir til að vakna kl. 6 til að fara í ræktina.... það hefur einu sinni tekist.. hvað er málið, ég og hausinn á mér erum bara ekki sammála stundum. Ég er á fullu að snúsa og réttlæta snúsingarnar fyrir mér í svona 1 og hálfan tíma á morgnana... kreisíness!
Ég sá í fyrradag endursýninguna á því þegar Auddi var dáleiddur í 70 mín. af þessum dávaldi sem var með sýningu hérna um daginn og guð minn góður, þetta var nú bara pínlegt að horfá þetta. Sérstaklega þegar hann sat á venjulegum stól og hann hélt að stóllinn væri kona sem hann væri að hömpa og svo fór hann að nudda stólbakið og rassskella setuna.. ég hélt ég yrði ekki eldri, þetta var bæði svona neyðarlegt að sjá og ógeðslega fyndið!
Frænkur mínar eru búnar að bjóða mér með á konukvöld Létt 96,7 sem er í kvöld... ég sagði já en núna er ég með bakþanka... ég er ekki þessi týpa sem fer á konukvöld! Ekki nema að það væri karlstripparar... annars veit ég ekkert um þetta.. örugglega bara fullt af kellingum að mæla hvora aðra út og hneykslast á outfittinu manns eða eitthvað! Ég dey samt ef Valdís Gunnars er þarna.. þá er ég farin heim!



