pælingar, nöldur og skemmtilegheit...

föstudagur, október 29

Það er allt fullt af fólki, það er allt fullt af fólk jájááá það er allt fullt af fólki hérna hjá méééér!!!!

Hafiði heyrt þetta? Gaurinn sem spilar á píanóið í Fólk með Pirrí, tekur alltaf þennan smell í lok þáttarins í mismunandi útfærslum! Ég var búin að pirra mig á þessu heima.. og ég hélt að ég væri sú eina sem hefði tekið eftir þessu en ég veit að bæði Sigrún og Lilja litla á Brú hafa látið þetta líka fara í sig. Og nú finnst mér þetta eigilega bara fyndið, sorglega fyndið.. takið eftir þessu ef þið sjáið endirinn á þættinum hennar Pirríar einhverntímann!

Mikið djöful langar mig í eitthvað gott að borða í hádeginu.. eitthvað djúsí og gott! Hér inná kaffistofu er kannski til múslí og hrökkbrauð, en engin mjólk og ekkert álegg.. fúlt maður! Ohh ég væri sko til í að vinna í fyrirtæki þar sem er eldaður matur í hádeginu.. það breytir bara helling að fá eitthvað gott að borða í hádeginu!

Annars er alveg yndislegt að það sé að koma helgi, Helgi!
Hahahah ógó fyndið marrrr!

fimmtudagur, október 28

Nú er mágkonan mín komin aftur á stjá með glænýtt geitablogg, endilega að kíkja á það! :)

Þabbara kominn snjór og læti, hvað á það að þýða?? Hann kemur nú yfirleitt ekki fyrr en um afmælið mitt fyrst, ég þori að veðja að þetta verði snjóþungur vetur.. en það er bara gaman, allavega þegar ég er búin að setja naglana undir! Ég var alveg skíthrædd að keyra í vinnuna í morgun, enda byrjaði bíltúrinn með nettu spóli á planinu mínu! Ég var alveg helmingi stífari í öxlunum þegar ég kom á leiðarenda, spennist svo upp þegar ég er að keyra í svona hálku!

En svo verður þetta örugglega farið í kvöld.. allir trylltir á dekkjaverkstæðunum í dag og svo bara þurrar götur í mánuð.. alveg týpískt!

Það bendir allt til þess að ég fái karlhóru í afmælisgjöf, það eru 7 núna sem vilja gefa mér svoleiðis.. en oh men, ég man eftir karlhóru sem var í Sex í Reykjavík þáttunum og hann var ógeð.. svona útlenskur sláni með blautt svart permanent.. plís ég vil ekki svoleiðis hóru.. fáið frekar einhvern Brad Pitt lúkkalæk.. En ef það bregst þá fæ ég allavega 6 kossa á kinnina og eða 5 uppstoppaða hrafna, oj það væri nú meiri martröðin!!!! Ég myndi eigilega frekar vilja hafa myndir af loðpjöllum hangandi uppá vegg í stofunni, eins er á einhverri listasýningu núna!

miðvikudagur, október 27

Nau naaauuu haldið að mín sé ekki orðin 2.000.000 dollurum ríkari!!

Ég verð að segja ykkur framhaldssöguna af hafragrautnum góða, í morgun setti ég 150 ml af mjólk í staðinn fyrir 125 ml og hann var bara allt annar og þá er ég að tala um að ég setti hann í öbbann... alger snilld.. þetta er bara rugl á pakkanum!

Ég fór í mat til Sigrúnar og Ásu Maríu í gærkvöldi, helvíti góður matur.. MMmmMmMmm.. Ljúffengt ferskt pasta með ostafyllingu (fæst í Nóatúni, í svona bakka með ljósbláu loki, geðveikt gott, verðið að smakka, það bara bráðnar uppí manni!), kjúkling, sveppum, púrrulauk og rauðu pastapestói og nanbrauð með garlic og einhverju kryddi .. þetta var bara sjúklega gott!! Takk fyrir mig sko! Svo fór ég að tala við Classadísuna á msn og hún er með svona webcameru og hún er bara orðin brúnetta! Velkomin í hópinn! :) Mér sýndist þetta bara vera voðaflott þrátt fyrir græna birtu inni hjá henni, hlakka til að sjá þetta in real! Hún er kannski eitthvað hrædd við að fara sem ljóska inní Bandaríkin... já maður veit ekki! :) hehhehe

Annars horfðum við Sigrún á Innlit Útlit saman, og maður á ekki að horfá þetta með neinum því þá held ég ekki kjafti, læt alla fara helmingi meira í taugarnar á mér. Ég veit ekki hversu oft hún Vala Matt segir JÁ á innsoginu í hverri heimsókn, en þau eru ansi mörg! Og þetta Feng Shui dóterí.. mér finnst það nú bara fyndið.. nenni ekki einu sinni að fara útí það!

En mikið var nú hressandi að keyra í vinnuna með Skid Row í botni, Monkey Business er þrusugott lag.. ef ég á mér einhverja uppáhaldshljómsveit held ég að það verði alltaf Skid Row... Svo kom lagið Kókómó með Beach Boys, það er alveg magnað að hlusta á það hátt í bíl og syngja með, ég verð nú bara að segja það. Svo endaði ferðin með Bubba og laginu: "Þeir hringd'í morgun, sögðu að Lilla væri orðin óð....", þrusu góður mix diskur sem ég á... :)

þriðjudagur, október 26


Það er alveg magnað hvað það er mikill munur á því að elda hafragraut í potti eða örbylgjuofni og þá er fyrrnefnda aðferðin miklu betri! Ef maður eldar í potti verður hann svona blautur og grautlegur en eins og í morgun þá henti ég í öbbann því að það er auðvitað miklu fljótlegra og ekki eins mikið uppvask, en þá verður hann þurr og froðukenndur......... ég þarf eitthvað að fara að kanna þetta betur! Ég nenni auðvitað ekki að vakna 10 mínútum fyrr..........

Ég ætlaði líka að nefna eitt þar sem þetta er litla þjóðarsálin mín, FORELDRAR; þið sem eigið börn á grunnskólaaldri, í guðanna bænum fariði og mótmælið þessu verkfalli, það var verið að tala um þetta í Kastljós í gær, örugglega ekki í fyrsta sinn, og það var verið að hvetja foreldra að mæta með börnin í einhver mótmæli á morgun held ég.. (þið verðið bara að finna það út sjálf)! Þetta er alveg magnað með Íslendinga, allir bara í sínu horni að tauta og brjálaðir útí þetta verkfall en mótmæla aldrei neinu opinberlega, nú er tækifærið! Þetta gengur ekki lengur.. mér finnst bara að allir foreldrar sem eru útivinnandi ættu að leggja niður vinnu sína og vera heima, þá kannski myndi þetta lið fá smá sjokk þegar þjóðfélagið myndi lamast! Svo er ég líka orðin hundþreytt á að hlusta á þetta væl útaf þessu bévítans verkfalli útum allt.. í vinnunni, í fréttunum og allstaðar!!!!!!

Ohh ég ætlaði ekki að fara að tala um þetta verkfall hérna.. en það verður bara að hafa það!

Mikið djöfull er þessi Survivor sería sem er núna ógeðslega leiðinleg.. ég ætla að finna mér eitthvað annað að gera á mánudagskvöldum klukkan níu.. samt dáldið fyndið í gær einhver svínaþraut... og einhverjar mjóar pempíur í bikínum í drullunni, bæði vildu þær ekki skíta sig út eða vera geðveikt sexxí í leirbolskeppni... og svo var ein bara allsber í sólbaði fyrir framan alla kallana.. hvaða ma ma ma maður á bara ekki til orð.... oj ragga reyk húmor árið 2004 *pjúk*!

mánudagur, október 25

Ný vinnuvika byrjuð með frosti í jörðu og hrími á rúðum! Þá saknar maður þess að labba upp í ylvolgan strætisvagn og þurfa ekki að skafa..... djíí let me think again... NOT! Ég var samt frekar smeyk á leiðinni, svona launhálka á götunum og maður náttúrulega bara á sumardekkjum, ég er nebblega snillingur í að skransa á svona ís!

Ég er ferlega afslöppuð eftir þessa helgi, mér líður eigilega eins og ég hafi verið með fjölskyldunni í bústað.. því að við Einar bróðir og familía vorum bæði á laugardag og í gær heim hjá m&p og vorum að spila báða dagana, skrafl og trivial og Lilja malaði okkur alltaf... en auðvitað leyfðum við henni bara að vinna fyrst hún er sú eina sem er ekki blóðskyld okkur... múhahahha!

Ég fór samt í mat til Thelmu á föstudaginn og Anna og Róbert komu líka! Ég fékk að gefa Abelu litlu að drekka pela og svo sofnaði hún í fanginu á mér litli engillinn.. úff ég er með of mikil eggjahljóð!

Svo endaði ég helgina á því að leigja mér Secret Window með Johnny Depp hinum fagra, en já þetta var dáldið undarleg mynd með skrítinn endi...

Og svo var ég að sjá að Sigrún vinkona á leynilegan aðdáanda, en ekki ég buhuhuhuhuhu *grátigrát* ...allavega engan sem lætur í sér heyra! Sigrún er líka svo sææææt! :)

Núna er Ásdís litla lipurtá búin að kveikja í verslunarfiðringnum í mér þar sem hún var að birta link af Mall of America á blogginu sínu... oh my gad!!!!

Djöfull verður gaman!

sunnudagur, október 24


Þetta er mynd af passamyndinni sem á að fara í nýja vegabréfið mitt, helvíti fín bara, tekin í kassa á BSÍ!
Myndina sendi Anna
Powered by Hexia

föstudagur, október 22

Jæja alveg að koma helgi, það er ekki svo amalegt! Ég er með tvennt á planinu og það eru 2 matarboð, annarsvegar hjá Thelmu í kvöld og svo leynimatarboð annaðkvöld.. úúúú.. alltaf gaman að vera í leynifélagi Agga Pó!


Þetta er þau Skúlína og Skúli!



Ég lá uppí rúmi í fyrrakvöld og var farin að grenja úr hlátri ein af því að ég var að hugsa um hvort það væru til mörg pör sem heita "sama" nafninu, eins og td. Helgi og Helga, Siggi og Sigga, Guðmundur og Guðmunda, Magga og Maggi, Auður og Auðunn, Gréta og Grétar, Sigurbjörg og Sigurbjörn, Gísli og Gíslína, Jakob og Jakobína, Didda og Diddi, Lára og Lárus, Þóra og Þór, Jón og Jóna, Gunna og Gunni,Hildur og Hildibrandur, Dóra og Dóri, Raggi og Ragga og já endalaust fleiri og eftir því sem ég hugsaði fleiri nöfn fannst mér þetta alltaf fyndnara...

Þekkið þið einhver pör sem heita svona eins nöfnum?

... en já þá vitiði hvað það er endalaust mikið fjör uppí rúmi hjá mér á kvöldin!

fimmtudagur, október 21


Yo people! Ég veit þið saknið mín en undrist ekki um mig, ég er á lífi! Var bara með mígreni dauðans í nótt og til hádegis! Var bara búin að steingleyma að ég gæti bloggað símleiðis! Þangad til næst - bæjó!
Myndina sendi Anna
Powered by Hexia

miðvikudagur, október 20

Ég verð að byrja á að segja að ég þooooooooli ekki gólið í Fantasíu sem vann Idolið... ohh það er alltaf verið að spila eitthvað lag með henni í útvarpinu... úfff.. veit ekki hvort ég myndi þola garminn frekar samt...... Ég vona að Skúli Hakim vinni íslenska núna, hann er svalur!

En já, í gær átti ég skemmtilegan spennandi dag, ég og Ásdís tókum stóra áhættu í gærmorgun. Ég hafði nebblega fengið sent tilboð frá Vildarklúbbnum og þar er verið að bjóða ferðir til usa fyrir 29.900 punkta og ég á akkúrat 30.663 stk. af þeim! Þannig að ég talaði við Maurinn og sagði henni frá þessu.. við vorum nebblega eitthvað að tala um þetta um daginn og hún sagði mér að pabbi hennar ætti fullt af punktum.. þannig að hún ákvað að spurja pabba sinn og hann var til í að gefa henni þetta í gjöf!

Og við þurftum að bóka þetta bara í gærmorgun og þá var nú bara nótt hjá Sollu litlu, en við ákváðum að skella okkur samt á þetta... án þess að láta þau vita.. annars hefðum við bara verið í Mall of America í 4 daga ef þau hefðu ekki verið heima! En svo um kvöldið náði ég í Sollu, hringdi í hana og hún var dáldið hissa vægast sagt.. og geðveikt ánægð!! Þannig að við erum bara á leiðinni 11. - 16. nóv!!!!!!! Weeeeeeeeeeee :)

Ég hefi aldrei komið til Bandaríkjanna og finnst það rosaspennandi, samt er ég líka skíthrædd við ameríska flugvelli.. eftir 11 sept dæmið og eftir að pabbi fór að hræða mig í gær, sagði að við ættum ekkert að vera að taka með okkur kjöt, því að maður gæti alveg verið með sprengjur faldar í kjöti! Ég ætla einmitt að setja tímasprengju inní lambalæri og smygla nokkrum SS pulsum á stað þar sem sólin aldrei skín! hahaha! En það er bara um að gera að vera ekki með naglaklippurnar í veskinu, því þá gæti maður lent í einhverju......

þriðjudagur, október 19

Contrast
Dark shadow. Something has drawn you into darkness
in the past, and you're now trying to get out
of it. The darkness is already inside you, and
getting it out will be hard, but if you try,
maybe one day you can be who you want to be
again. Don't give in!!!


What kind of dark person are you?
brought to you by Quizilla



Jahá það er aldeilis, það er bara eins og ég hafi farið til spákonu! Ókeypis...
Annars langar mig geðveikt að fara til spákonu eða spámiðils.. en þori því samt ekki, því að ég fór einu sinni og fór að lifa eftir spánni og bíða eftir að allt myndi gerast sem hún sagði að myndi gerast.. fékk það alveg á heilann!

Annars hef ég tekið eftir því að skammdegið hefur alveg áhrif á mitt skap og mína líðan, sérstaklega á morgnana.. erfiðara að vakna og svona! Annars fíla ég alveg myrkur á kvöldin, vera bara heima og hafa það kósí. Kertaljós og klæðin rauð og allt það! Vantar bara eitt uppá að fullkomna rómantíkina.... en það verður bara að bíða! Minn tími mun koma!

Ég er dáldið brjáluð, samt ekki svo, því að einn hjólkoppur á bílnum mínum er stunginn af! Og ég er með fullkomnunaráráttu frá helvíti og finnst frekar púkó að keyra um á bílnum núna! Ég á eftir að fara niðrí Toyota og gá hvað einn kostar (vonandi þarf ég ekki að kaupa fjóra!!) og ef það er eitthvað geðveikislega dýrt, þá kannski fæ ég Einar bróðir eða einhvern til að fara með mér til Valda koppasala.. ég þori allavega ekki ein þangað!

mánudagur, október 18

Ný vika er byrjuð með snjó í haga... þetta er nú meira kuldabolalandið!
Ég er óskaplega þakklát fyrir að vera á bíl í vetur, úff.. maður er fljótur að venjast góðu, ég gæti ekki hugsað mér að húkast í strætóskýli í dag.. ógisslega kalt úti!

Helgin var mjög róleg og góð. Ég var bara heima að chilla á laugardaginn, sá 2 dvd-myndir, White Oleander og Butterfly Effect.. mæli með þeim.. sérstaklega Butterflæinu.. flott mynd!

Og í gær var enginn familímítingur, allir eitthvað busy, þannig að ég var hálfhandalaus.. en skellti mér bara í ræktina og tók vel á því. Svo fór ég í Kringluna bara til að kaupa 2 ramma fyrir brúðarmyndirnar af Einari og Lilju.. en svo einhvern veginn lenti ég inní skóbúð og þá voru leðurstígvél sem mig er búið að langa í, og líka til í minni stærð (hvað kemur til??)... og ég bara skellti mér á þau.. og hérna er mynd af þeim, nema mín eru semsé svört með svona brúnum botni. Og ég er ógeðslega ánægð með þau! Er líka þvílík pæja í vinnunni í dag!

Annars hef ég ekkert að segja, rosalegur mánudagur í manni! Væri alveg til í að vera undir sæng núna og kúra með einhverjum krúttaralegum fola...... en því miður fær maður ekki allt sem maður vill!

föstudagur, október 15

Ok, fyrir hverja aðra en mig gæti þetta komið fyrir? Í gærmorgun í kaffinu þá var ég að láta renna vatn í kaffikönnu og er eitthvað voða mikið að tala við stelpurnar á meðan og svo bara öskraði ég; aaAAaaaaa!!!! Kraninn datt af og það spýttist ógeðslegt brúnt vatn yfir mig alla.... hehehehe og svo dó ég úr hlátri! Týpískt ég að lenda í þessu, akkúrat í þessu labbar forstjórinn og nýji fjármálastjórinn inn og ég stend þarna rennandi blaut í hláturskasti.. og það var bara lán í óláni að ég skyldi vera í bol innan undir peysunni, annars hefði ég þurft að fara heim að skipta.... sem hefði annars verið allt í lagi.. alltaf gaman að skreppa heim í vinnutímanum!

Í gærkveldi fór ég svo í matarboð heim til foreldra minna (og viti menn, það voru engar sérþarfir í gangi) í tilefni þess að Stína systir hennar mömmu sem býr í Englandi er á landinu. Þannig að það voru lambakótelettur í raspi með öllu tilheyrandi á borðstólum, ekki amalegt það! Hún Auður frænka mín át eins og henni væri borgað fyrir það, hún borðaði örugglega meira en ég og þá er mikið sagt!

Svo eftir matinn settumst við inní stofu og fengum okkur kaffi. Ég hef tekið eftir því að amma mín er komin með dulítinn athyglisbrest þegar hún er á meðal margra, hún heyrir allt vitlaust og gerir mál útaf engu, en hún er samt dásamleg og drepfyndin finnst mér. Pabbi er til dæmis mjög góður í að espa hana upp í skrautlega pólítíkusarumræður og það má ekki nefna Dabba á nafn þá verður hún alveg tjúll! Enda segir hún amma að allir karlmenn sé skíthælar og dusilmenni, nema synir hennar og tengdasynir (get nú alveg verið sammála því að mörgu leyti)!

En svo kom að því, talið barst að hjúskaparstöðu minni, sem er semsagt "einhleyp"! Og amma hefur svo miklar áhyggjur af mér, að ég sé að basla þetta allt alein og hafi engan mér við hlið. Henni finnst minn tíminn kominn, búinn og liðinn held ég! Stína systir hennar mömmu var nú eitthvað að segja á móti þessu en hún amma hlustaði ekki á það! Ég sagði bara við ömmu að ef ég gæti, þá myndi ég bara fara í Hagkaup og velja mér einn fullkominn kall... en það er víst ekki hægt, það þótti henni fyndið og róaðist aðeins niður!
Ég vona allavega að amma haldi ekki að það sé eitthvað "bogið" við mig, eins og hún talar stundum um einn einhleypan þrítugan frænda minn.............

fimmtudagur, október 14

Mamma skoðar alltaf bloggið mitt reglulega og mér finnst það cool, hún skoðar líka kommentin og mamma; ég skora á þig að taka þátt í að kommenta! :) ...ætli pabbi nenni að lesa þessa vitleysu líka??

Díses ég var að dreyma svo kreisí drauma í nótt!! Fyrst þá var ég með tvo hunda heima hjá mér, annar var Rósý (blessuð sé minning hennar), sem var púddelhundur sem systir hans pabba átti og hinn var Bangsi sem er hundur sem bróðir hennar mömmu á (og ég var heima hjá honum í afmæli hjá ömmu í gærkvöldi).
Og eins og margir vita þá er ég algjör dýraskræfa dauðans.. og ég var alveg í vandræðum með hundana, þeir voru alltaf að fljúgast á og ég átti ekkert að borða fyrir þá, reyndi að gefa þeim cheerios... þannig að ég setti þá bara oní sitthvora grænmetisskúffuna í ísskápnum, sem var svo allt í einu þvottavél líka og þegar hún var búin að þvo, þá voru hundarnir dánir og ég var alveg miður mín, en þá var einhver hjá mér sem opnaði bara augun á þeim og þá lifnuðu þeir við..
og svo ég vaknaði alveg í svitabaði eftir þessi herlegheit! Veit nú ekki hvort þetta merki eitthvað..

Hinn draumurinn var að ég var með þrjá hamstra og eina mús í fötum var að reyna að halda þeim saman í kassa en þeir voru alltaf að strjúka frá mér og svo var ég með þá í Kringlunni og þeir fóru alltaf úr kassanum og hlupu um gangana... svo fór ég að máta kjóla ... man ekki meir .... þvílík steypa!
... en hvað er málið með dýradraumana????



Mínir voru nú ekki á móterhjóli, en þessi er ansi cool á því!


Þegar ég var að fletta upp hamstramyndum fann ég þessa hérna mynd og varð bara að setja linkinn með af henni... bwaaaahahhaa djöfull er til mikið af furðulegu fólki í heimi hér!

miðvikudagur, október 13

Til hamingju með afmælið í dag elsku Sigrún mín! I love u beibí! ;)

Ég er ekki stolt af þessu en ég lét vörumerkjaplata mig í gær, ég var að kaupa mér nýtt svitarolló og var semsé í Bónus, og þar voru 2 rolló frá Dove en annað kostaði 129 kr. og hitt 179 kr. og ég skoðaði þetta og fannst þau bæði alveg eins, þannig að ég tók auðvitað það ódýrara (alltaf að spara). En svo þegar ég kom heim og var búin að setja þetta á baðherbergishilluna og sat á klóstinu og horfði á þetta, þá tók ég eftir því, ég lét vörumerkjagabba mig, því það stóð ekki Dove heldur Love!!!

Ég fór með Ásdísi sætu (sem á 4ra ára brúðkaupsafmæli í dag) að borða á Thorvaldsen Bar (eða Þorvaldsen, eins og ónefnd vinkona mín segir) í gærkveldi semsagt! Og ég fékk mér rétt nr. 31 Naan-kjúklingur, með basil, salati og sýrðum rjóma og þetta var himneskt!! Mæli mjög vel með matnum á þarna, ég hef oft borðað þarna og alltaf er þetta ógeðslega góður matur!!!

þriðjudagur, október 12

Einu sinni var ég í apótekinu í Austurveri og það var fullt af fólki þar að versla. Svo þegar ég var komin á kassann, þá stóð eitthvað manngrey við hliðina á mér og hvíslaði að afgreiðsludömunni; "eigið þið til stólpípu?", og hún sagði hátt; "ha?? stólhvað??" og hann þurfti að hvísla aftur "áttu til stólpípu?" og þá kallaði gellan í aðra; "GUGGA, EIGUM VIÐ TIL STÓLPÍPUR???" .... og ég sá bara að maðurinn vildi hverfa oní jörðina! Þetta er gott dæmi um ófágaða framkomu finnst mér!

Mér finnst nebblega oft þegar maður er í apóteki og maður þarf að spurja um eitthvað neyðarlegt td. sveppakrem, sleipiefni, stólpípur, þungunarpróf, verk- og vindeyðandi, kláðamaurssmyrsli eða eitthvað álíka neyðarlegt.. þá vill maður ekki að annar kúnni við hliðina á manni heyri það... hvernig væri að hafa svona litla bása fyrir fólk til að spyrja.... Hvað segir lyfjafræðingurinn td. um það??

Annars elska ég að fara í apótek, sérstaklega í Lyfju Lágmúla og Austurveri á kvöldin og bara skoða allt, snyrtivörur, krem og allskonar, ég tala nú ekki um að fara í Boots í Englandi!!

mánudagur, október 11

Jæja best að taka þessa könnun út.. ég fæ alltaf klígju þegar ég opna bloggið og sé "borða augnstýrur" ojjj en samt var það í öðru sæti á eftir að sleikja hamstur..

Ég var byrjuð að tjatta við gaur í gegnum Prívatið og í byrjun leist mér helvíti vel á hann og svo sendi hann mér mynd af sér, og mér fannst ég nú eitthvað kannast pínulítið við andlitið.. og svo allt í einu fattaði ég hver þetta var. Jú þetta var eldri bróðir vinkonu minnar í den, sem var aaaalgjör lúði!!! Og ég man að ég og þessi vinkona mín fórum stundum inní herbergið hans til að finna ógeðisunglingafýlu og deyja úr hlátri.. þetta var svona eins og áskorun í 70 mín. Allavega þegar ég fattaði þetta, missti ég allan áhuga.. og hætti eigilega bara að tala við hann og þá fóru að berast skeyti "hvar ertu?", "viltu ekki tala við mig?", "ertu búin að heyra einhverjar kjaftasögur um mig?", ég var ekkert búin að segja að ég vissi hver hann væri... en guð minn góður paranoijan og óöryggið í gaurnum, very very fráhrindandi..... þannig að ég er núna búin að senda honum "uppsagnarbréf", og núna er þetta bara búið og ég bara NENNESSUM BISSNESS ekki lengur!!

Ég fór í 2 afmæli á laugardagskvöldið og í seinna afmælinu hjá Sigrúnu og Maju var einn gesturinn, strákur, í fyndnum sokkum. Veit nú ekki hvar hann hefur fengið þá, en ég giska á Flóamarkaði Kattavinafélagsins. Þeir voru svona hálfökklaháir, rifflaðir með neon gulu stroffi og stóru gati á tánum! Smart að fara í svoleiðis í afmæli....

Ég hlusta alltaf á Tvíhöfða á leiðinni í vinnuna, en núna er ein auglýsing sem ég fæ alltaf hroll yfir, útaf kinnasmjatti í röddinni á þeim sem les hana og hún er svona; "Sko ég vakna, konan í sturtu, ég á lengjuna, það er málið - þetta er bara rútína". Takið eftir þessari auglýsingu!!

Skrifa kannski meira í dag! :)

föstudagur, október 8

Í gærkveldi spurði ég foreldra mína hvort ég mætti ekki kíkja í mat um kvöldið.. þetta var svarið (þetta var semsagt e-mail-leiðis);

"Hæ Það er í lagi, við verðum með svið í matinn,namm namm, amma þín kemur. Svo koma Einar og Lilja með Auði, þau ætla að kaupa sér eitthvað í matinn, þú mátt gera það líka, við borgum.
Kveðja
Mamma"


Þetta er alveg ekta þau, endalaust góð en allaveganna þegar ég mætti á staðinn, þá voru amma, mamma og pabbi að slafra í sig sviðkjömmum og Einar og Lilja með Burger King mat og svo kom ég með kjúklingasalat... hahaha fyndinn dinner... en ég gat reyndar ekki hugsað mér að snæða salatið mitt fyrir framan sviðaveisluna.. *hrollur*

Það eru allir í familíunni (stórfjölskyldan) alltaf með svo miklar sérþarfir matarlega séð td. einn borðar ekki lauk, ein ekki karrí, ein ekki kjúkling, ein ekki sítrus, ein ekki pepsi max.... svo það er eins gott að kokkurinn á heimilinu sé matreiðslumeistari!! Það var þrennskonar matur um daginn... fyrir 5 manns.. útaf sérþörfum!

En ég er ekki með sérþarfir, ég er svo fullkomin. Eina sem ég borða ekki eru ora grænar og svið og þorramat! :)

fimmtudagur, október 7

Fyndinn kall -> Feed me hafið hljóðið á!

Um daginn í ræktinni sá ég konu með kók... allir með vatnsbrúsa eða orkudrykki, en nei hún var bara með hálfs líters kókflösku.. mér fannst það nú frekar skrítið!

Ojjj ég þekki 3 sem vilja borða augnstýrur, 5 sem vilja sleikja hamstur, 1 sem vil fara í sleik við róna, 1 sem vil borða eyrnamerg *æl* og 3 sem vilja borða úldinn fisk... sem gæti svosem verið skata... hvers konar lið þekki ég eigilega??? múhahahha

Ég horfði á Fólk með Pirrý í gær.. guð ég er svo mikill plebbi, en anyways þá var eitthvað lesbíuþema og þarna var kona sem var að segja sögu sína, en hún kom útúr skápnum eftir 28 ára hjónaband.. en það sem mér fannst pínlegt var að hún var að lýsa fantaseríngum og trekantssögum þeirra hjónanna og 3 börn hennar á mínum aldri voru þarna í salnum..... ég myndi nú ekki vilja heyra svona frá mínum foreldrum.. "já svo var það sumarið ´86 þegar ég og Siggi fórum að hitta annað par og mig langaði alltaf svo að vera með annarri konu...." oh my gad... ég myndi deyja!!
Ekki misskilja mig, mér finnst frábært þegar fólk finnur sjálft sig, en ég vil ekki vita svona um mína foreldra.. ekki frekar en að ég vil að þau viti um mitt kynlíf.... sem eru mjög aktívt um þessar mundir eða hittó heldur!!!

Ég veit samt að Einar bróðir og Lilja hafa allavega gert það 2svar... þar sem það er annað barn á leiðinni... weeee annar gríslingur til að leika við! :)

Ég man nú þegar ein í bekknum í den sagði að foreldrar einnar væru ríðusjúk, af því að hún átti 4 systkini! (nefni engin nöfn)hahahahha

miðvikudagur, október 6

Hvar get ég fengið verk- og vindeyðandi?

Ok mikið er ég ánægð með ykkur stelpur, þið eruð greinilega að skoða.. gott að vita það! :)

Já umræðuefni gærdagsins var frekar ógeðslegt, borða flösu.. úff.. en já í dag ætla ég að tala um fyndinn CSI þátt sem var á mánudagskvöldið.

Þar fannst lík af manni í vönduðum þvottabjarnabúningi og þegar leið á rannsóknina komust þau að því að hann lifði bara sem þvottabjörn og var meðlimur í einhversslag loðdýraklúbbi. Og þar var allskonar fólk sem hafði ekki fundið sig sem manneskjur, en hafði fundið sig sem dýr og var hópur fólks/loðdýra bara að dansa og skemmta sér. En svo var þetta komið útí að þau voru öll að nudda sér utan í hvort annað.. sem sagt orgía sem var kölluð furpile (loðhrúga) .... er svona virkilega til????



hmm.. fann þetta á netinu..



Svo er eitt annað sem mér liggur á hjarta og það eru svokallaðar kameltær kvenna (cameltoes). Og það er þegar konur eru í buxum sem skerast uppí klofið á þeim, þannig að það sést móta fyrir börmunum.. og þetta er sko ekki óalgengt! Ég er alltaf að sjá kellingar í gallabuxum eða leikfimisbuxum sem eru svo vel girtar að það hálfa væri nóg og sorry mig langar ekki að vita hver barmastærð annarra er..
Ef ykkur langar að fræðast meira um þetta þá getið skoðað það hérna!



þessi getur meiri að segja geymt rettu í sinni tá!



þriðjudagur, október 5

Ok nú langar mig að fá smá action á þessa síðu hérna... annaðhvort er ég orðin leiðinleg eða fólk hætt að skoða, því að kommentagleðin er ekki beint að ríða rækjum hérna!!! *kvartkvart*

!!! EKKI FYRIR KLÍGJUGJARNAR SÁLIR !!!

Ég hélt ég hefði séð það allt, but noooo greinilega ekki. Um daginn var ég stödd á bílastæði einu og sé þar roskinn mann á gangi (ekkert subbulegur róni eða neitt) og hann var að nudda augnstýrurnar úr auganu sem er nú allt í lagi, nema það að hann borðaði þær svo!!!! *æl*
Þetta hef ég aldrei vitað að fólk gerði.... en fór svo að tala um þetta við stelpurnar í vinnunni og önnur þeirra hafði þá einmitt verið útá Spáni í sumar og ein íslensk kona á hótelinu var alltaf að éta augnstýrurnar úr sér... *klígj-gubb-æl*

mánudagur, október 4

Eitt sem mér finnst skrítið og það er þegar ég hitti gamlar vinkonur síðan í den og hlusta á röddina í þeim. Eins og laugardaginn, hitti ég Elínborgu æskuvinkonu mína í Kringlunni og ég fékk alveg svona skemmtilegt flashback við að spjalla við hana og heyra hana hlæja. Manni finnst einhvern veginn eins og röddin eigi að breytast með fólkinu eða eitthvað, get ekki alveg útskýrt..
Hitti líka Rakel sem var með mér í bekk (sem er víst kasólétt núna) í fyrra og mér fannst svo fyndið að heyra þess gömlu góðu rödd... hehe kannist þið við þetta?

Svo er líka eitt og það er að mér finnst svo margir úr den hafa fríkkað svo með aldrinum, maður er kannski með þessa mynd af manneskjunni í hausnum eins og þegar maður umgekkst hana síðast og svo sér maður hana og þekkir varla.. eins og ég sá Systu sem var í MA-bekknum í Seljaskóla á Konukvöldinu, og ég ætlaði varla að þekkja hana, ekkert smá sæt og flott stelpa.. í minningunni var hún svona álkulegur unglingur í gallajakka.. kannski hugsa allir svona um mig líka, enda hef ég fríkkað með eindæmum á seinni árum!

Það er búið að vera svo mikið að gera að ég hef bara ekki haft tíma til að skrifa hérna.... sem er kannski bara gott mál, því þá sannast að ég á smá líf...

Ég held samt að þessar kellingar sem fara á Létt 96,7 konukvöld á Broadway eigi sér ekki líf, því á svona samkundu mun ég ekki fara aftur! Ég er að tala um biðröð sem náði næstum niðrá Grensás og svo troðningur dauðans, fengum ekki borð og beyglur sem sátu að rífast í fólkinu sem fékk ekki borð fyrir að vera fyrir sér... úffff.... skemmtiatriðin voru svo sem ágæt, en ég meina, tískusýningar með konuföt.. nei ég hefði nú frekar viljað sjá karlmódel vera að sýna karlanærbrækur... og svo rúsínan í pylsuendanum..... Þorvaldur Davíð valinn kynþokkafyllstur allra karlmanna.. já nei.. þessi strákur er alveg sætur, en hann er mjór og barnalegur.. svo gat hann ekki mætt í ósexýari átfitti, víðum ljótum gallabuxum í skyrtulafi með axlabönd, þannig að buxurnar skárust uppí rassaskoruna... æji ég veit ekki svei mér þá...:) Sjálf kaus ég Frosta í Mínus.. mMmm

Ég og Sigrún fórum á Players til að borða og horfá Idolið á föstudagskvöldið, allt í lagi með það, ágætissnarl sem við fengum okkur.. en svo kom einhver blindfullur strákur að bögga okkur, þvoglumæltur lúði! En við sendum hann burtu, ég fer ekki aftur þangað til að horfá Idolið held ég..
Svo kíktum við á rúntinn og þar sáum við Rebba (sjá mynd neðar) en hann er í glugga í Hafnarstrætinu þarna sem Tókýó var í gamla daga, þar sem núna er Antíkuppboð eitthvað.. mæli með að þið kíkið í þann glugga næst þegar þið eigið leið framhjá, frekar fyndinn dúddi!

Svo gisti hún Auður litla Aþena mín hjá mér á laugardagskvöldið og við vorum bara að lúra og kúra í gærdag þangað til að við kíktum í barnaafmæli.. hún tók sig vel út með súkkulaðiköku útá kinn og hellandi niður ville vekk... já þetta er greinilega heilmikil vinna að fara með börn í afmæli! Svo kíktum við aðeins til Önnu B og Róberts!

Helgin endaði svo með að ég fór og þreif í búðinni og fór svo heim að borða og leigði mér Spartan með Val Kilmer (sem er btw. einn af mínum uppáhaldsleikurum).. já... veit ekki alveg.. allt í lagi mynd.. skildi hana samt ekki, ég held líka að ég hafi eitthvað dottið útí byrjun, því að ég fattaði ekki alla myndina hvaða manneskju væri verið að leita að... sem var semsé aðalpointið í myndinni, ohh þoli ekki að ná ekki söguþráðnum........

Ný vika tók svo á móti með vindkviðum dauðans.... ekta haust í gangi!

föstudagur, október 1


Rebbi á leiðinni á djammið! *lol*
Myndina sendi Anna
Powered by Hexia