Jæja
loksins er ég komin aftur, ykkur til mikillar gleði og yndisauka veit ég! :)
Ég verð samt að byrja á að segja: HEFUR EINHVERNTÍMANN VERIÐ SVONA KALT Á ÞESSUM GUÐSVOLAÐA ÍSLANDI ÁÐUR????
Ég veit að sumir bíða
ólmir eftir ferðasögunni og hér kemur hún í allri sinni
gloríufegurð:
Dagur 1: (11.11.04)
Ég vaknaði um 11 leytið
(viljandi) við að Ásdís hringdi í mig, við ákváðum að hittast kl. 12 niðrí Engjateig sem við og gerðum! Þá var farið í smá gjaldeyrisleiðangur og svo fórum við í
Ósóma á Laugaveginum og keyptum
kindaboli handa gestgjöfum okkar í USA og fórum svo á Vegamót og keyptum okkur að eta! Svo var lagt af stað til Keflavíkur með smá stoppi í Hafnarfirði hjá foreldrum mínum! Alltaf byrjar ferðaspenningurinn fyrir alvöru þegar maður er kominn í fríhöfnina, þó svo að hún sé ógeðslega dýr, keypti samt smá
meiköpp og latté! Flugferðin leið ótrúlega hratt miðað við rúmlega 6 tíma flug, Raising Helen var sýnd og indælis ýsurúllur étnar! Svo þegar maður kom til Ameríku tók á móti manni
fingrafarataka og augnmæling, þannig að núna kemst maður ekki upp með glæp þarna vesturfrá! Svo voru miklir fagnaðarfundir þegar við loksins hittum skötuhjúin
Sollu og Jón Gunnar og svo var farið með svanga ferðalanga á Amerískan Cajun veitingastað og mikið talað og borðað! Svo fórum við á hótelið og þar tókst mikið
stelpnafliss við og ég held að JG hafi samt alveg fílað það! hehe!
Dagur 2: (12.11.04)
Vöknuðum snemma, eða um 8 leytið og þá var haldið af stað í leit af amerískum diner, sem við fundum svo ekki en fórum í staðinn á beyglustað, þar sem maður fékk bara english breakfast á beyglu og "lítinn" kaffi með (hálfur ltr.) og það var ógó gott mar! Svo fórum við í
MALL OF AMERICA, ég og
Ásdís í spenningskasti, stærsta moll sem ég hef farið í, á fjórum hæðum, svona tíföld kringla.. Svo fundum við
Old Navy og þá tók
kaupæðisflipp dauðans við! Við náðum okkur í sitthvora Hagkaupskerruna og splittuðum liði og svo bara AF STAÐ!!! Síðan hitti ég Ásdísi eftir svona korter og við vorum búnar að fylla körfurnar, vorum þarna örugglega í 1-2 tíma og ég held ég hafi aldrei
mátað jafnmargar flíkur á jafnstuttum tíma! Svo flökkuðum við á milli búða, það tók samt svoldið í að halda á öllum pokunum.. verð að viðurkenna það! Svo var ákveðið að hitta Jón Gunnar á
Hooters (sem er misskilningur lífs míns, ég hélt þetta væri strippstaður, en þá er þetta bara eins og Hard Rock, með big-boobs gellum að þjóna) sem var á 4 hæð í MOA! Fengum okkur að borða fínan mat og chilluðum eftir búðarrápið! Svo um kvöldið var haldið af stað til
Bemidji með viðkomu á einum stað! Stoppuðum svo í
Brainerd (lol) á Perkins sem er dinerkeðja sem er útum allt og fengum okkur snarl á leiðinni
(5 tíma akstur sko)! Og mikið var svo gott að koma í hús heim til þeirra Sollu og JG og leggjast útaf og fara að sofa!
Dagur 3: (13.11.04)
Við vöknuðum um 10 leytið ef ég man rétt, og þá var haldið af stað að finna diner til að borða morgunmat, fundum líka þennan litla kósí stað og fengum okkur amerískan morgunmat, eggs overease, hashbrowns kartöflur, sausage og toast, appelsínudjús og kaffi! Ekki amalegt það! Svo fórum við að skoða
Paul og Babe minnisvarðana, sem er svona aðaltúristadæmið þarna í Bemidji. En Paul Bunyard er þekktast
lumberjackinn þarna á svæðinu! Kíktum svo í Indíánabúðir. Svo fórum við að vatninu, Lake Bemidji, sem er alveg risastórt vatn og mín var ekki alveg búin að kynna sér landafræðina áður en hún hélt til Ameríkunnar, og hélt að þetta væri sjórinn
*erhmm skammast mín*, en ég semsagt var búin að bíta það í mig að þetta væri við ströndina hjá Baltimore og þar....... en nóg um það! Svo fórum við í háskólann og kíktum á kvenna
íshokkíleik, svona ekta eins og maður sér í sjónvarpinu, lukkudýr og skólahljómsveit, svaka fjör! Svo fórum við stelpurnar á Perkins og fengum okkur snarl og kjöftuðum og
hlógum mjög mikið! Löbbuðum svo heim um sjöleytið og lögðum okkur til að verða níu um kvöldið, þá fórum við á Mexikóskan veitingastað og fengum okkur að borða
(alltaf að borða..) Síðan kom að því sem ég og Ásdís vorum búnar að bíða spenntar eftir allan daginn,
miðnæturferð í Wallmart, fórum um 11 um kvöldið og endalaust hægt að skoða og versla þarna. Mér finnst Wallmart vera svona eins og
risastór Hagkaupsbúð en K-Mart er meira svona eins og Bónus! Allaveganna, um rúmlega kl. 2 am. þá voru sumir orðnir þreyttir og skildu ekkert hvað þessar
íslensku gellur voru æstar í þessari búð og þá héldum við heim á leið. Þegar við komum svo heim, þá föttuðum við að við höfðum
gleymt að kaupa eitthvað ætilegt, þannig að einkabílstjórinn var ræstur aftur og við fórum aftur í Wallmart að kaupa okkur nætursnarl, starfsfólkið skyldu ekkert í þessum Íslendingum og
hlógu að okkur! Svo fórum við heim og héldum
náttfatapartí og kjöftuðum saman fram á nótt!
Dagur 4: (14.11.04)
Vöknuðum svoldið seint eða um 12 á hádegi, fengum okkur smá morgunmat og fórum eftir hádegi í mollið í Bemidji, JC Penney og K-mart.. Við Ásdís vildum svo fara á
MacDonalds og fá okkur að borða og gerðum það, þá svo að Solla hafi ekki verið hrifin af því, þar sem hún er búin að sjá of marga heimildarþætti um kjötið sem er í borgurunum þar.. sem er víst
ekki kræsilegt.. but so what, við fáum þá bara
kúariðu eftir nokkur ár hehehe! :) Við fórum svo á Perkins og chilluðum þar með kaffi og meððí! Um kvöldið kíktum við svo á fund og fórum með einni amerískri konu á kaffihús.. mjög næs! Þá var klukkan orðin dáldið margt og við fórum heim og chilluðum meira þar! Ég held ég sé ekki að muna allt........
Dagur 5: (15.11.04)
Ætluðum að vakna kl. 7.30 og fara með Sollu og JG í skólann, en þau ætluðu í fyrsta tímann, en sváfum aðeins yfir okkur. Ég vaknaði við að Ásdís var að hlæja af
svefnprumpi í mér haha, en svo fórum við að pakka og þjappa í töskurnar! Þegar við vorum ferðbúnar þá fórum við af stað og fengum túr í háskólanum þeirra, sem er mjög flottur og örugglega gaman að nema þar! Síðan fórum við í mötuneytið, sem var ansi flott, með fullt af
míníútgáfum af veitingastöðum, td.
Pizza Hut og fengum við okkur pepperonipizzu, brauðstangir og diet kók í morgunmat! Svo héldum við af stað til Minneapolis aftur en það er eins og ég sagði 5 tíma akstur, stoppuðum 2svar á leiðinni! Svo var kveðjustund á flugvellinum og leiðinlegt var að kveðja þau, því maður veit ekki hvenær maður mun sjá þau aftur! Síðan voru töskurnar opnaðar og athugað hvort maður væri með
geislavirk efni í farteskinu hehe.. Vorum svo í snarhasti í fríhöfninni að reyna að leita af einhverju meiru til að kaupa í Ameríku .. kaupóðar kellingar! Fengum sæti við innganginn í flugvélinni, og var eitthvað vesen á okkur því við máttum ekki hafa neinn handfarangur á gólfinu og ég var alltaf að standa upp og ná í eitthvað í hólfið og vesen.. svo fór Ásdís í hólfið og missti
headphones oná hausinn á kallinum sem sat við hliðina á henni og hún
klappaði á skallann á honum og spurði hvort hann væri í lagi! Það var mjög fyndið! Svo tókum við
smá myndaflipp og vorum svo
skammaðar af flugfreyjunni
"Stelpur ég verð að biðja ykkur um að hætta að taka myndir, fólk er að kvarta yfir flassinu" oh my gad.. mig langaði að hverfa oní farangursrýmið! Svo loksins komum við til Íslands, ekkert sofið í vélinni, maður var frekar úrillur og allir hinir í vélinni líka!
Pirrandi fólk í fríhöfninni.. úff maður má ekki stoppa við hillu í 1 mín þá er urrað á mann.. Komumst svo loksins
HEIM TIL OKKAR! Ég fór að sofa kl 10 á þriðjudagsmorguninn og svaf eins og steinn til 16.30, þá var bara
snjóskaflar inni.. ég sem var að lofta út.. hafði ekki hugmynd af þessu veðri! Svo kíktu Einar og co. í heimsókn og svo ætlaði ég að horfá sjónkann um kvöldið en
svaf allt kvöldið í sófanum, vaknaði svo með
mígreni og flugþreytu og er búin að vera hálfónýt síðan ég kom!
En
lokaorð um Ameríkuferðina; mjög gaman, mikið verlsað, mikið hlegið, mikið prumpað og mikið borðað! eða bara..
ÓGEÐSLEGA GAMAN OG ÉG FER POTTÞÉTT AFTUR TIL USA!
Ps: Ég er búin að setja inn helminginn af myndunum í myndaalbúmið, restin kemur líklegast um helgina!!