pælingar, nöldur og skemmtilegheit...

þriðjudagur, desember 28

Jæja nú fer bráðum að koma nýtt ár, nýtt ár með blóm í haga vonandi! Ég er rosalega mikið að velta fyrir mér næsta ári og ég er búin að taka eina ákvörðun en það er að skella mér í nám næsta haust.. svo er ég núna að velta fyrir mér öðru .. ætla að melta það í dag.. en sú ákvörðun kemur geðheilsunni við og hana vill maður hafa í lagi.. er það ekki? Ég mun láta ykkur kæru lesendur vita á næstu dögum hvað gerist..

Svo er ég búin að vera að pæla í einu, 2 vinkonur mínar segjast vita um fullkominn gaur fyrir mig og jájá.. en þær vilja ekki segja mér hver hann er (þó svo mig gruni það) og það eru rúmar 2 vikur síðan þær voru að tilkynna mér þetta en ekki er nú verið að gera mikið í því að láta mann hitta þennan gæja...... eins og ég hafi bara allan tímann í heiminum.. ég meina það eru margir gæjar á eftir mér, ég er upptekin kona og ég nenni ekkert að vera að bíða eftir því að fá að hitta þennan.. svo kannski passar hann ekkert fyrir mig!

Ég hef nú alveg lent í svoleiðis þegar vinkonur mínar eru að finna einhverja stráka fyrir mig........ þá hefur komið í ljós að ég hafi alls ekki fílað þá......

Þannig að ... stelpur, þið vitið hverjar þið eruð, hvernig væri að fara að gera eitthvað í þessu?

Má ég fá ímeilið eða símann eða msnið hjá þessum gaur?
Eða viljiði láta hann fá mitt dæmi?
Eða búa til hitting, eða skipuleggja blind date?
Eða er hann bóhem sem býr í indíánatjaldi í Laugardalnum?

sunnudagur, desember 26

GLEÐILEG JÓL!!!!!!!
Aðfangadagur var yndislegur, Auður Aþena gisti hjá mér og þegar við vöknuðum læddist ég með henni inní stofu og sýndi henni jólatréð sem ég hafði skreytt kvöldið áður og hún fékk einn pakka! Þá fór um mig gæsahúð og jólafílingurinn brast á! Svo fengum við okkur morgunmat og fórum svo í heimsókna/pakkaleiðangur! Kíktum fyrst til Beggu og fjölsk, svo til Sigrún og Ásu Maríu og enduðum í brunch hjá Önnu B og Roberti, þangað komu líka Ásdís og Ingimar.. hellings fjör og Auður auðvitað miðdepill athyglinnar hvert sem farið er! :)

Svo skilaði ég henni heim og fór heim að taka til og þrífa allt hátt og látt, hentist svo í jólasturtuna og svo brunaði ég suður í Hafnarfjörð til m&p ... svo borðuðum við góðan mat. Í forrétt var aspassúpan góða, svo var kálfahryggur sem var af hollensku kyni og alinn uppá mjólk sitt stutta líf og svo var ris ala mand'el (kann ekkert að skrifa það) svo réðumst við á pakkana og Auður fékk að hjálpa öllum að opna, rosa gaman!

Ég fékk ég fékk jesúmynd og jólakort frá Stínu, jesú mynd ó Stína er gamaldags... neinei ég fékk enga jesúmynd, en ég gæti svosem reynt að taka eina á nýju digital myndavélina mína!!!! .. sem ég fékk frá foreldrum mínum og Einari bró & fam. Mjög ánægð með hana og ég ætla að taka fullt af myndum! Svo fékk ég ýmislegt fleira, td. Súperflört, málningagræjur, (trönur, striga, pensla og liti), skál, fat og hnífa, brauðbakka og diskamottur, jólasápur og handklæði, 2 litlar bækur, jólaskraut og örugglega eitthvað fleira sem ég man ekki í augnablikinu!

Svo fór ég heim um miðnætti, alveg uppgefin eftir daginn og fór að sofa um 2 leytið, vaknaði svo ekki fyrr en 12.30 á jóladag og fékk mér þá graflax og paté í morgunmat! En svo byrjaði ég að fá hausverk dauðans og hann magnaðist bara eftir því sem leið á daginn og þegar ég var komin í jólaboðið hjá pabbafamilíu þá var ég bara orðin hvít framan og alveg að deyja.. þá keyrði Einar mig heim og ég lagði mig kl 18 og vaknaði kl 23.30.. vakti til 4-5 og sofnaði svo í sófanum til 7, fór þá inní rúm og vaknaði ekki fyrr en í hádeginu og er búin að vera með seyðing í allan dag! Ekki skemmtilegt!

Jú nú man ég, jólagjöfin frá vinnunni.. úlpa merkt fyrirtækinu.. og ekkert lítið merkt... say no more!
Svo er það bara vinnan á morgun kl 8 ... stutt jól maður!!! Nú er bara að bíða eftir páskafríinu!

fimmtudagur, desember 23

Vá hvað ég var bjartsýn áðan í hádeginu! Ætlaði aðeins að skjótast með bílinn í þvott á Þvottastöðina í Sóltúni.. neinei haldiði að röðin hafi ekki náð upp að Nóatúni.. og ég með minn hálftíma í mat... ekki að virka!
Tilraun 2 verður gerð eftir vinnu! :)

Jólin eru að kooooma!!!!!!!!
Jæja mín pakkaði pökkunum inní gærkvöldi á meðan ég horfði á Judging Amy, meira deiteríið á þeim bæ ég segi ekki annað!

Annars er ég ferlega einmana hérna í vinnunni, er bara ein með kerlunum... æji þær eru nú ágætar, verður maður ekki að vera góður á jólunum.... Annars er Bogga sem vinnur með mér (Búúúúrrrggghhhhhildúr det var hennes navn...) lasin með ælupest og kvef og allt... úff og ég byrjaði að fá kvef og vott af hálsbólgu í gærkvöldi og var frekar megluð þegar ég vaknaði í morgun.. en er aðeins skárri núna!

Áðan skaust ég í IKEA í kaffinu og kl var 9.40 og það var ekki búið að opna, þannig að ég fór í húsasmiðjuna á meðan.. en það voru komnir nokkrir fyrir utan IKEA að bíða... úff pant ekki vinna þar í dag!

Annars er það bara bókabúðin í kvöld eftir vinnu, svo að klára eitthvað, ég er samt búin að öllu sem ég ætlaði að gera nema að kaupa 2 jólakort..... og jú þrífa.. það verður bara gert á morgun eftir hádegi þar sem ég ætla að passa hana Auði Aþenu fyrir hádegi.. við ætlum að kíkja í sund eða eitthvað skemmtilegt! :)

Svo er það bara mjólkurkálfurinn annaðkvöld, kertaljós og klæðin rauð og væna flís af feitum sauð! Og pakkar!!!! Alltaf gaman að fá pakka, annars fékk ég nú pakka í gærkvöldi... síðbúna afmælisgjöf frá frænku minni en það var sængurver.. gaman nú ætla ég að vera með splúnkunýtt á rúminu á jólunum!

Plögga örugglega smá á morgun!!!!!!! Fariði varlega í dag, ekki tryllast í stressinu á Þollanum! og skatan...... úff úff úffffffffff..... farið í skítagalla og svo heim í sturtu.. hrikaleg lykt!

miðvikudagur, desember 22

Hvað er að ske?? það eru ekkert smá margir búnir að svara könnuninni í dag..... var einhver að linka mig einhversstaðar?? :)))

Ég hef ákveðið að hætta þessu væli og fara í jólaskap!! Kannski kominn tími til!
Fyndið með allt þetta dæmi "ertu búin að gera ALLT fyrir jólin???" hmmm nei ekki ég, ég á eftir að pakka inn öllu, kaupa í matinn (verð samt ekkert mikið heima), taka til og þrífa og skreyta meira! En ef ég myndi ekki gera þetta.. myndi þá allt vera í rúst? nei ég held ekki.. óþarfi að vera að stressa sig yfir rykinu á gólfinu.. en auðvitað myndi ég þrífa geðveikt vel ef ég væri heima á jólunum!

Annars var ég í sjúkranuddinu í morgun og mér finnst það alltof stutt, ég gæti alveg verið í klukkutíma að láta gelluna hjakkast á bakinu á mér, það er bara gott og vont stundum líka.. en Lilja mágga segir að maður yrði bara marinn og blár eftir svo langan tíma..

Ég á 2 uppáhaldsjólalög, ég er ekki búin að heyra annað þeirra og það er þegar Laddi syngur um jólastressið:
"Ég fer alltaf yfirum jólin .. á krítarkortinu......" snilldarlag.. ég ætti að fara og hringja í óskalög sjómanna og biðja um óskalag.. en hitt lagið er Sveinn minn Jóla; "Sveinn minn jóla, spanjólaaaaa er mesta besta mesta greyið mitt..." En á aðfangadagskvöld heima setjum við alltaf Þrjú á palli á fóninn.. mér finnst það rosalega jólalegt! :)

Ég ætlaði að skrifa einhverja fyndna jólasögu hérna, en ég man bara ekki hvað það var akkúrat núna.. þarf að fá mér bloggskrifblokk!

En ég man eina fyndna sögu sem gerðist á gamlárskvöld fyrir nokkrum árum, þá voru foreldrar mínir að fara í partí og mamma var að keyra.. pabbi búinn að fá sér smá neðan í því og svo þegar þau fara útúr bílnum, stendur mamma og sér ekki pabba, kallinn bara horfinn eins og jörðin hefði gleypt hann! Neinei þá hafði minn bara runnið kylliflatur undir bílinn og kallaði; "Dóra!! ég er hérna undir!!!!!" Og mamma meig næstum því sig af hlátri.. þetta lið sko hahahahah!

þriðjudagur, desember 21

Einar bróðir ætlar að skíra nýju dóttur sína Maíisena Mjöll ef hún fæðist í maí, ég ætla nú samt að vona Lilju vegna að það gerist ekki!!!!!

Chris vann í Survivor !!!!!!!! ííííhaaaa mikið var það nú gott, ég hefði nú orðið dáldið brjál ef sundbola-rednekkara-fríkið hún Twila hefði unnið.. en hún fékk þá 100 þús. $, vonandi að hún fái sér nýja greiðslu fyrir peninginn, hárið á henni var alveg met þarna í lokaþættinum!

Annars var ég með Sigrúnu á laugardaginn í hellings jólaríi og við kíktum á Jagúar í Skífunni á Laugaveginum, þeir voru semsagt þar að spila og ég verð að segja það að í þeirri hljómsveit er fallegasti og flottasti maður Íslands og neinei.. það er ekki hann Sammi sem var valinn kynþokkafyllstur (sem ég skil ekki alveg) heldur gaur sem ég veit ekki hvað heitir en hann spilar á trompet og er ljóshærður með glæra plastgleraugnaumgjörð.... úfff fékk alveg íana!!!!!
Var meiri að segja að spá í að eyða 1999 kalli í þá, en lét svo Lilju ræna disknum á netinu í gærkvöldi og ég er bara hálffegin því, því að diskurinn er sko ekki eins góður og sá fyrsti!

Annars er ég búin að vera með Robbie Williams æði og búin að nauðga Greatest hits disknum hans í tætlur og ég er með æði fyrir einu lagi og textinn í því er einhvern veginn að lýsa hvernig mér líður um þessar mundir (voða dramadrottning):

Come on hold my hand
I wanna contact the living
Not sure I understand
This role I've been given

I sit and talk to God
And he just laughs at my plans
My head speaks a language
I don't understand

I just wanna feel real love
Feel the home that I live in
'Cause I got too much life
Running through my veins
Going to waste


Hérna er allur textinn!

Robbie er æði, þótt hann hafi verið með prímadonnustæla í höllinni um árið!

mánudagur, desember 20

Ég var að velta fyrir mér um daginn í samband við sushi...... nú finnst mér það ekki gott og hef smakkað eina eða tvær týpur og ég hélt ég myndi æla. Samt var í þessu hráefni sem mér finnst ágætt, þeas hrísgrjón, gúrka, krabbasurimi.. en svo var helvítis þari utan um..... úff.. svo er til með allskonar hráum fiski og dóti og svo er þessu dýft í eitthvað grænt wasabi sem er hrikalegt á bragðið og sesamolíu sem er mjög vond að mér finnst.. svo er drukkið eitthvað vín með þessu sem er alveg hræðilegt.....

.... er fólk ekki bara að pína þetta oní sig af því að þetta er inn og flottur tískumatur, maður spyr sig?!?

Annars er ég með nýtt syndrom í dag.. eða X-mas Down Syndrom!

föstudagur, desember 17

Það er bara brjúúúúúúúlett að gera hérna í vinnunni hjá mér, ég er að vinna eigilega 2-3 störf... alveg fáranlegt að láta mann vinna það mikið að maður hafi ekki tíma til að blogga sko!!!!!

Og já, pabbi hennar Sigrúnar ætlar að koma á morgun heim og festa upp hillurnar fyrir mig...... svona eru greinilega margir laghentir einhleypingar að skoða þessa síðu hérna.. að maður þurfi að fá pabba vinkvenna sinna.. isss.. en ég veit þó allavega að þetta verður vel gert! :)

Idol í kvöld.. ég vona að það komist 2 strákar áfram.. maður nennir ekkert að horfá þetta stelpnager endalaust!

Annars ætla ég að reyna að klára að skrifa utan á umslögin fyrir jólakortin og henda þeim í póst um helgina, ég er búin að kaupa allar gjafir.. en ég er samt alltaf ennþá að fara í Kringluna og Limalind.. fór í gærkvöldi í 2 tíma á báða staði en keypti ekkert...... var að reyna að finna mér eitthvað .. en fann ekkert, enda er feitan og ljótan á háu stigi.. þá er ekkert sniðugt að fara og kaupa föt! :)

Sá Nylon gellurnar performa í Hagkaup.. þær tóku eitthvað lag sem var með svona texta: "vakna þunn, æli í bíl, strákurinn vill mig ekki, var svo full í gær, meika ekki neitt......" hmm..... eru ekki einungis litlar stelpur að hlusta á þær.. mér fannst þetta nú ekkert sniðugur texti... fyrir 4 ára stelpur.. þær hvort eð er skilja hann ekkert! Núna eru þær allt í einu allar með gleraugu, sá eitthvað í Mogganum að þær hefðu verið að syngja í gleraugnabúð.. alveg magnað!

Annars sá ég líka Heiðar snyrti, hann er að vinna í snyrtivörunni í Hagkaup í Limó.. ég sá nebblega viðtalið við hann í Pirrí líka.. þetta er örugglega hið besta grey, ótrúlegt hvað fjölmiðlar geta eyðilagt líf fólks... hann þurfti að flýja land, fær enga vinnu hérna.. ömó! Svo er hann líka svo góóóður við konur! Alltaf að hrósa þeim! En þið sem sáuð þennan þátt, haldiði ekki að hann hafi þekkt skriftina hjá Lindu P ?? Ég meina þau eru vinir!

ÆJi ekki meira rövl..... farin í helgarfrí!!!! :) Ps. ömurleg jól í ár, þetta er bara helgi!

fimmtudagur, desember 16

Vá ég var ekkert smá andlaus í gær, ég gat ekki hugsað um neitt sem mig langaði að blogga um, af því að hvert og eitt blogg hjá mér verður að vera svo rosalega merkilegt.. hahaha! díííjók!

En varðandi könnunina hérna til hliðar um hrikalegar jólagjafir, þá hef ég fengið 2 á þessum lista .. og fyrri var þegar ég var 14 ára og fékk norn á kústi sem var strengjabrúða.. ég fór næstum að grenja ég var svo móðguð... ég var líka extra vælin á gelgjunni.. en það er nú efni í aðra sögu! Og hin var þegar ég fékk Colgate rafmagnstannbursta frá exinu.. oh my gad.. svona er maður greinilega andfúll.. reyndar fylgdi ekki tannkrem eða skol með... ég hefði nú látið það fylgja með til að fullkomna gjöfina!

Annars hef ég örugglega fengið margt annað sem mér hefur fundist skrítið og ég þyrfti að búa með einhverjum til að geta kallað; "HÚN GULLA FRÆNKA ER KOMIN Í HEIMSÓKN!!" .. allavega fékk ég einu sinni uglustyttu og hefur hún aldrei verið á mínum glámbekkjum heima!

Annars líður mér frekar illa fyrir hönd Birgittu Haukdal.. úff ég fæ alveg í magann við tilhugsunina um þessa dúkkudruslu þarna... Ég var í Hagkaup í Smáralind um helgina og ég sá heilu staflana af þessu og enginn virtist vera að kaupa hana, sem er ekki skrítið því að hún er ekki bofs lík Gittu litlu Hauks... Henni hlýtur að líða ferlega yfir þessu, hefur verið voða spennt yfir þessu og svo kemur þessi líka herfilega fígúra.. Og hún greyið er að reyna að gera gott úr þessu, það liggur við að ég kaupi plötuna hennar bara af því að ég vorkenni henni svo..

Annars er ég að fara að hitta hana Svölu Birnu í kvöld, við ætlum að gera eitthvað skemmtó enda langt síðan að við höfum hisst!!

þriðjudagur, desember 14

Jólafötin í ár?
Jú auðvitað sundbolur og strigaskór eins og hún Twila í Survivor er alltaf í! Ég veit það er kalt úti en þá vippar maður sér bara í kápu!

Ohh afhverju var hún ekki rekin í gær...... alveg þoli ég hana ekki og heldur ekki Scout sem hefur ekki getað bofs allan tímann!

Hef svosem ekkert að segja.. nema.. hvað er málið með að rífa upp jólakortin um leið og þau koma inn um lúguna? Alltaf hefur jólakortaopningar verið sér serímónía eftir pakkana og allir komnir í náttföt uppí sófa, þá opnar mamma umslögin og pabbi les upphátt.. mér finnst það alltaf dáldið kósí! :)

mánudagur, desember 13

Í morgun kl. 7.45 þegar ég var að hlaupa út, þurfti endilega ein kelling sem býr á hæðinni fyrir ofan mig, sem við skulum kalla JH þar sem ég vil ekki að nafn hennar komi fram.. en hún þarf alltaf að byrja að rövla eitthvað ef maður hittir hana á stigaganginum og jú viti menn, í morgun var engin undantekning á því!

Hún byrjar á því að segja með svona kellingatón; "viltu halda hérna hurðinni meðan ég set blöðin innfyrir?" (sko Fréttablaðinu er alltaf hent bara inní forstofuna því það er læst þar sem póstkassarnir eru, sem er fáranlegt, en eníhú..) og ég sagði: "jájá" og hélt hurðinni og á meðan beygði hún sig með sín 150 kg. minnst og ég sagðist nú alveg geta gert þetta bara.. en nei hún vildi það ekki.. svo þegar hún var búin að þessu þá kom hún alveg uppað mér og horfði á mig fyrir ofan gleraugun.. "þú veist að þegar þú ert með ruslavikuna, þá átt þú að passa að niðurfallið stíflist ekki, því annars getur flætt inn... bladíbla...." og ég alveg að springa inní mér sagði voðalega saklaus.."nú ég vissi það ekki!" og þá sagði hún "þér hefur örugglega ekki verið sagt það .." og ég nei.. og svo fór ég út og hljóp útí bíl svo hún myndi ekki bögga mig meira..

ÞETTA ER EITTHVAÐ SEM MAÐUR ÞARF EKKI Á MÁNUDAGSMORGNI!!

Annars var ég í fyrsta tímanum í sjúkraþjálfuninni áðan og ég er víst með mjög slæma líkamsstöðu, stend hokin og bein í fótunum sem er ekki gott, nú á ég að fara að rétta úr herðunum og vera aðeins bogin í hnjánum og fött.Og mér finnst ég vera alveg brandari þannig.. en best að fara að reyna að bæta úr þessu, svo var hún að pína mig aftan á hálsinum.. úff þetta á ekki eftir að vera neitt sæluprógramm, en þetta á laga hausverkina mína, þannig að ég ætla sko heldur betur að leggja þetta á mig! :)

Fyndið.. ég var að lesa síðasta blogg og svo þarsíðasta og þessi kærastaþráhyggja mín er greinilega annan hvern dag hehe!

Annars stendur Nupo Lett uppi sem sigurvegari fyrir verstu jólagjöfina! ...skrítið..

sunnudagur, desember 12

Sunnudagsblogg.. hvað kemur til??




Sjá manngreyið í framan, Júsénkó.. forsetaframbjóðandi í Úkraínu.. ég myndi nú ekki vera að láta taka myndir af mér ef ég væri svona í framan... úff.. reyndar sagði einhver við mig um daginn að kannski yrði maður svona í framan ef maður myndi smyrja appelsínuhúðarkremi í andlitið... tja.. hver veit?

Annars er jólaþunglyndið að leggjast meira og meira yfir mig.. minna en 2 vikur í þetta.. samt svo fáranlegt að vera meðvituð um það. Mér langar bara að eiga kærasta um jólin, það er málið! .... einhvern til að fara á Laugaveginn í snjókomu um kvöld, einhvern til að ljá mér fingur þegar ég set krulluböndin á pakkana og einhvern til að knúsa mig á jólanótt.. svo ég þurfi ekki að gista heima hjá mömmu og pabba í 7. skipti eftir að ég flutti að heiman... já maður er rómantíkus greinilega.. vá þetta hljómar svo sorglega.. ég þarf að hrista þetta af mér, vera þakklát fyrir að hafa góða heilsu og eiga góða að, ég ætla bara að fá að knúsa hana Auði Aþenu frænku mína í staðinn :-)

Svo veit ég líka að ég fæ bókina Súperflört í jólagjöf, þannig að ég ætla að reyna að stúdera hana á milli jóla og nýárs svo ég get fundið mér einhvern með hlýja hönd til að halda í á gamlárskvöld!
Múhahahha!

Sad but true!!!! Eins og metalgæjarnir sungu forðum..

föstudagur, desember 10

P-orðið!

Hallóhalló fólkenz.. hver er mætt, jú engin önnur en Anna piparsveinka!!!!!!! :)
Proud 2 B bachelorette!!!!!!! Yeah! þótt það sé stundum ekkert gaman, er ég samt stolt af því að vera sjálfstæð kona og sjá um mig sjálfa!! Hver þarf kall til að skipta um ljósaperu spyr ég? Ég þarf reyndar mann til að koma og bora fyrir mig, og já by the way.. ég er að drukkna í tilboðum.. viljiði reyna að hemja ykkur!

Ekki ég sagði EKKI láta plata ykkur á "Skómarkaðinn Laugavegi 51" .. ég álpaðist þarna inn um daginn, ég var líka á Laugaveginum, sem betur fer gerði ég mér ekki sérferð því að þegar ég kom inn, datt af mér andlitið og ég missti útúr mér við afgreiðsludömuna með vonsvikinni röddu; "er þetta UN markaður???" Pjúk og æl, hver er ekki komin með ógeð af þessum skóm??????

Mér finnst ferlega fúlt, það er 10. desember og ég er ekki í neinu sem heitir Jólaskap! Ég er að reyna að hlusta á jólalög og er að versla jólagjafir.. hangandi í þessum kringlum og limum en ekki kemst ég í jólaskap....... heldur frekar í jólaskvap... Ég fer í hátíðarskvap...
Og jú það er víst "er enn barnahátíðin mest trallalalla barnahátíðin mest!" hehehe þetta er víst mjög algengur misheyrningur hjá fólki að halda að það sé sagt eldvarnarhátíðin mest.. Helga Möller sko.. reyna að syngja betur maður!

Annars horfði ég loksins á Kill Bill 2 í gær og hún er ÆÐI!!! Uma Thurman aka. Black mamba er gyðjan mín, hún er svo svöl, gefst ekki upp og er fighter dauðans, samt líka með viðkvæmar tilfinningar og þó hið mesta hörkukvendi, ég tala nú ekki um útlitið sem hún hefur svo sannarlega með sér.. alltaf töff, þótt hún sé útötuð í blóði og drullu!
Töffuðustu myndir sem ég hef séð eru Kill Bill 1 og 2 .. ef einhverjum vantar tips um jólagjöf handa mér!!!! :)

miðvikudagur, desember 8

Ég er farin að blogga alltof seint á daginn, ég veit ekki hvort þið hafið tekið eftir því en ég er nú yfirleitt vön að gera það fyrir hádegi (sko blogga, ekki geraða.. veit nú ekki hvað það er núorðið..) og aldrei blogg um helgar! Ég er atvinnubloggarinn, fæ borgað fyrir að blogga!

Hver fann annars uppá þessu ömurlega orði yfir þetta, blogg... þetta eins og eitthvað sem froskur myndi segja.. "bloggblogg"...

Annars ætlaði ég svo mikið að skrifa eitthvað hérna í dag, ég var að hugsa um það í gærkvöldi, eitthvað alveg geðveikt sniðugt.. já nú man ég eitt atriðið og það er sko ekki sniðugt! Sáuði þið Gullu fámípíkpónónó ógeðið í gær?!?!??!! Ó MÆ GAD í hóruleðurstígvélum fyrir ofan hné, eiturgrænum sokkabuxum, knallstuttuunglingapilsi og grænum stuttermabol með brjóstin lafandi niður á maga... halló? Hver er staðnaður í aldri?? Mér finnst Vala Matt æðisleg og brilliant eftir að Gulla byrjaði með henni í þessum og líka þessi Þórunn Högna.. úff... say no more! Samt cool að það sé hægt að mála og bæsa gamla leðursófa!

Og svo tók ég Texas Chainsaw Massacure (örugglega ekki rétt skrifað) og Ken Park á dvd í gær, sú fyrri var nú frekar leim.. ég hefði samt ekki getað horft á hana seint.. en ég meina á þetta að vera sannsögulegt? Maður með leðurgrímu, eða semsagt fláði andlit af fórnarlömbum sínum og notaði sem grímu...... jájá en Ken Park myndin var dáldið cool, fyrir þá sem fíla öðruvísi myndir. Hún er eftir sama dúddann og gerði Kids forðum.. og myndin minnti mig dáldið á Gummo sem er líka stórfurðuleg mynd, nema meiri kynlífssenur í þessari.. örugglega sem að myndi hneyksla margan græningjann..

Auglýsing: Ertu einhleypur karlmaður sem hefur aðgang að borvél eða þekkiru einn slíkan? Mig vantar mann í smá verkefni, bora upp 2 Lack hillur úr IKEA, helst fyrir jól, endilega sendið mér ímeil!

þriðjudagur, desember 7

Lásuði um manninn á Sauðárkróki sem konu sem er uppblásin dúkka í DV í gær? Brilliant hvað það er til klikkað fólk.. Hann tekur hana víst með sér í búðina að versla og svona, og fólkið í bænum er eitthvað að hneykslast yfir þessu, hann hefur m.a.s. reynt að fá hana skráða í þjóðskrá og skilur ekkert í yfirvöldum.. en nú er hún víst farin að leka og hann þarf að kaupa sér nýja, en þær kosta 7.000 kr. í Evu og Adam eða einhverri svona dótabúð.. en hann sagði að sér væri sama því honum fyndist alltaf gaman að kynnast nýjum stúlkum!

Annars horfði ég á 70 mín í gærkvöldi, eitthvað sem ég gleymi alltaf að gera.. og ég grenjaði úr hlátri og viðbjóði.. En það var einmitt yfir dagskrárliðnum "Viðbjóðurinn"... Og það var þannig að þeir tróðu allir grænum risaópal uppí nefið á sér og svo fóru þeir í flöskustút og stúturinn lenti á Huga.. og hann þurfti að éta 8 ópal með hori, ýmist blautu og kekkjóttu... og hann sko titraði af viðbjóði þegar hann var að tyggja þetta og ég öskraði heima með hendurnar fyrir augunum og sá bara svona smá í efra hornið vinstra megin!!! Djöfuls andsk.. vibbi maður! Mér finnst reyndar ekki sniðugt að sýna svona, því að þá fara krakkar að herma og festa ópal í nefinu..

Ég sá nebblega um daginn á Reality TV þátt þar sem var verið að sýna þegar það var verið að draga baun eða einhvern fjandann úr nefinu á 5 ára gömlum krakka og það var ógeð.. hann öskraði eins og hann ætti lífið að leysa.. sjálf held ég að ég hafi aldrei fest neitt í nefinu á mér... man allavega ekki eftir því!

Svo var algjör snilld á þessari Reality TV stöð, það var falin myndavél í ljósritunaherbergi í fyrirtæki og svo kom ung venjuleg kona inn að ljósrita, svo fer hún og kíkir hvort einhver sé að koma.. svo fer hún að ljósritunarvélinni og flettir niður um brjóstin á sér og ljósritar þau.. svo fer hún að gá aftur hvort einhver sé að koma og neinei.. fer ekki mín bara að vélinni, vippar niðrum sig næríurnar (hún var í pilsi) og sest uppá vélina og ljósritar, svo stendur hún upp og nær í Ajax og þrífur glerið! Hahahhaha! Þetta er víst mjöööög algengt.. sjálf hef ég nú bara ljósritað á mér fésið og verið einmitt svona að gá hvort að einhver sé að koma!

Annars er ég bara ánægð með niðurstöður kynjakönnuninnar, en það eru semsé 6 karlmenn og 22 konur að skoða! Nú set ég inn nýja könnun og allir að taka þátt.. það er svo gaman! :)

mánudagur, desember 6

Iss piss það verða bara stelpur í idolinu í smáró maður!! Ég hélt með Einiberjarunnanum.. enda fremur sætur strákur á ferð, en ekki það sætur að ég tímdi að borga 99 krónur með honum.... hefði kannski átt að gera það, það munaði víst svo mjóu á honum og gellunni í öðru sæti..

Annars var helgin hinsta mesta afslöppun, og þó.... ég fór í Bodyshape tíma á laugardagsmorguninn og ég hélt að ég myndi ekki komast fram úr rúminu í gærmorgun... HASSSPERRUR DAUÐANS takk fyrir!! Hún Anna María fyrrverandi skólasystir mín var með tímann og þvílíkt sem hún þrældi manni út, en það er bara fjör.. en ég held að ég hafi ekki teygt nógu vel eftir á.. eða þá að ég er bara ekki í nógu góðu formi maður! Og ég er ennþá með ógeðslega strengi í lærunum, ég labba eins og gamalmenni um.......

Fyndið hvað maður heldur að maður hafi tekið extra vel á þegar maður er með harðsperrur.. en í raun þá er það bara útaf því að maður teygði ekki nógu vel á eftir....

Svo fórum við Auður Aþena í 3 ára afmælið hjá henni Ásu Maríu í gær, það var nú heldur betur fjör og þær tóku dansinn með jólasveinahúfur.. heví miklar dúllur!

Hvað er með þetta skammdegi hérna.. það mætti halda að maður byggi á Jan Mayen! Þegar ég verð gömul ætla ég að flytja til heitu landanna á veturna og verða dökkbrún krumpurúsína á sólbekk! :)

föstudagur, desember 3

Vill einhver leiðrétta mig?


Það var aðfangadagskvöld, fyrsta aðfangadagskvöld
á jólahátíðinni!
Fyrsta aðfangadagskvöld, fyrsta aðfangadagskvöld
þegar eldvarnahátíðin verst lalalala
Barnahátíðin best!

Hvaða eldvarnahátíð??





Hún Ása María dúlla er 3 ára í dag, til hamingju dúlla !!! Ég veit þú skoðar alltaf bloggið mitt! :)

Ástæðan fyrir þessari kynjakönnun er sú að ég mig langar að vita hversu margir eru að skoða þetta að staðaldri....... og líka hversu margir strákar.. og ég er greinilega MJÖG vinsæl hjá hinu kyninu.. alveg 3! :)

Annars var ég nú að leika mér í photoshop í gærkvöldi heima hjá Einari bró og Lilju og ég setti afraksturinn í sér möppu í albúmið mitt! Þetta er bara gaman sko..



Ég í góðum fíling!



Hvað er betra en að afskræma sig verulega þegar maður er með feituna og ljótuna.. ég var alveg að missa mig í þeirri skemmtilegu veiki í gær og Lilja greyið varð fyrir barðinu á kvörtunum mínum.. en svona er þetta bara.. flestar konur kannast við svona daga (er það ekki örugglega?) En þar sem það eru nú 3 karlmenn að lesa þetta, ætli þeir fái svona daga.. finnist þeir ógeðslega ljótir í einn dag?

Annars ætla ég bara að nota helgina í rólegheit og fínerí.. ætli maður skreppi ekki í einhvern verslunarleiðangur eins og allar helgar fyrir jól! Ég á eftir að versla inn smotterí af jólagjöfum.. er einhver með góða hugmynd af sniðugri möndlugjöf, sem passar fyrir allan aldur? Mamma var eitthvað að vandræðast með það um daginn...

Jæja góða helgi fólkenz!


fimmtudagur, desember 2

ALLIR AÐ TAKA ÞÁTT Í KYNJAKÖNNUNINNI!

~ ~ ~ VERIÐ SVO GÓÐ PLÍS ~ ~ ~

Hvernig ætli maður yrði í andlitinu ef maður myndi setja cellulite krem í fésið í 2 vikur? *pæling*

Ég held ég sé orðinn klikk, ég er 2svar búin að reyna að opna húsið mitt með fjarstýringalykli... hahaha.. svo hef ég næstum labbað á hurðir því ég held þær séu rennihurðar og svo hef ég sett hendurnar undir krana og beðið eftir að hann fari sjálfvirkt af stað.. eins og er í kringlunni.. já það er tækniöld!

Svo er tvennt sem mér finnst ógeðslega pirrandi við FÓLK! Og það er annarsvegar pakk sem er að treina rauða ljósið.. semsagt maður er á eftir bíl og það er rautt ljós framundan og hann keyrir á 5 kílómetra hraða síðustu 10 metrarana að ljósinu, en ég ætla að beygja til hægri og þarf að komast inná beygjuakreinina... arg!!!!!!!!

Og hitt er; þegar maður er að labba á almenningsstað, td. í Kringlunni eða útúr búð eða eitthvað, og fólkið fyrir framan mann blokkerar alveg fyrir mann þannig að maður kemst ekki framhjá, og svo labbar þetta lið geðveikt hægt, eitt í heiminum og stoppar svo allt í einu og maður klessir næstum því aftan á það! pirrpirrpirr

Ok.. búin að losa tvennt úr pirrínupakkanum mínum, hvernig væri annars að byrja með þátt í alvörunni sem heitir Fólk með Pirrí og fá pirrað fólk í þáttinn til að ausa út svona pirring?

Annars horfði ég á Kastljósið í gær og þvílíkan og annan eins æsing í einum manni hef ég ekki séð (í sjónvarpi allavega), en það var óperusöngvarinn hann Kristján litli Jóhannsson! Semsagt útaf þessum krabbameinsstyrktar tónleikum.. og hann var strax í þvílíkri vörn og trylltur og þegar nýja stelpugreyið hún Eyrún var að reyna að tala og spurja, þá greip hann alltaf frammí og sagði einu sinni meira að segja; "hún er bara orðin rauð á bringunni, hún er svo æst!".. ég skemmti mér konunglega að horfá þetta á meðan ég var að setja upp nýju bláu berjaseríuna mína í stofugluggann!