pælingar, nöldur og skemmtilegheit...

mánudagur, janúar 31

Eins og kannski sumir hafa séð í myndaalbúminu þá skruppum við Ásdís í Polakortið í gær sunnudag með myndavélarnar okkur eins og lúðar dauðans.. sem við kannski erum! Allavega var maðurinn hennar Ásdísar ekkert æstur í að labba með okkur þarna.

Allavega þá fannst mér eitt fyndið sem við sáum þarna og það var Samúel blað frá 1993 held ég, ég held það hafi ekki verið eldra.. en allavega þá gluggaði ég aðeins í það og miðju stúlkan var ekki beint í neðanháratískunni sem er í dag. Það var allavega ein myndin í svona opnu þeas. 3 blaðsíður dregnar út.. og þar lá hún útglennt ber að neðan.. úllalla.. en ég er að segja ykkur að það sást ekki einu sinni glitta í barm þarna.. svo mikið var loðið! Þannig að tímarnir eru breyttir gott fólk.. svoleiðis held ég að sé ekki í boði í nýjustu pornblöðunum... ég meina.. hvernig fóru karlmenn að hérna áður fyrr.. þegar konur voru bara eins og af náttúrunnar hendi með brúskinn útí loft!?

En eins og við vitum þá fer tískan í hringi og ætli það verði ekki komin loðtíska aftur eftir nokkur ár... eða hvað?

Einhver staðar heyrði ég að stelpur væru miklu loðnari á rassinum (kringum stjörnuna) nú til dags heldur en fyrir nokkrum árum þegar g-strengir voru ekki í tísku. Nú þar sem líkaminn notar hárvöxtinn til að halda á sér hita er þetta lógískt.. En hvað veit ég um það sem geng um í old fashion brókum svona dagsdaglega.. enda sagði hann Haffi Sæm mér að stelpur ættu bara að vera í skapadulum um helgar..




En hvernig væru ef karlmenn gengu í typpadulum? Stelpur fíliði það??

laugardagur, janúar 29



Ég myndi frekar horfá 20 þætti samfleytt af Fólk með Pirrý á slæmum degi en að hlusta á korter af morgunþættinum á fm 957 á góðum degi! Ég hata hláturinn í þessari beyglu!

Ps. Ég var að fá mér splúnkunýtt albúm fyrir myndir úr nýju diggídí vélinni! Líka linkur þarna til hægri! :)






You Are 20 Years Old


20




Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe.

13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world.

20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences.

30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more!

40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax.




föstudagur, janúar 28

Er maður farinn að eldast eða? Hanga heima hjá m&p á föstudagskvöldi að taka quiz á netinu?!?!


discover what candy you are @ quiz me


YELLOW



You are very perceptive and smart. You are clear and to the point and have a great sense of humor. You are always learning and searching for understanding.




Find out your color at Quiz Me!


Quiz Me
Anna Sig spins tunes as
DJ Super Star

http://quizme.stvlive.com/djname/quiz.php

fimmtudagur, janúar 27

Nýjasta uppáhaldsgosið mitt er Coke Light! Það er baaaaara gott og örugglega eitthvað ávanabindandi í því.. hmm já reyndar, koffínið! En ég hef svikið hitt uppáhaldið sem var Pefsí Mahhkkssss.... En ég verð nú að halda áfram að sætta mig við það heima hjá foreldrunum mínum þar sem þau eru Egilsfólk.. sem hún mágga mín þarf að sætta sig við alla sunnudaga, þar sem hún er frekar í Vífilfellsbransanum!

Annars var hún Thelma vinkona með góða kenningu.. að fólk skiptist í 2 hópa:

Hópur A:
Drekkur Pepsi
Borðar Doritos
Notar Mac tölvur
Er með Ericsson/Motorola gsm

Hópur B:
Drekkur Coca-Cola
Borðar Maarud snakk
Notar PC
Er með Nokia síma

Það er nokkuð til í þessu, reyndar tilheyri ég báðum.. nema að ég hata Macca tölvur.. og það er bara af því að ég kann ekkert á þær, en snakk iss bara gefiði mér eitthvað snakk!!! ____________________

Ég var í gærkvöldi að skúra og þá hugsa ég stundum dáldið.. bara pínu! Og ég var að spá í þessu með hugtakið "að kalla allt ömmu sína" ... hmm hver gerir það? Dæmi:

Manneskja sem kallar EKKI allt ömmu sína:
"Í gær skrapp ég í Kringluna, fór inní Vero Moda og sá geðveikt flottan jakka. Svo mátaði ég jakkann og hann smellpassaði og ég ætlaði að kaupa hann. Tók upp debetkortið og gellan renndi því í gegn.. engin heimild.. ohh.. rétti henni Vísa kortið.. engin heimild! Damn.. ég á engan fokking pening! Best að halda áfram að druslast í gamla jakkanum þá!"

Manneskja sem kallar ALLT ömmu sína:
"Í gær skrapp ég í Ömmuna, fór inní Ömmu og sá geðveikt flotta ömmu. Svo mátaði ég ömmuna og hún smellpassaði og ég ætlaði að kaupa hana. Tók upp ömmuna og amma renndi henni í gegn.. engin amma.. ohhh rétti henni hina ömmuna.. engin amma! Damn ég á enga fokking ömmu! Best að halda þá áfram að druslast í gömlu ömmunni þá!"

(Ps. Þessi saga var uppspuni frá A-Ö)

miðvikudagur, janúar 26


ég er aðeins að prófa hérna..


Maturinn á Argentínu áðan, við fengum eina kóngarækju í lystauka á undan og svo fékk ég mér Entrecoté steik... MmMMMmmM ekki amalegt!

Já í dag á enginn annar en hann Einar bróðir minn afmæli, orðinn 24 vetra foli! Til hamingju með það bróðir sæll!

Ég man þegar ég varð 24 vetra, þá hélt ég uppá afmælið mitt í Rauðagerðinu þar sem ég leigði og þá var nú kátt á hjalla. Einar var þar einmitt líka, ansi magur og drukkinn og stelpurnar vinkonur mínar píndu hann og settu á hann fjólubláan varalit múhahahha!

Í tilefni dagsins verður farið útað borða á Argentínu í kvöld.. mmmm mig hlakkar til! Mig langar í nautasteik og bernaissósu.. bara svona til að fá smá fitu í kroppinn, þar sem ég er svo iðin í lífrænt ræktaða grænmetinu sem ég er borða annars alltaf...... YEAH RIGHT!

Ég er búin að fatta afhverju ég er alltaf með hausverk... hmm... no sex=headache!

Eitt lítið lag í lokin, tileinkað honum bróður mínum (þó að heiti ekki Jón):

Sæll, ég heiti Jón
og ég vinn í Kassagerðinni
um daginn kom forstjórinn til mín
og sagði:
Jón, ertu upptekinn?
Ég sagði nei.
Svo ég hristi hægri hendina.
Sæll, ég heiti Jón
og ég vinn í Kassagerðinni
um daginn kom forstjórinn til mín
og sagði:
Jón, ertu upptekinn?
Ég sagði nei.
Svo ég hristi vinstri höndina....
os.frv.

Ef þið vitið ekki hvaða lag á að syngja verðiði bara að hringja í mig!

Ps. Það eru 5 loðnir menn á bringunni að lesa bloggið, ég veit hverjir 2 þeirra eru... en hverjir eru hinir hmmmmmmmmm?!?!?!?

þriðjudagur, janúar 25


Hversu tæknilegt eru fjölskyldusambandið orðið þegar foreldrar mínir hringja og tékka hvort thad sé allt í lagi med mig vegna þess að ég er ekki búin að blogga í 2 daga? Maður spyr sig hehe.. Jú ég er á lífi, er bara búin að vera upptekin við annað, það kemur nebblega einstaka sinnum að ég eigi líf.. Alveg satt! En nei ég er ekki gengin út, er ekki kærustutýpa eins og einn sagði svo skemmtilega við mig um daginn! Nú sendi ég út beiðni til ykkar lesenda minna: Þekkið þið virkilega enga single stráka þarna úti til að kynna mig fyrir?? Ég er orðin geðveik á því að hitta feita, holgóma lúða með vatnshöfuð sem huxa bara med typpinu!! ...hmm ég virðist ekki eiga merkilegt líf núna þar sem ég pikkaði allt þetta á gemsann minn!
Myndina sendi Anna
Powered by Hexia

sunnudagur, janúar 23



I am nerdier than 3% of all people. Are you nerdier? Click here to find out!



Ég er sko alls enginn nörd sko.. jibbí!

föstudagur, janúar 21

Jæja nú er komið að hinum árlegu blómabúða- og snyrtivörudögum sem minna okkur hin einhleypu á hvað það er nú pathetic að vera svona alein og yfirgefin að við fáum engin blóm eða ilmvötn... En það eru Bóndadagur sem er í dag, hinn klígjulegi Valentínusardagur þann 14. feb og Konudagurinn þann 20. mars.

Nú þar sem ég hef orðið vör við og vitni að hvernig harðgift fólk og sambýlingar á þessu landi haga sér, þá held ég að þessir dagar séu góð leið til að friðþægja sig vegna samviskubits. Jú, Íslendingar eru alltaf að halda framhjá mökum sínum. Lítum á háa tíðni hjónaskilnaða... hmm.. hvað gæti hafa gerst? Lítum á einkamálasíðurnar, einkamál.is, prívat.is, gamansaman.is.... jú þessar síður eru með fullt af auglýsingum um fólk sem er að leita að einhverju kryddi í tilveruna. Auðvitað er líka einhleypt fólk (including me) þarna inni að leita að ástinni ... o ó nú kemur sjokkið: í prósentum talið er örugglega meirihlutinn af fólkinu þarna inni harðgift eða í sambandi!

Hvað þýðir það? Er allt að verða kreisí? Og þetta eru ekki bara karlmennirnir heldur líka konur. Ég hef eftir einum strák sem ég þekki að konur eru ekkert skárri í þessum málum, um leið og eitthvað smá er að í sambandinu.. þá vilja þær oft leita til annars manns til hugga sig og þá fara þær á einkamál og ná sér í einn slíkan no problem for John Boblem! Og í gær talaði ég við 22 ára gamlan strák sem vildi bjóða mér blíðu sína, þó svo að hann ætti kærustu. Hún var bara svo ung sagði hann, 17 ára! Og hann vildi vera með eldri konum, þá spurði ég hann afhverju hann væri með henni! Þá sagði hann: "veistu, ég bara veit það ekki!" .. hmm... svo spjallaði ég aðeins við hann og þá kom í ljós að þetta var einhver hasargella, bara svona show off við hina strákana.. en í raun vildi hann vera með eldri konum....... Já fólk, svona er Ísland í dag!

Ég held að ég sé bara ánægð að vera einhleyp, þá þarf ég ekki að hafa áhyggjur af kallinum mínum... ok ég veit þetta er soldið svartsýnt hjá mér hérna.. en svona er þetta bara ? Og örugglega búið að aukast eftir að þessar netsíður byrjuðu.... en það þarf nú ekkert alltaf þær til held ég.. vinnustaða, áhugamála og djamm framhjáhöld... þetta er allt til, og svosem engar nýjar fréttir!

Maður þarf bara að eignast mann sem er algjör lúði sem enginn önnur kona myndi snerta með löngu priki, þá er maður seiv! múahahhaha en hver vill það.....

fimmtudagur, janúar 20

Sorry fólks æ dónt nenn tú blogg túdei, æ hev gat an hedeik and ðer is verí much tú dú in mæ vörk.. æ vill ræt somþing túmorrov! :)

miðvikudagur, janúar 19

Ég hitti fyrrverandi skólasystur mína í gær og það fyrsta sem hún sagði var; "Hæææ ertu komin með börn?" ... ekki átti ég að vera komin bara með eitt heldur tvö eða fleiri.. og ég: "uhh nei.. ég á nú ekki einu sinni kall hehe...!" Henni fannst það nú ekkert fyndið og ég bætti við; "það er nú betra að ná sér í svoleiðis fyrst..." Þá kom bara einhver skrítinn svipur eins og hún skildi það ekki.. Enda ekki verið single síðan hún var 14 ára gæti ég trúað... En svo spurði hún mig hvað ég væri að gera og um vinkonur mínar.. sem eru nú nokkrar óléttar!! (kannski þessvegna sem þetta er dáldið viðkvæmt subject þar sem mig langar svo að verða preggó líka!!)

Já krakkar mínir, þetta var lítil dæmisaga um hvað við mannfólkið erum misjöfn!


Sknilld... annars var Unnur Beib að taka þátt í spurningakeppni í nýja þættinum á Popptíví á kvöldin, eða Jing Jang.. ég veit nú ekkert hvort ég eigi eftir að meika að horfá þennan þátt útaf því að það eru alltaf ein stelpa og einn strákur í sitthvoru liðinu sem fá til sín gesti.. og gellan er þessi ljóshærða sem var rekin úr Idolinu í Austurbæ, sú sem var svona lítil alltaf að dansa magadans.. frekar athyglissjúk pæja.. og ponsu vitlaus.. minnir mig á hárgreiðslukonurnar sem Jay Leno hitti í Jaywalking...

Ég er nánast komin í kynferðislega snertingu við hann Robbie, eftir að vera búin að nauðga þessum greatest hits disk í mánuð.. ég var allavega að hugsa áðan á leiðinni í vinnuna, þegar ég var að syngja með hástöfum "they're selling razorblades and mirrors in the streets, I pray and dædædædæríírææ" (kann sko ekki textann aaalveg).. Já búin að gleyma mér... ég var að hugsa á meðan: IDOL HVAÐ??? Ég er geðveikur söngvari.. þegar ég er ein í bíl með músíkina svo hátt stillta að ég heyri ekki einu sinni í sjálfri mér... múhahahha....... ég myndi ekki vilja heyra það!
Allavega yrði ég ekki litla lukkutröllið hans Bubba ... hmm... En mér finnst ég samt æðisleg poppsöngkona!

þriðjudagur, janúar 18

Jæja núna er PRRRR-myndin komin.. það er ekki þorandi að setja hana beint á bloggið, þannig að smellið bara hérna!
Hvað maður getur látið hafa sig útí......... LOL

Ég var að hugsa svo mikla snilld fyrir korteri sem ég ætlaði að skrifa hérna.. but NOOOOO... The G.F.memory........ úff!!

Ég held ég sé að fara að setja met í gelgjuskap, var þó ekki ein í þetta skiptið.. heldur var ég hjá honum bróður mínum, a.k.a.(also known as..) Herra Smellinn .. já hann var að búa til blogg með mikilli hjálp elskulegrar systur sinnar (sem var btw í essinu sínu að hjálpa)... já eníveis.. þá vorum við í svona klukkutíma að taka shakeskin og prrr myndir... snilld.. sendum meiri að segja inn 3 myndir á síðuna.... talandi um athyglissýki... En svo gleymdi ég að láta hann senda mér myndina af mér til að sýna.. læt hann bara gera það á eftir! :)

En eníveis.. þá lenti mín í smá "umferðaróhappi" (var engin umferð..) í síðustu viku, en þannig var að ég var á sætu pæjunni (SP-445) og var að fara úr vinnunni í ræktina (já.. ég er ekkert að plata.. ég fer þangað) og þar sem ég HATA nýju ljósin við Laugardalslaugina.. þá ákvað ég að stytta mér leið og fara Rauðalækinn.. sem ég hefði betur átt að sleppa!! Nú svo ég haldi sögunni áfram, þá var ég komin svona 10 metra niður götuna, nei þá breyttist þyngd bílsins (sem er kannski ekki mikil fyrir) í 2 kg. og ég bara réði ekkert við hann, ég reyndi að beygja og bremsa og allt.. en allt kom fyrir ekki, mín endaði þvert uppá gangstétt og beint á steyptan hvítan garðkant!!!BANG!!!!!

Ég fór útúr bílnum og var alveg "plísplísplís ekki vera neitt....", en jújú, þarna lá bílnúmerið á götunni eins og látinn fugl.. og stuðarinn allur í hvítum rispum dauðans! Og hvað gerir maður þá,, jú ég hringdi í mömmu.. mamma reddar! Hún tók þessu bara létt og sagði mér að ég væri heppin að hafa ekki lent á öðrum bíl.. hvað þá á gamalmenni eða barni! Allavega .. ég er búin að vera fúl útí sjálfa mig í viku og pabbi búinn að segja að þetta myndi kosta svona 20-30 kall .. og þá fór ég í frestunaráráttugírinn minn eins og mér einni er lagið líkt!

En í gær eftir vinnu fór ég uppí Toyota og gæjinn í verkstæðismóttökunni, kom út og skoðaði.. þá lét hann mig fá enn meira sjokk.. hélt að stuðarinn hefði skekkst eitthvað, þannig að hann sendi mig uppá réttingarverkstæðið.. þar átti ég að tala við Friðrik, en hann var upptekinn og annar gaur aðstoðaði mig! Neinei.. hann sá ekkert að stuðarinn væri beyglaður og náði í spritt eða einhvern fjandann og pússaði rispurnar af.. og setti nýjan bílnúmeraramma eins og ekkert væri!

Niðurstaðan: Það er ein lítil svört rispa, sem verður bara tekin með slípimössun!


Pheeeeeeewwwwwwwwwwwww!!!!!!! Þá get ég andað léttar og keypt mér föt! Múhahaha eða nei ég ætla frekar að safna mér fyrir útlandaferð, ég þrái sól og sumar.. og fá lit á kroppinn minn.. þar sem ég má ekki fara í ljós og er brúnkukremsskræfa dauðans, þótt ég sé búin að fara á 101 Brúnkukrems námskeið hjá henni mággu minni!

mánudagur, janúar 17

Ég varð að stela þessari mynd af síðu hjá vini mínum..
No words... nema.. eins gott að maður prófi að sofa hjá manninum sínum áður en maður giftir sig.... ef þetta kæmi í ljós á brúðkaupsnóttinni! LOL


Ég er bloggóð, ég er með svo mikið í hausnum núna til að skrifa um, og hún Valdís minnti mig á að ég gleymdi að skrifa um helgina með Brad.. En þannig var að ég náði í Brad minn útá völl á laugardagsmorguninn og við fórum bara beint þaðan uppí Grímsnes og höfðum það mjög næs.. hann vildi ekki að ég myndi taka neinar myndir af sér.. bara svona til að hlífa Jennifer þar sem hún er frekar ósátt við að hann sé byrjaður aftur með mér..... Svo á laugardagskvöldið þá fór hann í Troy búninginn.. hann tók hann með bara fyrir mig sko, og við fórum að leika okkur í snjónum.. honum varð nú frekar kalt greyinu, en ekki eins og hann hafi verið með dyrabjöllu eins og á myndinni hérna fyrir ofan.. Enda skelltum við okkur í pottinn á eftir og þá lifnaði minn við og þá var mikið hopsasa.. Svo skutlaði ég honum aftur útá völl í gærkvöldi og ég veit ekki hvenær ég fæ að hitta hann Brad minn aftur... hann er að fara að leika í nýrri mynd í Úganda í nokkra mánuði...... ég kannski hringi bara í Robbie eða Jude og fæ annan hvorn þeirra til að koma um næstu helgi kannski.. tek þá bara með í þorraveisluna hjá Bjössa frænda á laugardaginn.. :)
Það væri dáldið cool ef Jude kæmi, þá gætum öll ættin sungið Hey Jude (eða "heyrðu mig nú Jóna" eins og ég söng alltaf hérna fyrir svona 12 árum) fyrir hann! lol

Ég veit nú ekki hvort það sé þorandi fyrir mig að hafa þessar sækó myndir af mér og Jónsa, svona uppá orðsporið að gera......... æji whatever.. þeir sem þekkja mig ættu að vera farnir að vita þetta... æm a kreizzzzzííí baaastard!

Annars var ég að horfá SVU í gærkvöldi og neineinei bara Jane úr Melrose Place mætt, sem alkóhólísk moðer tú bí! Ég hef nú aldrei heyrt þetta með að börn fæðist með Alcohol Syndrom.. reyndar vissi ég alveg að það ætti ekkert að vera að drekka á meðgöngu.. en já.. Lily var dáldið fötluð.. (sem sagt dóttirin sem "jane" gaf fyrir 20 árum).. Og hvaða kona er þetta sem er farin að birtast í þáttunum sem einhver saksóknari.. þetta er svona eins og Beverly d'Angelo wannabe.. kannski systir hennar! Og okkar á milli þá þoli ekki ekki Beverly.. úff.. leiðinda duddutennur dauðans!

Í síðasta þætti af Innlit Útlit var auglýst eftir ljótum baðherbergjum til að gera upp, ég tók mig til og tók fullt af myndum af mínu, mér finnst það reyndar ekkert svo hrikalegt.. vont en það venst.. dáldið mikið retro lúkk! Já ég myndi láta mig hafa það að fá Gullu Fáfípíkpó og Katí heim til að fá fríar flísar og ný tæki..... langar í stærra baðkar.. erhmm.. svona uppá framtíðina.. þetta er ekki beint fyrir 2! Enda kannski ekki framtíðaríbúð uppá það að gera.. en maður gæti nú alveg átt eins og einn kærasta í henni!

Mig langar í kærasta og hann á að heita Robbie Williams.. mmmmm ég skipti á milli Robbie, Brad og Jude núna daglega.. enda tilheyri ég hinum "venjulega flokki" samkvæmt einhverju í Fókus á föstudaginn.. það er semsagt fólkið sem lætur sig dreyma um að þekkja celebrities! hahahhaha

Kíkið á þessa mynd .. úúúúfff

sunnudagur, janúar 16

Já ég fór semsagt í Idol-gleði hjá Önnu B á föstudagskvöldið og þar var heljarins fjör! Sérstaklega hjá mér.. tók smá flipp og það var mikið hlegið! Ég meina, má manni finnast Jónsi í Svörtum fötum sexí........



Ég að heilsa uppá Jónsa vin minn!


Erum við ekki sæt saman?


Ég að kyssa Jónsa bless!


Ég er bara pínu kreisí!!!


Og með geðveikan stút!

Ps. er að hlaða inn nokkrum myndum í nýja albúmið.. linkur til hliðar!

föstudagur, janúar 14

Ég hef ekki tíma til að blogga í dag.. ekki nema að ég fari í nýja lappann hennar Önnu B í kvöld, þar sem ég er að fara í mat og Idol teiti hjá henni! weeeeee

Góða helgi fólkenz.. ekki reyna að ná í mig, ég og Brad ætlum í bústað í Grímsnesinu!

fimmtudagur, janúar 13

Ég var næstum því búin að sofa yfir mig í morgun, sem er nú kannski ekkert nýtt en í morgun hafði ég fulla ástæðu til þess. Jú ég er vön að láta Tvíhöfðann minn vekja kl. 7 í nýju útvarpsklukkunni minni.... BUT NOOOOOO ekki í morgun, þá kveiknaði á útvarpinu, en ekkert hljóð EKKERT! Þá er víst bara búið að leggja niður Skonrokk og X-ið, vegna þess að þær voru reknar með tapi... sem er svosem skiljanlegt.. en ég meina.. common.. það er fullt af fólki sem hlustar á þessar rásir..

Þannig að, ef ég hefði sofið rækilega yfir mig, mætt td um 11 leytið í vinnuna og verið rekin, þá hefði ég hiklaust farið í mál við Baug sem á Norðurljós sem rak þessar útvarpsstöðvar.. og ef ég væri í BNA myndi ég sjálfsagt vinna, hérna myndi ég kannski komast í Séð og heyrt fyrir að vera hálfviti... hahahah!

En allavega þegar ég fór á fætur, erhhmmm... kl 7.52 og átti að vera mætt í vinnuna eftir 8 mínútur.. þá fór ég útí bíl og nei.. ekkert til að hlusta á á leiðinni.. þannig að ég prófaði að setja á effemm 957, því að ég meika ekki Ísland í Bítið og Huldu á Létt... og oh my gad... það mun ég aldrei gera aftur, ég veit ekki einu sinni hvaða lið er að stjórna þessum morgunþætti þarna á fm, en þetta er allavega klígjulegasta og einkahúmorshnakkalegasta lið sem ég hef heyrt í!

Þetta eru 2 strákar og 1 stelpa og þeir keppast um að reyna að segja eitthvað fyndið með hnakkalegum tónum og hún situr og hneggjar eða hvernig sem hægt að lýsa svona óþolandi hlátri í orðum. Ég myndi allavega segja að þessi gella er ekki með útvarpsvæna rödd né hlátur!

Þannig að ég veit ekki hvað ég á til bragðs að taka næstu morgna.. hvaða rás á ég að láta vekja mig og hvað á ég að hlusta á á leiðinni í vinnuna? Mér er spurn...

miðvikudagur, janúar 12

Svar við gátunni:

Answer: She was hoping that the guy would appear at the funeral again.

If you answered this correctly, you think like a psychopath. This was a test by a famous American Psychologist used to test if one has the same mentality as a killer. Many arrested serial killers took part in the test and answered the question correctly. If you didn't answer the question correctly good for you. If you got the answer correct, please let me know so I can take you off of my email list ...

Þannig að það er gott að vita að þið hugsið ekki eins og sækópattar.....nema Auður Kristín.. held hún hafi samt séð þetta...... eða hvað? O Ó

þriðjudagur, janúar 11

Gáta:

Read this question, come up with an answer, and then scroll down to the bottom for the result. This is not a trick question. It is as it reads. No one I know has got it right -including me.

A woman, while at the funeral of her own mother, met this guy whom she did not know. She thought this guy was amazing, She believed him to be her dream and she fell in love with him right there but did not ask for his number and no matter how hard she tried she could not find him. A few days later she killed her sister.

Question: What is her motive in killing her sister?
Give this some real thought before you answer.


Svarið í kommentunum, ég kem svo með rétta svarið á morgun! :)

Það var einhver dreifbýlistútta frá Aaaammmrrríku að segja mér að blogga meira!!!! En ég hef ekkert að segja, skrifblokkin mín er ekki ennþá komin í gagnið, því að ég er oft að hugsa um eitthvað sem væri nú sniðugt að deila með ykkur hérna, en svo man ég það ekki stundinni lengur... kannski af því að það er yfirleitt mjög ómerkilegt stöff! :)

Eins og td. eitt sem ég man, hafiði fundið lyktina þegar maður hellir Egils appelsíni eða Fanta í vaskinn með rennandi heitt vatn á meðan? Ef ekki, þá verðiði að prófa það... mjög óþægilega vond lykt!

Ég var að fatta að ég á ENGAN PENING, þannig að ég þarf að reyna að lifa á því sem ég á til heima hjá mér allavega til 18. jan.. þá kemur nýtt vísa og þá er ég eigilega búin að ákveða að kaupa mér minniskort í nýju diggó vélina og eitthvað annað.. samt, ég ætti ekki að vera hungurmorða, ég fæ mér hafragraut í morgunmat, ýmist heima eða hérna í vinnunni, svo borða ég frítt í hádeginu, svo á ég allavega 2 frosnar pizzur, fullt af pasta og pestó, og súpum og bakaðar baunir, maísstöngla, frosið brauð... en það er alltaf þannig að þegar ég á ekki pening, þá langar mig EKKI í það sem til er! En núna er að duga eða drepast! :)

En eitt er víst að ég mun aldrei, ég sagði ALDREI, lifa á einhverjum viðurstyggilegum núðlusúpum.. ojjjjjjjj!

mánudagur, janúar 10

Jæja þá er Brad minn hættur með Jennifer! Og það voru víst rofnar allar útsendingar í bandarísku sjónvarpi með þessa fréttatilkynningu! Frekar fyndið.. ætli þetta verði líka gert þegar fjölmiðlar komast að því að ég var sú sem stakk undan henni Jennifer!!! Múhahhaha!



GRRRRRRRRR my precious!!!!!!


Helgin var fín og róleg, ég vann í Scrabble og Leonard og co á föstudagskvöldið, geri aðrir betur! Á laugardaginn sótt ég svo Auði mína og við kíktum í sund og svo á makkann.. fínn átpartner hún Ausa mín! :)

Annars er bara brjálað að gera hérna í vinnunni i dag og já alveg rétt, ég las í fréttablaðinu í gær að þeir sem blogga um vinnuna gætu misst hana..... þannig að best að vera ekkert að tala um hana hérna meir! :)

laugardagur, janúar 8

Hahaha þessi Shakeskin síða er algjör snilld! Hér eru nokkrar myndir sem mér finnst brjálæðislega fyndnar:



Snilld með þennan gaur til hægri!


Fyrirgefðu en hvað ert þú?


Gamli kall!

föstudagur, janúar 7

Ég var nú ekki alveg sátt við Tvíhöfðann minn í dag.. þeir voru að segja að Jude Law væri hommi.. og að hann ætti ekki að leika Alfie og ég er nú ekki sammála því! Mér hefur nú aldrei fundist hann Jude vera hommalegur, hann bara geðveikur hunk og Sigurjón Kjartansson er bara öfundsjúkur, punktur!


ÚÚÚ beibí, vertu foli í friði! :P

Ég fór í nýja tímann í gær, pallar og æfingar, ég mæli með honum fyrir ykkur öll hérna sem eru að æfa í Laugum..... semsagt enginn.. eða jú Unnur beibí en hún fer alltaf í hádeginu!

Ég er að fara í sjúkraþjálfun kl 12, nú ætlar hún eitthvað að kíkja á mjóbakið á mér, af því að eftir að það fór að losna um vöðvabólguna í herðunum, þá er ég farin að finna verki í mjóbakinu.. það er líka vegna þess að ég er að reyna að breyta líkamsstöðunni um þessar mundir, labba um eins og ég eigi heiminn.. en ekki eins og undirgefin ambátt!

Á morgun fæ ég svo að vera með hana Auði Aþenu frá kl 12-19, það verður nú gaman, við ætlum í sund og eitthvað að dúlla okkur! Hún er líka fínn búðarpartner, því hún elskar að fara í búðina að kaupa! :) Reyndar á Anna frænka enga peninga.........

Góða helgi!

fimmtudagur, janúar 6

Ég fékk vægt menningarsjokk í gærkvöldi...... ég var að þrífa uppí MR-Búð, sem er nú ekki í frásögur færandi... nema hvað að á hæðinni fyrir ofan er söfnuður sem kallast Bethanía að ég held.. og það var semsé samkoma í gangi. Ég var inná lager í mestu makindum að sópa gólfið þá fer ég að heyra skringileg hljóð að ofan.....

Hljóð sem ég mun aldrei gleyma!

Já, það var eins og það væri 50 manna orgía þarna, það voru öskur og stunur, bank og stapp, aaaaaa vúvúvúvú úúúúúú aaaaaaahhhhhhh bankbankbank aaaaaaa jájájájájájá jeeeeeeeeehhhhhhhhhh aaaaaaaaaaaaaa os.frv. Oh my gad sko, ég hef nú séð frá svona samkomum hjá Krossinum og þar er fólkið að öskra Hallelúja.. en ég heyrði sko ekkert svoleiðis þarna.. bara stunur og öskur!!!

Ef einhver veit meira um þennan söfnuð má hann endilega kommenta um það hérna, því að ég væri alveg til í að vita hvað fer þarna fram, er þetta hópkynlíf eða var verið að afmeyja jómfrú og allir að r**ka sér með? nei ég bara spyr.......

Annars var ég of uppgefin í gærkvöldi þegar ég kom loksins heim, fór í Bodyshape tíma beint eftir vinnu, chillaði svo aðeins á Koffein hjá henni Unni beib og hún gaf mér að smakka nýjan drykk sem hún var að finna upp, Nanaban heitir hann.. ógeðslega gott, einfaldur espressó með latté froðu með bananasírópi í!!! Mmmmmm.. Svo fór ég semsagt að þrífa og var þar í 3 tíma að hamast!

Svo kom ég heim kl. 22.10, Piparjónkan búin og Helena af Tróju í varpinu.. var ekki að meika það.. reyndar sá ég smá og mér fannst nú ekki vera sama sagan og í myndinni Troy.. en fór svo bara að sofa og ætlaði sko ekki að geta vaknað í morgun (frekar en fyrri daginn), Tvíhöfði vakti mig með tali um ljótar peysur og ég hlustaði á það í gegnum svefninn til 7.50... en ég á semsé að mæta í vinnu kl 8 .... henti mér í föt, tannbursta, pissa, hár í tagl og ÚT! Kom auðvitað 10 mín yfir eins og venjulega.. en það er allt í lagi! :)

Þrettándinn í dag, matur hjá m&p í kvöld, mmm steik!!!!! Ætla samt í ræktina eftir vinnu, Anna María er að byrja með nýjan tíma, Pallar og æfingar... og ef þekki hana rétt þá verð ég ennþá ónýtari á morgun en í dag.. en það er bara gott!

miðvikudagur, janúar 5

Ég er ein af þeim sem hefur fundist ég ekki hafa neina þörf á því að vera áskrifandi að Stöð 2, en í gærkvöldi hefði ég nú verið til í það, veit reyndar ekkert hvað var á dagskrá þar en það hlýtur að hafa verið eitthvað betra í boði en á Rúv og Skjá 1.... Guð minn góður sko, einhver fótboltaleikur dauðans allt kvöldið á Skjá 1 og finnsk heimildarmynd á stöð 1, reyndar horfði ég á Gilmore Girls.. veit ekki hvernig ég hélt út þáttinn, því mér finnst þessar mæðgur einum of ýktar...

Þannig að ég fór útá videoleigu um níuleytið og neinei, engin mynd inni, kannski vegna þess hve sjónvarpsdagskráin var ÖMURLEG...... en það eru 2 myndir sem mig langar að sjá og það eru Dís og Eulogy, neinei þá sagði stelpan mér að Dís hefði ekki komið á dvd og þau hefðu fengið eina Eulogy á dvd og hún væri biluð... en gaman!!! Og ég var nú ekkert að nenna að gera mikið mál og fara að keyra á einhverja leigu, þannig að ég leigði bara Last Samurai með krúsaranum... ég byrjaði að horfá hana og fyrst og fremst var ekki íslenskur texti... það böggar mig, sérstaklega þegar hálf myndin er á japönsku.. en ég hafði náttúrulega bara enska textann á, svo fannst mér hún bara eitthvað frekar leiðinleg og svo fattaði ég að Judging Amy var að byrja eftir hálftíma... ohh.. þá sá ég geðveikt eftir að hafa verið að taka mynd fyrir það fyrsta..... En ég kláraði þessa næstum 3 tíma mynd.. og sorry.. mér fannst hún bara ekkert æði!

Í gær varð ég reið, virkilega pisst og reið hérna í vinnunni, ég er oft pirruð ég veit, en ég varð angrrrryyyyy!!!!! Helvítis kellinga-tuð í þessum beyglum hérna, ég verð hvíthærð fyrir þrítugt það er er alveg á hreinu, en í gær þá bara svaraði mín fyrir sig! Og þar sem ég er ekki vön að vera með einhverja dónatóna við yfirmenn mína, var ég með eftirskjálfta í klukkutíma.. en svo var ég búin að gleyma þessu kl 16.05 þegar ég labbaði út! :)

Fór þá í ræktina í fyrsta skipti í örugglega 3 vikur erhmmm... og þetta er fáranlegt, alltaf líður manni jafn vel þegar maður er búinn, afhverju ekki að gera þetta oftar? Og núna er ég búin að ákveða að fara minnst 4 sinnum í viku, alltaf beint eftir vinnu, það er snilld! Slípa jólakílóin af sér........

Var ég nokkuð búin að segja að ég ELSKA Robbie Williams, ég er ekki búin að eiga uppáhaldssöngvara síðan í 10. bekk og það var Sebastian Bach í Skid Row.... en núna er Robbie búinn að taka völdin í mínu lífi.. ekki amalegt það! Djöfull langar mig á stórtónleika með honum í útlöndum!!!!!!

þriðjudagur, janúar 4

Ok er nú ekki komið nóg af þessum snjó og þessu frosti hérna.... ég hélt ég hefði sloppið því að ég skrapp útí gærkvöldi og skóf þá af öllum bílnum... BUT NO!!!!! Ég var örugglega í 10 mínútur að skafa í morgun, það var eins og það hefði snjóað, rignt, fryst, bráðnað, snjóað, rignt, fryst.... alveg magnað! Eins og ég segi, er þá ekki bara betra að labba útá stoppustöð og fara inn í heitan strætóbíl? ... tja.. það má nú deila um það!

Annars langaði mig að bitsjast aðeins... hvað er með goskæla í búðum á Íslandi? Ég er viss um að í 9 af hverjum 10 skiptum sem að ég ætla að kaupa sér hálfan líter af ííísköldu gosi af því að ég er geðveikt þyrst, þá er gosið ekki nógu kalt! Og ég er að tala um að ég er þessi geðsjúklingur sem færi allar flöskurnar til að ná í þá öftustu því að hún er næst kælidæminu...... aaargggg! Ég þoli ekki hálfvolgt gos!

Hafiði pælt í því hvað vélmennin í I-Robot eru lík Ásgeiri Kolbeins?



Maður spyr sig!

sunnudagur, janúar 2

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!!!!


.... og takk fyrir það gamla!!



Fín áramót.. mér líst vel á árið 2005! Ég átti fín áramót í faðmi móðurfjölskyldu Lilju mágkonu og Einars og Auðar Aþenu auðvitað, vegna fjarveru foreldra minna sem skruppu í áramótaferð til velferðarríkis nokkurs sem kennt er við Svissneska osta!

Ég var bara orðin ansi spræk eftir veikindin milli jóla og nýárs, en ég fékk bara þvílíka magakveisu og hita, ég vissi nú ekki hvað var í gangi, því ekkert kom upp og ekkert niður... þannig að mín fékk brósa til að skutla sér á Læknavaktina á miðvikudagskvöldið, en læknirinn sagði mér akkúrat ekkert, potaði bara í magann á mér og hlustaði og heyrði í einhverri ólgu... sem ekkert varð svo úr.. þannig að ég lá bara í rúminu og engdist um í 2 daga.. svo er ég búin að heyra að fleiri voru víst með sama dæmið... þannig að þetta var ekkert alvarlegt sem betur fer!

Ég var komin heim uppúr eitt, alveg dauðþreytt og ekki að meika meira.. það er erfiðara að vera edrú á gamlárs liggur við.. allavega hefði ég nú ekki getað verið á ferðinni til 6-7 eins og þegar maður er útúrdrukkinn með rándýrt glas í annarri og bleikt knall í hinni á knæpu niðrí bæ eða að reyna að fá leigubíl í kuldanum! Þannig að ég vaknaði helvíti spræk í hádeginu á nýársdag og fékk litlu frænku í heimsókn og við fórum bara að kúrast í rúminu og ég tók smá myndaflipp í rúminu!

Svo eldaði ég dýrindis mat handa Einari og Lilju í gærkvöldi, þó ég segi sjálf frá... Annars var ég í heimsókn hjá ömmu áðan og ég lét hana Diddu mágkonu hennar mömmu spá fyrir mig í bolla, eins og henni er einni lagið líkt og já .. spáin var fín bara, ég verð áfram ein fyrri part ársins og svo þegar líður á mitt árið þá fæ ég nýtt starf eða eitthvað sem ég er búin að vera sækjast eftir og á eftir að vera mjög ánægð með það. Svo um sumarið eignast ég vin, hávaxinn og dökkhærðan (mmm .. vonandi með brún augu líka...) og svo fer ég í ferðalag í ág-sept en skil vininn eftir..... svo sá hún eigilega ekkert meira.. Alltaf gaman að láta spá fyrir sér! :)

Var að setja inn allar jóla og áramótamyndirnar, endilega skoðið!