pælingar, nöldur og skemmtilegheit...

mánudagur, febrúar 28

Það er mánudagur dauðans krakkar mínir.. ég er ekki að nenna að vera í vinnunni!

Annars var þessi helgi bara með eindæmum fín verð ég að segja. Byrjaði á því að sækja Auði Aþenu í leikskólann á föstudaginn, rosa gaman.. hún er alltaf svo heví ánægð þegar ég kem og sæki hana. Við fórum í Kringluna og ég leyfði henni að fara tæki.. ég er líka besta frænkan! Svo fórum við til Önnu og Róberts og fengum þar tattettí og var hún Auður Aþena ekki óánægð með það! Svo kom Unnur beibí og fór að kenna okkur að mála okkur og Auður var aldeilis með í því, fiktandi í öllu og púðra sig hehe..

Horfðum svo á Idolið, Lísa datt út.. sem er gott! En hvernig verður þetta þá.. er næsti þáttur úrslitaþátturinn?

Á laugardaginn kíktum við vinkonurnar í Krengluna og keyptum þetta flotta hálsmen handa Ásdísi í útskriftargjöf og fórum svo síðdegis í veisluna heima hjá foreldrum hennar í Kaldaseli! Alltaf svo gaman að koma aftur í Seljahverfið og sérstaklega í svona hús sem maður fór í þegar maður var lítill! Fengum þar últra góðar veitingar!
Kíktum svo nokkur á Brennsluna og fengum okkur meira að borða.. ég náttúrulega gerði mig að fífli, var mikið að spá í hvernig súpa dagsins væri á bragðið, þar sem hún hét "rjómalöguð sveitasúpa", spurði þjóninn hvernig bragð væri eigilega af sveitasúpu.. hann alveg.. hmmm.... svo rýndi ég aðeins betur í töfluna og fattaði þá allt í einu að það stóð "rjómalöguð sveppasúpa" hehehe.. spurning um að fá sér betri linsur..

Svo vaknaði ég með reykingarþynnku í gærmorgun.. ég sver það.. er ekki nóg að hætta að drekka? Þetta er önnur helgin í röð sem ég er þunn útaf reykingum.. ógeð!! Var reyndar vakin af farandstombólu! Er það eitthvað nýtt, dingluðu 2 stelpur "Viltu kaupa dót á tombólu?"
Fór samt í mat í hádeginu til m&p, tók eitt skrafl og lagði mig svo með Auði Aþenu í m&p rúmi, ekki slæmt það, kom svo við í Hagkaup í Smáralind.. ætlaði bara að kaupa eyrnapinna og sturtusápu.. en eyddi kannski aaaaðeins meiru!
Ég meina .. Kill Bill I og II á 999 kr. stk í BT !

föstudagur, febrúar 25

T.G.I. Friday!!!! nei þetta er ekki auglýsing, heldur bara thank god its Friday.. mjehehe.. hvað er annars málið með föstudaga? Það er aaaaalltaf föstudagur, sem er alveg gott en ég meina.. afhverju líður tíminn svona miklu hraðar eftir því sem að maður eldist? þetta er nú ekki fyndið lengur! Það eru alltaf jól og páskar og skattskýrslan og Gettu betur! Alveg magnaður andskoti!

Og já, mér finnst alveg frábært að það er að birta aðeins til á morgnana, það var orðið ponsubjart áðan þegar ég fór í vinnuna, og verður örugglega meira eftir helgi! Ég er algjör Íslendingur, fíla að hafa bjart á morgnana og kvöldin.. ekki þetta endalausa myrkur allatíð.

Annars verðiði að hlusta á Kapón morgunþáttinn á xfm 91.9.. algjörir snilldarmenn þarna á ferð, ég veit ég var að tala um þetta um daginn en vááá þetta reddar öllu þegar maður er með morgunfýluna í bílnum á leiðinni í vinnuna.. já annars sendi ég meil á þessa útvarpsstöð um daginn en hef ekki fengið svar! Ég hef oft sent meil á svona ritstjórnir og svona aðalmeil fyrirtækja en þau virðast bara ekki vera skoðuð! Ég sendi td. á baggalutur@baggalutur.is til að segja þeim frá tvíförunum Ásgeiri Kolbeins og iRobot vélmönnunum, hef ekkert svar fengið!

Annars er það Idolið í kvöld!!! Úllalla hver fer heim? Ég vona að það verði Lísa.. en eftir kjaftasögunum að dæma þá kannski helst hún inni.. hef nebblega heyrt að pabbi hennar sé að eyða tugum þúsunda í sms skilaboð henni í hag... en allavega, það verður fjör í kvöld því að hún Unnsa litla ætlar að vera með smá förðunarnámskeið eftir Idolið fyrir okkur stelpurnar, Mac gellan sjálf að kenna manni, það er nú ekki amalegt! :)

Góða helgi fólkenz og munið að slappenz í af!

fimmtudagur, febrúar 24

"Ég vil biðja alþjóð afsökunar á dónaskap mínum hér í gær".... HELL NO má maður segja það sem manni finnst.. ég var reyndar kannski pínu æst.. en ég meina hvaaa!
Sumir spurðu, "hvað helduru að mamma þín segi?" Ég segi nú bara.. er ekki bara gott fyrir hana að vita að dóttir hennar sé kynvera! hehe..

Annars vil ég nú kannski leiðrétta einn misskilning, svo að allir vonbiðlar mínir (sem skipta tugum) fælist nú ekki frá, að ég myndi nú vilja prófa að búa með viðkomandi sæðisgjafa/kærasta í amk ár áður en ég færi að búa til barn.. það er mjög skynsamlegt held ég!
Ég er rosalega skynsöm!

Annars var ég að horfá Jay Leno í gærkvöldi, og þar var hann Vin Diesel kallinn, sem ég hef nú aldrei verið eitthvað brjálæðislega hot fyrir, en svo fletti hann upp um sig skyrtuna í gær og sagðist vanta konu til að búa til barn með... "pick me pick me" .. en hann heyrði ekki í mér í gegnum sjónvarpið... sem mér fannst nú frekar furðulegt (þótt að þetta hafi nú ekki verið bein útsending, annars væri hann pottþétt búinn að hringja)!

Ég fór í ræktina í gær, í 3 klukkutíma!!! Geri aðrir betur, ég alveg tjattaði við Unni vinkonu á Koffein og Ení Bí sem var í heimsókn í klukkutíma, svo fékk ég mér 2faldan latté og múslíkúkkí og spjallaði við Unni í annan klukkutíma og fór svo á netið að tjatta við Pétur í klukkutíma, sem er by the way eini dyggi karlmannslesarinn á þessu bloggi! Semsagt 3ja tíma workout í Laugum.. á kaffihúsinu!

Annars langar mig að nota tækifærið til að þakka honum Pétri fyrir að vera eini karlmaðurinn (af mörgum tugum sem lesa þetta) sem hefur kjark og þor til að kommenta hjá Grísastelpunni!
Pétur; þú færð sko prik fyrir það! Svalur ertu! :)

miðvikudagur, febrúar 23

Jæja, þá hittumst við loksins stelpurnar í gærkvöldi, ég, Svala, Fanney, Magga og Hildur og það var heví næs! Alltaf svo gaman að hittast svona allar þegar við loksins látum verða af því! Og þar sem Fanney og Svala eru báðar óléttar þá var farið aðeins inná þá línu og ég var alveg búin að undirbúa mig undir það.. nema hvað að þetta hafði allt þveröfug áhrif.. ég varð ekki pirruð heldur langar mig LÍKA!!!! *buhuhuhu* Fanney á að eiga 20. apríl og er með netta og flotta bumbu, algjör múslínubumba og Svala er að byrja að fá bumbulínu.. ég öfunda þær dáldið...

Ég yrði örugglega ólétt í dag ef ég myndi labba framhjá manni sem fékk sáðfall í svefni í nótt sko.. eggin eru bara að öskra á litlu sæðisfrumurnar!


Sáðfall mér í svefni var sumardaginn fyrsta!
-Jón Gnarr sem gamli skarfurinn í Fóstbræðrum


Mig langar að þakka fyrir viðbrögðin í könnuninni hérna til hliðar og þar kemur í ljós að flestir telja að stærðin skipti máli.... auðvitað skiptir hún máli.. ég meina, þetta þarf allt að passa saman, það er ekkert verið að meina að allir þurfi að vera vaxnir niður eins og hross, ég meina konur er líka mismunandi.. en við viljum ekki sjá einhverjar hnetur eða dyrabjöllur.. erhmm .. hvert er ég að fara með þetta?

Mér er sama - ég vil bara fá TYPPI með sæðisfrumum í NÚNA!

...ekki verra ef það væri einhver álitlegur karlmaður sem ætti tólið samt...

Múhahahahhaha ein alveg að missa það hérna!
Ég þarf bara að komast í heimsókn þar sem eru frek og leiðinleg grenjubörn til að losna við þetta!

Mæ eggs ar skríming mæ frends, skríííííming!

þriðjudagur, febrúar 22

Snilldin ein er þessi nýji morgunþáttur á XFM 91.9 skal ég segja ykkur krakkar mínir. Ég reyndar heyri alltaf bara 10 mínútna brot af honum á morgnana á leiðinni í vinnuna, en þessir dúddar eru bara fyndnir, annar heitir Búi og ég veit ekkert hver það er og svo veit ég ekki hver hinn er, en ég var að senda fyrirspurn á mailið þeirra! Td. áðan voru þeir með morgunleikfimi og ég hélt ég yrði ekki eldri; "skiptispor hægri og strjúka lærin eins og þið væruð að kveikja eld!!"
Snilld - mæli með þessu!

Ok, hvað var með frostið á rúðunum í morgun? Frosin þoka? nei maður spyr sig...

Horfði á fyrsta þáttinn í Survivor Palaou, lofar helvíti góðu... fullt af fólki sem maður getur látið fara í taugarnar á sér og svona.. snargeðveik ein þarna syngjandi frumsamin Survivor lög.. díses.. Þetta á eftir að vera hörð keppni.. en ég er ekki búin að spotta út neinn til að halda með .. það kemur það kemur... samt enginn Boston Rob í þessu.. sem er synd!




Annars langaði mig að segja hvað ég er stundum mikill lúði (já stundum sagði ég, ekki alltaf neinei).. en eníhú þá fór ég með Ení Bí að sækja peeeðsur á Dominos á föstudaginn og það var kallað upp nafnið Katrín Jakobsdóttir.. og ég alveg "hey þarna systir MS-tvíburanna!" og Ení Bí bara: "huhh MS hvað?" og ég: "æji þarna MS tvíburarnir sem voru alltaf í Gettu Betur", Ení Bí var engu nær.. "æji hún er þarna í Vinstri Grænum og í Sunnudagsþættinum.." Já.. Þá kveikti Ení Bí á perunni...... úff fáum okkur að vera með useless information í hausnum .. en það sem ég bætti ekki við.. sem ég vissi um þessa blessuðu Katrínu var að ég veit að hún var einu sinni stigavörður í Gettu Betur og var kærastan hans Davíðs Þórs sem var einmitt spyrill í Gettu betur á þeim tíma og einnig Radíusbróðir og fyrrverandi ritstjóri Bleikt og Blátt....

úff.... hvernig hef ég pláss fyrir allt þetta í þessum litla heila mínum, maður spyr sig!

mánudagur, febrúar 21

Mígrenis- og gleðidagar gæti helgin sem var að enda heitið hjá mér!
Ég þoli ekki þetta mígrenisstand þegar Fríða frænka kemur í heimsókn, nú ætla ég að finna út einhver ráð til að hún komi ekki í heimsókn oftar, enda er hún hvort eðer hundleiðinleg, i dont dig her man!

Ok, eitt sem ég ætlaði að tala um hérna á blogginu á föstudaginn, en gerði ekki vegna þess að ég var veik heima.. and I aint got no computeros! Og það var þátturinn The Swan sem var að byrja á Skjá einum á fimmtudagskvöldið, Ó MÆ LORD!!! Hvar endar þessi heimur???? Tvær frekar lummulegar gellur voru valdar og voru settar í lýtaaðgerðir og aðhald í 3 mánuði, og á meðan máttu þær ekki sjá sig í speglum (sem ég skil ekki, þar sem það eru ekkert nema speglar á líkamsræktarstöðunum) en eníhú.. svo eftir 3 mánuði þá komu þær fram í einhvern sal, þar sem allir voru, læknarnir og þjálfararnir og klöppuðu fyrir skapnaðinum sem þeir hefðu búið til.. og mér leið eins og ég væri að horfá Twin Peaks.. og svo fengu þær að sjá sig í spegli og þekktu sig ekki, enda alveg óþekkjanlegar! Hversu krípí er þetta? Svo var önnur valin til að halda áfram í fegurðarsamkeppni The Swan.. er ekki nóg áfall að sjá sig totally breytta en að vera svo ekki nógu sæt til að halda áfram.. þetta er sick.. þetta hlýtur að vera of mikið andlegt sjokk fyrir eina manneskju að höndla!

Svo um föstudagskvöldið fór ég til Önnu B og þar var Idol-gleði mikil, reyndar eru alltaf svo mikil læti í okkur og ég með myndavélina eins og óð.. þannig að maður heyrir ekkert og sér ekkert hvað er að ske.. en það er allt í lagi!

Á laugardaginn fór ég með bílinn í þvott og bón og ég er að segja ykkur að Sæta Pæja 445 er bara sææt núna, alveg glansandi glimrandi fín! Skapp líka til Unnar afmælisbarns í hádeginu með latté og súkkulaðimola, er ég ekki góð????

Svo um kvöldið mætti ég í the börðdeipartei og það var heldur betur fjör!! Unnur var í heví góðu skapi og svo fín í kjólnum sem ég lánaði henni, þangað til að hún klæddi sig í nærfötin sem ég gaf henni utan yfir hann! En það var nú bara fyndið.. Svo var ég búin að mála þetta flotta listaverk handa henni, en ég vissi ekki að olíulitir væru í viku að þorna amk. þannig að ég gat ekkert gefið henni það strax :(( En ég tók bara mynd af því (nema hvað??) og sýndi henni og hún getur ekki beðið eftir að fá það, enda eru hún og Elsa kisan hennar á verkinu!
En það var semsagt mikið fjör og mikið gaman í ammælinu og ég var með myndavélina á lofti, sem leiddi til mikils flipps þarna með Kylle kylle páskabjór töppum.. en allavega endilega kíkið í myndaalbúmið til að skoða þetta allt!

Skoða myndir hér!

Ný vinnuvika er hafin! Jibbí jæ kei moðafokka!

Ps. ég vil nota tækifærið og kvarta undan lélegri þátttöku í könnuninni hérna til hægri, hún er búin að hanga inni í viku og það eru bara 12 búnir að svara... ég er alltaf að heyra um eitthvað leynifólk sem er að sk0ða þetta blogg, þannig að það hljóta að vera fleiri en 12 manns sem geta kosið!

fimmtudagur, febrúar 17

Dvergadans!!! Hafið hljóðið á!!

Jæja ég fór loksins í bíó í gærkvöldi á Meet the Fockers.. þvílík snilld.. og erfitt að hlæja af öllu í svona langan tíma.. endalausir fyndnir punktar.. ég verð nú bara að segja það! Og krakkinn í myndinni er bara dúlla... Ass hooooole

Annars er ég bara ógeðslega þreytt, aldurinn er farinn að segja til sín krakkar mínir, ég fór sko í bíó kl 22.30 og var ekki komin heim fyrr en rúmlega 1 !!!! Og ætlist þið til að ég geti vaknað og verið mætt í vinnu kl. 8 stundvíslega.... oooonei... mér leið eins og ég væri að fara í flug um miðja nótt þegar ég vaknaði í morgun með Tinu Turner í botni í útvarpsvekjaranum, þannig að ég snúsaði bara alveg til 7.52 með útvarpið í botni.. ég held að ég hefði getað sofnað þótt hljómsveitin Slipknot sjálf hefði verið inní herbergi að spila!


Núna er ég er að reyna að smala okkur gömlu vinkonunum saman í hitting.. og það er nú alltaf erfiðara með hverju árinu að finna tíma þar sem við allar erum lausar... úfff.. enda er ég eina barnlausa kvikindið eftir... eða allavega eftir nokkra mánuði, þar sem Magga Linda á ungling, Hildur á tvíbura og Fanney og Svala eru báðar óléttar og með annan fótinn útá landi..
Ég verð að fara að gera eitthvað í þessu til að fitta inní hópinn.. and god forbid me að það verði ekki bara talað um óléttur, barneignir og uppeldi í þessum hitting... PLEASE stelpur!!!!!!

Annars fór ég í Skómarkaðinn í Glæsibæ í gær og keypti mér geðveikt flotta rauða strigaskó og ég er að tala um RAUÐA, ég er að spá í að reyna að taka mynd af þeim til að sýna.. þeir kostuðu bara 1995 kall .. sem er ekkki neeeiiiiitttt! :)


Myndina sendi Anna
Powered by Hexia

miðvikudagur, febrúar 16

Tveir íslendingar eru úti í sveit að aka og sjá bíl fastan úti í kanti.
Þeir ákveða að hjálpa og fara út úr bílnum. Þetta eru útlendingar og kunna
íslendingarnir lítið í ensku en tekst að spyrja: "Dú jú vant help?"
Útlendingarnir svara " no no this is ok" Íslendingarnir vilja endilega
hjálpa og gefa sig ekki og segja: Jes ví help jú
Útlendingarnir: No no this is ok
Íslendingarnir: Jes jes nó vesen - ví help jú

Þeir ná í reipi í bílinn sinn til að freista þess að draga bílinn - í
versta falli að ýta honum upp á vegkanntinn aftur.

Útlendingarnir: What are you gonna do?

Íslendingarnir: First ví reip jú - ðen ví ít jú!

Ég fór allt í einu að spá áðan..... morgunpælingin sko.. í sambandi við brandara, ég meina eru þeir allir uppspuni? Eru þetta ekki bara oft sögur sem hafa verið sagðar af fólki og svo verið mismikið ýktar á leiðinni?

Hver er brandarasmiðurinn? Er það einhver einn kall? Díííjók ég er nú ekki svo vitlaus en ég læt fylgja með brandara sem ég heyrði fyrir nokkrum árum sem kveikti í þessari pælingu:


Einu sinni var maður sem var nýbúinn að eignast rosaflott mótorhjól með hnakki sem var búinn til úr kameldýrsskinni.. og maðurinn sem seldi honum hjólið sagði að það mætti alls ekki blotna, en hann gæti reddað því með að smyrja vaselíní á hnakkinn áður en það myndi td. rigna!

Svo einn daginn fór gæjinn á nýja mótorhjólinu á rúntinn útí sveit, og neinei viti menn, hjólið bilar og hann ekki með gemsa neinei.. þannig að hann reiðir hjólið uppað næsta sveitabæ og spyr hvort hann megi hringja. Jújú það er ekkert mál en heimsóknin endar á því að hjónin á bænum bjóða honum að borða með sér kvöldmat.

Hann sest við eldhúsborðið þar sem kona og kall og 2 dætur þeirra sitja, þá rekur hann í rogastans þegar hann sér þvílíka himinháa uppvöskunarhrúgu í vaskinum! Þá sagði bóndinn að það væri regla á þessu heimili og hún væri sú að sá sem myndi tala við matarborðið yrði að vaska upp!

Nú þau fara að borða og mótorhjólagæjinn fer að líta á dæturnar hýru auga og þær á móti, hann lítur á kall föður þeirra (og munið, það segir enginn neitt við borðið svo hann þurfi ekki að vaska upp) og kallinn er frekar reiður í framan, þannig að hann tekur aðra dótturina og leggur hana uppá borðið og tekur í hana... bóndinn segir ekki neitt en rauður í framan af bræði, en ekki ætlar hann að vaska upp, þannig að gæjinn tekur hina dótturina líka uppá eldhúsbekknum, ennþá segir kallinn ekkert...

Nú sest mótorhjólagæinn aftur niður og fær sér smá að éta og sér þá að kona bóndans er orðin frekar heit, þannig að hann vippar henni líka uppá borð og tekur í hana.. Nú er bóndinn alveg að missa sig, en lítur á uppvöskunarhrúguna og heldur í sér!
Eftir að gæjinn er búinn að afgreiða bóndakonuna þá lítur hann útum gluggann og sér að það er byrjað að rigna og hugsar "andskotinn, kamelhnakkurinn" og dregur upp risastóra Vaselíndollu og stendur upp. Þá heyrist loksins eitthvað í bóndanum sem er með skelfingarsvip: "Nei andskotinn hafi það, frekar vaska ég upp helvítis diskana!"

þriðjudagur, febrúar 15

Nú er lægð á landinu krakkar mínir og ég held að þess vegna sé ég í letikasti dauðans um þessar mundir.. ég td. nennti ekki í ræktina eftir vinnu í gær, heldur fór ég bara beint heim og leigði Wicker Park með honum Josh Hartnett.. bara af því að það var Valensmalentínusardagurinn og fór svo í Bónus og keypti ýmislegt hollt og ekki hollt...

En allavega þá var ég bara með svona 6 hluti eins og venjulega þegar ég fer í Bónus og akkúrat á eftir mér var einn gaur sem er þroskaheftur og ég man alltaf eftir honum í strætó.. hann er eða var svona strætómella.. dáldið þykkur með þykk gleraugu og stendur alltaf frammí að tala við bílstjórann og setja hendina á milli þegar hurðin lokast.... en eníveis.. smá útúrdúr hérna... hann var á eftir mér og sér hvað ég er með lítið af vörum og segir þá hátt við mig: "nauhhh þú ert bara alveg eins og ég!!!" og ég bara geðveikt feimin: "jájá það er svona.." því að hann var líka bara með svona 6 vörur eins og ég, þá sagði hann geðveikt hátt: "við erum í litlu deildinni!!!!" úff..... alltaf gaman þegar allir stoppa og glápa á mann og kíkja á hvað maður er að kaupa!!

Svo fór ég bara heim og uppí sófa, undir sæng og glápti og át... svo fékk ég svo geðveikt samviskubit að ég ákvað að drífa mig í ræktina og fór þangað kl 19.30 og púlaði á þrektækjunum í klukkutíma.. geri aðrir betur! En þá fór ég bara aftur heim og kláraði það sem ég hafði byrjað á... en ég meina.. ég fór þó samt í ræktina!!

mánudagur, febrúar 14

Jæja nú er mesta leti- og sofuhelgi búin.. þetta er nú ekki eðlilegt! Ég svaf til 11.30 á laugardaginn, fór svo í ræktina frá 12.30-14.30 fór svo heim að horfá Bruce Almighty og mér tókst að sofna yfir henni um hálf fimm.. hélt svo áfram að horfá hana og svo á Signs.. sem er btw frekar eitthvað leim þótt mér hafi brugðið nokkrum sinnum.. svo um kvöldið var ég komin með hausverk dauðans, þannig að ég var farin að sofa um 21.30...

Gat reyndar ekki sofið lengur en til 9.30 í gærmorgun... þannig að ég fór bara að þrífa þá og fór svo í dýrindishrygg í hádeginu til m&p... og getiði svo hvað ég gerði eftir matinn? Jú ég lagði mig með henni Auði Aþenu uppí m&p rúmi.. við sváfum reyndar ekkert lengi.. þar sem greyið var með svo mikinn hósta... En svo kíktum við til ömmu í heimsókn...

Svo fór ég í mat til Eydísar frænku og familíu.. og hún á mestu skæruliðasyni ever.. en þeir eru bara fyndnir og algjörar dúllur.. ég fékk að taka fullt af myndum af þeim í grímubúningum og sýna fótboltatakta! Svo fékk dýrindis nautasteik með öllu tilheyrandi! mmmmm

And thats about it folks!

föstudagur, febrúar 11

Ég elska þegar ég er komin á lappir á föstudögum.. því það þýðir að á morgun get ég sofið út!!!!! Ekki vakna við helv.. dududu dududu dæmið!
Annars held ég að ég sé Snúsmeistari Íslands.. snúsa alltaf í svona 40 mín.. þassogott mar!!! en samt ekki þegar maður snúsaði einu snúsi of lengi.. úpsadeisí!

Úff ég er með kveikt á Létt 96,7.. og það er bara pain in the ass um þessar mundir að hlusta á það.. ekki talað um annað en rómantík og kertaljós og klæðin rauð og allt það! Valentínusardagurinn ... blabla.. ég er á móti þessum degi! Ekki vegna þess að ég er bitur vegna karlmannsleysisins.. heldur vegna þess að þetta er amerískur dagur.. notum bónda- og konudag!

Svo með öskudaginn, þá er búið að umturna honum í betldag.. illa syngjandi krakkar að sníkja sælgæti í búðum? Hvað er málið? Ég man þegar maður fór niðrí Mjódd í kúrekabúning (og Elínborg í indíánastelpubúning) og fékk að slá köttinn úr tunnunni og maður náði kannski 2 karmellum og var mjög ánægður með það! Og að sauma öskupoka og hengja aftan á fólk.. það var nú sport! Annars veit ég nú ekkert hver uppruninn af þessum öskudegi er.....

Mig langar á 2 myndir í bíó, annars vegar Meet the Fockers og svo Million dollar baby.. stefni á að fara allavega á aðra þeirra um helgina!

Annars var ég að rifja upp gamlar fylleríssögur af mér síðan ég var 15 ára í gærkvöldi og guð minn góður hvað maður var klikk þarna.. ég ætla nú ekkert að vera að skrifa neitt um þær, þar sem mamma les þetta.. hún vill örugglega ekki vita hvað ég var að gera.. en vá ég myndi aldrei leyfa 15 ára dóttur minni að fara í Þórsmörk fyrstu helgina í júlí........

Góða helgi!

fimmtudagur, febrúar 10

Ok ég veit það er ekki kominn 1. apríl.. en þið sem trúðuð þessu í gær.. oh my gad!!!!! ROFL (fyrir þá sem ekki vita: rolling on the floor laughing)
(og ég er ekki að grínast, það spurðu mig 2 manneskjur hvort ég væri að plata!)

En díses ég svaf rosalega illa í nótt, ég var alltaf að vakna.. vegna verkja og aumleika í öllum líkamanum... var ég að stunda svona brjálæðis rúmfimi í gærkvöldi, onei... ég lenti bara í þrefaldri líkamsrækt dauðans í gær!!!

Fyrst fór ég nú bara í ræktina í Bodyshape tíma, svo fór ég að þrífa í búðinni og skúra lagerinn, sem er helvíti mikið púl.. með stunum og öskrum frá Bethaníu fyrir ofan mig... og svoooo var ég svo heppin að fá ruslavikuna í fyrradag og það þýðir að þá þarf maður að moka stéttina ef það er snjór! Og neinei.. bara snjór dauðans.. og ég fór út með snjómokstursgræjuna.. sem er bara svona snjóskófla og það tók á... ég er að kálast í öllu bakinu og herðunum!

Aumingja ég!!!!!!!

Annars fyndin tilviljun í gær, ég er búin að vera að tala við strák í gegnum einkamál í nokkra daga og neinei.. er hann ekki náfrændi hennar Sigrúnar, þannig að við fórum bara að spjalla öll saman heví gaman!

Jæja i have work to do, belive it or not! :)

Múhahahhaha.... eins og ég færi í hafmeyjubúning!!! LOL

miðvikudagur, febrúar 9

Ég trúi þessu ekki... ekki aftur..

Ég vaknaði kl 5.30 í morgun og byrjaði að klæða mig í hafmeyjubúninginn og græja hárið og allt það.. það tók mig um hálftíma að komast útí bíl.. erfitt að labba í svona sporð.. og ennþá lengur að keyra í vinnuna.. þar sem það er dáldið erfitt að ná á kúplinguna og bensíngjöfina í þessum djöfuls sporði.. Svo þarf ég að labba upp tröppur til að komast inná skrifstofuna.. og nei..... VITI MENN!!! Enginn annar í grímubúning.... ég lét plata mig aftur... þannig að núna sit ég geðveikt paþþetikk hérna við skrifborðið mitt í hafmeyjubúning.. og verð að vera svoleiðis til kl. 16.. ég tók engin önnur föt með mér.......

Þetta var þó skárra en í fyrra á öskudaginn þegar ég fór í Spiderman búningnum í strætó í vinnuna... það var pínlegt!

þriðjudagur, febrúar 8

Fyrirgefið en hvar er vorið sem ég hélt að væri komið? Ég er ekki að fíla þennan snjó hérna...

Ég hélt uppá bolludaginn með kínverskum brag í gær.. fór á Nings og fékk mér kjúklingabollur í Pekingssósu.. það var bara alveg ágætt.. hefði samt alveg verið til í hakkabuff með lauk og brúnni sósu.. en það var ekki í boði.. enda kannski ekki til neinn Buffdagur!

Oj oj oj sáuði Ísland í dag í gær í dag í gær í dag í gær.... það var viðtal við íslenskan gaur sem er tattúverari í Bretlandi.. og hann er semsagt allur í tattúum og pinnum.. með klofinn tungubrodd.. eins og eðla og fílar að láta setja pinna í bakið á sér sem festir eru í stórar sikkresnælur og svo er hann hífður uppí tré og látinn lafa .... og þetta var bara sýnt sísvona... mjög ógeðslegt og furðulegt fetish segi ég! Ég var alveg viss um að húðin myndi rifna.. en hún gerði það nú ekki..

En kannski að ég prófi þetta.. verður maður ekki prófa allt og hvernig væri þá að byrja á öfugum enda.. fyrst að láta krækja pinnum í mig og hengja mig upp.. svo fá mér pinna í tútturnar eða eitthvað og svo fá mér risastórt tattú á bakið og svo fá mér lítinn höfrung á ökklann og svo kannski mánaðarsteina í eyrun..

Kreisíness in the brainhouse!!!


mánudagur, febrúar 7

Einar og Lilja eiga 1 árs brúðkaupsafmæli í dag!
Til hamingju með það dúllur!!

Þarna þekki ég réttu útvarpsrásina!! Nýja rokkstöðin á 91.9, ég man aldrei hvað hún heitir!! Allavega í gær þá var ég að keyra og það var verið að spila Youth gone wild með snillingunum í Skid Row og svo í morgun þegar ég var að keyra í vinnuna var snilldarlag með Black Sabbath!

Ég held ég sé uppi á vitlausum tíma.. ég dýrka allt í tónlist og tísku á árunum uppúr 1970.. Snilldarbönd; Black Sabbath, Led Zeppelin, Who og fleiri.. mig langar að fara í tímavél til svona 1975 og vera svona pæja eins og Penny Lane í myndinni Almost famous (sem er by the way ein af uppáhaldsmyndunum mínum), vera svona grúppía sem fylgir hljómsveitum.. og líka vera jafn sæt og Kate Hudson og með jafn flottan maga og hún..





og eiga svona sætan kærasta:



En það er víst ekki búið að finna upp tímavél.. eða hvað? En það er líka önnur uppfinning sem mætti fara að líta dagsins ljós og það er draumavél!

Ég væri svo til í að horfa á suma drauma sem ég dreymi í sjónvarpinu á video.. þvílík steypa sko! Eins og um daginn dreymdi með að tunglið væri komið mjög nálægt jörðu og það var svona hálf metal einhvern veginn og svo breyttist það í metal tungl alveg og pompsaði niðrá blokkina mína og hæðin fyrir ofan mína kramdi mína íbúð... og ég stóð útá bílastæðinu hjá Skalla og horfði á þetta... mjög cool sko!

Ætla nú ekkert að fara að segja frá neinum svæsnari geggjaðri draumum .. en vá.. það sem fer í gegnum þennan haus á nóttunni!

sunnudagur, febrúar 6

Úff ég er að sppprrrrinnnnggggaahhhhh.. var í saltkjöt og baunum hérna hjá m&p í hádeginu og svo voru það bollur áðan! Algerlega sykurlausar vatnsdeigsbollur, með sykurlausri sultu og rjóma og sykurlausu súkkulaði oná!

Fyndið hvað sumir eru ennþá að tuða yfir gervisykri, að hann sé krabbameinsvaldandi og fitandi... ehhh.. ég vil sjá sannanir! Ég man einmitt þegar sykurlaus Hi-C kom á markaðinn, þá var alltaf verið að segja að fólk myndi fá krabbamein af því að drekka hann.. Vitiði um einhvern sem fékk krabbamein af gervisykursvöldum? Nú hætti ég að borða sælgæti og drekka sykurgos, en fór að þamba diet gos í staðinn og missti 20 kg á 8-9 mánuðum... allavega var sá gervisykur ekki fitandi...

Annars var ég að fatta í dag að ég er eins og rjúpa.. skipti um lit eftir árstíðum, er brún á sumrin og snjóhvít á veturna... ég er svo hvít núna að það sést liggur við í æðarnar og beinin í mér.. ég er að spá í að svindla og kíkja í nokkra ljósatíma.. þó svo að ég megi það ekki.. ég bara ekki að meika þennan föla húðlit!

laugardagur, febrúar 5

Vááá ég held ég sé geðveik.. allavega pínu.. vil ekki viðurkenna alveg að ég sé total lúní! En ég var semsagt að horfá Idolið frá því í gær.. úff góður þáttur!!! Keflavíkurþema Annie likes!
Þau sungu öll frábær lög.. en úrslitin voru þó alveg réttmæt... Og þá er komið að lúnídæminu: ég táraðist! ó mæ lord.. þetta var svo spennandi í lokin.. ég trúði ekki að uppáhaldið mitt hún Heiða væri 3. neðst..

Annars vil ég að Lísa fari næst.. svo Ylfa... Svo er ég alveg í vafa með hin, Davíð, Helga, Hildi Völu og Heiðu.. mér fannst strákarnir standa sig svo vel núna.. hafiði tekið eftir því að þeir eru báðir með hvítan eyeliner inní augnhvörmunum.. þeir verða víst líka að fá förðun eins og stelpurnar sem eru by the way alltaf svo geðveikt flott málaðar!!

Annars fór ég á þorrablót í vinnunni í gærkvöldi og það var bara þrusustuð þannig séð allavega reddaði saltkjötið kvöldinu.. mmm saltkjöt! En það var gaman að vera svona edrú .. eða gaman.. ég viðurkenni að ég fékk djammhroll... en það var fyndið sjá alla verða á sneplunum.. En svo í morgun var ég mjög fegin að ég datt ekki í það! Því þá væri ég pottþétt skítþunn núna og áreiðanlega með einhvern bömmer og væri í sjokki yfir því að fara í vinnuna á mánudaginn... hehe! :)

Þannig að ég fór bara heim um 11 leytið, tók The Collateral og byrjaði að horfá hana og ætlaði svo mikið að vaka og klára hana.. but no.. ég sofnaði auðvitað yfir henni.. þrátt fyrir að mér finndist hún heví cool... kláraði að horfá hana í morgun.. Gaman að sjá Tomma vin minn leika bad guy.. Og hann var bara alveg sjarmerandi gráhærður.. þó svo að hann sé langflottastur í myndinni Magnolia.. þar sem hann lék karlrembu dauðans en það er annað mál!

Kvöldið er óráðið, ég veit bara ekkert hvað ég á að gera, ég er bara heima hjá m&p núna að chilla... langar í Smáralind og kaupa mér eins eyrnalokka og Hildur Vala var með í gær.. geðveikt flottir og kannski eins og nokkrar nærbuxur..... alltaf gaman að kaupa nýjar brækur! :)

Nú var pabbi að hringja úr Fjarðarkaupum: "Ætlar þú að vera í mat í kvöld eða ekki?" ...... hmm ég sagði bara "ég ætla að vera!" og svo skellti hann á... þetta fullorðna fólk sko.. það kann ekki að commjúníkeita! :)

Ps. fyrir þá sem vita ekki hvað Golden Shower er.. þá er það þegar fólk pissar á hvort annað í kynferðislegum tilgangi!

fimmtudagur, febrúar 3

Ég er nú ekki mikið fyrir ljóshærða menn, en ég myndi gera stóra undantekningu ef ég myndi næla í hann Gulla Briem.. hann er bara foli! Og heldur sér ekkert smá vel, ég var nebblega að horfá Íslensku tónlistarverðlaunin í gærkvöldi og hann var að spila þarna með Mezzoforte.. Mmm Gulli ... flytja til London.. hehehe !
(hann er nú reyndar ekki ljóshærður á þessari mynd)

Hafiði séð gamla kallinn í Dressmann auglýsingunni í gallabuxunum (McGordon) og bláu hettupeysunni... lol.. voða stælgæji!

Annars vaknaði ég upp við hringingu í nótt, ég var nú ekki að fatta hvað væri að ske þar sem síminn minn er nú ekki vanur að hringja eftir miðnætti og hvað þá á virkum dögum.. En anyways þá var þetta hann Valli vinur minn Kilmer.. "Hiii Anna my gorgeus friend, this is Vaaaal! I'm coming to Iceland sectretly on Friday and I want so badly to meet you and catch up" og ég var ekki lengi að spretta á lappir og bregða fyrir mér betri enskunni "Ohhh Valli my darling, ohhh I'm so happy.. I´m going to rent this summerhouse in Laugarvatn you know and we can be there all alone all weekend and play Scrabble and have some fuuun, yes some Icelandic fun!" og hann var alveg orðlaus hinum megin á línunni "Ohhh I just cant wait!!! See ya on Friday then my sexy Icelandic girlfriend!!" Og svo fór ég uppí rúm aftur og hoppaði af gleði.. Valli er að koma!!!!! Það eru ekki margir sem vita það en hann er hálfíslenskur og heitir í rauninni Valur Kilmer.. Ég kynntist honum nebblega fyrir mörgum árum þegar við vorum að vinna saman í fiski á Fáskrúðsfirði!

Ég get ekki beðið, ekki beðið!

þriðjudagur, febrúar 1

Jæja loksins búið að opna vísakortið mitt... þar sem ég borgaði reikninginn í gær! Mér tókst samt að fara í Kringluna í gær eftir vinnu án þess að kaupa mér eitthvað, bara borga skuld hjá lækni.. 4600 krónur takk fyrir.. taka út fyrir skuld sem ég skulda Sigrúnu, kaupa nokkur beibíföt á útsölu fyrir nýju frænku mína og kaupa afmælisgjöf handa
Beikonboy! Samtals voru þetta rúmar 13 þúsund krónur.. það er ekki vandamálið að eyða smá pening sko!

En hvað er með mánudagskvöld í sjónvarpinu núna? Öööömurleg dagskrá.. 3 ööömurlegir þættir allt kvöldið á Skjá 1 og í gær var ekki einu sinni Frasier fyrir Lilju á Rúv.. maður spyr sig, hvað er að verða um þetta sjónvarpsþjóðfélag! Ég var semsagt í heimsókn hjá Einari og Lilju og hékk bara í lappanum hennar Lilju allt kvöldið! Skemmtilegur gestur en það var bara sjónvarpinu að kenna.. við hefðum nú kannski farið í skrafl ef Einar hefði ekki verið sokkinn inní tölvuna sína allt kvöldið...

Lilja á svona hlustunargræju fyrir óléttubumbur.. ég fékk að hlusta á barnið.. ótrúlega sætt, það var með hiksta.. svo hlustaði ég á bumbuna mína og þá heyrði ég bara eitthvað þarmagutl.. ekki nema að það búi lítið kríp inní maganum á mér sem kurrar í! En ég er núna að fatta allt í einu að það er virkilega að fara að koma nýtt barn í familíuna... og það verður svo gaman! Auður Aþena á nú örugglega eftir að verða pínu abbó gæti ég trúað!

Hvað ætli kosti að fara í undirhökuaftöku?