pælingar, nöldur og skemmtilegheit...

fimmtudagur, mars 31


Þetta er hún Kristín Einarssdóttir! Fædd 31.03.05 kl. 3.00, 15 merkur og 51 cm.
Myndina sendi Anna
Powered by Hexia


Myndina sendi Anna
Powered by Hexia

Í nótt hringdi Einar bróðir í mig og tilkynnti mér að ég væri búin að eignast nýja frænku!! Weeeeeeee! Hún fæddist kl. 3.00 og var 15 merkur, ég náði ekki að spurja um cm! Hún var þá krumpuð í framan og með sentimetra langt hár! Annars á ég eftir að sjá hana og ég get ekki beðið!!!! Ef ég fæ mynd í dag, þá mun ég setja hana hérna inn um leið!

Hef ekki mikið annað að segja, gærdagurinn fór voða mikið í pælingar og hugsanir um þetta allt saman! Jú ég fór reyndar í ræktina (já undur og stórmerki gerast enn), ekki búin að fara aaaalltof lengi!!! En ég fór og hélt út allan tímann, Bodyshape.. kíkti svo auðvitað í kaffi til Unnsu beib og spjallaði við hana. Ætli það sé mjög rangt að fá sér latté beint eftir ræktina, svona uppá brennslu og annað slíkt? Hitti líka Thelmu sem er komin með afró dauðans... án gríns! Ponsu loðnar krullur.. ég fékk nú alveg pínu sjokk hehe.. kannski ekki eitthvað sem maður er vanur að sjá á hvíta manninum!

Ég veit að testið nýja er ógeð.. en það er bara svo gaman!!! Ef fólk veit ekki hvað hrygla er, þá er það svona kokslím, Unnur fræddi mig um það í gær. Fólk er greinilega frekar viðbjóðslegt, en enn sem komið er, eru flestir til í eina teskeið af hori *æl*

Ég var að taka þetta quiz sem ég setti hérna fyrir neðan áðan, ég hélt nú að ég væri kristinnar trúar, but nooooo Búddi.. jájá ég ætti kannski að kynna mér búddah trú! :)

Þetta á örugglega eftir að vera laaangur dagur í vinnunni....

You scored as Buddhism. Your beliefs most closely resemble those of Buddhism. Do more research on Buddhism and possibly consider becoming Buddhist, if you are not already.

In Buddhism, there are Four Noble Truths: (1) Life is suffering. (2) All suffering is caused by ignorance of the nature of reality and the craving, attachment, and grasping that result from such ignorance. (3) Suffering can be ended by overcoming ignorance and attachment. (4) The path to the suppression of suffering is the Noble Eightfold Path, which consists of right views, right intention, right speech, right action, right livelihood, right effort, right-mindedness, and right contemplation. These eight are usually divided into three categories that base the Buddhist faith: morality, wisdom, and samadhi, or concentration. In Buddhism, there is no hierarchy, nor caste system; the Buddha taught that one's spiritual worth is not based on birth.

Paganism

75%

Buddhism

75%

Islam

67%

Satanism

63%

Judaism

54%

agnosticism

42%

Hinduism

38%

Christianity

33%

atheism

25%


Which religion is the right one for you? (new version)
created with QuizFarm.com

miðvikudagur, mars 30

Jæja loksins get ég plöggað inná þetta dót... búið að vera ERROR í allan dag!!!

Lilja mágkona er farin uppá fæðingarstofu, með 4 í útvíkkun og er bara að bíða eftir að allt fari að gerast, ég líka.. ég er að deyja úr spenningi!!!
_______________________________________

Ég er að fara að kaupa algjöra snilld á eftir handa pabba mínum. Þar sem honum langar svo mikið í arinn, en það er nú ekki möguleiki að búa til alvöru svoleiðis heima hjá mömmu og pabba, þá er ég búin að finna flottan staðgengil. Nei, það er ekki svona gerviarinn, nei heldur er það dvd diskur með arineldi. Með snarkhljóðum og öllu tilheyrandi! Þá held ég líka að hún mamma mín verði ánægð.. ekkert rusl í kringum þetta.

Þá geta þau setið í lazy-boy sófanum sínum og yljað á sér iljarnar fyrir framan sjónvarpið, með viðarreykelsi sér við hlið... tala nú ekki um ef þau fá sér loðfeld á gólfið og fækka fötum... ok neinei.. ætla ekki að fara neitt lengra í þessum hugsunum... iiiúúú whats wrong with me?!?!

En allt þetta arin tal minnir mig á þegar ég var að vinna útí Norge í veiðihúsinu sumarið 2000. Það var nú ljúft og skemmtilegt sumar skal ég segja ykkur. En þá þurftum við þjónustupæjurnar alltaf áður en gestirnir komu niður í morgunmat, að kveikja upp í arninum... úffa meg... það var oft erfitt! Allavega var ég ekki nógu klár í því.. svo þurfti maður alltaf að ná í eldivið útí hús sem voru leðurblökur í loftinu.. það var nú ekki gott fyrir litla hjartað mitt!

Já ég gæti nú skrifað heila bók um dvöl mína í Osen þetta sumar, en ég bara mundi allt í einu eftir einu í sambandi við salthnetur. En við höfðum alltaf salthnetur með fordrykknum fyrir kvöldmatinn í skálum, og snakk líka.. En allavega alltaf þegar við stelpurnar vorum að taka til eftir gestina á morgnana (svo allt yrði fínt þegar fólkið kæmi niður í morgunmat), þá tók alltaf ein stelpan salthneturnar og henti þeim.

Ég var nú alltaf geðveikt hneyksluð og fannst þetta mikil sóun (er ekki hömlulaus ofæta fyrir ekki neitt), að vera að henda heilu pokunum af salthnetum, þetta gæti nú alveg staðið í nokkra daga. En svo var ég að tala um þetta við konu sem vinnur með mér og þá fattaði ég allt í einu að mér finnst ógeð að láta svona standa. Og núna ætla ég aldrei að fá mér salthnetur eða sem eru í skálum á börum.

Því eins og alþjóð veit þá eru karlmenn ekki mjög duglegir við að þvo á sér hendurnar eftir klósettferðir.. og ég kæri mig ekki um að borða salthnetur með margra manna typpafitu á! *æl*

þriðjudagur, mars 29

Þá er páskagleðin búin og ég mætt aftur í vinnuna.. jibbíjæ kei moða fokka!
Ótrúlegt en satt þá vaknaði ég kl. 7 í morgun og svaf ekki milli snúsa... en ég er búin að sofa til 13 alla dagana í fríinu.. nema á föstudaginn, því þá gisti Auður Aþena hjá mér og við vöknuðum kl. 8.30.. en við lögðum okkur nú um eitt leytið þannig að það var allt í lagi!

Svo fór ég á dansiball á föstudagskvöldið eftir miðnætti, með DJ Páli Óskari, Geir Ólafs og Herberti Guðmunds.. algjör snilld! Rosa gaman og ég held ég hafi aldrei dansað jafnmikið í einu, alveg streit í 3 tíma.. enda var ég orðin vel sveitt og þreytt eftir það! Vaknaði svo með mikla verki í hnjánum daginn eftir!

Láttu mig í friði, ég er dansari, dansari fyrir lífið!!! Mér er alveg sama
þó það sé búið að loka,
ég mun aldrei hætta að dansa!
Færið mig í hlekki, ég er dansari!


Annars er ég aðallega búin að hanga með familíunni alla helgina og Ásdísi ofurpæju.. ég á eftir að sakna þín Ásdís þegar þú flytur til Denmark!!!

Eitt besta geymda leyndarmál Breiðholtsins er tvímælalaust nuddpotturinn í æskulauginni minni... eða Breiðholtslauginni. Ég fór þangað í gærdag til að jafna mig í bakinu eftir að vera búin að sofa svona mikið um helgina.. betri bunur finnast ekki á landinu... Og ef þú ert heppin/n þá gætiru fundið leyni fótanuddsbunurnar.. mmm Annie likes!

Til hvers að borga 5000 kall fyrir nudd í klukkutíma þegar maður getur borgað 200 kall og verið eins lengi og maður vill í þessum potti??

En svo þurfti einhver maður af indversku bergi brotnu endilega að koma og setjast á móti mér og glápa á mig.. þoli ekki svoleiðis.. aldrei eru neinir íslenskir sætir menn að glápa á mann í pottunum.. nei alltaf einhverjir úllarar!

miðvikudagur, mars 23

Jæja þá loksins kom að því að ég eignaðist mínar 15 sekúndur af frægð og það í útvarpsþætti.. þótt ótrúlegt megi virðast þá vaknaði ég Snúsmeistari Íslands við útvarpsvekjarann klukkan 7 í morgun takk fyrir.. ég bara varð að heyra hvort að hann Svali vinur minn myndi lesa upp af blogginu mínu í þættinum... og svo kom að því.. og ég lá uppí rúmi og þau byrjuðu að tala um mig og lásu upp ömmudæmið.. kl 7.20 í morgun, heyrðu það ekki örugglega allir???

Svo fóru þau að líkja mér við Stebba Hill og eitthvað.. jájá.. maður er bara kominn í celebklúbbinn krakkar mínir.. ég skal reyna að muna eftir ykkur þegar ég fer í kokteilpartíið á undan Edduverðlaununum næst! LOL !!! Annars er ég ekki að ná þessu öllu saman.. og ætla heldur ekkert að ná þessu.. reyni bara að lifa í deginum í dag.. það er nóg fyrir mig.. ég get nefnilega verið með dáldið sjúkan huga og verið komin way ahead í hausnum á mér..

Annars var Unnur vinkona að segja mér að ég ætti að fara á uppistandsnámskeið hjá Snorra Hergli vini sínum.. og hann er víst meiri að segja til í að taka mig í einkatíma!!! Ég væri nú alveg til í að prófa sko.. en ég held að það sé hræðilegt að lenda í því að vera með uppistand þar sem enginn hlær, já enginn sagði ég! Maður hefur svosem séð svoleiðis í bíómyndunum.. Þannig að ég ætla bara að melta það aðeins!

En svo ég fari útí allt aðra sálma hérna, þá hristi ég stundum hausinn yfir því hvað ég er orðinn geðveikislega tæknivædd.. ég er td. alltaf að lenda í því að þegar ég er að þvo mér um hendurnar á almenningsklósettum, þá skrúfa ég ekkert fyrir vatnið.. því að niðrí Laugum og í Kringlunni eru svona sjálfvirkir kranar.. og svo eins ég hef nú sagt hérna áður, er ég stundum að reyna að opna hurðina á íbúðinni með fjarstýringabíllyklinum, labba stundum á glerhurðar því að ég geri bara ráð fyrir því að þær séu rafknúnar og ég veit ekki hvað og hvað!

Þetta er alveg hrikalegt ástand, ég held ég verði bara að flytja til Japans eða eitthvað, er ekki allt svo tæknilegt þar? En svona án gríns þá langar mig geðveikt að fara þangað eftir að ég sá Lost in Translation.. en maður er svosem ekki mikið á leiðinni þangað, þar sem ég hef ekki einu sinni efni á því að fara til Hafnarfjarðar um páskahelgina liggur við..

En djöfull skal ég sofa út næstu 5 daga .. haaaaaa!!!! Ég elska að fá að sofa og vakna þegar ég vakna.. ekki snúsa í klukkutíma og fara svo alltof seint á fætur, koma 10 mínútum of seint í vinnuna og allt það! Veit ekki hvort ég fari í bloggfrí hérna eða hvort ég stelist í einhverja tölvu í heimahúsi.. annars langar mig í lappa og þráðlaust net heim til mín NÚNA.. frjáls framlög óskast lögð inná reikn. 11055 í SPH takk fyrir takk!

þriðjudagur, mars 22

Jahá, ég fór alveg í klessu í gær.. fékk símtal í beina símann hingað í vinnuna til mín.. hélt að þetta væri einhver kúnni að rövla yfir greiðsluseðli eða eitthvað álíka.. þannig að ég svaraði:

ég: Anna!
hann: Já Anna.. erhmm ert þú stundum að skrifa greinar?
ég: jááá stundum...
hann: já ertu soldið að skrifa svona, skrifaðir þú Uppskrift að fullkomnu lífi?
ég: já það var ég... hver er þetta?
hann: ég heiti Svali hérna frá útvarpsstöðinni FM!


- oh my gad- ég fékk áfall, ég hélt þetta væri eitthvað svona símaat og þetta yrði spilað í beinni.. hjartað á milljón! -

ég: hmm ok... hvað ertu að spá?
hann: nei við lásum nefnilega upp pistilinn þinn í morgun og það var stelpa sem vinnur með þér sem hafði samband við okkur og sagði okkur að þú hefðir skrifað þetta og að þetta væri að fara útum allt á tölvupóstum án þess að nokkur viti hver skrifaði þetta..
ég: já alltaf gaman að vera frægur án þess að nokkur viti hver maður er hehe..
hann: hehe .. já en hérna ertu stundum að skrifa svona?
ég: já ég er með bloggsíðu, en ég er nú oft bara að skrifa eitthvað persónulegt stöff en svo kemur kannski eitthvað svona inná milli..
hann: má ég fá slóðina?
ég: já það er grisastelpa.blogspot.com..
hann: já ég ætla að skoða þetta..
ég: hmm ok..
hann: ok.. bæbæ
ég: bæbæ


- úff... þetta var þá allavega ekki símaat- hjúkket!!!! -

En hvað gerist svo í framhaldi af þessu veit ég ekki.. hann er ekkert búinn að hafa samband aftur.. glætan að fólk nenni að skoða þetta blogg alveg aftur í tímann.. reyndar gerði ég það smá í gær og fann þarna eitt sem ég hafði skrifað um daginn sem vakti lukku, þannig að ég ætla að peista það sjálf með mínu leyfi aftur hérna á síðuna mína hehehe.. af því að það er svo mikið af nýju fólki að skoða hérna, sem mér finnst by the way frábært!!!
____________________________

(Grísastelpublogg frá 27. janúar sl. Sjá hérna! )

Ég var í gærkvöldi að skúra og þá hugsa ég stundum dáldið.. bara pínu! Og ég var að spá í þessu með hugtakið "að kalla allt ömmu sína" ... hmm hver gerir það?

Dæmi:Manneskja sem kallar EKKI allt ömmu sína:
"Í gær skrapp ég í Kringluna, fór inní Vero Moda og sá geðveikt flottan jakka. Svo mátaði ég jakkann og hann smellpassaði og ég ætlaði að kaupa hann. Tók upp debetkortið og gellan renndi því í gegn.. engin heimild.. ohh.. rétti henni Vísa kortið.. engin heimild! Damn.. ég á engan fokking pening! Best að halda áfram að druslast í gamla jakkanum þá!"

Manneskja sem kallar ALLT ömmu sína:
"Í gær skrapp ég í Ömmuna, fór inní Ömmu og sá geðveikt flotta ömmu. Svo mátaði ég ömmuna og hún smellpassaði og ég ætlaði að kaupa hana. Tók upp ömmuna og amma renndi henni í gegn.. engin amma.. ohhh rétti henni hina ömmuna.. engin amma! Damn ég á enga fokking ömmu! Best að halda þá áfram að druslast í gömlu ömmunni þá!"

____________________________

hehehe Svaaaaaaaaali á FM ... detti af mér allar dauðar lýs.. fljótt skipast veður í lofti og allt það maður, einn daginn er maður bara að tala við mömmu og næsta við útvarpsmann..

mánudagur, mars 21

Þessi helgi var nú ekki eins skemmtileg og hún átti að vera... með tilheyrandi mígreniskasti og uppköstum.. :( aumingja ég!!!!!!! Ég á mest bágt í heiminum þegar ég er lasin..

Annars var komst ég að því að pabbi er stundum að laumast í bloggið mitt og hann sagðist stundum ekki geta lesið þetta því að honum blöskraði dónaskapurinn í mér... og þá bað ég um dæmi og þá var það dæmið þarna um daginn þegar ég var með óléttuþráhyggjuna... en ég meina.. eru lesendur mínir virkilega að taka öllu bókstaflega sem ég er að bulla hérna, ég ætla að vona ekki!?!

Í dag er "höfuðlaus her"-ástand í vinnunni, ég vissi nú fyrst ekki hvað ein var að meina með þessu, en það þýðir semsagt að það eru engir yfirmenn á svæðinu.. magnað hvað allt verður afslappaðra við svoleiðis aðstæður!

Mig langar að skrifa um nokkrar tegundir af pakkamat sem ég meika ekki.. og það eru td. pakkabernaissósur, pakkakartöflumýs og tilbúin kartöflugratín... ojojojoj þetta finnst mér allt svo vont og fólk skilur það ekki! Ég held að það sé bara fólk í afneitun eða fólk sem hefur aldrei smakkað the real thing! Ég hef verið kölluð snobbhæna fyrir vikið!
Ég meina svo finnst mér frosnar pakkapizzur mjög góðar en sumir meika þær ekki! Hmm.. já misjafn er smekkur manna!

Svo þoli ég ekki þegar fólk kann ekki að fara á hlaðborð, hrúgar öllu saman. Setur grafinn lax og fiskidót á botninn, svo heitt kjöt og sósu yfir það og svo súkkulaði búðing á toppinn, hvað er það? En sem betur fer eru Íslendingar að læra svona hlaðborðsmatarvenjur... það er bara svona að vera kokkadóttir og hafa lært góða borðsiði í gegnum tíðina! :)

föstudagur, mars 18

Jæja þetta er aldeilis búin að vera ágætisvika, nóg að gera og ég er bara hálf lúin! Ætla bara heim að chilla eftir vinnu í dag.. þrái það mjög heitt að leggjast útaf!

Annars segi ég bara góða helgi!!!!


Dúllu broddgaltarungi!

fimmtudagur, mars 17

Anonymous frægð?

Ja hérna ég er nú bara hissa!
Nú er pistillinn minn um uppskriftina að hinu fullkomna lífi sem ég skrifaði hérna á mánudaginn, þotinn út um allt land á tölvupóstum, ég var einmitt að fá þetta sent sjálf rétt áðan!
Svo er búið að setja þetta þrisvar inní umræðuna á barnalandi.is og ég veit ekki hvað og hvað.. ég er bara orðin heví fræg.. eða bíddu við... nei.. það veit enginn hver skrifaði þetta! Einhver tekur sig til og copy peistar og stelur þessu! En ætli það sé ekki vaninn hjá frægu fólki.. verð bara að fara að venjast þessu!

Ég sem er búin að senda meil á ritstjórn Fréttablaðsins og ætlaði að fá þá til að birta þetta, ætli ég geti eitthvað sannað að ég hafi skrifað þetta núna!

Þetta er samt engu að síður hrós að fólk útum allt land sé að hlæja að einhverju sem mér datt í hug að skrifa hérna! :)

Ég fékk að sækja Auði Aþenu í leikskólann í gær, mér finnst það svo ótrúlega gaman. En málið er að það þarf að hringja og láta vita ef einhver annar er foreldrarnir sækja börnin. Og ég var nýbúin að tala við Lilju og renndi niðrettir. Auður kom auðvitað hlaupandi til mín og uppí fang.. og fóstrustelpan var alveg.. "hver er þetta?" og Auður alveg "Anna ænka!", og ég var alveg, "ég er sko föðursystir hennar".. hún alveg jájá.. en svo hringdi síminn og þá var Lilja akkúrat að hringja, mér fannst þetta líka soldið skrítið! En þetta er rosafínt öryggi, þá foreldrarnir verið alveg rólegir að ekki hver sem er geti komið og sótt barnið manns á leikskólann!
Ég ætla samt að stela henni þegar nýja barnið fæðist.. ég meina, ósanngjarnt að Einar eigi 2 börn og ég ekkert!!! Múhahhahahaha

Auður vildi náttúrulega ekki fara heim "ekki mömmu og pabba", það er ekkert gaman, þannig að ég fór með hana aðeins í Kringluna.. Henni finnst það ekki leiðinlegt sko, og ég fór að kíkja á strigaskó handa henni, er komin í vorfílinginn! Mig langar að hún fái svona Puma skó með merkið á tánni.. verður örugglega algjör pæja í þeim! Hún verður nú líka að fá töff hluti þegar nýja barnið kemur.. sem er aaalveg að fara að koma, vonandi, svona Lilju vegna!

Svo slapp hún inní Dótabúðina.. úfff... ég keypti samt ekkert, rosa vond frænka.. náði henni meiri að segja út án þess að hún færi að gráta, enda algjör engill þessi elska! Svo skutlaði ég henni til m&p Lilju þar sem þau voru að fara í mat, og þau vildu endilega að ég kæmi líka í matinn. Hmm mér finnst það soldið óþægilegt að vera í mat hjá tengdaforeldrum bróður míns.. og Einar sagði "ég skal koma með þér einhvern tímann í mat hjá þínum tengdó!" LoL já, með alla hersinguna sagði ég!

Ég fór að skúra í gær og þá var auðvitað samkoman á efri hæðinni, ég bara næ ekki þessum öskrum og stundum þarna.. samt er þetta kristilegur söfnuður... held ég!

Ég sá einu svo ógeðslega fyndið atriði í bíómynd, að mér fannst.. man ekkert í hvaða mynd þetta var eða neitt.. en allavega það var einhver að kaupa sér rúm.. og sölumaðurinn var að sýna honum rúmin og sagði, þetta er king size og þetta er queen size og þá sagði gaurinn sem var að kaupa: "King and queen size, dont you have jacksize??" og það var þýtt sem gosastærð!!!!!!

Mér finnst þetta ógeðslega fyndið allavega, og ég var eitthvað að segja Ení Bí frá þessu í gær á msn og við vorum í hláturskasti!
"Já þarna sitja kóngurinn, drottningin og gosinn í hásætum sínum!"

miðvikudagur, mars 16

Páfinn segir að pillan sé fóstureyðing og að fóstureyðing sé morð. Er þá sjálfsfóun karla fjöldamorð og konur sem kyngja mannætur?


Jæja núna fara páskarnir að koma, með öllu sínu gula havarí og eggjum! Mig langar alveg að smakka þetta nýja Rísegg, verð nú að segja það.... en ég meina.. það kostar kannski 2000 kall og maður gæti keypt sér 20 stór Rís í staðinn... það er kannski engin páskastemmari í því...

En ég er ekkert að fara að borða neitt páskaegg, nema að ég fái mér bara páskaspælegg og beikon á páskadag.. hvur veit!

Ég var að senda fyrirspurn í Fréttablaðið hvort þeir vilja birta raunveruleikasjónvarpspistilinn minn sem ég skrifaði hérna í fyrradag, er ekki búin að fá neitt svar.. Ég meina má ég ekki alveg eins skrifa í Fréttablaðið eins og einhver Biggi í Maus og Tarfur í Quarashi?... eða þarf maður að vera Anna í "einhverju" til að fá að skrifa?

Það kemur í ljós þegar ég fer uppí Kjós að skoða fjós!
mjehehe brandarakelling maðurrrr!

þriðjudagur, mars 15

Fríkmundur Pálsson

Mikið er frábært veður úti... gluggaveður! Hvað er með þennan kulda, maður spyr sig?

Horfði á One tree hill í gær, þvílík vitleysa.... afhverju þarf alltaf að vera einhver óþolandi í öllum svona þáttum, svona illa innrættur karakter.. En ég get samt ekki beðið þangað til að OC byrjar, það er skemmtilega unglingasería fyrir sígelgjur eins og mig! :)

Survivor var ágætur.. þau fengu að smíða klósett og sturtuklefa.. það er nú fyrir öllu, mér finnst nú homminn (man ekki hvað hann heitir) vera með extra hvítar tennur og fólkið með hreint hár.. ætli það sé ekki bara vatnsklósett og sturtuaðstaða þarna fyrir fólkið... Annars er þetta bara rétt að byrja þessi sería.. verður skemmtilegri þegar fer að síga á seinnihlutann, ég held með Angie þótt hún sé í alltof lítilli skýlu, myndi aldrei þora að vera á svona bandaskýlu í þrautunum og svona litlum haldara, enda er alltaf búið að blörra á henna geirurnar sem poppa uppúr! En hún er svöl, svona outkast sem kom, sá og sigraði..... en ef liðið hennar heldur áfram að tapa þá má hún kannski fara að vara sig..

Nú fer barnið hjá Einari og Lilju bráðum að koma í heiminn, ég get ekki beðið eftir að fá að halda á því og sjá hvernig það lítur út! Greyið Lilja er bara að bíða eftir að það komi í heiminn.. úfff eins og mig langar að vera ólétt þá öfunda ég hana ekki um þessar mundir! Það verður líka gaman að sjá hvernig Auður Aþena verður þegar hún fattar að hún á lítið systkini.. gaman að þessu!

Annars svona til að updeita með hugleiðsluna hjá mér, þá hefur mér ekki tekist aftur að vakna svona snemma til að fara að hugleiða og svo er ég alltaf svo bissí seinnipartinn að ég hef bara ekki haft tíma til að gera seinnipartshugleiðsluna.. en það þýðir ekkert að berja sig fyrir þetta og hætta, heldur bara að halda áfram og gera þetta þegar ég get!

Fyndið ef ég yrði svo svona gúrú í kyrtli og með túrban og færi í indverskan hugleiðsluskóla og kæmi svífandi heim á bleikum silkipúða...

mánudagur, mars 14

Uppskrift að fullkomnu lífi?

Fyrst sæki ég um að komast að í þættinum You are what you eat og kemst þá að því að matarræðið er snarbilað, en eftir að kellingin fer þá held ég samt bara áfram að éta og fitna meira. Þá fer ég í megrunarkeppnina The Biggest Loser og næ af mér nokkrum kílóum. Nú til að fá final touchið á þetta þá fer ég í The Swan og fer í nokkrar lýtaaðgerðir og fitusog, ekki veitir af.. en í lokaþættinum þá kemst ég ekki áfram í fegurðarsamkeppni the Swan, þannig að þetta hefur ekki virkað alveg. Þá fer ég í Extreme Makeover og læt taka mig ærlega í gegn, skipti bara um andlit og sýg alla fitu úr líkamanum.

Þá er ég heldur betur orðin flott og fer í Americas Next Top Model þáttinn og geri gott þar.. en tapa. Nú er ég orðin soldið fúl og einmana, á engan kall nebblega. Best að fara í Bachelorette og ná mér í einn ríkan og myndarlegan. Geri það, en þegar þáttaröðin og það er búið, vantar einhverja spennu í sambandið, þannig að við förum í Temptation Island... en þar endar það með að við hættum saman því við héldum bæði framhjá. Þá langar mig bara að vera dáldið sjálfstæð og verða rík..

Þannig að ég fer í Survivor, þrauka alveg í 36 daga en lendi í 3. sæti ohhh ég fæ ekki einu sinni 100 þús dollara.. fer heim, alveg í rusli. En ég er ennþá sæt eftir lýtaaðgerðirnar og sílíkonbrjóstin hanga ennþá uppi.. og þar sem mig langar aftur í kærasta, þá skrái ég mig í Djúpu laugina.. næ mér þar í einhvern lúða sem býr í ljótri íbúð í Fellunum og er frekar subbulegur. En það er allt í lagi, ég hringi bara í vini mína í Queer eye for the Straight Guy og þeir koma og henda manninum mínum í klippingu og kaupa ný föt á hann, rí-dekkorreita svo íbúðina, allt voða flott og hann biður mig um að giftast sér í lok þáttarins, sem ég geri.

Við förum þá auðvitað með brúðkaupið í Brúðkaupsþáttinn Já og vinnum svo ferð í Karabíska hafið, voða rómó. En á skemmtiferðaskipinu þá verð ég ólétt.. eignast svo krakka og eftir 2 ár er hann farinn að stjórna öllu, þannig að ég hringi í The Nanny og fæ hana til að kenna okkur að ala upp krakkann og láta hann ekki ráða öllu.

Nú er allt komið í drasl aftur.. Þannig að ég hringi bara í Heiðar vin minn Snyrti og fæ hann að koma með þáttinn Allt í drasli og taka til... vá hvað það verður allt fínt hjá okkur! Þá er nú kominn tími til að hringja í Völu og við komum í Innlit Útlit, en við þurfum svo að stækka við okkur því að það er annað barn á leiðinni, þannig að við förum bara með íbúðina í þáttinn Allt undir einu þaki, seljum hana og kaupum stærri.

Árin líða og þetta endar allt með því að ég er búin að skilja við kallinn sem hélt framhjá mér, lýtaaðgerðirnar sem voru gerðar fyrir 15 árum komnar í klessu, ég er ljót, feit, einstæð 2ja barna móðir sem á ekki neitt.. þannig að ég fer bara í Fólk með Sirrý og væli yfir þessu öllu saman!

fimmtudagur, mars 10

Fljótt skipast veður í lofti!

Já krakkar mínir ég, Anna Sig., vaknaði kl 07.10 í morgun til að fara að hugleiða við kertaljós. Nú er kominn tími til að rækta mitt innra sjálf eins og sagt er! Hætta að spá svona mikið í öllu (það verður erfitt) og reyna að sleppa tökunum! Maður verður endalaust þreyttur á því að reyna að stjórna öllu og öllum í kringum sig!


Ég er semsagt búin að krúnuraka mig
og fá mér svona gul klæði!

Ég veit ég er alltaf að væla um karlmannsleysið, en þar sem ég hef komist að því að meginþorri karlmanna eru hálfvitar og dusilmenni (eins og amma segir alltaf) þá hef ég ákveðið að vera ekki að vorkenna mér fyrir að hafa ekki einn slíkan mér við hlið.
Ég ætla bara að vera þakklát fyrir að vera ekki fædd í landi þar sem ég væri seld eða gefin einhverjum ljótum kalli. Þá væri ég örugglega búin að vera gift í 13 ár og ætti jafnmörg börn.... oh my lord!




Önnur undur og stórmerki hafa gerst, ég er komin með æði fyrir appelsínum, það er bara eitt vandamál sem fylgir því.. ég er með þvílíka fóbíu fyrir fyrstu stungunni í börkinn, það rifnar nefnilega svo oft nöglin aðeins frá kvikunni og safinn kemur í sárið.. það er ekki gott! En ég vil afhýða hana svona og rífa svo bátana í sundur.. Ekki skera í báta með berkinum.. það finnst mér ekki spennandi! Reyndar var ég að borða eina appelsínu áðan sem ég keypti í Bónus og sú var með litlu mandarínubarni inní.. það þykir mér ekki spennandi.. finnst svona stökkbreytt bragð af barninu... enda borðaði ég það ekki!

miðvikudagur, mars 9

Ég er bara búin að fara hálflasin síðan á sunnudagskvöldið, þannig að mína síðustu daga hefur ekki margt drifið! Ég er reyndar búin að vera helvíti dugleg að horfá bíómyndir, þar má nefna Kill Bill, Pulp Fiction, Coming to America og Notebook... allt snilldarmyndir verð ég að segja!

Sérstaklega gaman að horfá Coming to America, langt síðan ég hafði séð hana.. ýmsir fyndnir punktar sem ég hafði aldrei tekið eftir og ekki fattað kannski þegar ég var að horfá hana í den! Td. situr Cuba Gooding Junior í klippisætinu hjá rakaranum í fyrsta atriðinu þar, en hann segir nú ekkert!

Annars er maður bara mikið að pæla í lífinu og tilverunni.. búin að vera eitthvað hálfdán (steinþórsson?) undanfarið..... en það er bara eðlilegt að hafa lægðir og hægðir hehe í lífinu.. er þaggi? Sérstaklega hægðir......

Svo langar mig geðveikt í laptop og þráðlaust net heima.. en ég sé ekki fram á að geta fjármagnað það nema að ég selji mig eins og 5 sinnum á 25 þúsund skiptið... var einmitt að spyrja Einar bróðir hvort að strákunum í vinnunni hans vantaði ekki að fá á broddinn.. but no.. hann vill ekki pimpa systur sína.. skrítið?!?

sunnudagur, mars 6


Við frænkurnar rosa sætar! :)

föstudagur, mars 4

Já það var aldeilis hæ hó og hopp og hí og hamagangur á Hóli í gær!
En í gær varð hann karl faðir mann 50 ára gamall og lögðum við fjölskyldan á ráðin og héldum svaka surprise partí fyrir hann! Sem tókst svona líka vel.. það leið ekki yfir kallinn en það var ekkert langt frá því held ég!

Sko ég myndi öskra og deyja ef það sæti einn maður inní stofu heima hjá mér þegar ég kæmi heim, en nei ef öll fjölskyldan og vinir og vandamenn væru.. þá þyrfti ég björgunarteam.. enda höfðum við varann á og vorum með 3 hjúkrunarfræðinga í partíinu.. en við þurftum sem betur fer ekki á sérfræðiaðstoð þeirra að halda.

Svo kom þetta pabba svo skemmtilega á óvart og hann var svo ánægður með þetta allt, sem var æðislegt! Ég var með þvílíkt samviskubit að vera að ljúga að ég væri að fara með einhverju fólki útað borða og Einar bróðir laug að hann væri að fara í mat til tengdó.. það fannst mér sko low... enda var pabbi hálf sár að hans eigin börn væru að taka svona framfyrir að koma í mat til hans. Þannig að mamma dró hann á American Style og svo í fataleit í Smáralind og það er ekki eitthvað sem honum pabba þykir skemmtilegt!

Á meðan vorum við 40 manns heima hjá þeim að bíða og þjöppuðum okkur í eitt hornið, svo var Auður Aþena náttúrulega á staðnum og hin amman að reyna að troða í hana ópal svo hún myndi þegja.. það tókst svona.. og þegar pabbi kom fyrir hornið þá kom svona gapandi kjálki og svo "GUÐ MINN GÓÐUR".. svo hnég hann niður og labbaði svo inní hjónaherbergi.. held hann hafi ekki verið að trúa sínum eigin augum hehe.. en svo var þetta bara gaman þegar hann áttaði sig!

Annars er helgin framundan, sem er GOTT! Ég fæ að hafa Auði Aþenu frá hádegi á morgun og fram á sunnudag.. ohhh þasso gaman!!!!

Góða helgi!

miðvikudagur, mars 2

Það komu 2 til mín á sama tíma á msn og spurðu hvort þetta væri ég að auglýsa??????

Krakkar mínir, ég er nú ekki alveg gengin af göflunum...........

þriðjudagur, mars 1

Jæja fólk, hvað finnst ykkur um nýjasta nýtt: hinn Metrosexual mann!?!
Þetta er alveg að tröllríða öllu hjá íslenskum karlmönnum núna, ég hef sérstaklega tekið eftir þessu niðrí Laugum, strákar með svona effemmhnakka-kamba og einn stóran demantseyrnalokk... úff.. ég veit ekki! Ég veit ekki hvort ég fíla karlmenn sem skreyta sig meira en ég, þótt það þurfi lítið til! Karlmenn sem nota fleiri snyrtivörur en konur.. tja.. og karlar með svona hárspöng í hárinu...

Svo eru nýju auglýsingarnar frá 10-11 alveg til í að ýta undir þetta... afhverju þarf allt að ganga útí öfgar hérna? Mér finnst reyndar homosexual menn ekki geta verið metro líka... en hvað veit ég?

Og talandi um 10-11.... sem er reyndar orðin mjög flott niðrí Lágmúla verð ég að segja og salatbarinn þar er geðveikur.. en ég þoli ekki þegar ég sé fólk grufla í matnum með puttunum, þá missi ég lystina.. ég hef nefnilega oft séð einhverja kalla verið að slafra í sig pastaskrúfu .. ojjjj .. þess vegna eru þessir salatbarir kannski oft kallaðir salmónellubarir...

Svo var ég líka að frétta eitt frá ónefndum fugli sem á bróðir sem vinnur hjá ónefndu ávaxta og grænmetisfyrirtæki hér í bæ, að sem sagt ávaxtabakkarnir sem eru til sölu 10-11, svo blandaðir niðurskornir og hreinsaðir ávextir á svona 199 kr. eru útbúnir af nýbúakonum sem vinna við að taka ljótu og gömlu ávextina og skera það sem er heilt úr þeim og setja í þessa bakka....

Alltaf er verið að plata litla manninn og metrómanninn.....