Jæja nú getur maður gleymt því að gera eða fara eitthvað skemmtilegt í sumar! Allar framkvæmdir voru samþykktar á húsfundinum í gærkvöldi. Kaupa sameiginlegan þurrkara, mála sameignina, og gera við húsið.. já þetta verður svona 300-500 þúsund krónur.. aðeins! Ekki það að þetta veitir ekki af.. en það er kannski betra að gera við húsið heldur en að það hrynji einn góðan veðurdag!
Konan sem ég talaði um í gær, mætti ekki... hvað er í gangi? Er hún bara alveg að láta mann í friði? nei maður spyr sig. Samt var endalaust hægt að ræða fram og tilbaka um einhver smáatriði á þessum blessaða fundi, sem stóð í 2 klukkustundir aftur.. og ég missti af Boston Legal..

Sjatnerinn á sínum yngri árum!
Boston Legal eru alveg snilldarþættir og hann William Shatner sem Denny Crane er alveg að gera sig.. fyndinn karakter! En ég sá lokin á Piparsveininum.. og guð minn góður.. afhverju er maður að eyða tíma sínum í þetta? Og núna verð ég að fylgjast með þessu.. strax orðin húkt! .. eða sjáum til.. maður á kannski ekki að vera hanga svona inni á sumrin og glápa á sjónkann!
Svo er ég að fara á annan aðalfund á eftir.. Aðalfund hjá fyrirtækinu sem ég vinn hjá, ég á að sjá um að útbíta ársskýrslum og fleiru. Þarf að vera fín.. þannig að ég er með dragt með mér í poka.. ég gat ekki hugsað mér að vera í dragt í vinnunni í allan dag.. Þetta er bara ekki svo fansísmansí skrifstofa.. fyrir utan fýluna sem er hérna. Lilja mágkona dó næstum því þegar hún kom inní bílinn minn í gær, því að hann angaði af fiskimjölsfýlu...
Góða helgi!







