þriðjudagur, maí 31
mánudagur, maí 30
Eitt af því sem ég vil ekki verða .. er svona kelling, leiðindakelling með engan húmor. Og ég vona að ég haldi í gelgjuna mína sem lengst.. en stundum fæ ég svona tilfinningu "úff, ég er orðin kelling".. eins og þegar ég er farin að kalla háværa músík; graðhestatónlist og lækka í útvarpinu af því að hún er að æra mig. Og svo eitt sem ég var að fatta í morgun á leiðinni í vinnuna...
Þegar ég var lítil langaði mig svo alltaf að mamma og pabbi væru með svona dinglandi dót í baksýnisspeglinum í bílnum. En pabbi fussaði alltaf og sagði að það væri svo vond lykt af því og mamma sagðist ekki vilja hafa eitthvað svona dinglum dangl sem myndi sveiflast útum allt. Og ég var alltaf geðveikt hneyksluð á þeim. Nú, 28 ára gömul og hálfum vetri meir, þá er ég loksins búin að eignast minn eigin bíl. Og viti menn... núna vil ég sko ekki hafa eitthvað illa lyktandi eða mígrenisvaldandi tásur eða eitthvað álíka, sem fleygist útum allar áttir í mínum bíl!
En ég myndi gera undantekningu ef ég gæti fengið svona spjald með einhverjum berum töffara á.. en það er bara ekkert lengur til á bensínstöðvunum, ekki einu sinni berar kellingar. Ég man að Sigrún átti einhvern svona dökkhærðan fola á spjaldi í Suzuki Swiftnum sínum forðum daga.. ég man bara ekki hvað hann hét!
föstudagur, maí 27
Ég er að leysa af á símanum og rétt í þessu hringdi maður og spurði:
"Ertu með lambatúttur?"
Hahahahahahhahah nei ég er nú bara með konubrjóst, sagði ég!
fimmtudagur, maí 26
Vá einn af þessum dögum sem maður hefur ekkert að segja.. ekki það að ég samkjafta ekki allan daginn.. eða svona þannig séð. Ég væri orðin kreisí little bastard ef ég væri ekki með msn hérna!
Mér finnst þessi vika búin að vera svona groundhogvika.. allir dagar eins. Ég er búin að mæta alltaf sömu konunni á sama vínrauða station bílnum sínum með númerið VE-??? í Sundaborginni alla morgnana, í gær þegar ég keyrði framhjá IKEA sá ég mann vera að fara með kassa inn um hurðina þar og svo kíkti ég í morgun og þá var sami maður með eins kassa að fara þarna inni.. Svo kemur maður í vinnuna og það er sama sagan.. "góðan daginn, góðan dag, daaaaaaag, daginn, góndæjinn!" Setjast kveikja á tölvunni, ná í vatn, fá sér skyr.is, skoða meilin, skoða hvort einhver hafi kommentað hérna.. skoða vinabloggin, vinna smá, fara í kaffi, vinna, blogga, vinna, matur í hálftíma. Vinna hanga vinna, ná sér í vatn, ná sér í kaffi. Fara heim.. þá er kannski aðeins fjölbreyttara.. nenni ekki að fara útí það!
Eins og ég segi; Groundhogdays!

miðvikudagur, maí 25

Já ég var að horfá Veggfóður í gærkvöldi, ég var ekki búin að sjá hana í mörg herrans ár! En ég man eins og það hafi gerst í gær þegar ég fór að sjá hana í bíó sumarið eftir 10. bekk.. eða árið *hósthóst* 1992.. já maður er dáldið gamall.. en já.. ótrúlega fyndin mynd á köflum, en með eindæmum illa leikin og hallærislegar múnderingar. Mér finnst Sveppi lang coolasti gæjinn í henni, enda á hann skemmtilegustu frasana! Fyrir utan "ég bít ekki á ryðgaðan öngul" sem að Sól sagði. Lass einhver listamannsspíra í rauðum Jees gallabuxum og svörtum hlírabol.. En ég mæli með að kíkja á hana.. maður fær svona nostalgíufíling.. hvernig allt var þarna um árið!
Svo í gær var ég að rifja upp eitt af mjög svo vandræðalegum deitum sem ég lenti á einu sinni, eða árið 1997 að mig minnir. Þá hafði ég kynnst strák frá Njarðvík á ircinu gamla og góða. Við vorum búin að vera að spjalla saman á netinu í einhvern tíma og ákváðum svo að hittast. Ég sótti hann á Bsí ef ég man rétt á föstudagskvöldi, svo fórum við á leigu og leigðum Phenomenon (pínómínó eins og einhver sagði). Fórum svo heim til mín (ég bjó þá heima) og mamma og pabbi voru einhverstaðar burtu um helgina. Svo förum við að horfá myndina og svo prumpar gaurinn allt í einu og segir ekkert. Ég bara.. hmm.. greyið. Neinei svo eftir 5 mínútur kemur annað prump.. og svo alltaf á 5 mínútna fresti prumpaði hann.
Einar bróðir sat bakvið okkur í tölvunni og var byrjaður að deyja úr hlátri.. en ég þorði ekkert að segja, þar sem ég og strákurinn lágum í hornsófanum og hann hélt áfram að prumpa og lyktin var farin að láta á sér kræla. Svo bara missti ég úr mér: "hvað er í gangi?" og þá sagði strákgreyið: "djöfullinn, ég hefði ekki átt að borða þennan lakkrís á leiðinni!" og ég bara hugsaði: "díses kræst". Við vorum nefnilega búin að ákveða að við ætluðum að kúra saman í mínu rúmi um nóttina en ég bara gat ekki hugsað mér nótt í þessu prumpuhelvíti. Þannig að þegar það var kominn háttatími, þá sagði ég honum bara að sofa í mínu rúmi og ég fór og svaf sjálf í hjónarúminu. Svo næsta morgun þá var ég að fara að vinna kl. 10 í Hagkaup í skeifunni og skutlaði honum bara á stoppustöðina á Grensás og sagði bæbæ. Sá hann aldrei aftur greyið...

þriðjudagur, maí 24
Ég var að skoða atvinnumiðlun EES áðan.. það eru auglýst 9 laus störf í Noregi en 1195 í Danmörku.. mér finnst þetta nú soldið mikill munur sko! Það eru svo margir í kringum mig að flytja til útlanda í sumar.. reyndar allir til Danmerkur.. og maður smitast ójá.. ég fæ svona kreiving í tilbreytingu. Allt í lagi að skoða í kringum sig.. ekki það mikið af tilbreytingu í boði hérna á Ísalandi!
Ég var að spá í um daginn, alltaf þegar þættir eða bíómyndir eru að byrja og verið er að telja upp aðalleikarana, þá kemur oft "and William Shatner as Denny Crane" og hann er kannski eini frægi leikarinn sem maður þekkir með nafni. Afhverju ekki frekar að segja hvaða karaktera hinir eru að leika? Neinei bara nefna þann sem maður þekkir í sjón! Nei bara pæling!
Annars var ég að ákveða sumarfríið mitt loksins áðan, byrja 9. júní til 11. júlí.. ekki amalegt það! :)
We are going on a summerholiday!
mánudagur, maí 23
Ég nenni nú ekki að tala um Eurovision.. þetta var samt alveg skemmtilegt show.. en bara allt eitthvað klíkulegt við þetta.. Skipta þessu bara í tvennt.. Júgóvision og Júróvision.. mamma taldi að þetta væru 18 austantjaldslönd og 21 vesturtjalds.. ég meina.. er það ekki bara sanngjarnt?
Annars já.. horfði ég á Ungfrú Ísland á föstudagskvöldið.. ok.. hefði ekki verið hægt að sleppa þessu öllu bara og útnefna Miss Steinson junior sem Ungfrú Ísland 2005. Manni sýndist það vera bara "ákveðið" að hún myndi vinna. Mér persónulega fannst nokkrar þarna miklu fallegri og efnilegri en hún. Ég hefði td. viljað að sú sem var í 3. sæti, Margrét Elíza hefði unnið. Rosalega falleg stelpa sem er búin að leggja sig að verða svona fit og flott. Það var viðtal við hana í DV á lau þar sem kom fram að hún var orðin 90 kg. og eitthvað.. og er búin að vera í einkaþjálfun hjá Raul.. sem tálgaði Eyþór Arnalds hérna um árið.
Annars var ég voða mikið að dúllast með Auði Aþenu um helgina. Við fórum að sjá Línu Langsokk stíga á stokk í nýju Húsasmiðjunni/Blómaval.. það var nú ekki leiðinlegt. Kíktum svo í nýju sundlaugina í Salahverfinu í Kópavogi.. heví fín laug og skemmtileg. Svo þurfti Anna frænka að leggja sig fyrir Júróvisjón.. já það tekur á að vera með svona grísling á sínu bandi.
Svo var family get-to-gether hjá mömmu og pabba og pabbi grillaði heví stórar T-Bone steikur og hörpuskelfisk og meððí.. MMMmmmm rosa gott!
Setti inn nýjar myndir í albúmið í gær!
Ný vinnuvika byrjuð.. jibbí.. jibbí.. jei!
föstudagur, maí 20
Mér finnast niðurstöður rannsóknar minnar um hvernig fólk hefur kynnst makanum sínum, mjög forvitnilegar. 41% hafa kynnst á djamminu eða í partí.. sem virðist vera hinn íslenski bragur.. 24% eiga ekki maka.. það kemur mér á óvart af því að mér finnst ég alltaf vera eina í heiminum sem á ekki kærasta.. heil 12% kynntust í gegnum netið.. það er bara cool.. gefur mér von! haha.. og hin prósentin skiptust á vinnustað, skóla, áhugamál eða í ferðalagi.. sem er mjög normalt held ég... En enginn í Kringlunni.. ég meina.. getur maður ekki alveg eins kynnst einhverjum í hvíldarsófunum á göngunum?
Það er ný könnun hér til hliðar!
En já, getur maður talað um eitthvað annað en Júroflopp og vonbrigði ársins í gærkvöldi! Vá hvað maður var vongóður.. aldrei datt mér annað í hug en að við myndum komast áfram í aðalkeppnina.. but no! Og við erum náttúrulega snillingar í að finna afsakanir afhverju við komumst ekki áfram.. eins og mér fannst þessi búningar sem þær voru í algjört horror.. og dansinn þarna fannst mér mjög klígjulegur.. Fyrir utan austantjaldsmafíuna og það allt! Ég veit ekki.. maður er ekki að fatta uppskriftina að sigrinum í þessu.. Þykir auðvitað mjög vinsælt að vera nánast nakin á sviðinu.. vera með sílíkon túttur eða gamla ömmu að spila á trommu.. það er allt að virka.. eða ekki..
En allavega.. það verður ekki jafn gaman að horfá keppnina annaðkvöld, við sem vorum búin að plana þvílíka grillveislu með T-bone steikum og látum... Annars held ég uppá Noreg, mitt annað heimaland.. þeir í WigWam eru heví cool og ég fíla þetta lag í tætlur! Elska svona glysrokk!

fimmtudagur, maí 19
Ég var að segja Unni frá einu dæmi sem var í CSI New York síðast.. og þetta kom frekar fyndið út þegar maður fór að tala um þetta.. en það var allavega þannig að það dó maður í byggingavinnu þar í borg. Og það sást í heilann á honum.. hausinn bara opinn. Svo fóru löggurnar á stjá og fundu út að það var einhver maður sem vann með honum mjög á móti þessum manni sem dó. Og við krufninguna.. þá var löggugellan alltaf að spá hvaða ógeðslega lykt væri af mannninum... Svo komust þau að því að þennan dag sem hann dó, þá hafði hann verið inná kamri að kúka..svona plastkamar eins og er á útihátíðum. Og þá ákvað gaurinn sem var eitthvað í nöp við hann að byrja að stríða honum. Og byrjaði að jugga kamrinum til og frá með hann sat á dollunni.. og nema hvað.. hann hrindir klefanum og þá fór allt jukkið yfir hann.. ojojojoj.. en það var nú ekki ástæðan fyrir að hann dó. Neinei.. hann var einn af þessum mjög óheppnu einstaklingum.. sem lentu í því, undir berum himni að fá aðskotahlut úr lofti í hausinn. Jú það var nefnilega farþegaþota að fljúga þarna yfir og hún var akkúrat að losa úr klósettinu.. og kúkurinn og það allt frýs í einhverju svona bláu drasli.. og þegar það hrundi til jarðar, lenti það akkúrat á hausnum á þessum manni og hauskúpan brotnaði í tvennt og maðurinn dó. Og fyndnasta fannst mér að þessi klumpur var þýddur í textanum sem skítís! LoL
Svo var ég að hlusta á vini mína Búa Bendtsen og Andra Frey í Kapón á leiðinni í vinnuna í morgun, hmm.. þeir vita samt ekkert að þeir séu vinir mínir.. en það er aftur allt annað mál! En allavega Búi var að tala um einhvern vin sinn sem fór á stera. Og hafi einu sinni verið með þegar annar gaur sprautaði hann í rassinn.. mundaði nálina eins og þeir væru að malla heróín.. svo tók steravinurinn 2 einhver hylki og fór að lyfta. En hann meikaði ekki að lyfta nema í smá stund og tók þá hin 3 hylkin sem átti að taka eftir æfingarnar. Og Búi spurði hann, "bíddu ætlaru bara að lyfta svona lítið?" Þá stundi gaurinn "ég bara meika ekki meir, mér er eitthvað svo óglatt og líður eitthvað svo illa" og var frekar úldinn eitthvað. Svo byrjaði hann að hósta og kúgast og svo gubbaði hann smá svona uppí sig og svo kom bara svona púffffff duftský útúr honum (eins og þegar gamalt fólk prumpar, sagði Andri þá).. hahaha.. þá voru það öll hylkin sem hann var nýbúinn að taka.. æji mér fannst þetta svo ógeðslega fyndið þegar ég var að hlusta á þetta í morgun. Það sem menn leggja á sig til að fá þetta ljóta steraklumpalook, ég segi ekki annað!
miðvikudagur, maí 18
Hvað er meira hressandi en þegar maður er að fara útúr íbúðinni á morgnana og maður labbar á vegg á stigaganginum? hmm.. örugglega ALLT meira hressandi en það!
Ég er búin að lenda í því nokkrum sinnum núna að þegar ég fer útá morgnana þá er konan skemmtilega á efri hæðinni sem ég er nokkrum sinnum búin að tala um hérna.. nýbúin að labba út og skilur eftir sig ilmvatns-stækju dauðans! Og maður grípur hana uppí munninn og allsstaðar.. svo fann ég hana af mér útí bíl. Spreyjaði þá mínu vellyktandi á mig.. but no.. ég fann hina lyktina ennþá. Komin í vinnuna, finn hana ennþá.. hún er föst í hárinu á mér, höndunum og nösunum.. *pirr* Ég þurfti meiri að segja að þvo mér um hendurnar af því að ég hafði auðvitað snert sama hurðarhún og hún. Þessi kona er ekki kona sem ég kæri mig um að vita af allan liðlangan daginn!
Svo er konan á móti mér, hún notar sko Angel.. eitthvað það viðurstyggilegasta ilmvatn sem til er á þessu jarðríki, sorry ef þið notið það.. eða nei.. ekki sorry.. ég get bara ekki andað nálægt þeirri lykt. Fæ mígrenisköst og ógleði.. ótrúlega furðulegt!
Það er svona eins og þegar fólk spreyjar einhverju á sig þegar það er að labba út, þá situr lyktin föst eftir á stigaganginum! Nú ætla ég alltaf að fara að spreyja á mig leyndarmálinu mínu og Viktoríu!
Svo í gærkvöldi, þá fékk ég bara óbeinan smók beint í æð. Mér finnst alveg ótrúlega pirrandi þegar reykingafólk tekur síðasta smókinn rétt áður en það fer inní hús og púar honum svo útúr sér á leiðinni inn. Ég var nefnilega að fara inní 10-11 Austurstræti og það var ein stelpa sem gerði þetta og hún sá alveg að ég og Lilja vorum að fara inn, en samt púaði hún útúr sér reyknum á okkur og hann fór alveg oní maga.. sorry bara en mér finnst þetta ógeð!
Annars er ég bara asssssgoti hress og kát þrátt fyrir tuðið í mér :)
þriðjudagur, maí 17
Bíómyndahelgi dauðans er liðin.
Ég horfði á 5 myndir allaveganna.. Fyrst ber að nefna Alfie.. fín mynd með mjög mjög mjög sætum manni í aðalhlutverki.. Jude Law eða Dúi lögmaður eins og ég kýs að kalla hann. Svo á laugardaginn eftir ráp í Limalindinni fór ég að skila henni og sá þá mynd sem ég bara varð að taka. En það var mynd sem heitir Wadd og er heimildarmynd um líf klámstjörnunnar John Holmes eða Jón Hólmarsson heitins..
Ég veit ekki alveg hvað málið er, en ég hef alltaf haft áhuga á að vita allt um þennan blessaða mann eftir að ég sá Boogie Nights.. en Dirk Diggler aðalhetja þeirrar myndar er einmitt byggð á lífi Jóns. Svo kom myndin The Wonderland Murders með Vali vini mínum Kilmer.. en hún fjallaði um seinni part lífs hans Jóns.. eftir að hann hætti í kláminu og var orðinn dópisti og náði ekki 30 cm risa partýslöngunni upp lengur og fór að hanga með vafasömu liði í LA. sem endaði með því að hann var viðriðinn fjöldamorð á Undralandsbraut. Fyrir það sat hann í fangelsi í einhver ár.. en þegar hann kom út þá byrjaði hann aftur að leika í klámmyndum og endaði líf hans með því að hann fékk Aids.. Sorglegt en skrautlegt líf myndi ég segja.
Svo var mér farið að leiðast um kvöldið þannig að ég tók The Terminal með Tómasi Hanssyni.. já ágætis konsept fyrir bíómynd.. en samt eitthvað klisjukennd mynd og fyrirsjáanleg í meira lagi.
Á sunnudagskvöldið horfði ég á myndina Frida á RÚV en mig var einmitt búið að langa að sjá hana í langan tíma. Einhvern veginn var ég búin að ímynda mér hana öðruvísi en hún var mjög fín og geðveikt flott málverk sem þessi kona málaði. Mjög flott.
Svo í gær tók ég mynd sem heitir Final Cut og er með Robin Williams, eða Róberti Vilhjálmssyni og hún var mjög cool. Ég mæli eindregið með henni. Hún gerist í framtíðinni þar sem hægt að láta græða í fóstur svona míkróflögu sem tekur upp allt sem maður sér og heyrir. Augun eru myndavél. Og Róbert vinnur sem klippari, sem býr til stuttar endurminningar þegar fólkið er farið og sýnt er í jarðarförinni. Geðððveikt cool!
Og nú held ég að ég sé búin að sjá aaaaallar myndirnar á leigunni nema hryllingsmyndirnar!
Já þess má geta að ég skrapp líka í sólbað í Breiðholtslaugina á sunnudaginn, mín fékk líka bikinífar og alles, gott að ég var í nýju skýlunni minni!
föstudagur, maí 13

Ég með nýja sumarhárið, nú þarf ég bara að ná mér í smá lit í framan!
Póstbloggfærslu sendi Anna
fimmtudagur, maí 12
Ég er bara eitthvað að verða lasin held ég.. mígreni og bólgnir eitlar eða kirtlar eða eitthvað dæmi í hálsinum.. svaf ekkert í nótt.. ætla bara að fara heim að leggja mig held ég bara!
Blóm og kransar afþakkaðir.. en sjúkrastyrkir óskast lagðir inná reikn. 1111-26-11055 mjehehehe!

miðvikudagur, maí 11
Ég spyr; er eitthvað lúðalegt að fíla Laddalög?
Einar says:
errhh okey laddína
Anna panna says:
laddína?
Einar says:
laddi/laddína
Einar says:
þú ert nú alltaf með einhver ladda lög
Anna panna says:
ER EITTHVAÐ AÐ ÞVÍ???????????
Einar says:
neibb
Einar says:
JÁ!
Anna panna says:
nei
Anna panna says:
Laddi er cool
Anna panna says:
Upp undir Laugarásnum á ég eitt lítið kot, dekorerað með djásnum, dæmalaust fallegt slot
Einar says:
viltu að ég blocki þig eða ?
Anna panna says:
Ég þarf ekki lán frá bönkum, bankar fá lán hjá mééér... ég breyttist úr bjána blönkum.. í breiðvaxinn MILLJÓNER !!!!!!!!
Anna panna says:
ertu að segja mér að þetta sé ekki skemmtilegt lag?
Einar says:
já
Já þessi unga kynslóð nú til dags, þetta var ss. samtal á msn við bróðir minn sem er 24 ára.. hann skilur ekki þetta Ladda fetish.. oj fetish.. hmm. já eða dýrkun eða eitthvað bara!
þriðjudagur, maí 10
Horfði á Lost í gærkvöldi... langar bara að sjá alla þættina strax, nenni ekki að hanga í hálft ár að horfá þetta! Ég horfði á fyrstu seríuna af 24 á 3 dögum.. það er fínt.. maður nennir ekki að horfá hálftíma á viku.. ein óþolinmóð!
Kæri Sáli! Afhverju er ég svona óþolinmóð og æst?
Svar óskast. A.S.
Annars er ég búin að finna draumaskóna:

mánudagur, maí 9

Ég þarf endilega að drífa mig.... eitthvað! (atriði úr Stellu í Orlofi)
laugardagur, maí 7
föstudagur, maí 6
Í dag er einn af þessum dögum sem manni langar bara að vera heima að kúra og lúra.. helst með einhvern heitan karlmann sér við hlið, það væri nú ekki verra! Afhverju getur maður ekki leigt sér einhvern sætan mann í einn dag sem þykist elska mann geðveikt mikið og knúsar mann .. hmm.. eða nei annars, frekar krípí!
Annars finnst mér vera komin einhver lægð í bloggbransann, fólk er bara í prófum eða í fríi eða eitthvað.. Það eru bara vinnandi eymingjar eins og ég sem eru að skrifa og skoða blogg held ég.. fólk sem nennir ekki að vinna, fólk sem nennir ekki að læra, fólk í dvala, fólk í bala og fólk sem ríkið þarf að ala!
Jæja, ég hef ákveðið að setja inn ljóð hérna sem ég samdi þegar ég var 16 ára gömul, þegar sköpunargleðin var í hámarki. Þegar ég var með sítt hár, skipt í miðju, gekk um í útvíðum buxum og í hermannajakka. Reykti Camel Filters og var með reykelsi. Með álpappír í glugganum á herberginu mínu og notaði bara kertaljós.. sat klukkutímum saman inní herbergi og skapaði eitthvað, ljóð og myndlist. Einhversstaðar á leiðinni missti ég þennan hæfileika...
Bróðir minn hefur gert mikið grín að mér fyrir þetta ljóð og finnst það hallærislegt, en nú vil ég fá viðbrögð ykkar!
Makinn
nakinn
gengur niður.
Friður
svíður
kvíður
bíður
eftir að hann
komi og sýni það sem hann kann.
Anna Sig. '92
miðvikudagur, maí 4
Ojojojoj stundum ætti maður ekki að grínast með suma hluti! Í gær átti ég nefnilega ansi fyndið hópsamtal við Önnu B. og Ásdísi á msn. Við ætlum kannski að stofna hljómsveit sem á að heita Silfurskotturnar... neinei.. hvað sé ég þá inná baði í morgun?!?!?! Jújú pínulítið silfurskottu kvikindi sem hljóp í hringi.. ég drap hana með klósett pappír og sturtaði niður!

En ég veit að vandamálið er ekki horfið, því það ku vera 100 skottur á bakvið 1 *hrollur* .. það var einmitt verið að tala um þetta á húsfundunum og þetta er í flestum íbúðunum, þannig að þetta er í húsinu og þá þarf að eitra allt og helst allt í einu.. en það er ekki gefins skal ég segja ykkur krakkar mínir, neinei.. einn gaurinn talaði um að þetta væri 10 þúsund kall á íbúð með einhverjum frændaafslætti.. úffa meg! Það er bara verið að setja mann á hausinn!
Hvað gerist næst, nei maður spyr sig? Reyndar kom í þessu msn samtali upp hugmynd um að hljómsveitin okkar myndi heita Klamydíurnar....... ég ætla að vona að svoleiðis poppi ekki upp á morgun hjá mér! .. ekki það að ég held að það sé lítil hætta á því.. þar sem ég er einstaklega skírlíf um þessar mundir! :)
þriðjudagur, maí 3
Það verður mikið að gera í dag í vinnunni, þannig að það er best að hripa niður nokkur orð í morgunsárið! Og talandi um morgunsár, hver varð ekki sár í morgun útí móðir náttúru (ojj væmið)? Ég fór út kl. 6.25, já maður massaði ræcchhtina fyrir vinnu.. en já þá var bara snjóslykja yfir öllu.. hvað á það að þýða?
Og hvað er meira hressandi á köldum en björtum þriðjudagsmorgni að hlusta á þá Franzbruthers syngja um Grolschmutter sína.. það þykir mér ekki amalegt! Snilldar one hit wonder sem þessir drengir gerðu hérna fyrir 2-3 árum! En í þessu bandi voru þeir Jói og Gói og einn annar, 3 gæjar úr Hafnarfirði að ég held!
Meine grolschmutter habe eine zitter babel úúúúúú!
Mikið lifandi skelfingar ósköp er samt gaman að það sé frí á
fimmtudaginn, íhaaaa... hvað á maður þá til bragðs að taka? Allavega
sofa út! Jæja best að fara að byrja á þessu sem ég þarf að gera!
Hvernig háralit á ég að fá mér í sumar? Vera með brúnt áfram eða lýsa það? Ég vil ekki rautt neitt.. Endilega gefið mér álit ykkar! :)
mánudagur, maí 2

Já ég mætti bara í kvartbuxum og gullskóm í vinnuna, svo er bara snjókoma úti..
Vá hvað þetta er skrítin mynd og skrítnir kálfar...
Myndina sendi Anna


