pælingar, nöldur og skemmtilegheit...

fimmtudagur, júní 30

Jæja, þetta sumarfrí líður eins og óð fluga á ferðalagi í niður Laugaveginn sjálfan á Þorláksmessu! Og ég bara að hangsa og gera allt og ekkert og sofa fram að hádegi og svona.. svona á lífið að vera.. ég væri alveg til í þetta hangs í svona nokkra mánuði.. held ég, kannski fengi ég nett ógeð.. veitiggi! Ég er líka svo heppin að það er fullt af fólki í fríi og fæðingarorlofum og svoleiðis í kringum mig!

Annars hittumst við gömlu kempurnar, ég, Svala, Magga Linda og Hildur heima hjá Fanneyju í gærkvöldi. Það var rosagaman, þar sem að síðast þegar við hittumst var músin hennar Fanneyjar ennþá í mallanum, en lá núna bara ljóslifandi í vöggunni. Og hún er sko algjört æði! Hún er ekki búin að fá nafn og það var mikið reynt að pína mömmu hennar til að segja okkur en ekkert gekk. Við þurfum víst að bíða fram í ágúst eftir því! Þá á barnið hennar Svölu að vera komið í heiminn.. vonandi verður það gutti .. svo mikið að stelpum að fæðast nebblega!

Annars var ég að spá í eitt um daginn. Ég er samt alltaf að spá í hinum ýmsum hlutum en það er eitt sem ég skil ekki og það er með vatnsdrykkju í bíómyndum. Alltaf þegar fólk er að fá sér verkjatöflu eða einhvern annan andskota og þarf vatn með, þá lætur það bara glasið undir kranann og skrúfar frá og drekkur fyrstu gusuna úr krananum! Oooojbarasta! Í fyrsta lagi, þá er vatn úr krananum í útlöndum algjör viðbjóður og í öðru lagi, þá lætur maður aðeins renna til að vatnið kólni! Og hananú!

Rövl.is um ekki neitt, yfir og út!

mánudagur, júní 27

Doijses, áðan var ég að knúsast með hana Kristínu litlu frænku mína og var að bögglast með hana í loftinu og svo bara kom gusan útúr henni, yfir mig alla! Beint á munninn á mér og það rann niðrá höku og svo kom önnur gusa á bolinn og buxurnar.. ég gat ekki opnað munninn því annars hefði þetta farið uppí mig og þurfti að emja til að fjölskyldan tæki eftir þessu!

Og þessi skemmtilega fjölskylda mín, sat bara og hló og var ekkert að rétta mér bréf eða taka barnið neinei, þau hlupu fyrst og náðu í myndavélina og tóku mynd af mér með gubbið í andlitinu! Ég skal sýna ykkur myndina þegar foreldrar gubbulínu eru búin að hlaða hana inní tölvu!

Það eru allir að flytja í kringum mig finnst mér, Ásdís og Ingimar eru að flytja til Danmerkur, Eydís frænka og familía líka, Anna og Róbert flytja í nýtt húsnæði, Solla og Jón Gunnar voru hérna að flytja og svo Ranný sem vinnur með mér og Sigrún flytur í ágúst uppá Hvanneyri, já og fleiri held ég, man bara ekki.. sorry!

Og þar sem ég er að reyna að vera dugleg að hjálpa þessu fólki að flytja, þá er ég alveg mjög fegin að vera ekki að flytja.. það er bara púl sko! En alltaf svo gaman þegar það er búið! Ég var að hjálpa Ásdísi og Ingimar í hádeginu í dag, upp og niður af 4. hæð engin lyfta, ég þarf ekki í ræktina alla vikuna held ég. Enda ætlar Ásdís að rukka mig um 10 þús kjell fyrir svitann!

Á laugardaginn fór ég í útskriftarveislu hjá Sigrúnu vinkonu og tækniteiknara og Maju systur hennar, sem var að útskrifast sem hjúkrunarfræðingur á laugardaginn. Það var voða fjör og góðar veitingar. Svo fékk maður líka að sjá nýja kærastann hennar Sigrúnar í fyrsta skipti, múhahhaa.. ég held hann hafi samt verið eitthvað hræddur við okkur vinkonugerið.. alltaf svo mikil læti í okkur og svo vorum við trylltar á myndavélunum!

Sigrún var stórglæsileg að venju, í fallegri hvítri dragt og við stelpurnar gáfum henni rosaflott Guess úr með demöntum, ekta sko! Hún var voða ánægð með það.. held ég! Ég tók Hungry like a wolf með Ásdísi í Singstar og litlu munaði að ég ynni hana múhahha!
Ég tjattaði líka við einn af leynilesendum þessa bloggs, alltaf gaman að hitta fólk sem er að kíkja hingað í laumi, en það var hann Kjartan garldakardl, kærasti Kristínar vinkonu Maju!
Svo forðaði ég mér heim um hálf eitt, þegar fólkið var að byrja á 6. bjórnum.. svo rétt áður en leigubílarugl, trúnaðarvæl og æl byrjaði hehe! :)

Var að setja inn myndir af þessu!

föstudagur, júní 24

Cool vibes why dont you kill me?!?!

Já ég er lúði að sumra mati örugglega, en ég keypti Eurovision 2005 í Kiev diskinn í gær, og núna er maður bara með hann í botni í bílnum.. mér finnst æði að geta hlustað á Wig Wam lagið þegar ég vil og líka Cool vibes og öll hin! Auður Aþena var alveg að fíla Cool vibes og gerði svona axlardanshreyfingar eins og Tina Turner! ég gat nú ekki annað en farið að hlæja sko!

Hún er algjört krútt að hætta á bleiu, ég fór með hana í sund í gær. Var alveg á tauginni að hún myndi pissa í bílinn en hún var voða dugleg og ekkert kom.. svo kom bara slys eftir að ég var komin með hana heim til sín!

Úff ég er farin að fá dáldið í magann með vinnuástandið, ekki það að ég sé byrjuð að leita, en var eitthvað að skoða þessar ráðningarskrifstofusíður um daginn og það var ekki mikið í boði sem gæti hentað mér.. en ég veit að þeir auglýsa nú ekkert öll störfin heldur pikka þeir út flott fólk (eins og mig) og redda þeim viðtölum án þess að starfið sé auglýst.. eða ég held það sé þannig.. vona það bara!

Annars flyt ég bara til Úganda og fer að selja bækur á fjallahjóli!

þriðjudagur, júní 21

Hvað er málið með þetta Sirkus dæmi útum allt.. Það er alltaf verið að auglýsa Sirkus hér og Sirkus þar.. Mér skilst að það sé að byrja ný sjónvarpsstöð sem heitir Sirkus á föstudaginn á sömu rás og Popptíví er á núna, svo á að koma út nýtt blað sem heitir Sirkus á föstudaginn, svo er einhver sænskur Sirkus niðrá Hafnarbakka og svo er náttúrulega skemmtistaðurinn Sirkus..

Jahh ég held maður komist ekki hjá því að horfá, lesa eða fara í Sirkus á næstu dögum. Ég ætti kannski að sækja um sem trúður í einhverjum af þessum Sirkusum.. það gæti reyndar verið dáldið fyndið að vinna sem gógó-trúður á skemmtistaðnum Sirkus um helgar!




Ég er nú að leita mér að vinnu, eins og ég hef áður sagt hérna, þá er ég búin að segja upp í vinnunni minni og það er alveg opið hvað ég ætla að fara að gera haust.. og ég er auðvitað með toppmeðmæli.. þannig að þið kæru lesendur eruð með opin eyrun og augun, þá megiði alveg láta mig vita ef þið vitið um eitthvað spennandi starf.. maður verður nú að misnota aðstöðu sína hérna og auglýsa .. reyndar ætla ég í næstu viku að fara á fullt að leggja inn umsóknir! :)

Sumarfríið rokkar!

mánudagur, júní 20

Picture(1).jpg


Haldiði að það sé munur ad vakna með svo tískugreiðslu? Hehe.. Ég gat ekki annað en hlegið þegar ég leit í spegil rétt áðan og tekið mynd af doo-inu og morgunpúff feisinu!
Ég var semsé að vakna eftir klukkutíma snús.. Hvað er málið? Það virðist ekki skipta máli hvenær ég á að vakna, ég bara get ekki vaknað á þeim tíma sem ég ákveð kvöldið áður.. Alveg undarleg árátta, held ég þurfi að fá mér humanvekjara, sem rífur mig á lappir, í orðsins fyllstu merkingu!
En núna er best ad fara ad fiffa hárið niður og skella mér í ræktina, reyna að brenna fitu.. Ætli ad það gæti kviknað í manni innvortis ef að maður myndi hjóla geðveikislega hratt? Maður spyr sig...
Myndina sendi Anna
Powered by Hexia

föstudagur, júní 17

Hæ hó jibbí jei og jibbí jei það er kominn 17. júní!!

Er búin að eiga aldeilis fínan dag, fór rétt fyrir kl 14 með Einari og fjölskyldu í bæinn, sóluðum okkur og spásseruðum um. Auður Aþena fékk Pony blöðru og fána.. ég fékk ekkert :( Jú nema, kók light, popp og pulsu! hehe.. Svo héldu þau heim á leið, höfðu ekki mikla þolinmæði í kerru og barnastúss í miðbænum og ákváðu að bruna uppá Einifell til fjölskyldu hennar Lilju.

Þá brá ég á það ráð að hringja í hana Önnu B. og þá var hún bara á Austurvelli ásamt Róberti og svo komu Unnur og Ísidór (sonur Thelmu) og við löbbuðum niðrí Hljómskálagarð og fengum okkur pulsur á leiðinni. Greyið maðurinn sem var að afgreiða pulsurnar, hann var alveg að missa það. Örugglega búinn að selja 50.000 pulsur og var farinn að skjálfa og setja laukinn, remúlaðið og sinnepið undir og tómatsósuna oná... en þar sem ég er sérviskupúki þá bað ég hann vinsamlegast um að hafa laukinn og tómatsósuna undir og remúlaðið og sinnepið oná - þannig á það bara að vera!

Svo var Róbert ferlega góður og fór með Ísidór í alla leikina sem hægt var að fara í þarna. Svo skutlaði Unnur mér í bílinn minn sem var uppá Miklubraut, og ég kvaddi hana, þar sem stúlkan litla er að fara til Ammríku á morgun, nánar tiltekið til San Diego.. að hitta kanafola... maður hefur nú smá áhyggjur af henni.. verð bara að segja það! En þetta verður samt heilmikið ævintýri og ég hlakka til að fá fréttir frá því!

Svo er ég núna heima hjá m&p, nýbúin að borða dýrindis grillaðan keeejúkling ogrisotto með grænmeti og er eigilega bara orðin þreytt og held ég nenni ekki í bæinn í kvöld (er maður ekki orðinn gamall þegar maður meikar ekki að fara í bæinn á 17. júní?) .. mig langar að fara bara heim að chilla með Silla og Billa! Ég ætla líka að horfá lokaþáttinn í Bachelor og Silvíu Nótt þar sem ég missti af því í gærkvöldi.

Eníveis hafiði það gott um helgina!!

Nýjar myndir komnar; bæði sumarbústaðar og 17. júní myndir!



Stóru stelpurnar mega líka skemmta sér á 17. júní, er haggi?

fimmtudagur, júní 16

Jæja jæja kæru lesendur.. þið sem eruð ekki búin að enda líf ykkar vegna söknuðar á litlu grísastelpunni! Mín er komin í bæinn, brúnni, feitari og sælari sem aldrei áður!
Við komum á seinni partinn á föstudaginn uppí Brekkuskóg, og þar biðu mamma og pabbi og Auður Aþena eftir restinni, mér, Einari, Lilju og Kristínu!

Þá þurftum við náttúrulega að fara að booooorða eins og alltaf í bústað.. svo fórum við bara að spila skrafl og undrabarnið Lilja vann okkur auðvitað. En þá tókum við í Yatsy og þá gátu Famile Einarsson loksins malað hana.. því hún Lilja skilur ekki svona einfalda leiki eins og Yatsy múhahahhaha *skot*

Svo var manni hent uppá loft að sofa, þar sem var mest 1 metra lofthæð undir súð, og plöturnar voru svo þunnar að maður mátti ekki hreyfa sig þá dúaði gólfið undan mér og héldu Einar og Lilja að ég myndi pompa niður á þau um nóttina. En þar sem ég er svo mikið fis að ég sveif þarna um. En vaknaði með hausverk dauðans.is (kemur það einhverjum á óvart)og var hann viðvarandi allan tíma síðan þá. Svo var farið í pottinn, þar sem við svömluðum í húð og hárfrumum nokkrum sinnum á dag.

Svo fór ég í bæinn á sunnudagskvöldið með bróður mínum Ljónshjarta, því að Sæta pæjan átti að vera tilbúin á mánudaginn. En svo þegar ég hringdi um hádegisbil, þá var mér tjáð að hún yrði líklegast ekkert til á mánudeginum og síminn minn var orðinn batteríslaus og ég ekki með neitt hleðslutæki. Ég er nú ekki vön að fá innilokunarkennd, en að vera símalaus og bílalaus.. úff fáranlegt. Hvernig fór fólk að hérna í gamla daga?

En svo þegar ég var búin að láta Einar keyra mig suður í Hafnarfjörð að sækja hleðslutæki og plöggaði símanum í þá var ég búin að fá sms um að bíllinn væri tilbúinn, þannig að ég náði rétt svo að ná í hann fyrir kl. secssh og það var eins og að sjá gamlan vin eftir langan tíma!

Svo brunaði ég daginn eftir aftur austur fyrir fjall með ömmu með mér og við spjölluðum um grillaðan laccshh og kecccssshhh á leiðinni. Ég fattaði allt í einu að amma mín segir x svona eins og cchhss og mér finnst það töff! Svo bara fórum við í dýragarðinn Slakka og í Sólheima í gær. Voða krúttlegt fólk þarna á Sólheimum, við fengum að skoða vinnustofurnar þeirra. Og einn sagði okkur að hann færi rútunni í bæinn af því að hann ætlaði að vera í Reykjavík á 17. júní, þannig að kannski rekst maður á hann í bænum á morgun með blöðru í annarri og fána í hinnari!

Ævisögulanglokusmáatriðabloggi lýkur..
..lofa að láta ekki svona langt líða á milli skrifa!

Ps. Læt ykkur vita þegar ég set inn myndir!

föstudagur, júní 10

Ok.. ég nota aldrei orðið "patent" yfir hluti sem eru rosalega patent.. heldur segi ég bara sniðugt held ég. Ástæðan fyrir því að ég er að skrifa um þetta er að í fyrradag þá komst ég að dáldtlu fyndnu. Ein sem vinnur með mér sem er ca 55 ára gömul (sú sem fær sér hálft af öllu).. var með svona óopnaða Post-It blokk, sem er semsé pökkuð inní plast og svo er hún að reyna að opna hana og segir; "Er ekki svona patent á þessu?" hahahahha þá var hún að tala um rauða bandið sem maður tosar í. Þannig að ég býst við að hún kallar öll svona bönd "patent"! Hvort sem það sé á tyggjópökkum, sígarettupökkum, geisladiskum, kexpökkum og allt svona sem er með Patent! hahaha

Annars þoli ég ekki eitt, það er þegar ég hef ekki náð í nýja klósettrúllu þegar hin klárast......... lenti í því í morgun.. segi ekki hvernig ég reddaði því!

Annars er þetta síðasti dagurinn minn fyrir summerholidayið mitt! Íííhaaaaaa
Þannig að ég verð nú örugglega ekki eins dugleg að blogga næsta mánuðinn, en muna nýta mér tækifærið þegar ég kemst á netið heima hjá fólki! Ætli maður neyðist ekki til þess maðurrrr... ég veit ég á sko fullt af leyndum aðdáendum sem lesa hérna.. ég er með njósnaragræjur til þess. Það er sko innbyggð myndavél inní bloggsíðunni og ég fæ myndir af ykkur þegar þið eruð að skoða!!! Múhahahha

Miss u already folks!!!!!!

miðvikudagur, júní 8

Ég veit ekki hvaða geispupúki stökk inní mig í morgun.. ég er búin að geispa svona 200 sinnum síðan ég kom í vinnuna.. Það er nú frekar þreytandi að geispa svona mikið.. annars er mér sagt að þetta sé súrefnisskortur!

Og vá ég þarf bara að vinna í dag og morgun og hinn og þá er ég komin í mánaðarfríííí!!!!!! Magnað alveg hreint! Fer strax í bústað með familíunni eftir vinnu á föstudaginn.. þá ætla ég bara að liggja í leti og spila skrabbel eða eitthvað í viku!

Og svo þarf ég að fara að leita mér að nýrri vinnu, þar sem ég er búin að segja upp hérna eftir 4 ára starfsaldur minn hér! Hlakka bara til að fara að gera eitthvað nýtt í haust, vinn út ágúst. Þannig að ef þið vitið um einhver þrælsskemmtileg störf í boði þá er ég opin fyrir að hlusta á það!

Annars gleymdi ég alltaf að skrifa um Silvíu Nótt, nýja þáttinn á Skjá einum á fimmtudögum. Ég var búin að heyra bæði vonda og góða gagnrýni þegar ég horfði á þáttinn endursýndan, og var alveg tilbúin fyrir að annað hvort fílann eða þolann ekki! Og jú, viti menn.. ég gat ekki annað en sprungið úr hlátri á köflum og það þarf sko mikið til að ég fari að fá hláturskast ein heima hjá mér fyrir framan sjónvarpið. "Fullt af ógeðslegu fólki sem er að selja draslið sitt" í Kolaportinu.. "Djöfull er vond fýla hérna, ég er alveg að fara að æla!" hahahah Snilldarstelpa! :)

þriðjudagur, júní 7

Jæja Sæta Pæjan 445 fór loksins á réttingarverkstæði í morgun.. en ég er samt geðveikt vængbrotin eitthvað.. fyrsta skipti í akkúrat ár sem ég er bíllaus.. já maður er fljótur að venjast góðu, krakkar mínir... þannig að núna verð ég að húkka mér far, taka strætó eða hjóla.. Það er nú ekki eins og ég eigi eftir að deyja ein í afdölum.. Anna á Uppsölum bara..

Annars var ég að spá í um daginn, maður hefur séð svona margar bíómyndir og þætti sem fjalla um deitbransann. Og ég hef oft hneykslast þegar fólk er pikkí og getur ekki hugsað sér að vera með einhverjum útaf einhverjum smáatriðum. Eins og í Shallow Hal, þá gat vinur hans Hal ekki verið með einhverri af því að táin við hliðina á stóru tánni var lengri en stóra táin (erhmm.. ég er með svoleiðis) og þá var ég voða hneyksluð.

En viti menn, Anna litla grísastelpa.is er orðin svona. Ég er í því að finna eitthvað að öllum, fékk eina mynd um daginn af gaur sem var með brúna bauga og fyrir ofan hann hékk geðveikt hallærislegt 80's plakat í ramma uppá vegg.. sorry en ég meika það ekki. Svo í gær toppaðist þetta allt, ég fékk senda mynd af manni sem sagðist vera 29 ára gamall, en leit út fyrir að vera 49 ára og heita Ástþór Magnússon.. sorry.. ég bara meika það ekki. Sagði bara bless og gangi þér vel í konuleit vinur!

Núna er ég bara með mynd af mér í auglýsingunni minni, og þá geta bara þeir sem fíla feisið á mér sent mér skilaboð.. ég þorði því ekki fyrst, því ég er svo ógeðslega hrædd við neikvæð viðbrög, hélt að ég myndi fá endalaust af svona skilaboðum; "oj þú ert svo ljót" eða eitthvað.. en það hefur nú ekki ennþá komið.
Samt ég veit.. ég á ekkert að vera á netinu að leita mér að kalli.. en why not.. ekkert annað betra að gera í vinnunni.. múhahahhahahah! :)

Ef ég væri geðveikt nasty og vond.. þá gæti ég opnað myndasíðu með ljótukallamyndum.. og þá er ég ekki að tala um boogey men .. heldur ugly men!

mánudagur, júní 6

Mér finnst alltaf sumarið vera júní, júlí og ágúst. Og núna er allt í einu kominn 6. júní!! Langt liðið á sumarið bara og ekkert að ske! Ég átti samt ágætishelgi fyrir utan gærdaginn. Hann var svosem ekkert slæmur þannig séð en ég var bara ein (eymingja ég) allan daginn og hitti engann sem ég þekki og það er ekki gott fyrir grísastelpur.. Ég fór heim til m&p að chilla á netinu.. þá þurfti það náttúrulega að vera bilað í einhvern tíma, þannig að ég fór að horfá National Treasure.. og svo á netið, svo var ég komin með hausverk þannig að ég lagði mig í sófanum í 3 tíma. Fór svo á netið og drullaði mér svo að þrífa í búðinni kl 20.40 .. og þegar ég var búin að því um tíuleytið, helltist yfir mig einmanatilfinning dauðans. Var alveg með kökk í hálsinum... og átti mjög bágt!!! En ég held ég leggi ekki í annan svona eymdardag í bráð.. ég er félagsvera og þarf að vera með einhverjum held ég.. þó mér finnist ósköp gott að vera ein líka.
En já þá er þessi sorgarsaga.is búin.

Ég var að segja Boggu sem vinnur með mér að mamma og pabbi fóru vestur á Patró um helgina á sjómannadagshátíð og þau ætluðu að sofa í bílnum. Mér finnst það dáldið fyndið.. (mamma; ekki taka þessu illa!), mér fannst það ekkert fyndið þegar þau voru á Previunni og tóku sætin úr og settu dýnur á gólfið en núna eru þau á Lexus jeppaling og ætluðu bara að leggja aftursætin niður og setja dýnurnar oná þau.. ég meina.. sést ekki í þau? komin soldið hátt upp! æji haha mér finnst þetta eitthvað svo skondið.

Og þá rifjaðist upp fyrir mér að sumarið 1985 þá fórum við fjölskyldan í svona "flug og bíl" ferð um Evrópu og eitt kvöldið í Danmörku eða Þýskalandi, þá vorum við orðin alltof sein.. búið að loka öllum tjaldstæðum og öll hótel full. Þannig að við lögðum bílnum á einhverju bílastæði og sváfum í honum. Mamma og pabbi sváfu í framsætunum hölluðum aftur, ég 9 ára lá á aftursætunum og Einar litli 4 ára lá aftan á hillunni fyrir ofan aftursætin.. hahahha fyndið ef maður sæji svona familíu sofandi á bílastæðinu við 11-11 Hraunbæ..

fimmtudagur, júní 2

Ég er ekki dauð úr öllum æðum.. neinei.. bara mikið að gera í vinnunni í gær og svo fór ég ekki í vinnuna í dag.. vegna mígrenis og vöðvabólgu dauðans.is.com.net.org!

Hef samt ekkert að segja.. fór bara í bodyshape tíma í gær og var að gera þríhöfða æfingar með lóðum og það hefur farið svona í axlirnar á mér að allar æðar með blóði sem renna til heilans stíflast.. eða það ímynda ég mér!

Svo verður nóg að gera á morgun í vinnunni og svo fer ég í ammmæli til Dísu skvísu eftir vinnu.. það verður nú stuð og svo bara liggja í leti um helgina! :)

Annars var hún Lilja mágkona mín að opna sína 14. bloggsíðu.. hehe eða þriðju.. endilega kíkja þangað!