pælingar, nöldur og skemmtilegheit...

miðvikudagur, ágúst 31

Jæja ég kvaddi mömmu hans Péturs í morgun (VE847) ég held hún hafi samt ekki tekið eftir því þegar ég vinkaði henni, en mér fannst það bara við hæfi þar sem ég var að keyra í síðasta skipti í vinnuna kl 8!!!! Vííííí

Og á morgun tekur mig bara hálfa mínútu að keyra í vinnuna, sem er bara tær snilld! Og ég á að mæta kl 9 fyrsta daginn! Ég hlakka bara til en kvíði líka pínu fyrir auðvitað.. langt síðan ég hef byrjað í nýrri vinnu, eða rúm 4 ár! En maður hefur bara gott af því að kynnast einhverju öðru og nýju fólki og svona!

Annars var ég að fá webcameru loksins í gær og var að tala í gærkvöldi við Lars vin minn hinn danska.. rosa gaman en í senn skrítið.. ég þurfti náttúrulega að finna hina fullkomnu stöðu fyrir vélina því ekki mátti sjást í undirhökuna og svona! Maður er svo klikkaður, svo var ég alltaf að laga hárið, klóra mér í nefinu.. En við vorum bara í hláturskasti yfir þessu öllu saman.. hann er líka algjört krútt og týpískt að hann sé dani!

Í dag ætlum við skvísurnar hérna á skrifstofunni að fara á Ítalíu í hádeginu svona í tilefni af síðasta deginum mínum.. fáum alveg klukkutíma í mat.. í stað hálftíma.. sem er bara fínt! Ég á sko alveg eftir að sakna þeirra, verð bara að vera dugleg að vera í sambandi og svo er maður náttúrulega alltaf á msn og svona! Ég var líka að segja við þær í gær að ef MR ætlar að gefa mér blóm eða eitthvað (af því að fólk hefur fengið svoleiðis hérna síðasta daginn) að semsagt þá mættu þau frekar gefa mér gjafabréf á djúphreinsun á bílnum.. því að fiskimjölsfýlan er föst í sætunum, ógeð!

En já.. farin í síðasta kaffitímann hérna!!

þriðjudagur, ágúst 30

Já krakkar mínir, í dag er næstsíðasti dagurinn minn hérna í vinnunni! Ahhhhh og ég kom alltof seint eða kl. 8.20..... ekki að það sé eitthvað nýtt, en ég var ekki eins stressuð og venjulega, ég meina, hvað ætla þau að gera??? REKA MIG ???? Múhahahhahahahha !!!!!!!!!!

Guð ég dó ég þegar ég kíkti á nýju peysuna daginn eftir sem ég var í í brúðkaupinu á laugardaginn, neinei mín var bara ennþá með verðmiðadæmið á .. sjitt ég veit ekkert hvort miðinn hafi staðið útfyrir og legið undir hárinu.. skömmustulegt maður! Hahhaha.. legið undir hárinu.. hmm.. hahahaha!

Já mér tókst að eyða 4 x 3000 kalli á föstudaginn og laugardaginn í fatakaup! Algjör sko.. fór með Sigrúnu í Limalindina á fös og keypti þar svona peysublússu í Vila sem er mjög flott sko, en það voru svona bönd sem maður átti að binda yfir tútturnar og V-hálsmál.. sem ég var svona njaaa jááá... Og svo fórum við Sigrún aftur saman í bæinn á laugardagsmorguninn og ég var að kaupa brúðkaupsgjöfina handa Hildi og Jónsa í Art-Form (by the way, ef ykkur vantar hugmyndir að gjöfum handa mér þá finnst mér ALLT flott í þeirri búð) og þá skruppum við í Seytján á útsölulok og þar keypti ég 2 hlíraboli fyrir 3150 kall!

Svo þegar ég var að keyra heim eftir bæjarferðina, kom sjoppóholikkinn uppí mér og sagði mér að kíkja á H&M búðina í Fokk-húsinu og viti menn þar var alveg fullt af fatnaði sem ég var að fíla, enda nýkomnar haustvörurnar. Þar keypti ég semsagt svart tjullpils og svarta flegna peysu sem ég og fór í í brúðkaupið góða. Með grænt hliðarþema, grænn hlírabolur undir og grænt veski og grænan augnskugga!

En svo fór ég í gær í Vila og skipti hinum bolnum af því að ég sá ekki fram á að fara að nota hann eitthvað, td. í nýju vinnunni, þannig að ég keypti ógeðslega flottar sporty kvart buxur! Kostuðu reyndar 3.990 þannig að ég þurfti að borga þúsara á milli... en ég meina, mér finnst allt í lagi að kaupa sér smá föt fyrir nýju vinnuna, verð nú að vera megaskvís fyrir øldrengina!

En djöfull var O.C. ekki að standa undir væntingum í gær, allir komnir með anórexíu... þetta var einhvern veginn skemmtilegra í minningunni!

sunnudagur, ágúst 28

Jæja hvernig væri að skrifa aðeins.. það er búið að vera nóg að gera hjá mér síðastliðna 2 daga, þjálfa í starfið mitt á föstudaginn og reyndar bara hangs á föstudagskvöldið.... en svo búðarráp og brúðkaup í gær! Rosalega gaman í brúðkaupinu hjá Hildi Björk og Jónsa, ég var með gleðitárin í augunum alla athöfnina og svo var voða gaman í veislunni og góður matur og sprenghlægileg skemmtiatriði!

Í dag er ég bara búin að vera að hangsa hérna og horfá Canadian Idol, nema hvað! Ég er komin í 10 manna úrslitin þannig að spennan magnast! Ég held að íslensku prufurnar séu núna um helgina, þannig að íslenska idolið byrjar örugglega bráðum, það verður nú gaman að fylgjast með því og vonandi fær maður inni hjá einhverjum sem er með stöð 2 á föstudagskvöldum!

En annars langar mig að segja ykkur frá einu hallærislegu. Þannig er að það sprakk pera í ljósinu undir eldhússkápunum hjá mér og ég fór um daginn og verslaði nýja í Byggt og búið í Smáralind. . nema hvað að þegar ég ætla að setja hana í hérna þá virkaði hún ekki og hringlaði alveg í henni. Þannig að ég fór aftur niðrí Smáralind og þar sitja 2 töffarar við afgreiðsluborðið og ég segi þeim að ég hafi keypt hana og hún hafi verið sprungin, og þar sem hún kostaði 987 kr. myndi ég vilja fá aðra (ég myndi nú ekki nenna að gera veður útaf venjulegri peru). Þá segir annar töffarinn með svona kaldhæðnistón að það geti nú ekki verið. Ég sagði bara að það hringlaði allt inní henni og hún hlyti að vera ónýt.. og hann var svo hneykslaður og labbaði með svona attitude-i og tuldraði að hann myndi láta mig fá nýja. Svo kemur hann stuttu seinna og var þá í símanum og lætur mig fá aðra.. og ég labba út og tek hana úr kassanum og hristi og það hringlaði í henni... og viti menn, hún virkar ekki heldur! Ég er alveg viss um að hann hafi látið mig fá sömu peruna! Og núna er ég ekki alveg að þora að fara að bitsjast útaf þessu.. þannig að ég held ég fari bara í byggt og búið í kringlunni.. nenni ekki að lenda á svona liði aftur! Fyrr má nú aldeilis fyrr vera að deyja úr töffaraskap í Byggt og búið, for crying outloud!

fimmtudagur, ágúst 25

Blackout

Ég vaknaði við undarlegan fnyk sem læddist undir hurðarkarminn á herberginu mínu á Leifsgötunni. Það var þungt loft og ég var skítþunnur. Reis upp og settist á rúmkantinn og reyndi að rifja upp kvöldið áður. Jú ég mundi að ég hafi farið í teiti hjá Geira og Magga á Barónstígnum, guð minn góður.. ég fékk allt í einu sting í magann. Vissi ekki hvort það var þessi ógurlegi fnykur inní herberginu eða minningin um að hafa verið hent út úr teitinu. En fyrir hvað, það mundi ég ekki. Ég stóð upp og ætlaði að klæða mig en fötin mín voru hvergi sjáanleg. Þetta var undarlegt, ég var vanur að henda þeim á gamla chesterfield stólinn sem ég erfði eftir hann afa minn. Ég greip í sloppinn sem hékk á snaganum bakvið hurðina, klæddi mig í hann og náði mér í sígó, stefnan var tekin á svalirnar að fá mér smók.
Þegar ég gríp í hurðarhúninn þá sé ég allt í einu að það liggur einhver í rúminu mínu, undir sænginni alveg við vegginn. Úff þynnkan var að sliga mig, ég var ekki að meika að gá hver þetta væri, en ég sá að hárið var svart og krullað sem gægðist undan sænginni. Þetta var örugglega skvísan sem ég fór heim með um daginn, sem ég hafði svo snilldarlega hösslað á Hverfisbarnum í síðasta mánuði. Eða var það í vor.. ég mundi það ekki alveg. En nikótínþörfin kallaði, ég opnaði hurðina og lyktin sveif á móti mér og ég kúgaðist. Hljóp inná klósett og ældi eins og múkki. Stóð svo upp og leit í spegilinn. Hver var í speglinum? Ég var varla að þekkja mig, hárið úfið, órakaður og með bólgin augu. Skvetti ísköldu vatni á andlitið og leið aðeins skár. Fór aftur fram og kúgaðist.. hvaða lykt var þetta?
Ég fór útá svalir og kveikti mér í rettunni, saug hana fast og hugsaði með mér að þetta væri lífið, ferskt loft og sígaretta, eina sem vantaði var ískalt kókglas til að þamba. Ég vonaði að mamma hefði keypt kók þegar hún fór í Bónus í gær. Svo var mér allt í einu hugsað til gærkvöldsins, afhverju hentu þeir mér útúr partíinu? Það hlaut að hafa gengið á miklu, þar sem þeir Geiri og Maggi voru nú ekki barnanna bestir sjálfir. Þegar ég drap í rettunni flaug hrafn niður af þakinu og settist á svalahandriðið. Mér brá örlítið en fékk svo allt í einu smá flashback hvað gerðist í partíinu. Ég hugsaði með mér að ég væri í djúpum skít, nú gæti ég bara gleymt því að fara aftur á Celtic Cross. Mér varð bumbult og ég fór inn og lyktin viðbjóðslega flaug aftur inn um nasirnar á mér sem gerði þetta illt verra og ég rétt svo dreif inná klósett og ældi lifur og lungum.
Þegar ég fór fram á gang heyrði ég mömmu vera að raula eitthvað gamalt lag með Hauki Morthens inní eldhúsi, ég var ekki í stuði að hitta mömmu í þessu ástandi en mig langaði svo mikið í kók að ég var að deyja. Þannig að ég fór inn og sá þá mömmu vera að hakka hjörtu og nýru og Bíbí systir hennar að sauma vambir og allt eldhúsið var undirlagt í innyflum og blóði.. þetta var lyktin, lykt dauðans. Bókstaflega. Þær sprungu úr hlátri þegar þær sáu mig og gátu ekki hætt að hlæja. Ég var ekki að fíla það en gaf skít í þær og náði mér í kókglas. Hreytti svo í þær hvað væri eigilega svona ógeðslega fyndið, en þá hlógu þær bara ennþá meira. Og mamma var farin að tárast og benti inní stofu og reyndi að kreista útúr sér einhverju sem ég var ekki að skilja. Ég fór inní stofu og þar sá ég teinóttu jakkafötin sem ég hafi verið í og skyrtuna mína liggja á sófanum. Sjitt, hafði ég afklæðst inní stofu, það hlaut að vera, þar sem fötin voru ekki á stólnum inní herbergi. Svo þegar ég strunsa inní herbergi sparka ég í eitthvað og meiði mig í tánni. Öskra og lít niður og sé þar stóran háhælaðan skó.. ég fæ flashback frá gærkvöldinu, ég hafði séð þessa skó. Leit þá á símastólinn frammi og sá kóngabláan kjól liggja þar í krumpi. Neiiiiii... Meira flashback, ég trúði þessu ekki.. guð minn góður. Ég sá mig fyrir mér flytja úr landi í einum grænum, ég gæti ekki látið sjá mig aftur neinsstaðar. Þorði varla að fara inní herbergi aftur en gerði það þó, steig í óttann. Greip í krullurnar og jú, þetta var satt. Sat með hárkolluna í kjöltunni og grét. Líf mitt var búið. Þá heyrði ég sagt með dimmum karlaróm, "Símon minn, áttu ekki eitthvað að drekka handa mér?" - Ég fékk hroll og fékk þá botn í gærkvöldið. Hláturinn í mömmu og Bíbí fjarlægðist, mér sortnaði fyrir augum og féll í dá.

Höf. Anna Sig.

miðvikudagur, ágúst 24

Eins og margir vita þá er ég ansi sérvitur og klikkuð varðandi ýmsa hluti.. og einn af þessum hlutum sem ég er mjög sérvitur um gerðist í dag... jú nýji IKEA bæklingurinn var að renna inn um lúguna, alveg glóðvolgur! Og ég er að spara hann núna, ætla að skoða hann í rólegheitunum, með góða birtu og þögn, jafnvel fá mér gos í glas með!

Eins og um daginn þá náði ég í nýja H&M listann fyrir mig og Lilju, en ég skoðaði hann ekki fyrr en ég var komin heim í rólegheit.. ég bara meika ekki að blaða í gegnum hann í kringum margmenni.. ég vil skoða þetta vel og vandlega.

Þetta er eitthvað bæklingafetish.. ég hef alltaf verið svona.. með þessa 2 bæklinga og Freemans og Kays í den.. klikk in da brainhás!

Hey svo var ég að hlusta á Létt níutíu og sexkomma sjö Reeeeykjaaavíííík!!!! í dag og fór allt í einu að pæla þegar ein gellan þarna var að tala um nýju breiðskífuna hjá einhverjum og sagði orðið breiðskífa í öðru hverju orði... er það ekki úrelt ???
Er þetta ekki af því að vínylplötur í gamla daga voru breiðar og svo litlar.. Ég meina eru eitthvað gefnar út plötur lengur.. nei ég hélt ekki.. það eru geisladiskar!

Ég verð samt að játa á mig eitt.. brjóta odd af oflæti mínu... ég fékk að rippa einhvern Femin tónlistardisk eða silfurskífu eins og ég kýs að kalla það! En það var bara útaf því að mig langaði í eitt lag.. eða Unbreak my heart með Toni Braxton. Ein sem vinnur með mér missti næstum andlitið þegar ég sagðist fíla það lag... ég er greinilega búin að vera með stór orð um Létt-lög á kaffistofunni nokkrum sinnum.......

þriðjudagur, ágúst 23

Anna og Kristín Anna

Ég er alveg í skýjunum!!! Þessu átti ég ekki von á.. var alveg búin að afskrifa það að hún Kristín mín fengi nafnið mitt sem millinafn.. var fyrst svona að vona það þegar hún var nefnd en svo var alltaf fussað og sveiað þegar ég var að grínast með að hún ætti að heita Kristín Anna.. og þá hélt ég að þau væru að reyna að láta mig halda að hún ætti ekki að heita það því þau ætluðu það en svo var ég alveg handviss um að þau myndu láta hana heita útí í loftið eða kannski eftir mömmu..

Svo þegar við vorum í kirkjunni og Lovísa systir hennar Lilju segir hvað barnið átti að heita, semsé Kristín Anna, þá rak mig í rogastans.. fékk svona undarlegan bregðu gleðisting í hjartað.. ekki að trúa mínum eigin eyrum og missti útúr mér "haaahh Annaaa" ? þá fóru allir að hlæja nema mamma sem grét gleðitárum hehe vá ég er búin að vera brosandi í allt kvöld. Finnst þetta mikill heiður að eiga litla nöfnu og ætla gera mitt besta til að vera henni góð fyrirmynd.

Nóg af monti! :)

Þegar lillebro putteman er farinn að heimta meira blogg þá verður maður nú að fara að herða sig!
Nú fer að líða að lokum hérna í vinnunni minni sem er kennd við mjólk.. mér líður bara assgoti vel með það og hlakka til að fara að vinna í nýju vinnunni sem kennd er við øl! Það verður fínt að breyta til aðeins í lífinu.. hrista upp í kellingunni mér!

Er að spá í að reyna að fara að æfa í World Class í Orkuveitarhúsinu, þeir eru með tækjasal þar niðrí kjallarnum einhversstaðar, þar sem ég er með kort þar, en ég verð að passa mig að fara ekki of geyst í hlutina.. þá gefst ég alltaf upp. En mig langar semsé að fara þangað áður en ég fer í vinnuna.. allt á sama punktinum, hálf mínúta í ræktina og svo hálf mínúta í vinnuna.. svo fer ég bara heim og versla í Bónus í Hraunbænum og þarf bara aldrei að fara útúr Árbænum! Ég ætla að búa til nýtt trend.. 110 rotta! ekki 101.. ég meina bara smá stafarugl!

Eftir að ég fékk netið heim, sem var fyrir viku í gær, þá elska ég að vera heima.. bara chilla í sófanum á náttbuxum og chatta á msn, photoshoppa, sörfá netinu og spila bubbles.. já ég er lúði! Já svo fékk ég fullt af þáttum og dóti hjá henni Lilju minni og ég er búin að vera að horfá Canadian Idol.. sem er bara ansi skemmtilegt.. ótrúlega mikið af lúðum þarna í Kanada, hefði aldrei getað trúað því!

Það á að skíra hana Kristínu kátu í dag kl. 17 .. ég er orðin voða spennt að vita hvaða millinafn snótin fær.. en það á víst að vera eitthvað surprise! Hún er bara svo mikið yndi þessi stelpa... ef ég væri mjög veik og vangefin þá myndi ég bara stela henni.. en þar sem ég er heilbrigð og velgefin þá læt ég mér nægja að knúsast með hana og skila henni svo aftur! Kannski fæ ég bráðum að hafa hana yfir nótt, þar sem hún er byrjuð að fá smá þurrmjólk með.. ég hlakka sko til þess! Man þegar Auður Aþena var hjá mér í fyrsta skipti yfir nótt, það var voða gaman og svo í annað skiptið sem hún var hjá mér held ég fékk hún gubbupest og þá var Anna frænka í panikki.. en það reddaðist!

Þannig að það er alveg ótrúlegt að ég Anna Sig skuli vera orðin svona mikil barnagæla og kunni alveg heilmikið á börn, þar sem ég var ekki mikil barnapía á mínum yngri árum og ég elska öll snúllubörnin sem vinkonur mínar eiga, eins og td. Ásu Maríu, Kristján Ara, Ronju Rán og Abelu.. þau eru öll svo mikil krútt og góð!

En já ég er farin útí væmnu nóturnar.. ég var nefnilega að skoða svo sætan strák sem er ömmustrákur einnar sem vinnur með mér á barnalandi í gær og mig langar svo í son!!!! En fyrst er að byrja á því að bíða eftir að maðurinn minn verði tilbúinn í verksmiðjunni áður en það er hægt að byrja á því að smíða barn! :)

sunnudagur, ágúst 21

Ég er hérna í hláturskasti ein heima hjá mér, ég var nefnilega að logga mig inná huga.is sem ég hef ekki gert í 1-2 ár og fann þar smásögu sem ég samdi þann 23. apríl 2002. Ég var nú búin að gleyma þessu og finnst fyndið að ég hafi samið þessa vitleysu og ætla hér með að setja hana hérna inn með góðfúslegu leyfi sjálfs míns!
En varúð, ekki fyrir fólk með viðkvæma blygðunarkennd!

Sagan mikla
Einn góðan veðurdag ákvað Sófus Brynleifsson að taka leið 3 niðrá Granda, honum hafði lengi þyrst í góðan kaffisopa og Kaffivagninn var hans uppáhalds kaffihús. Þegar hann steig uppí vagninn og borgaði 200 kr. þá sá hann að strætisvagnabílstjórinn var í alveg eins skyrtu og hann. Hann glotti útí eitt. Þegar hann gekk inn eftir vagninum og settist til hægri næstaftast, eins og hann var vanur, sá hann sér til mikillar undrunar að gamall æskufélagi hans sat hinum megin við ganginn. "Sæll Narfi Guðbjörnsson", sagði Sófus. Narfa varð svo bylt við að hann stökk á fætur og faðmaði þennan góða gamla vin. "Hvar hefur þú alið manninn síðustu 20 árin?" spurði Narfi sem var orðinn rauður í framan af æsingi. "Jahh, ég hef nú bara verið hér fyrir sunnan og búið hjá henni móður minni í Álftamýrinni, unnið í Kassagerðinni og haft það fínt", sagði Sófus montinn. En rétt í þessu augnabliki mundi Sófus eftir síðasta fundi hans og Narfa sem gerðist fyrir austan, í Gnúpverjahreppi fyrir 20 árum síðan. Hann fór alveg í hnút og langaði mest til að fara útá næstu stoppustöð og sleppa kaffisopanum góða á Kaffivagninum. Þeir höfðu nefnilega farið á ærlegt skrall í Félagsheimilinu það kvöld. Dönsuðu villt og galið, Hljómar voru að spila. Eftir ballið ákváðu þeir félagar að fara heim til Narfa sem bjó á bænum Gnýpuheiði. Eftir nokkra tvöfalda landa í Spur, fóru þeir að tala um kynlíf. Byrjuðu að tala um sínar langanir og fleira, Narfi viðurkenndi að honum hafði alltaf langað til að sleikja píkuna á rollunni sinni, og Sófus.. hann viðurkenndi að honum hefði alltaf langað til að totta hann á Narfa, því eftir margar ferðir í sveitasundlaugina, hafði hann horft girndaraugu á stórann böll Narfa. Þeir voru orðnir frekar fullir og ákváðu að slá til og upplifa þessar fantasíur þá og þegar. Þannig að þeir fóru í trekant.. Sófus, Narfi og rollan. Og hafði þetta endað með heljarinnar kynsvalli þarna í fjósinu.
En aftur í leið 3, Narfi spurði Sófus hvert hann væri að fara og hann sagðist í fljótu bragði ætla að hitta vinkonu sína á Kaffivagninum í einrúmi. Narfi náði skilaboðunum og sagðist sjálfur vera að fara að vinna í rækjuverksmiðjunni niðrá Granda. Þeir kvöddust svo og fóru útá sömu stoppustöð en löbbuðu sitt í hvora áttina. Sófus hugsaði þá með sér " ég ætla að vona að ég hitti hann Narfa ekki aftur fyrr en eftir önnur 20 ár, þá verð ég orðinn gamall og búinn að gleyma þessari villtu nóttu, vonandi".
En Narfi aftur á móti hugsaði þegar hann "þóttist" vera að labba í rækjuverksmiðjuna, þar sem hann var sko ekki að vinna, "ég ætla að liggja hér í leyni og elta hann Sófus heim til mömmu sinnar í Álftamýrina á eftir og þá.. og þá mun ég koma honum á óvart.. og horfði á ullina sem gægðist út um ferðatöskuna sem hann hélt á.
Höf. AnnaSig


Menningarnótt í Reykjavík

Skrapp í dag með familíunni á nokkra menningarviðburði.. verður maður ekki að vera með?? Við fórum fyrst niðrá Reykjavíkurflugvöll og horfðum á flugvélar sýna listir sínar.. mjög flott sko og maður fær alveg í magann að horfá þessar rellur steypa sér niður í hringi!

Svo löbbuðum við frá Háskólanum niðrí bæ og tókum þennan týpíska rúnt, sáum nú ekki margt merkilegt þá.. svo var farið að hvessa og manni var orðið hálfkalt. Þá skunduðum við aftur í bílana og fórum á ameríska stælinn að snæða!

Svo fór ég heim í smá pásu en náði svo í Einar bróðir kl 21 og við röltum niður Laugaveginn og sáum nokkur bönd stíga á stokk á hinum ýmsu stöðum. Langflottasta var eitthvað hiphop/rock/skrats band sem söng á móti Vegamótum.. helvíti hressir gaurar! Nú svo þegar við komum niðrá torg þá var Jagúar að klára og náðum við 3 lögum með þeim í mikilli þvögu og öngþveiti!

Þá löbbuðum við útá hafnarbakka og þar var Todmobile að spila, ekki við mikinn fögnuð hans bróður míns.. reyndar skil ég ekki afhverju þau voru þarna aðalbandið, þótt ég fíli alveg toddarana! Svo ákváðum við að fara uppá Faxaskála, sem við og gerðum, og þar sáum við vel flugeldasýninguna.. hún var alveg helvíti fín bara! En eins og allir sem voru þarna vita, kom þessi hellidemba og maður var alveg blautur innað skinni!

Svo skunduðum við uppá Hlemm þar sem ég náði í bílinn og lenti í bara pínu umferðarstoppi og mikið var gott að koma heim og fara í þurr föt og í tölvuna.

Þetta er fyrsta menningarnóttin sem ég upplifi með fullu viti og það var bara ágætt.. ég er allavega fegin að hafa ekki verið stífmáluð með sléttað hár (sem hefði orðið eins og mjög Michael Jacksonkrullur og Alice Cooper málning) á leiðinni á djammið í þessari rigningu! En ég vona að allir sem hafa farið á djammið hafi skemmt sér vel! :)

föstudagur, ágúst 19

Ég fékk allt í einu þá hugdettu áðan, að reyna að breyta hugarfari mínu gagnvart því að verða 30 ára.. En ég er hrædd um að það verði kannski ekki auðvelt verk! Þar sem ég hef verið með mótþróa í nokkurn tíma.. og bróðir minn og mágkona hafa ekki sparað stríðnina þegar að því kemur, þau kunna á alla takkana mína! En þá er bara að snúa vörn í sókn!

It aint gonna be easy.. en ég meina hvað er svona hræðilegt við að verða 30 ára?!? Hjá mér hefur það verið einhver minnimáttarkennd.. að ég sé ekki komin með kall og börn og læti.. eins og ég hélt að ég yrði komin með árið 2000 þegar ég var lítil.. en ég meina, það hefur ekkert gerst enn og það þýðir ekkert að gráta það! Ég er búin að lifa ágætislífi hingað til og get bara verið þakklát fyrir það. Hitt kemur bara seinna! Ég hef fulla trú á því!

Það er nú nógu mikið sem ég tuða um alltaf hreint, þannig að nú er markmiðið að vera bara ánægð með aldur minn og hvað ég er ungleg (þótt ég segi sjálf frá) og eiga eftir að eignast börn og buru. Ég held líka að mér hafi ekki verið ætlað að verða móðir ung, hafi ekki haft nógan þroska til þess en finnst ég vera alveg tilbúin núna.

Ástæðan fyrir þessum hugrenningum mínum er setning sem amma hennar Sollu sagði við hana;
"Í guðanna bænum ekki fara að vera eins og þessar leiðinlegu sem kvarta og kveina á hverju afmæli! Þær verða gamlar svo fljótt!!"

Snilld!

Annars var ég í skírn hjá dóttur hennar Fanneyjar og Jóa og stelpan fékk nafnið Ronja Rán! :)

Og helgin er framundan og getiði hvað??? Ég ætla að sofa út lengi lengi og njóta þess að vera 28 ára gömul og baaaaaaarnlaus! :)

fimmtudagur, ágúst 18

Ein leiðinlegasta spurning sem ég veit er;
Með hverju á pizzan að vera?
Oftar en ekki þegar 3 eða fleiri eru að panta sér pizzu saman, kemur upp þessi spurning og allir segja "mér er alveg sama!" en svo ók.. stingur maður uppá einhverju, þá koma grettur á fólkið, "oj ég borða ekki lauk, oj ég borða ekki sveppi, oj ég borða ekki ananas, oj borða ekki hakk" þannig að þetta getur oft orðið dáldill hausverkur...

Þannig að kvöld sem átti að vera gleðistund getur snúist uppí fúlindi og leiðindi, þess vegna mæli ég með að helmingaskipta pizzurnar.. reyna að finna eitthvað sem allir geta sætt sig við, annars ef fólk er ekki að borða þetta helsta á pizzur þá getur það bara pantað sér sína sér pizzu.

Annars var ein sem vinnur með mér að kaupa sér salatbar í Hagkaup í gær.. sko bara eina dós.. og þegar hún var komin heim og var nýbúin að gæða sér á því, flugu upp fullt af mölflugum .. ooooooooojjjjjj hún gubbaði útúr sér það sem hún var búin að stinga uppí sig henti bakkanum! Oj oj oj enn ein ástæðan til að fá sér ekki svona salatbar... fyrir utan gamlingjana sem potast með puttana oní pastaið og hneturnar...

Svo heyrði ég líka að maður eigi ekki að fá sér nammi úr skúffunum sem eru neðstar í nammibörunum, því smákrakkar fara oft með hendurnar oní þetta og slefa á það! Og til að eyðileggja allt fyrir ykkur, þá ætla ég að segja að ég fékk svart hár í Júmbó langloku um daginn!

Þannig að þetta er bara búið krakkar mínir, núna verður maður bara að fara að rækta sinn eigin mat og matbúa hann sjálfur með net á hausnum!

Hvað ætli maður hafi annars gleypt mörg ókunnug hár um ævina?

miðvikudagur, ágúst 17

Varúð!! Ekki fyrir viðkvæmar sálir..

Þetta myndskeið er eitt furðulegasta sem ég hef séð um ævina..

(Held að nauðsynlegt sé að hafa Quick time player til að geta horft á þetta!)

þriðjudagur, ágúst 16

Jæja búin að setja inn ættarmótsmyndirnar.. fyrir þá sem hafa áhuga! :)

Ég er bara búin að vera heima í dag, búin að vera með hausverkjakast núna.. þetta mánaðarlega.. alveg er ég að verða geðveik á þessu! En mér líður ágætlega núna og þvílíkur munur að geta verið á netinu heima.. ég er frjáls, ég er frjáls eins og fuglinn er, frjáls og ég tíni mér.. já ég tíni mér á þessu.. tímaþjófur dauðans.is

Annars hef ég nú ekki mikið skemmtilegt að segja núna.. maniggi neitt.. allt sem ég man er bara einhver pirringur og þar sem ég er að reyna að minnka pirringinn í sjálfri mér ætla ég ekki að fara að tjá mig um þann pirring núna.. en jú ég verð.. ég veit þið eruð svo forvitin að vita hvaða stórmerkilega mál er að pirra mig núna..

Það er í sambandi við þessar kannanir á Bylgjunni, alltaf í síðdegisþættinum.. sko fyrir utan það að það er alltaf verið að spyrja hvað maður myndi kjósa.. þá er alltaf bara sagt prósenturnar en ekki hversu margir svöruðu... ég er komin með nóg af svona sms könnunum og fleiru þar sem aldrei er sagt hvað margir svöruðu.. mér finnst bara ekki vera hægt að marka svona ef það eru bara 15 manns að svara.. ég meina .. ég get ekki ímyndað mér að það séu margir sem tími 99 kr í að svara einhverri könnun í Ísland í dag... ok.. púff amen.. búin að koma þessu frá mér!

Ætla að heimsækja litla gullmolann þeirra Svölu og Jenna, hlakka svo til!

mánudagur, ágúst 15


Svipmyndir frá ættarmótinu sem var um helgina vestur á Barðaströnd!

Helgin var rosalega skemmtileg fannst mér. Einar kom og sótti mig hérna um hálf sex leytið á föstudaginn og þá héldum við í hann, komum við á Einifelli í Borgarfirði og sóttum Lilju og Kristínu. Fengum auðvitað kaffi og meððí hjá mömmu hennar Lilju! Mamma, pabbi og Auður Aþenu ásamt ömmu lögðu af stað fyrr um morguninn. Við stoppuðum við í Búðardal og fengum okkur góða hammara og franskar... mæli með þeim!

Þá hófst fjarðar- og heiðaraksturinn, upp og niður, inn og út firði.. og við héldum að þetta væri endalaust.. gleymdum að taka tímann.. En það var samt gaman á leiðinni, sögðum brandara eins og okkur er einum lagið líkt og sumir reyndu að drepa aðra með óferjandi þarmagasi.. nefni engin nöfn! Nú síðan þegar við vorum komin inná ströndina, mætum við bíl og Einar stoppar "19. júní" segir hann.. Þá var pabbi lagður af stað á móti okkur.. enda klukkan orðin hálf eitt og foreldrar mínir farnir að hafa áhyggjur af borgarbörnunum sínum!

Þá fengum við herbergin okkar, sem var mjög næs, að þurfa ekki að fara að tjalda og sofa í tjaldi.. ég vaknaði um 10 leytið og drattaðist út um hálf ellefu yfir í íbúðina sem m&p voru í og fékk mér að borða og fór út með Auði þar sem krakkarnir voru og fótboltamót var í gangi.. Það var fínt, nema að við komum of seint.. þannig að við misstum af barnaleikjunum. En kl. 1 var haldið að ættarsetrinu, Innri-Múla og þaðan var labbað niðrí fjöru, sem endaði með sögustund og stígvélakasti, þar var Ægir frændi minn í 2. sæti í fullorðinskeppninni. Svo fórum við í reipitog.. það var ekkert smá gaman.. þótt að við stelpurnar í mínum flokk 14-40 ára töpuðum fyrir karlpeningnum og ég dróst eftir grasinu einhverja metra haha!

Við komum svo aftur heim um fimmleytið og þá drifum við Einar, Lilja og pabbi á æskuslóðir pabba, nefnilega Patró.. og þar fengum við ítarlegan skoðunartúr um plássið. Ég hafði rosalega gaman að því, enda langt síðan ég hafði komið vestur! Og pabbi var í essinu sínu að segja okkur sögur frá því í den.. já púkarnir frá Patró..

Svo kom að dinnernum, rosagott kjöt og meðlæti og svo kaffi.. síðan hófust skemmtiatriðin, fyrst voru krakkarnir látnir gera eitthvað en þau voru svo feimin að við sem höfðum verið aðal þarna fyrir 18 árum vorum látnar fara uppá svið og syngja og tókum við fatlafól með einskærri snilld. Þá þorðu krakkarnir að fara uppá svið og syngja og ætluðu aldrei að hætta.. eða mér fannst það því ég var að bíða allt kvöldið eftir að fá að komast að með mitt atriði. Sem ég og gerði að lokum! Fékk gott lófatak allaveganna.. fór með einskonar rímur um ættarhöfðingjana; afa og systkini hans frá Innri-Múla! Nú svo voru auðvitað fleiri skemmtiatriði. Að þeim loknum var gólfið rýmt og dansiball haldið.

Svo fór ég með Auði Aþenu að sofa, hún gisti í mínu herbergi seinna kvöldið. Það var svolítið kalt og sængin þunn, þannig að við frænkurnar kúrðum í faðmlögum alla nóttina.. það var mjög kósí! Svo vorum við vaktar um 10 leytið og pakkað niður. Svo fórum við aftur í Birkimel (sem er félagsheimilið þar sem foreldrar mínir kynntust) þar sem ættarmótinu var slitið og ég var orðin smeyk um að ég yrði sett í næstu nefnd.. sem og gerðist ekki, sem betur fer. Þar sem ég er í einni nú þegar! Svo var bara brunað suður og ég og amma sungum soldið seinni partinn af leiðinni!

Mjög skemmtileg helgi er liðin og ég er svo ánægð að hafa farið. Ég ætla ekki að láta líða 14 ár aftur þangað til að ég fer vestur aftur!

Ps. ég er að blogga þetta heima hjá mér!! Íííhaa

föstudagur, ágúst 12

Þegar ég er að hlaupa útum dyrnar í vinnunni í gær þá rekst ég á gamlan skólafélaga.. engann annan en hann Óla H., fyrir þá sem ekki vita þá var hann alltaf aðaltöffarinn í Seljaskóla.. hann mundi nú ekkert hver ég var fyrst, sagðist bara kannast rosalega við mig.. og ég sem eyddi mörgum tímum í reikna út ástarprósentuna okkar í den! Var einhvern tímann skotin í honum semsé! Fyndið hvað tímarnir breytast og mennirnir með.. hann er til dæmis mjög breyttur, til hins betra bara.. var alltaf horrengla en er núna orðinn mannalegur! :)

Þá fékk ég auðvitað spurninguna hvort ég væri komin með börn og buru (hmm.. er þá kallinn buran?).. sem ég og ekki er komin með! Og mér finnst það svoldið hallærislegt stundum þegar ég lendi í þessari aðstöðu.. eins og maður sé ekki nógu góður eða eitthvað - sem er rugl, já rugl segi ég! Og svo er ég að fara á ættarmótið og þá á ég nú örugglega eftir að vera spurð um þetta oft! En ég reyni bara að halda haus og vera stolt af öllu hinu sem ég hef til brunns að bera! Enda er ég nú með skemmtiatriði jájá.. það verður eitthvað fyndið! Læt vita eftir helgi hvernig það fer!

Á herðum mínum poppa oft upp Anna engill og Anna djöfull.. og þeir fara oft að kítast og glymur það í hausnum á mér.. þeir voru í allt gærkvöld að rífast um hvort að ég ætti að fara að kaupa mér nammi eða ekki... en sem betur fer vann engillinn þá orrustu.. alveg magnað!

Annars verð ég að fara að kaupa mér hvíta Michael Jackson plástra á puttana, ég er búin að naga svo mikið í kringum neglurnar að ég held að puttarnir fari að detta af mér.. þetta er eitthvað dulbúið stress.. ég get ekki hætt þessu!!!!!!! Það er ekki eins og ég reyni ekki.. en ég geri þetta bara ósjálfrátt.. td. akkúrat núna stoppaði ég til hugsa hvað ég ætti að skrifa meira og var byrjuð á þessum bölvaða ósið! Einhver önnur ráð plís???

Góða helgi!

fimmtudagur, ágúst 11

Ég er ekkert smá ááááááááánægð og stolt af sjálfri mér! Ég er búin að fá vinnu sem ég byrja í um mánaðarmótin, hjá fyrirtæki hér í bæ sem kennt er við landnámsmann nokkurn! Ég ætla ekki að skrifa hérna hvaða fyrirtæki er um að ræða, en þeir sem eru að deyja úr forvitni geta spurt mig persónulega með því að senda mér meil eða tala við mig á msn eða hringja í mig!

Mín bara massaði viðtölin og hreif alla með persónutöfrunum! Þetta er bókhalds og innheimtustarf og vinnutíminn er 8/9-16/17 , fæ launin sem ég vildi og alles.. ég meina má ég ekki vera á ponsu egótrippi? :) Mér finnst það! Rírírírírí þungu fargi af mér létt og mörgum fleiri sem voru svo meðvirkir að hafa áhyggjur af þessu með mér! :)

Ég ætla að halda uppá þetta með því að fara á ættarmót vestur á Barðaströnd um helgina. Anna B. spurði mig hvort Barði í Bang gang yrði með gigg, en nei.. hann verður ekki þarna, en hins vegar er aldrei að vita hvort Barði Sveinsson frændi minn verður með uppákomu! Annars á ég víst að vera með skemmtiatriði fyrir hönd móðurfjölskyldunnar.. ég var búin að lofa því fyrr í sumar að semja eitthvað skemmtilegt.................... úffff.. þarna hefur frestunaráráttan mín komið mér í koll! Ég er ekki byrjuð ...... ég verð kannski bara með uppistand og geri grín að öllum systkinum hennar mömmu! hahaha :)

En ég verð að láta einn alkabrandara fylgja með í lokin.. og ef þér finnst hann fyndinn, þá ættiru kannski að prófa að taka sjálfsprófið á SÁÁ.is hehe...

Hvað þarf marga alkóhólista til að skipta um ljósaperu?
-Það þarf bara einn, hann tyllir henni í skrúfstykkið, sest svo niður og bíður eftir að heimurinn snúist í kringum hann!

miðvikudagur, ágúst 10

"Það er allt fullt af fólki, já það er allt fullt af fólki hérna hjá mééééér!!!" - Lokalagið hjá Pirrý

En já það er allt að fyllast af frægu fólki hérna á Ísalandi okkar.. Enginn annar en Barry "slef" Pepper kom í gær.. Ryan Phillipe á leiðinni, Cooperinn, Bolton og fleiri kappar væntanlegir! Maður verður að kíkja útá lífið til að reyna að hitta þessa gaura, eins og hann Ingimar hennar Ásdísar, hann fattaði allt í einu að hann sæti rétt hjá einum fallegasta manni veraldar, eða honum Viggo Mortensen á Ara í Ögri!

Ég fór að spá í því að það eru ekki til margir íslenskir karlmenn sem eru rosalega myndarlegir, eða allavega sé ég þá aldrei! Jú nema kannski Hilmir Snær og hmmm... man ekki eftir neinum! En í útlöndum eru fullt af sætum mönnum.. ójá... en við bætum það upp um fallegu kvenfólki!

Ætli það búi einhver átvögl í Vaglaskógi?


Afhverju eru partí og veislur og kallað húllumhæ? Hvað er húllumhæ? Er þetta einhver dönskusletta sem hefur verið ranglega þýdd.. svona eins og viskustykki.. sem er væskestykke á dönsku.. nei maður spyr sig!

Hvenær ætli Fóstbræður komi útá dvd! Þá verð ég fyrst á staðinn!

Ég var svona að gera mér alvarlega grein fyrir því í gærkvöldi að ég er eigilega hætt að fylgjast með fréttum... mér finnst það frekar leim. Alltaf jafn lúðalegt þegar fólk er að tala um eitthvað nýjasta nýtt í kringum mann, td. slys eða geimskutluna Discovery og maður er ekkert inní hlutunum, verð að fara að taka mig á í þessu! En ég held ég geymi tíkina, já pólítíkina segi ég, eitthvað áfram.. ég á eftir að komast á það stig! Enda langt í þrítugt!

Síðast en ekki síst, þá var ég að setja nýjar myndir í albúmið!

þriðjudagur, ágúst 9

Ok.. alla mína hunds- og kattartíð hefur mér verið illa við dýr (öll nema gullfiska).. Ekki veit ég afhverju, en ég býst við því að ég hafi fengið þetta í móðurarf.. Og sérstaklega hefur mér verið illa við ketti.. mér finnst þeir vera svo óútreiknanlegir og uppáþrengjandi. Síðastliðna mánuði hefur mér líka fundist ég vera að fá eitthvað ofnæmi fyrir hárunum af þeim.. held þetta sé ekki ímyndun. Ég byrja að stíflast í nefinu og klæja í augunum. Mér finnst þetta bara ágætt.. þá hef ég löglega afsökun til að þurfa ekki að umgangast þessi dýr.

En ástæðan fyrir þessum skrifum er sú, að ég var í heimsókn hjá bróður mínum og mágkonu í gær og þau eru að passa hlunkaköttinn hann Kjána sem er afsprengi af Bangsa heitnum sem þau áttu.. Kjáni er eflaust vænsta grey en ég er bara með einhverja klígju. Vá hvað það hlýtur að vera leiðinlegt að vera köttur, því hann er soldið uppáþrengjandi, þefandi af grautnum hennar Kristínar og reynir að sleikja vítamínið hennar, hoppar uppí rúmin þeirra .. og svo síðast en ekki síst þá settist hann hálfur uppá fartölvuna mína og skildi eftir nokkur hár á henni! Þetta varð nú ekki til þess að hann fengi prik hjá mér. Og í morgun fór ég í sömu peysu og ég var í í gær, og viti menn.. ég hefði allt eins geta farið í hvítum pels í vinnuna!

Og núna er mér farið að klæja í augun.. samt er ég búin að reyna að plokka hárin af.. Og ekki eins og það sé ekki nóg af hárum fyrir á fötunum mínum... jú mín eigin höfuðhár.. Ekki nema að ég sé komin með ofnæmi fyrir þeim.. það væri nú laglegt! Þá held ég að ég geti bara kvatt ykkur med det samme!

En ég get líka séð þessa kattadýrkun frá öðru sjónarmiði.. fólk elskar þessi dýr og finnst þau vera börnin sín og ekki myndi maður auglýsa barnið sitt gefins í Dýrahald í DV ef það væri með hárlos..

mánudagur, ágúst 8

Jæja Svala Birna er búin að eignast lítinn strák!!!!!! Hann kom í heiminn í gærmorgun.. Velkominn Svali! :) Nei greyið krílið ég ætla að vona að þetta svalanafn festist ekki við hann.. sérstaklega af því að ég man hvað það fór í taugarnar á Svölu þegar krakkarnir voru að kalla hana; Svala svali.. En ég bíð spennt eftir að hitta hann.. líka gaman að það komi strákur í alla stelpuflóruna sem fæðist í kringum mig! Gaman að fara að kaupa drákaföt!

En já sumir farnir að heimta laugardagsblogg og allt... hver veit nema að það verði einhvern tímann, þegar ég fæ nettenginguna heim.. hvenær sem það verður! Það er einhver tryllt bið útaf því að allir eru að fá sér einhverja adsl-tv tengingu.. iss mér finnst að ég eigi að ganga fyrir af því að ég er númer 1! Díííjók

Annars þarf ég ekki að láta mér leiðast á næstunni því að hún Lilja mágkona mín var að láta mig fá fullt af stöffi í tölvuna og er ég búin að liggja yfir því um helgina.. fyrir utan það að fara á Gaypride á laugardaginn! Það var heljarinnar fjör og alltaf gaman að sjá þessa skrúðgöngu.. Reyndar er alltaf ein krípingsleg kona þarna og hún heitir Birna Þórðardóttir, hún var með Guðjón vin sinn (og Ásdísar) í hundaól .... ég tók mynd af því sem mun koma seinna á veraldarvefinn ásamt fullt af myndum! En mér fannst Rut og Vigdis, tvær norskar "konur" langbestar af öllum skemmtiatriðunum..

Ég fór á Kaffibrennsluna á fimmtudaginn eftir vinnu, sem er ekki í frásögur færandi, nema hvað að ég var með nýja lappann minn.. og guð ég var með einhvern svona aulasvip.. svona montglott.. fannst þetta svo æðisgengið að vera online á kaffihúsi.. (ein ógó eftirá) mér fannst eins og allir þarna inni hlytu að vita að ég væri þarna með nýju tölvuna mína.. but no.. Ég er víst ekki miðdepillinn í öllu!

En djöfull er gaman að eiga fartölvu.. ég meina sko EIGA TÖLVU.. ekki eitthvað raðgreiðslurugl!

fimmtudagur, ágúst 4

Ég var að lesa einhverja stutta grein í Fréttablaðinu eftir konu sem hafði stúderað það hvernig er að breytast í mömmu sína þegar maður eldist.. eða ekki breytast, heldur verða eins og mamma manns. Og ég fann mig í þessari grein.. verð nú bara að segja það!

Eins og td. þegar ég var lítil og prumpaði nálægt mömmu, þá sagði hún alltaf; "Þarftu að kúka?" og þetta fór geðveikt í mig alltaf hreint. Og líka þegar maður var þyrstur og vildi kók.. þá sagði mamma alltaf; "fáðu þér vatn!" og þá sagði ég; "mig langar ekkert í vatn!!" Þá kom alltaf sama svarið; "Þá ertu ekkert þyrst!" - Og þegar mamma kom heim úr vinnunni, þreytt og pirruð og byrjaði að tuða um að allt væri í drasli og ekki búið að taka úr uppþvottavélinni....

Ég er byrjuð að nota sömu frasana á Auði Aþenu.. með prumpið og vatnið! Og þarna þegar ég var í minni stuttu sambúð, þá gat ég alveg brjálast að koma heim og allt í drasli og ekki búið að vaska upp og setja óhreinu sokkana í þvottakörfuna... (kannski þess vegna sem ég er ekki lengur í þeirri sambúð.... hmmmmmm)

En ég meina.. er ekki allt kvenfólk svona? Verða kallar ekki bara að fara að átta sig á því?

Annars er ég bara að bíða eftir að fá nettenginguna heim.. það þarf víst einhver kall að koma og tengja eitthvað!

"Já er ekki kominn tími til að tengja, er ekki kominn tími til að tengja, tengja tengja teeengja??!"

miðvikudagur, ágúst 3

Það var ekki amaleg tilfinning að fá fyrstu fartölvuna í fangið í gær maðurrrrr!!! Og plíííísss ekki spurja mig hvernig tölva þetta sé... ég bara hermdi og keypti alveg eins og Einar bróðir og Lilja og þegar þau segja að eitthvað tölvukyns sé gott, þá treysti ég því! :) Ég á allavega eftir að geta downloadað bíómyndum og spilað tölvuleiki í henni.. svona til viðmiðunar! :)

Svo er svona plast á henni.. sko oná lokinu.. en ég ætla ekki að taka það af fyrr en hún rennur úr ábyrgð.. svona eins og ameríkanar gera við sófasettin sín! Þeim bróður mínum og mágkonu þótti ég nú frekar hallærisleg.. en þá sagði mér vinkona mín að hún hafði sitt í 4 mánuði.. ég efast nú um að mitt muni tolla svo lengi á! hehehe!

Ég var að dreyma að ég væri að fara í strætó í FB í nótt. Það er greinilega ekki komið nýtt leiðakerfi í draumana mína, því að ég fór með ellefunni uppí Breiðholtskjör.. þar sem hún bilaði.. og þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég dreymi það.. merkilegt nokk! En þá tók ég mig bara til og labbaði niðrí Kaupstað í Mjódd og ætlaði bara að versla mér eitthvað gúmmulaði og skrópa í skólann og fara aftur heim, því mamma og pabbi væru farin í vinnuna!

Ég vildi óska þess að þessi draumur ætti sér enga undirrót.. en því miður þá held ég að ég hafi gert svona þegar ég var í FB á sínum tíma.. Shame on you Annie!

Ég komst að því með hjálp ex-innherja hjá Símanum að röddin í símsvaranum góða í 8007000 á hún Ilmur leikkona.. sú sem leikur Línu langsokk... úff ég hef ekkert á móti þeirri gellu persónulega.. en þarna appelsínauglýsingin..... "gefðu þér oftar appelsín - og nú - nýtt sykurlaust!" *hrollur*

þriðjudagur, ágúst 2

Helgin byrjaði líka svona vel að ég læsti mig úti! Ætlaði að stökkva útá videoleigu, í pilsi og inniskóm, og fattaði um leið og ég lokaði hurðinni að ég var með bíllykilinn í hendinni og gemsann! Sem er ótrúlega fyndið, því yfirleitt tek ég símann nú ekki með mér í svona skrepp! Og ég hringdi í Einar bróðir og hann var nýkominn uppí Borgarfjörð.. þannig að ég ekki gat ég náð í aukalykilinn heima hjá honum. Þannig að ég var í einhverju panikki í svona 40 mínútur.. en þá mundi ég allt í einu eftir að hafa séð gaura vera með stiga í blokkinni á móti.. og ég tölti yfir og viti menn, þar lá stiginn og beið eftir mér.. þannig að ég fékk hann bara aðeins lánaðan.. þar sem svalahurðin var opin og ég fékk gaur í blokkinni til að príla upp fyrir mig! ...og ég sem ætlaði bara að taka eina dvd!

Annars var ég bara í afslöppun og rólegheitum alla helgina.. kíkti samt aðeins útá meðal fólks, það var fínt.. aðeins að sleppa frá hausnum mínum! :)

Og já ég mundi eftir því að horfá Lost í gærkvöldi!! Vúhú.. ég nebblega steingleymdi því síðasta mánudag og varð frekar fúl daginn eftir þegar stelpurnar í vinnunni voru að tala um það! En ég meina spennan var alveg dottin úr þáttunum, en loksins náði hann sér á strik í gær og endaði spennandi.. 4 8 16 32 42 úúúúú!!!

Ég er annars bara hrikalega hress í vinnunni maðurrrr.. og svona svo þið vitið þá megiði alveg hafið eyrun opin ef þið heyrið um eitthvað spennandi djobb fyrir mig!

Ps. Er fólk alveg hætt að senda brandarameil?

mánudagur, ágúst 1

Mynd


Mamma gaf mér verju! :)
Myndina sendi Anna
Powered by Hexia