Jæja pant vera
besta vinkona hans
Geira á Maxims núna.. sáuði bílinn??? Ef bíl má kalla, frekar lúxus skemmtistaður á hjólum! Píurnar hans hljóta að vera í skýjunum að fá far í svona
hummer-limmu! Þetta var semsagt í Innlit Útlit fyrir þá sem misstu af! :)
Annars langar mig að segja frá því að mér tókst að vakna
kl. 7.40 í morgun og ákvað þá að drífa mig í ræktina. Og ég var búin að ákveða að prófa að fara í
World Class útibúið hérna í
Orkuhúsinu.. sem og ég gerði. Nema hvað að þegar ég legg þarna vinstra megin við það þá var ég viss um að ég væri á réttum stað. Sá líka mann koma útúr bílnum sínum með
joggingtösku og ákvað að elta hann. En þegar ég kem fyrir horn þarna er hann
horfinn.
Þannig að ég labba upp stiga og ætlaði niður
ramp sem ég hélt að væri inngangurinn á þessari stöð, neinei lendi þá bara uppá
grasþaki og þar niðri en tjörn og risagluggar með mötuneyti fyrir innan. Labba aftur niður og sé bara starfsmannainngang. Labba þá niður fyrir húsið, ekkert þar, fer þá upp stiga hinum megin við það og labba fram hjá annarri renniglerhurð og áfram upp þar og þá var ég komin næstum því
hringinn og aldrei ætlaði ég að finna þetta. En þegar ég sný við og labba niður þá sé ég pínulítið World Class skilti við hliðina á renniglerhurðinni sem ég labbaði fram hjá.. viljiði ekki bara hafa
FRÍMERKI sem skilti???
Kemst inn með
auganu.. hehe semsagt augnskanni.. og ég kem inná svona forstofugang og þar er karla og kvenna hurð, 2 skópör fyrir utan karla og engir skór fyrir utan kvenna. Hmm.. fór samt inn í kvenna og það er bara eins og
draugabæli! Fullt af skápum, enginn lokaður og læstur. Allt kveikt og allt nýtt og flott þarna.. Ég fór og fann hurðina inní salinn, setti eyrað uppað og heyrði að það var eitthvað í gangi þarna fyrir innan. Skipti um föt og fæ valkvíða við að finna mér
perfectan skáp nr. 33.
Fer svo inní salinn og viti menn það eru
3 karlmenn að æfa og einn þjálfari á staðnum! Ja hérna.. what a waste of good space! Alveg 4 hlaupabretti, 3 skíðatæki, 2 hjól og 1 tröpputæki en svo eitt af öllu svona lyftingatækjum og 3 sjónvörp. En ég var
komin á staðinn og ég skyldi æfa. Þótt að klukkan væri orðin rúmlega 8 eftir tímann sem fór í leitina að innganginum.
Ekki sagði þjálfarinn, eini starfsmaðurinn á svæðinu góðan daginn.
Tók 30 mín. á skíðatækinu og hlustaði á Kiss fm.. það var það skársta í boði.. eina með tónlist. Og ég er að segja að ég verð ansi
sveitt eftir 30 mín á þessu og dáldið móð. Þegar ég var búin og tók af mér earphones-in þá fékk ég
sjokk. Þvílík
þögn þarna.. ég hef örugglega verið að anda og mæða eins og hvalur þarna..
Teygi svo og fer inní klefa, þá eru 4 kvensur þar að klæða sig.. þá hafði verið einhver jógatími þarna.. og týpískt að skápurinn minn var beint undir skáp sem ein kellan var í.. týpískt - en hún kom samt á eftir mér. Svo voru allar farnar nema ég og þessi kona og hún var þessi týpa sem verður að segja eitthvað, getur
ekki bara verið í
friði í þögninni. Spyr;
"kemur þú hingað 2-3svar í viku og svona?" ég bara..
"ehh nei var bara að koma í fyrsta skipti..." Og svo fór hún eitthvað að tauta við mig.. var samt alveg almennileg.. en ég hef aldrei náð uppí svona
kurteisisamtöl við fólk sem maður þekkir ekkert og á líklega
aldrei eftir að sjá aftur!
En já, ég er allavega stolt af mér fyrir að hafa farið í ræktina loksins fyrir vinnu og stefni á að fara aftur í fyrramálið, í
draugabælið! Mér finnst bara svo fáranlegt að vera að keyra niðrí Laugar og svo aftur uppeftir í Árbæinn strax aftur..