Jæja við mæðgur komum heim seint í gærkvöldi eftir
vel heppnaða ferð. Ég ætla að reyna að stikla á stóru í ferðasögunni!
Komum út um hálf níu á fimmtudagskvöldið og Stína systir hennar mömmu kom og tók á móti okkur á vellinum. Svo brunuðum við heim til þeirra, sem er svona klukkutíma akstur, þau búa í
ponsubæ sem heitir Postcombe og er í Oxfordshire! Þá var Des maðurinn hennar heima og tók vel á móti okkur og við fengum kvöldsnarl.
Svo á föstudagsmorguninn skutlaði Des mér og mömmu til
Uxbridge þar sem buddurnar okkar fengu að
léttast eilítið. Þar vorum við skundandi á milli verslana í verslunarmiðstöð sem er ekki ólík Smáralind.. nema verðið er aðeins hóflegra. Svo um hálfsex þegar hendurnar á okkur náðu u.þ.b. niðrað
hnjám útaf pokaburði þá kom Stína og sótti okkur.
Þá hafði Sascha frænka mín boðið mér að koma með henni og Marcus manninum hennar og Scott frænda mínum að borða á
sveitakrá í næsta bæ, sem og við fórum svo um kl 20. Þar fékk ég ljúffenga steik og tók þátt í
enskum samræðum.. voða gaman.
Svo á laugardeginum þá skutluðumst við í næsta bæ og skoða búðina sem Sascha frænka mín á, sem er verslun með föt fyrir óléttarkonur og gjafahaldarar og svona.. rosa flott! Síðan fórum við í
"ódýru búðina" eða
Asda sem er eitthvað breskt afsprengi af Walmart keðjunni. Þar misstum við mamma okkur í stelpufötum og versluðum alveg fullt. Ég fann mér flottan rauðan bol þar sem kostaði heil 3 pund, en á honum stendur:
"If you're rich, I´m single!" hehehe.. ég veit nú ekki hvort ég muni þora að vera í honum.......
Svo hittum við ömmu og Stínu frænku á kaffistofu þar frammi og ég
verð að gera
góðfúslegt grín að henni móður minni, sem talar stundum soldið skrítið þegar hún er
upptjúnuð og hún minnti mig á stórborgarann í Iceland Express auglýsingunum en hún spurði mig;
"hvað ég vildi hafa að borða?" hehehe eins og
"What would you like to have to eat?" .. mín bara komin með bresk orðatök eftir 2 daga dvöl hehehehe :) Mamma ég veit þú getur hlegið að þessu!
Svo kíktum við aftur aðeins heim í kaffi og fórum svo aftur út og skoðuðum annan bæ sem heitir
Thame, löbbuðum þar um og skoðuðum í búðir. Svo um kvöldið chilluðum við heima og fengum ljúffengan
lacccssshhh að borða.
Á sunnudaginn leyfði ég mér að sofa til 11.30 og fór svo niður og fékk mér ristað brauð með osti og marmelaði og kaffi með mjólk.. mm.. rosagott.. mér finnst voða gott allt í einu að drekka kaffi með svona brauði með áleggi! En svo stakk mamma uppá að við kíktum við í bíltúr til
Oxford á meðan ein önnur steik var að eldast í ofninum.. það var rosagaman að labba þar um og skoða gamlar byggingar.
Og svo var farið heim að snæða breskt lambalæri
(og amma þurfti auðvitað að fara með frasann um að íslenska lambakjötið sé alltaf best) með stórfamilíunni og Scott frændi kom aftur. Og auðvitað
Rufus frændi sem verður 2 ára í febrúar og er einn sætasti strákur í heimi og það munu koma myndir af honum síðar! Og svo keyrðu amma og Stína okkur á flugvöllinn um kvöldið.. en amma varð eftir úti og kemur eftir 3 vikur!
Í heildina mjög
skemmtileg ferð og fljót að líða, gerðum fullt skemmtilegt þótt að mig langaði að fara niður í downtown London en það verður bara að bíða betri tíma. Mig langar rosalega að fara aftur og vera þá í viku allavega úti og
dóla mér í London og heimsækja Stínu og þau! Myndir koma í vikunni, ég gleymdi nefnilega myndavélinni heima hjá m&p áðan!
Annars fór ég í
kvennagönguna í dag, rosagaman!