pælingar, nöldur og skemmtilegheit...

þriðjudagur, nóvember 29

Ég var að skoða íslenska jólatónlistarflóðið í Hagkaup um helgina.. eða svona rétt leit á einn rekkann og það er ekkert smá mikið af karla sólóplötum í ár.. td. Jónsi, Helgi Björns, Bergsveinn Arilíusson, Matti úr Pöpunum, Jón Sigurðs, Bjarni Ara, Bó Hall og Páll Rósinkranz ... Og mig langar ekki í neinn af þeim... eða jú ég verð að viðurkenna.. ég er sökker fyrir Bó..

En hinsvegar væri ég til í að eignast dvd með Danny og Armi, þvílíkt snilldardúett!
Kíkið á myndband með þeim hér (takið eftir dönsunum)!

mánudagur, nóvember 28

Stundum held ég að það sé grátt rigningaský með þrumum fyrir ofan hausinn á mér.. sem hefði nú mátt vera bókstaflega í gærmorgun.... Ég var nýkomin í sturtu og var búin að setja vel af nýja medical hárlos sjampóinu mínu (já ég er nojuð) í hárið og ætlaði að láta það bíða í í 7 mínútur.. but nóóó þá bara lippast vatnsbunan niður og bara pifffffff ekkert vatn!

Ég bara what??? Vatnið farið af, sjitt...hvernig á ég að skola?? en þar sem ég vissi að fólk á neðri hæðinni er að breyta baðinu hjá sér, þá hringdi ég í 118 og fékk númerið hjá þeim. Og ég bara, "voruð þið að taka vatnið af??" pínu æst.. unglingurinn á heimilinu; "já, hver er þetta?" ég bara; "ég heiti Anna og bý hérna uppi, ég var sko í sturtu og nýbúin að setja í mig sjampó, hvað mun þetta taka langan tíma??!!!" Hann bara; "pabbi .. hvenær fer vatnið aftur á... " Pabbinn bakvið með pirringstón; "hver er þetta????" strákurinn; "stelpan uppi, hún var sko í sturtu.." og pabbinn, "eftir svona 5-10 mín!" Ég bara; "ok, þið lofið!!" ... svo stóð ég á handklæðinu með sjampóið kraumandi í hárinu!

Neinei.. þetta tók alveg rúmar 20 mínútur, mér var nú orðið pínu kalt og var skíthrædd um að þetta sterka sjampó myndi annað hvort taka allan litinn úr hárinu eða þá að það myndi bara detta af í lufsum.. eins og í Tinu Turner myndinni! En þetta reddaðist og ég er ennþá með mitt hár! En ég á eftir að tala betur við þau og benda þeim á að það er nú almenn kurteisi að láta fólkið í stigaganginum vita af svonalöguðu.. ég meina.. hvað ef ég hefði verið að aflita á mér hárið .. og ekki getað skolað það??? Þá þyrfti ég að fjárfesta í einni Tinuhárkollu!

laugardagur, nóvember 26

Ég ákvað loksins að fara í nýjan norskan umbreytingaþátt, sem var sama útgáfa af þætti og í The Swan. Ég var orðin leið á andlitinu á mér.. fannst ég svo ljót og venjuleg í framan. Karlmenn höfðu aldrei litið við mér.. Þannig að ég sendi inn myndbandsumsókn í þáttinn og sagði þeim frá aumkunarverðu lífi mínu hingað til.

Sagði frá því að mig langaði að fá aðeins villtara andlitið, vera doldil svona tiger og hafa góðar veiðiklær, því guð vissi að ég var óspjölluð mey og var að nálgast þrítugt.. þannig að ég átti nóg inni af kynorku og rúmkvóta! Og í flotta karlmenn vildi ég ná!

Ég var valin í þáttinn og fékk speglalausa íbúð og fór strax í lýtaaðgerðina og var stokkbólgin eftir hana og pökkuð inní umbúðir í 2 mánuði.. svo þegar sárin fóru að gróa þá voru umbúðirnar teknar af og gat loksins þreifað á nýja andlitinu mínu... en þar sem ég var ennþá aum og dofin þá fann ég ekkert fyrir í því. Svo var ég bara í ræktinni í mánuð og svona.

Svo kom lokakvöldið, þegar ég átti að fá að sjá hina nýju mig.. ég fékk að velja átfitt og þar sem mig langaði að fara útá lífið eftir þáttinn og ná mér í flottan kúreka, þá langaði mig að vera svoldið hipp og kúl og vera með kúrekahatt og í ermalausum bol og gallabuxum, engan glamúrkjól fyrir mig takk.

Nú svo stend ég fyrir framan spegilinn sem var falinn bakvið gardínur, ég iðaði í skinninu að fá að sjá mig.. og svo dróust tjöldin frá og tatatarataaaa
........... AAAAAARRRRRRGGGG mjááááááááá rrrooowwwrrr:


...ég vildi kannski fá tigerlegra útlit en ekki breytast í TIGER!!!

föstudagur, nóvember 25

Picture(3).jpg

Kristín Anna kom í heimsókn í vinnuna mína!
Myndina sendi Anna
Powered by Hexia

Mikið var ég fegin að það sem ég er að fara að segja ykkur frá gerðist akkúrat á þeim tíma sem það gerðist í gær.. já ertu spennt/ur að vita hvað gerðist???

Já ég hélt það.. nú þegar ég er að fara heim úr vinnunni í gær, sem betur fer orðið dimmt, þótt mér finnist nú ekki skemmtilegt að vinna myrkranna á milli, þá sest ég inní bílinn minn og í því sem ég er sest niður, þá finn ég kaldan straum frá rassi og uppúr! Ég gáði hvort rúðan hefði verið opin og það hefði rignt inn.. nei það var ekki!

Er spennan í hámarki? Þannig að ég þreifa á rasskinninni þar sem kuldinn nísti inní húðina.. jújú.. það var nú ekki skrítið. Því þegar ég settist þá bara rifnaði svona 20 cm lóðrétt rifa niður með vinstri rassvasanum að utanverðu á Old Navy gallabuxunum mínum... ég bara ómægad!!!! Og ég var búin að lofa að sækja Auði á leikskólann! En sem betur fer þá bý ég nálægt vinnunni og skaust heim og hljóp eins og geðsjúk inn (er náttúrulega í mittisjakka) og skipti um brækur!

Svo hljóp ég aftur útí í bíl og dó úr hlátri! Guði sé lof að ég var ekki að setjast niður á kaffihúsi á blindu stefnumóti eða þaðan af verra! Ég get núna ímyndað mér hvernig Eydísi frænku leið, þegar þetta kom fyrir hana í bílaröðinni á leið í Norrænu í sumar og hún þurfti að færa bílinn, en Hilmar maðurinn hennar hafði skroppið í burtu í smástund með bíllykilinn með sér! Híhíhí!

Annars horfði ég á byrjunina á Mister Iceland í gær.. þvílíkt hommalegt show! Segi ekki annað, og þegar þeir láu allir berir í Orublu boxer á sviðinu.. þá varð mér allri lokið! En gaurinn sem ég vildi að ynni vann ekki.. þannig að ég lýsi frati á þetta! hehe! :) Dííjók.. Mér fannst þetta nú allt frekar normal gaurar, bara búnir að vera duglegir í ræktinni undanfarið, með brúnkukrem og gel í hárinu!

fimmtudagur, nóvember 24

Dísus ég dreymdi stórfurðulegan draum í nótt.. ég var í Seljahverfinu eins og venjulega í draumaheimum mínum. Og ég og Einsi bró vorum að skoppa á svona gulum skopparabolta um allt hverfið og Einar var svona til hliðar, farþegi og það var svona öryggisbelti fyrir hann. Þannig að ég stjórnaði og svo skoppuðum við um Jaðarselið!

Svo fór ég ein að skoppa um allt á boltanum sem var með tveim svona gúmmíhandföngum og ég tók fram úr öllum sem voru að hjóla og jogga þarna, nema hvað ég stoppa þarna í húsi við Jöklaselið og kíki inn og þar er soldið fríkí gaur allur í tattooum og ég fer samt inn. Og það var allt rosalega flott þarna inni og þegar ég er að fara að segja það við hann tekur hann svona pappagosglas með loki og röri og sniffar úr rörinu upp í nefið! Og ég bara sjitt, þetta er dópisti, því ég vissi að þetta væri kókaín og hljóp út og fór á skopparaboltanum heim.

Já eins og ég vil stundum segja; ekki er öll vitleysan eins!

miðvikudagur, nóvember 23


Hún Auður Aþena mín er 3 ára í dag!!!!!!

Þessi elska bara orðin 3 ára.. tíminn er fljótur að líða! Orðin altalandi og veit hvað hún vill, ákveðin lítil stúlkukind.. það verður forvitnilegt að vita hvort hún fari að sofa án snuddunnar í kvöld.. eins og hún var búin að segjast ætla að gera! Svo var hún vakin uppí morgun við afmælissöng foreldra sinna og pakkaleit.. Síðan fékk hún að fara í sparifötum á leikskólann og gat ekki beðið eftir að fá kórónu og standa uppá stól á meðan hinir krakkarnir syngja afmælissönginn!


Í stígvélunum mínum.. rosa töffarasvipur!

mánudagur, nóvember 21

Pæling

"pabbi fer í draugfín föt og mamma í nýja kjól... allt heimilið ljómar.."

Sko hvernig eru draugfín föt?
Versla draugar hjá Sævari Karli?

sunnudagur, nóvember 20

Hahaha ég er í kasti hérna.. eins og flestir vita er verið að endurútgefa Hjálpum þeim lagið... sem var jú svo geysivinsælt hérna um árið!
En ég fann miklu flottari útgáfu á síðu Baggalúts rétt í þessu.. Snilld!

Hlusta hér á Hjálpum þeim með Baggalúti!

Og svo verð ég að skella jólalaginu með þeim síðan í fyrra.. það er líka frábært!

Hlusta hér á Kósíheit par excelent!

Jæja ég var að koma heim af ótrúlega skemmtilegu jólahlaðborði með vinnunni minni. Það var haldið á Grand Hótel .. ég mætti fashionable late.. eða svona rétt áður en hleypt var inní matarsalinn.. fékk mér sódavatn í fordrykk!

Svo var haldið í forréttina.. helvíti góður matur og mikið úrval og allskonar sósur með! Svo kom Pétur Jóhann Sigfússon og grínaði.. hann var bara ágætur.. var dáldið að fara útí grófa brandara en hann þorði því ekki held ég því fólk var að borða.. vildi td. ekki segja saurbrandara.. furðulegt!

Svo fór maður í steikina og það var, lambasteik og grísapurusteik og kalkúnasteik og grænmeti og kartöbblur! Og ég fékk mér aftur smá graflaccchhsss með.. þetta var besti graflachs og graflachssósa sem ég hefi nokkurn tímann smakkað!

Nú svo eftir matinn kom Buff að spila, en fyrir þá sem ekki þekkja þá, þá er það bandið í Það var lagið með Hemma Gunn.. þeir eru nú helvíti kátir en voru nú frekar þreyttir og sjúskaðir eitthvað og kunnu nú ekki mikið af lögum.. voru komnir hringinn eftir klukkutíma.. Kannski tekur maður bara eftir svonalöguðu þegar maður er edrú!

Og nei ég fór ekki að reyna við Berg með augun eins og um árið.. lagði ekki í það sko! En ég dansaði alveg af mér skóna þangað til að þeir kláruðu giggið!

Semsagt skemmtilegt kvöld, góður matur og dansiball.. er það ekki málið?

En jólaskapið kikkaði þó ekkert inn!

föstudagur, nóvember 18



Íþróttaálfur


Þú ert vanaföst, yfirveguð félagsvera.


Arnold Schwarzenegger er vanaföst, yfirveguð félagsvera. Það er því ekki leiðum að líkjast. Íþróttaálfurinn býr sko ekki í Latabæ (LazyTown TM). Hann tekur til fótanna, án þess að vera að missa af strætó og þótt enginn sé að elta hann. Hann er hrókur alls fagnaðar í heita pottinum og er jafnvígur í flugsundi og að troða marvaða. Rétt eins og Tortímandinn er íþróttaálfurinn marksækinn og staðfastur. Ekkert fær hann stöðvað.



"Áfram Latibær, I'll be back!"



Hvaða tröll ert þú?

Ég elska mötuneytið í vinnunni minni, sjáið hvað er núna í hádeginu:

Réttur dagsins er ofnsteiktur kjúklingur með hvítlauk, valhnetum, kasjúhnetum, steinselju, olífuolíu, salti og pipar. Borin fram með kartöflum krydduðum engiferolíu, timian, sesamfræjum, salti og pipar.

Súpa dagsins er dásamleg sjávarréttasúpa úr humarsoði, mjólk, tómötum, jurtarjóma, zuccini, sveppum, papriku, lauk, rauðlauk, salti og pipar.
Ekkert MSG er notað í súpur, sósur né aðra matargerð frá okkur.

Slurpp... get ekki beðið eftir að fara í mat eftir 5 mínútur!

fimmtudagur, nóvember 17

Ja hérna.. alltaf er ég að lenda í einhverju bizzarre hehe semsagt skrítnu!
Það var í boði hérna í hádeginu að fara í inflúensusprautu, sem og ég gerði, þar sem ég hef aldrei vitað önnur eins veikindi á einu hausti!

Nú læknirinn sprautar mig og biður mig um að skrifa nafnið mitt á lista og ég skrifaði Anna Sig. og hann segir.. "bíddu.." og ég alveg: "ó viltu fá fullt nafn?" .. þá segir hann: "neinei, ertu 29 ára?" ég bara: "hmm já..." og hugsaði: furðuleg spurning.. þá segir hann og brosir: "ég tók á móti þér fyrir 29 árum í síðustu viku!" ég bara.. hmm oook.. og var eins og kjáni..og var alveg bíddu bíddu.. hann alveg "já er ekki mamma þín að vinna í mötuneytinu í *****?" ég bara jú.. og hann bara já ég heiti Jón Bjarni og tók á móti þér :) og svo tókumst við bara í hendur og bara gaman að hitta þig! hehehe..

Hann man nú örugglega eftir fæðingunni minni, þar sem mamma greyið lá á spítalanum með hríðir í 2 sólahringa og reyndi að eiga mig.. sem endaði svo með því að ég var dregin út með drullusokki eins og pabbi sagði vinkonum mínum um helgina! hehe.. yes i was a conehead!

miðvikudagur, nóvember 16

Oj ég hata leiknar útvarpsauglýsingar.. svona uppgerðarsamtal.. núna á Bylgjunni er búin að vera ein hræðileg slík leikin nokkrum sinnum á dag!

"Hæ Gulla, hæ Ilmur... hvað ertu að gera á föstudaginn? Ég er að fara á konukvöld SikkSakk! Neii híhíhí æðislegt, ég kem líka blíblíblílí" úúúúfffffffffffffffffffffffffff!

Ilmur verslar pottþétt ekki fötin sín í SikkSakk kellingaverslun, hún datt niður eitt þrep í álitsstiganum... ég fíla hana nebblega í Stelpunum á Stöð.. en nei.. ekki leika í klígjuauglýsingu fyrir þessa tuskuverslun!

Sorry ég varð að fá útrás fyrir þessum pirringi!

þriðjudagur, nóvember 15

Hehe ég vil benda öllum á að svara í nýju spurningunni hérna til hægri! Mjög erfitt að svara en þið verðið að svara! Mér sýnist nedergangen vera að taka forystuna...
Ég ætlaði að vera sniðug og leita að mynd af frunsu á alheimsvefnum.. en ég vil vara ykkur við að slá inn orðinu herpes í Google myndaleit... úfff... ekki nema að þið höndlið að sjá mjög sýkta prívatparta!

En svona til að tala um eitthvað fallegt, þá er ég búin að vera betri í dag andlega séð.. fyrir ykkur sem hafið áhyggjur af mér og getið ekki sofið fyrir því! Loksins í dag kom málari og málaði baðloftið hérna hjá mér.. það var semsagt rakaskemmd í loftinu hjá mér útaf því að það lak á efri hæðinni og það er búið að taka eitt og hálft ár að fá þetta gert.. og ég er ekki saklaus í þeim framkvæmdarmálum!

Annars langar mig mest að vinna milljón króna úttekt í Byko og kaupa mér allt nýtt inná bað, flísar og tæki og nota restina til að ráða sexy flísara og pípara til að gera þetta fyrir mig!

Og þið single stúlkur, munið: Alltaf ráða einhleypa iðnaðarmenn!

Þótt ég hafi þurft að gera undantekningu með þetta í fyrra.. þegar ég auglýsti eftir slíkum handlögnum manni til að bora upp hillur fyrir mig og á endanum kom pabbi hennar Sigrúnar vinkonu.. reyndar gerði hann það frítt og svo bakaði hann köku fyrir afmælið mitt núna.. hehe :) Hann er góður gæi.. ég held að pabbi minn verði að fara að gera eitthvað fyrir Sigrúnu.. vera einkakokkur í matarboði fyrir hana td.!!

Furðulegt hvernig við manneskjurnar erum.. allar með þennan heila okkar sem hugsar of mikið stundum.. ekki nema að ég sé eina sem er svoleiðis.. sem ég og veit að ég er ekki!

Í gærkvöldi þegar ég var að keyra heim eftir annansaman dag þá þyrmdi yfir mig einmanaleiki dauðans.. ég var alveg með grátkverkinn í hálsinum og ef ég hefði sett eitthvað væmið lag á þá hefði ég örugglega brotnað niður og keyrt útaf.. en ég var skynsöm og hlustaði bara á eitthvað venjulegt lag og komst heil á höldnu heim.

Þetta var þessi tilfinning þegar manni finnst hjartað vera hálft, eða einhver svört hola inní bringunni.. mjög furðuleg tilfinning, ekki góð.

Þetta er kannski ekkert skrítið, það er búið að vera mikið um að vera undanfarið, búin að vera mikið með öllum sem ég þekki í kringum afmælið og svona.. og svo er það bara plutseligt allt búið og bara svartnættið framundan.. fram að jólum...... og ég ætla ekki útí þá sálma hér.. sem væru hálfgerðir jarðarfararsálmar ef ég færi að syngja þá!

En svo var ég að tjatta við Kalla vin minn og hann benti mér á teiknimyndasíðu með mjög svo svörtum húmor.. og ég gat ekki hætt að hlæja.. og ég er að segja ykkur.. það þarf mikið til að ég fari að hlæja upphátt þegar ég er ein heima hjá mér!

Djöfull er vangefið að vera svona down eina mínútuna og svo grenjandi úr hlátri hina!

En allavega ef ykkur langar að hlæja að nasty og blóðugum húmor í teiknimyndaformi kíkið þá á Joecartoon.com og farið þarna í Top ten.. snilld!

mánudagur, nóvember 14

Lítið fjölleikahús
staðsett úti á landi óskar eftir að ráða þrjá dverga, lifandi fallbyssukúlu, skeggjaða konu og ljónatemjara. Gott kaup.

Fuglaflensulyf!
Á fyrirliggjandi mikið magn af heimagerðu lyfi við fuglaflensu. Hefur reynst vel gegn rjúpnakvefi og gaukssleni.

Feitt barn
óskar eftir að komast í kynni við ósýnilegan vin. Mikið af nammi í boði fyrir réttan aðila.

Stolið af heimasíðu Baggalúts.

Það er útsala á einhleypum, eineygðum og einfættum mönnum frá Mongólíu.. aðeins 30.000 krónur stykkið með sendingarkostnaði... mig grunar að ég fái einn í jólagjöf!

Hann mun verða skírður Einar í höfuðið á bróður mínum!

Blúúúd, herregud det er blud!

Ég hrökk uppí nótt við að það lak eitthvað heitt útúr nefinu á mér.. ógeðslega óþægilegt! Sem betur fer bý ég ekki í 20 herbergja villu þannig að ég stökk bara í 2 hoppum yfir á klóið og náði að fá mér bréf.. og það fóru 2 dropar í hvíta koddann og 1 í lakið nýja.. ég vona að ég nái þeim úr.. er eitthvað trix til að ná blóðdropum úr efni?

Annars sá ég endann á Edduverðlaununum í gær, akkúrat þegar Silvía Nótt fékk verðlaunin fyrir að vera sjónvarpskona ársins!! Ég kaus hana sko.. ég vissi að það myndi hafa áhrif! Hún rokkar hún Silvía.. hún átti þennan heiður skilinn fyrir að vera svona klikkuð og spontant í svörum!

Ég sá bara svipinn á hinum sem voru tilnefndir.. alveg að deyja úr hneyksli.. múhahhaha gott á þá!

Ég fékk ýsu í raspi í matinn í hádeginu.. geðveikt góð! mmmmm got too love it!

sunnudagur, nóvember 13

Jæja þessi helgi er búin að vera alveg mögnuð.. tileinkuð afmælinu mínu útí gegn! Einar bró bauð mér í fyndustu burrito í heimi á föstudaginn.. svona þar sem það var ekki nein salsasósa í boði.. en samt mjög gott!

Svo hélt ég kaffiboð í gær dag, fyrir nánustu familíu og vini.. það er svona þegar maður býr í lítilli íbúð.. þá þarf maður að takmarka gestafjöldann um meira en helming! Ég er búin að sjá að ef ég ætla að halda uppá 30 ára afmælið eftir ár, takið eftir; ÁR, þá verð ég að leigja sal... því þá langar mig að bjóða öllum sem ég þekki!

Annars þá var þetta bara fínt í gær og ég fékk fullt af fallegum gjöfum, 2 hálsmen, glös, eyrnalokka, pönnu og töng, Kangool húfu, lucky bamboo og diskamottur, fansí salt og pipar stauka, kaffibolla, jólasvein, eróbikkbol og svo höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnunartíma frá mömmu og pabba! Það var semsagt nánast eins og maður ætti stórafmæli.. miðað við gjafirnar!

Svo í dag kíkti ég til ömmu en hún var að koma heim frá Englandi í vikunni, búin að vera þar í 3 vikur og var víst rukkuð um 16 þúsund kall í yfirvigt.. dugleg að versla bara! hehehe.. hún var víst með 4 töskur fullar af jólagjöfum! Vonandi leynist eitthvað í pokahorninu handa mér! :)

Og svo í kvöld buðu m&p okkur á steikarhlaðborð á Aski.. ógeðslega gott.. ég fékk mér nauta og svínasteik og bernaissósu sem er geðveikt góð þarna og bakaða kartöflu og grænmeti og allskonar.. mæli með þessum steikarkvöldum, alltaf á sunnudögum. Kostar bara 2490 kr. og þú mátt éta eins og þú vilt, forréttir, steikur og eftirréttur! :)

Setti nokkrar myndir úr afmælinu í búmið!

fimmtudagur, nóvember 10

Ég var að flakka á milli blogga og rakst á snilldarlink hjá þessari verslun hérna Barb's Large and Lovely!

Þannig að ef allt fer til fjandans og maður étur á sig nokkra tugi kílóa í viðbót getur maður samt verið sexy í fallegum fatnaði eins og sést hér:




Og eru líka til rosa sexy nærbrækur á herrana:



Jólagjöfin handa kallinum í ár stelpur!

miðvikudagur, nóvember 9

Takk fyrir afmæliskveðjurnar allir! :)

Já þetta er búinn að vera skrítinn afmælisdagur.. lasin heima í rúmi! Ég sem var búin að vera að brasa saman ostaköku og kryddbrauð í gærkvöldi til að taka með í vinnuna á morgun.. en ég hugsa að ég fari í vinnuna á morgun.. er öll hressari núna.. maður er reyndar alltaf myglaðastur á morgnana og nóttinni..

Allavega þá hafa rignt yfir mig afmæliskveðjum á msn, smsum og símtölum... og ég var með símann á silent í dag og það voru nokkur missed calles.. ég á greinilega fullt af góðum vinum og fjölskyldu!

Ég vaknaði við að Ásdís hringdi í mig frá Danmörku og söng fyrir mig þótt hún væri inná kaffihúsi ein.. svo opnaði ég pakkann frá henni, sem ég var búin að geyma síðan í síðustu viku.. fékk rosaflotta Pilgrim eyrnalokka! Og geðveikt fyndið kort!

Svo kom Anna Heiða sem ég var að vinna með í MR með hammara í hádeginu og borðaði mér mér og svo áðan kom Anna B með pizzu með afmæliskerti - rosa sætt! og líka ein besta pizza sem ég hefi smakkað held ég.. frá Rizzo hérna í Lavatown.

Svo hringdi Sigrún í mig og sagði að ég ætti netgjöf á blogginu hennar.. smá hefnd greinilega eftir að ég gaf henni stígvélaða köttinn en hérna er hennar gjöf:


Og svo fékk ég líka svaka flotta mynd frá Unni pæju í kommenti á myspace:


Og eins og þeir sem mig þekkja vel vita að ég er alltaf svo stolt af afmælisdeginum mínum, 911 sko næn vonn vonn! hehe en eftir að 11 sept var þá er hann alltaf kallaður næn eleven... aðeins búið að skemma en ég læt það ekki á mig fá. Rosa oft þegar ég lít á tölvuklukkur eru þær 9:11 byrjaði að taka eftir þessu þegar ég var lítil.. þess vegna verð ég líka stundum dáldið sár þegar fólk man ekki eftir afmælinu mínu því þetta er svo AUÐMUNANLEGT... því ég er auðvitað AÐALmanneskjan í lífi allra hahahaha :)

Annars er ég bara hress og kát og ánægð með daginn!

þriðjudagur, nóvember 8

Mér er það lífins ómögulegt að vera með brjóstsykur án þess að bryðja hann... ohh það fer svo í mig! Ég vaknaði nefnilega í nótt með svona þurrkuháls og staulaðist fram og náði mér í hálsbrjóstsykur.. bruddi hann og fór svo að sofa.. og svo núna áðan var ég að fá mér og bruddi um leið. Svo fékk ég mér annan og ætlaði að hafa hann heilan þangað til hann yrði búinn.. en áður en ég vissi af köttaði ég hann í tvennt með tönnunum... rak upp pirringstón og Erla sem situr við hliðina á mér.. "hvað?" .. ég bara "æji ég get aldrei fengið mér brjóstsykur án þess að bryðja hann!" hehhehe.. ég veit ekki hvað hún heldur um mig!!

Úr munni rudda kom fnykur,
en þá kom til hans gyðja.

Bruddi ruddi brjóstsykur?
Mentolið hann skyldi bryðja.

mánudagur, nóvember 7

Ohh my gad.. Pétur; ertu að reyna að drepa mig???

Vá hvað mér brá þegar ég opnaði bloggið.. krípí uglur dauðans!

Ég var hrakfallabálkur í gær .. ég var semsagt á fullu seinnipartinn í gær að taka til heima hjá mér.. og var að fara með fullan svartan ruslapoka af flöskum og ferðatösku niðrí geymslu...

Nema hvað að ég var hálf valhoppandi niður tröppurnar í stigaganginum og svo hélt ég að ég væri komin niðrá pallinn, en neinei þá var ein trappa eftir og ég bara hrasaði niður á ferðatöskuna og sneri uppá ökklann á mér.. það var ekki gott!

Svo haltraði ég niður með draslið inní geymslu og þurfti svo að dröslast með þvottavélina fram á gang þar sem það á að mála þvottaherbergið í hólf og gólf í vikunni.. en fór svo upp og skipti á rúminu.. þar sem Kristín Anna gubbaði pínu í það í gærmorgun.. neinei þá átti ég ekkert lak hreint.. þannig að ég þurfti að sofa á undirlakinu og ég get ekki þvegið .. jú því þvottavélin er frammi á gangi!

En samt.. það er ótrúlega fínt heima núna og ég er með mongó ökkla.. mótar ekki fyrir kúlunni.. en ég er samt bara þakklát fyrir að það hafi ekki verið verra!

laugardagur, nóvember 5


Jæja Kristín Anna í fyrsta sleep overinu hjá mér.. rosagaman.. Ég sótti hana um hálffimm leytið og við skutumst í heimsókn til Önnu B og Roberts... Náðum að bræða þau held ég.. allavega Önnu B :)

Svo fórum við í búð að kaupa í matinn og rassakrem og Kristín Anna sat í innkaupakerrustólnum.. ég veit ekki hvort þetta hafi verið fyrsta skiptið hennar, en henni fannst það allavega ekki leiðinlegt..

Svo fórum við heim og ég gaf henni bananamauk og graut og mjólk og svo í háttinn, hún var nú fyrst pínu hrædd eitthvað og hágrét og Anna frænka var bara með sting í hjartanu, en svo hélt ég við snudduna og strauk á henni ennið og hún bara steinsofnaði med det samme.. svo rumskaði hún aftur en ég náði með svona ennisstrjúki að svæfa hana.. litla músin :)

Svo bráðum ætla ég að fara uppí til hennar og kúra hjá henni.. ég mun ekki sofa fast, en það er þess virði þegar maður fær að hafa nöfnu sína hjá sér! :)

föstudagur, nóvember 4

Rufus Orlando

Jæja loksins náði ég í myndavélina til mömmu og pabba í gær og er búin að setja inn nýjar myndir í albúmið, úr þrítugsafmælinu hennar Beggu og Englandsferðinni!

Og hann Rufus frændi minn er æææði.. ég féll alveg fyrir honum.. sætasti frændi minn í öllum heiminum! :)

Ég fór í mat til mömmu og pabba í gær og Einar og co voru þar líka og það var bara eins og við hefðum ekki sést í 2 ár.. en það voru í rauninni 10 dagar, því að ég komst ekki í sunnudagssteikina sl. sunnudag.. alveg magnað! Mest gaman fannst mér auðvitað að knúsa litlu frænkur mínar, Auði Aþenu og Kristínu Önnu.. og hver veit nema að ég fái þá síðarnefndu í næturgistingu um helgina! :)

Svo á ég eftir að henda inn myndum frá kvennafrídeginum og nokkrum fjölskyldumyndum!

Góða helgi!

fimmtudagur, nóvember 3

Hahaha ég er að hlusta á Bylgjuna hérna í vinnunni alla daga og hún er alveg að koma mér á óvart.. mikið spilað af íslenskri tónlist svona 10-20 ára gamalli og líka bara allskonar gömul og góð lög en allavega áðan þá var kynnirinn að tilkynna að árgangur '87 úr Seljaskóla væri að fara að hafa reunion á næstu helgi sem er kannski ekki í frásögur færandi... nema að þau vildu heyra Gaggó Vest með Eika Hauks.. og það væri svo fyndið því að hann kenndi þeim nefnilega!

En þau voru nú bara nýfædd þegar hann var að kenna í Seljaskóla.. þetta var þegar ég var svona 10 ára.. hann kenndi sögu og tónmennt minnir mig! Annars á hann Eiki Hauks helvíti marga góða smelli td. "Gull Gull Gull það er skíraguuuuuuull, flaug úr Mýrinni.. ræræræræ" !

Ég ætla að fara að fá mér áskrift á Tónlist.is núna í einn mánuð og downloada fullta f íslenskum slögurum.. td. Pálma Gunnars og svona! :)

Já ég er lúðína!

miðvikudagur, nóvember 2

Snilld ég er búin að taka mér það bessaleyfi að kópera link af blogginu hans Hemma litla bróður hennar Sigrúnar.. en það er gamall og góður skets úr Fóstbræðrum.. sem eru by the way mestu snilldar gamanþættir ever!

Spliff Donk og Gengja .. nauðsynlegt fyrir hvert heimili!

Ok ég veit ég var að röfla um þetta um daginn að Plúsinn og Fimman væri bara svindl en viti menn.. ég var að fá meil áðan frá Plúsnum:

Sæl
Þú ert vinningshafi vikunnar á Plúsnum. Vinsamlegast sendu mér símanúmerið þitt svo við getum haft samband við þig og afhent þér vinninginn!


Já krakkar mínir.. á dauða mínum átti ég von.. en ekki að vinna 20.000 kall í þessu!
Weeeeeeeeeee gaman gaman!