Jæja fólkenz.. eruði alveg að
missa ykkur?? Nei maður spyr sig! hehehe :) Híhíhí
En ég ætla ekkert að skrifa mikið um það
nýja í lífi mínu, maður vill nú ekkert
jinxa það .. en til að segja hvað það er í
MJÖG grófum dráttum, þá er ég búin að eignast
góóóðan viiiiin eins og mamma myndi segja það! Eins og td. þegar fréttist að Lea frænka mín væri farin að slá sér upp, þá sagði mamma alltaf Lea og
viiiiinur hennar .. sko en þegar hún kom var búin að koma og sýna hann stórfjölskyldunni heima hjá
ömmu í sunnudagskaffinu, þá var það orðið Lea og Unnsteinn!
Þannig að ég ætla ekkert að vera að segja neitt frekar um vin minn sem ég kýs að kalla kærasta, fyrr en að þetta er komið það langt að ég geti farið að sýna hann ömmu og fjölskyldunni sem er
ekki tímabært að svo stöddu!
En annars átti ég ótrúlega
skemmtilega helgi, fór í 25 ára afmæli á föstudagskvöldið hjá stelpu sem ég var að vinna með í MR, hitti þar allar stelpurnar sem ég var að vinna með og við gátum rifjað upp
fyndin móment á skrifstofunni og slúðrað pínku og mikið er ég fegin að vera hætt þar.. get ekki sagt annað!
Svo til að gefa
frú Lilju frí frá hinni óhávaðasömu dóttur hennar Auði Aþenu, þá fórum við frænkurnar í
sund og svo á
pulsuveitingastaðinn okkar, sem er Snæland í lindahverfinu og svo í Limalindina.. um kvöldið var ég svo með vini mínum hehe, og við fórum á
Saw II sem var frekar
nasty og brutal mynd.. en ég hafði góða hendi til að kreista! :)
Svo á sunnudaginn var mér og Auði Aþenu boðið í 4 ára afmæli hjá henni Ásu Maríu sætu, sem og við fórum í og það var rosafjör.. svo var bara dúllerí um kvöldið :)
Ég bið forláts að hafa ekki bloggað í gær, ég veit ég á að gera það á virkum, en það var svo mikið að gera í vinnunni og líka um kvöldið og eigilega núna líka, ég er bara að
stelast til að blogga hérna.. nóg að gera á þriðjudögum nebblega!
Svo var ég að fatta að
jólin eru bara að koma!!!!!