Hvaða bloggari af
guðs náð kannast ekki við það að hafa verið með eitthvað svo
sniðugt í hausnum til að blogga um. Liggja uppí rúmi alveg að sofna og með alveg brilliant pistil og hugsa;
"já þetta ætla ég að skrifa um á morgun" ... svo sest maður við tölvuna daginn eftir og
rámar ekki einu sinni í hvað var svona djöfull sniðugt uppí rúmi í gærkvöldi! Já ég er í svoleiðis aðstöðu núna!
Ég er annars búin að komast að því að
ég er svona
"leiðinda parakelling" eins og ég hélt ég væri ekki orðin og hef alltaf haft mikla
fordóma gegn svona stelpum sem hætta að hringja í vinkonur sínar þegar þær eignast kærasta. Ég er þannig, þótt mig langi það ekki. Ég hef reyndar ekki þessa þörf fyrir að vera úti að gera eitthvað með vinkonum mínum öll kvöld eins og í den. Þegar maður var
friðlaus heima heilt kvöld.. þá varð alltaf eitthvað að vera í gangi, verið að hanga heima í herbergi hjá einni, eða hanga útí sjoppu eða opið hús í Seljaskóla 2svar í viku. Svo þegar maður var orðin aðeins eldri þá tóku kaffihúsin við og keila og billiard og rúnta og bíó og allskonar..
Núna er maður greinilega orðin aðeins
eldri og latari og finnst bara fínt að vera heima mörg kvöld í röð að gera ekki rassgat. Nema að maður er náttúrulega kominn með heimili, það þarf að þrífa, þvott þvotta, elda og ýmislegt. Svo er maður að
vinna, svo er ég í félagsskap utan vinnunnar sem getur tekið 2 tíma á dag.. og svo
loksins þegar maður hefur heilt kvöld eftir vinnu að gera ekki neitt, er það svo ljúft að slappa af og gera ekkert. Ekki misskilja mig, mér finnst líka alltaf gaman að fara út og hitta vinkonur og fjölskyldu en það er oft svo
erfitt að drulla sér í þann gír að drulla sér út.
Hvernig verður þetta þá þegar maður eignast krakka, þá kemst maður bara örugglega ekkert neitt.. sérstaklega þegar maður er kominn útá vinnumarkaðinn aftur..
Já krakkar mínir.. ég gat skrifað helling án þess að hafa ætlað að skrifa þetta.. og ennþá er ekki þetta rosalega sniðuga sem ég var að hugsa um í gærkvöldi komið í kollinn á mér! En ef það skýst sem
elding niður í haus minn skal ég
hripa það niður og skrifa um það... það er að segja ef mér finnst það ennþá eitthvað sniðugt!