pælingar, nöldur og skemmtilegheit...

mánudagur, febrúar 27

Hérna er alveg rosaleg frétt! Ég hélt ég myndi deyja úr hlátri!
..svo hryllilega flippuð hún Marsibil!
_________________________________________

Ég var að hugsa um daginn hvað íslenskan er geðveikt flippað tungumál! Eins og td. orðið "innlegg", getur þýtt svo margt.

Dæmi:
Innlegg í umræðuna.
Nærbuxnainnlegg.
Bankainnlegg.

**** RITSKOÐAÐ ****

Ræríræææ *bjánahrollur*

föstudagur, febrúar 24

Skoðið þessa frétt!
Svo sem ekkert athugavert við fréttina sjálfa.. en hvað er með myndina?
Var hún tekin þegar Kroppinbakur ákvað að kaupa sér hóru?

miðvikudagur, febrúar 22

Smásaga
Guðríður Sörensen vaknaði snemma þennan morgun. Hún vissi að þessi dagur myndi verða öðruvísi en aðrir dagar, hún var búin að ákveða að þennan dag myndi hún framkvæma hlut sem hún var búin að plana í mörg ár. Dagurinn var mánudagurinn 14. júní, árið var 1969. Á morgun yrði hún þrítug.
Hún var búin að klæða sig í fallega brúna kjólinn með litlu bleiku blómunum á, fara í hvítar espadrillur og setja í sig tvær fléttur í hárið. Svo setti hún upp stóru gleraugun með brúnu plastumgjörðinni. Hún ákað að vera stallsystrum sínum samkvæm og fór ekki í brjóstahaldarann. Rauðsokkurnar sögðu að þeir væru óþarfir.
Síðan smurði hún sér flatköku með sméri og osti og fékk sér nýmjólkurglas með. Hún heyrði í umferðinni fyrir utan gluggann og í fólkinu sem var að labba niður götuna, á leið í vinnu. Hún bjó við Laugaveginn, nánar tiltekið nr. 34, upp í risi. Íbúðin var fallega skreytt með blómum og ilmaði af reykelsi. Slæður héngu fyrir gluggunum.
Það var sól úti og júníhiti, loksins var sumarið komið og á morgun myndi allt breytast, fertugsaldurinn myndi færast yfir hana. Hún fann þegar ein hárrotin dó og hárið fölnaði og varð grátt á augabragði.
Í dag ætlaði hún að gera nokkuð sem myndi breyta öllu lífi hennar. Hún var búin að búa ein í risíbúðinni síðan haustið 1963, en þá hafði hún ákveðið að fara að lifa sjálfstæðu lífi. Flutti til borginnar. Fór að vinna í Búnaðarbankanum í Austurstræti. Margir í sveitinni héldu að hún kæmi strax aftur vestur en svo var ekki.
En nú var kominn tími til að halda af stað niðrí Bankastræti. Á leiðinni rakst hún á gamlan kærasta, hann Tímóteus eða Tímó eins og hún var vön að kalla hann. Þau skiptust á fréttum og hann sagði henni að hann væri nýbúin að eignast dóttur, hana Mjöll. Guðríður þóttist samgleðjast honum og knúsaði hann en innst inni varð hún döpur. Afhverju hafði hennar líf ekki farið á þennan veg? Afhverju átti hún ekki kærasta? Henni dauðlangaði í barn. Hún fann aðra hárrót springa og vissi að annað grátt hár hefði bæst í hópinn. Hún hristi af sér depurðina og varð að drífa sig á áfangastað. Hún átti tímann klukkan tíu niðrí Bankastræti. Hún varð að labba hraðar. Hjartað í henni hamaðist, hún trúði ekki að hún myndi láta verða af þessu. Eitthvað sem myndi breyta lífi hennar.
Hún opnaði hurðina rólega, það klingdi í bjöllum sem héngu innan á hurðinni. Eldri kona í bleiku pilsi og ljósblárri blússu og í hvítum slopp yfir tók á móti henni og spurði hvort hún væri Guðríður. Hún játti því og konan bauð henni sæti á þykkum og þægilegum stól. Á móti stólnum var stór spegill á veggnum.
Guðríður horfði í augun á sjálfri sér og spurði sig hvort hún væri tilbúin í að taka þetta stóra skref. Horfði svo vel og vandlega á sig og sagði óvart upphátt: "Já, ég er tilbúin. Ég vil hafa það dökkbrúnt takk." Svo kvaddi hún gráu hárin, eitt tár féll, gleðitár og hún hugsaði með sér að hún myndi vakna miklu unglegri daginn eftir, þrátt fyrir að vera orðin þrítug.


Höf: A.S.

þriðjudagur, febrúar 21

4 störf sem ég hef unnið um ævina:
1. Eldhúsmella í Frímúrarahúsinu
2. Kassadama í ýmsum verslunum
3. Sendill
4. Skrifstofu og bókhaldsstörf

4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur:
1. Með allt á hreinu
2. Moulin Rouge
3. Almost Famous
4. The Doors

4 staðir sem ég hef búið á:
1. Noregi
2. Kleifarseli
3. Rauðagerði
4. Hraunbæ

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
1. England
2. Sólarlönd (Spánn, Portúgal, Krít)
3. Bandaríkin: Minnesota
4. Vestmannaeyjar

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar vel:
1. Lost
2. The L Word
3. American Idol
4. Sex and the City

4 síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
1. mbl.is
2. google.com
3. myspace.com
4. baggalutur.is

4 matarkyns sem ég held uppá:
1. Nautalundir
2. Ostar
3. Sælgæti
4. Pizzur

4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
1. Heima uppí rúmi með Ása
2. Á sólarströnd
3. L.A. Miami Beach og árið er 1967
4. Uppí lazyboy sófa að horfá góða mynd

5 sem eiga að gera þetta líka:
1. Lilja
2. Solla
3. Ásdís
4. Unnur
5. Robert

Ég veit ekki afhverju maður er að svona rugli.. ég sendi fullt af liði á meili svona spurningadæmi um daginn og fékk ekkert tilbaka sniff sniff...
Annars bara gott að frétta af mér.. litaði á mér hárið á Litunarstofu Önnu Sig í gærkvöldi.. er alvöru brúnka núna með glansandi feld.. já bara eins og maðurinn sem vinnur við að smakka Pedigree hundamatinn!

mánudagur, febrúar 20

Vá margt sem gerðist um helgina en samt ekki en samt en samt ekki en samt hehe!
Fór í konupartí með kvensunum í vinnunni á föstudagskvöldið, það var haldið heima hjá einni sem býr í einbýlishúsi í Grafarvoginum.. sem var geðveik flott.. ég er alveg sjúk, væri sko til í að búa í svona flottu húsi en náttúrulega bara ef það fylgdi því einhver til að þrífa! :)

Laugardagurinn var svo bara letidagur fram eftir þangað til að ég fékk mígreni og lagði mig en vaknaði svo til að horfá Júróvisssssiiijón íslenska og auðvitað vann hún Silvía Night shining in the light vinkona mín.. þvílíkt flott sjóv hjá henni! Ég eyddi 297 krónum í hana, sem er nú ekki miðað við að Íslendingar eyddu tæpum 7 milljónum krónum í að styðja gelluna!

Svo ætlaði ég að kíkja í afmælið hennar Unnar um kvöldið en bara meikaði það engan veginn, datt bara næstum því í gólfið þegar ég stóð upp og fór bara að sofa kl 23.. og steinsvaf þangað til um kl. 11 í gærmorgun, þegar ég vaknaði við að einhver "geðsjúklingur" var á bjöllunni frammi.. og ég var að kalla á Ása að opna en hann svaraði mér ekki.. Neinei stóð ekki minn maður með rós frammi á gangi!

Svo dekraði hann við mig fram eftir degi, þetta var alveg yndislegt.. fyrsta skipti á ævinni sem ég hef fengið svona rómantík, stjan og læti!

Svo enduðum við daginn með því að fara til m&p í kvöldmat og þegar ég var að segja mömmu og Lilju mágkonu frá konudagsgjöfinni minni, þá heyrist í Einari bróður; "erhmm já Lilja, til hamingju með konudaginn" .. sú var nú ekki mjög kát... hann verður að fara að standa sig betur sko! Og ekki hafði pabbi gert neitt fyrir mömmu.. iss sko!

Svo fórum við í bíó með Einsa og Lill á einhverja vampíruframtíðarmynd.. ekki mjög góð skemmtun.. hefðum átt að fara á Fun with Dick and Jane eins og við ætluðum upprunalega.....

föstudagur, febrúar 17

Jæja.. hvað er að verða um þennan blessaða heim?
Það kom einhver gella í morgunþáttinn á Fm957 í gærmorgun og fróaði sér þangað til hún fékk það í míkrófóninn í beinni! Ég sá viðtal við Svala og einhverju gellu sem sjá um morgunþáttinn Zuber í Ísland í dag í gærkvöldi og fann svo linkinn á þetta.. og guð minn góður, gellan sat ber undir einhverju tjaldi með míkrafón að fitla í sér og fékk það á mínútu. Ef þessi stelpa er ekki búin að hoppa útí sjó eða flytja til Úganda þá veit ég ekki hvað!! Það verður pottþétt viðtal við hana í Séð og heyrt í næstu viku.. hún fær örugglega sínar 15 mínútúr af frægð útá þetta, gott fyrir hana. Mitt álit: SORI!

Annars var ég komin snemma á fætur í morgun eða rétt fyrir kl 7 og skutla Ása í vinnuna og fór svo aftur heim og horfði á Lost sería 2 þáttur 14! Eins og mér finnast þessir þættir skemmtilegir og spennandi þá finnst mér verið að teygja lopann aðeins of mikið. Þetta er eins og þegar ég horfði á fyrstu seríuna af 24 á maraþon hraða.. og svo var þetta ekkert búið.. neinei og ég held það sé 5. serían núna.. nei ég nenni nú ekki 5 seríum af lost til að vita hver fjandinn er um að vera á þessari eyju!

Ég er að fara í 2 partí um helgina, í kvöld er kvennapartí hjá vinnunni minni, ég er aðallega að fara þangað útaf matnum.. en það verður Tapas.. og svo verður vínkynning og fyllerí. Og annað kvöld verður afmælið hennar Unnsu litlu haldið, hún verður 24 ára snótin á konudaginn sjálfan, eða sunnudaginn! Svo er hún bara að fara að flytja búferlum down under eða til Ástralíu!

Allar vinkonur mínar liggur við fluttar langt í burtu, Ásdís útí Danmörku, Solla í USA, Sigrún á Hvanneyri, svo Unnur til Ástralíu og Anna B líka með útþrá.. en þær koma aftur, ég veit það, þær koma allar aftur!!

Já svo allir að kjósa Silvíu Night annað kvöld!!

Jæja best að vinna eitthvað hérna.. góða helgi allir!

fimmtudagur, febrúar 16

Jæja.. ég verð að játa að ég er heví vitlaus stundum.. en þetta nær engri átt.. ég álpaðist inná bloggið hans Hemma bróður Sigrúnar og fór þar í svona netleik.. svona silly til að eyða tímanum í.. endilega prófið hérna: The Maze!

En samt sá ég myndband af dreng sem var einmitt í þessum leik í gær en var ekkert að tengja núna áðan ... og það er hérna!

Skoðið samt fyrri linkinn fyrst!!

Varúð: Ekki fyrir hjartveika!

miðvikudagur, febrúar 15

Eins og þeir sem eru á msninu hjá mér hafa kannski séð, þá er ég með textann "Stjörnubleiking ehf." skrifað fyrir aftan nafnið mitt, þegar ég er á msn heima. Sem er ekki í frásögur færandi nema að pabbi spurði mig áðan hvað þetta væri...



Ég bara "bara fyrirtæki sem ég og Lilja stofnuðum" og hann alveg .. "ok" og ég sagði honum að þetta væri nýjasta trendið í Hollywood, eða anal bleach! Og hann spurði ekkert meira um það!

En allavega þá er þetta víst í tísku hjá fólki sem er komið með dáldið dökka stjörnu.. semsagt húðin.. kannski vegna lélegs skeinings í gegnum tíðina, ég veit ekki.. en það er semsagt verið að setja klór eða einhvern fjandann á þetta svæði til að lýsa það upp!

Hverjum er ekki sama hvernig stjarnan lúkkar???

þriðjudagur, febrúar 14

Ef þið eruð súr á svip; kíkið þá á þessa fjórbura hérna!
Ps. hafa kveikt á hátölurunum!

Skrítið þegar einhver lög poppa allt í einu uppí hausinn á manni! Þegar ég var að labba í vinnuna í gær var ég allt í einu byrjuð að raula inní mér; "maðurinn hennar Jónínu hans Jóns!!" En ég man ekkert hvernig þetta lag er annars.. þannig ef einhver vill hjálpa mér þá er það vel þegið hérna í kommentunum!

Annars er ég að fara í óvissuferð til útlanda 17.-19. mars.. kostar bara 10. þús fyrir mig! Spennó!

Já og í dag er Pjúkentínusardagurinn.. peningaplokk dauðans.. nýbúið að vera bóndadagur og svo er konudagurinn á sunnudaginn.. ég bíð spennt að vita hvort ég fái eitthvað þá!!!

Annars eiga allar konur að fá blóm á konudaginn, ekki bara kærustur og eiginkonur, pabbi hefur td. oft gefið ömmu blóm held ég á þessum degi.. en ekki mömmu hahaha!

mánudagur, febrúar 13

Vestmannaeyjar 10.-12. febrúar 2006


Ég ákvað bara að setja Vestmannaeyjasöguna inní myndum, þetta var allavega yndisleg ferð og við gerðum alveg helling. Og fjölskyldan hans Ása tók æðislega vel á móti okkur með mat og samveru! Við gerðum held ég allt sem hægt er að bralla á þessum árstíma í Eyjum!

Klikkið á myndina til að stækka hana! :)

Afhverju fer ég alltaf geðveikt hjá mér ef ég segi blæ í lok símtals?

Fréttir af Vestmannaeyjaferðinni koma í kvöld.. kíkið við þá! :)

fimmtudagur, febrúar 9

Var að fá þessa snilldarsögu um barnaafmæli nútímans;

Bekkjarafmælið Ósk Ýr gekk rösklega með Brand Ara í afmælið til Egils Daða því hún var að verða of sein að sækja Leif Arnar og Loft Stein í leikskólann.
Borgar Vörður, pabbi Egils Daða, tók á móti þeim. Þarna voru Lind Ýr, Líf Vera, Sól Hlíf, Ævar Eiður og Hreinn Bolli.
Erlendur Hreimur kom blaðskellandi innan úr stofunni og vinkonurnar Vísa Skuld og Dís Ester fast á hæla honum. Mýra Þoka lét lítið fyrir sér fara úti í horni. Innan úr herbergi Egils Daða bárust ógurlegir skruðningar ? ?#%=&#$&/(=!z#$!/!=!
Línus Gauti, Barði Vagn og Mist Eik voru greinilega mætt. En hvar var Ríta Lín? Fyrir utan var Sædís Líf í rauðum fólksvagni. Hægt og sígandi nálgaðist Jökla Þoka eftir stígnum. Hún var orðin alltof sein í afmælið.

Höf. ókunnugur

Ps. Dís Ester og Ævar Eiður.. snilld!!!

miðvikudagur, febrúar 8

Draumurinn dáinn...

Eins og sumir vita þá keypti ég mér forláta kassagítar í Hagkaup í hittifyrra og ætlaði að fara að læra á hann.. en hef semsagt aldrei komið því í verk. Og allir sem eitthvað kunna með gítar að fara hafa dissað þennan gæðagrip, sagt að þetta væri rammfalskt drasl.. ég meina.. við hverju býst maður fyrir 2.499 kr.

En allavega þá kann hann Ási minn að spila á gítar, var að læra á slíkan hérna um árið og ætlaði að fara að kenna mér að spila í gærkvöldi. Og sagði mér að setja puttana á staðina þar sem maður spilar A-moll eða eitthvað og ég er ekki að grínast, ég er ekki fædd með hendur fyrir gítarstrengi. Puttarnir á mér náðu bara ekkert á alla þessa staði í einu.. ég fékk bara krampa í handabakið og puttarnir voru eins og kræklingar! Og guð má vita að ég reyndi.. en mér er greinilega ekki ætlað að verða gítaristi.. fúlt!

Þá fór Ási bara að spila og við sungum Stál og hnífur og eitthvað.. já lúðaparið steig á stokk.. og þá bara heyrast drunur fyrir ofan.. eins og maðurinn fyrir ofan væri geðveikur að stappa til að mótmæla.. kl. 21 á þriðjudegi.. ég held ég megi nú spila á gítar inní íbúðinni minni þá.. svo var stríð, Ási sló á einn streng, þá kom eitt spark og svo koll af kolli.. frekar fyndið..

Muniði eftir þessu: Mitt mottó er Ottó!

þriðjudagur, febrúar 7

Hjartaásinn minn og ég!

Jæja loksins hef ég ákveðið að setja mynd af okkur skötuhjúunum í Lavatown. Þessi mynd var tekin í góðum fíling hérna heima um daginn. Það var bara fyrir tilviljun að ég kom heim með ný gleraugu þennan dag, þá hafði Ási líka verið að kaupa sér nýjar brillur.. Sem betur fer keyptum við ekki eins sko, það hefði sko verið nördalegt ehhh he he....

Myndaalbúmið er alltaf eitthvað bilað en ég mun setja fleiri nýjar og skemmtilegar myndir inní það við fyrsta tækifæri, líka myndir frá Vestmannaeyjum örugglega!

Einar og Lilja í góðum fíling í brúðkaupsmyndatökunni!

Það eru víst liðin 2 ár í dag síðan Einar bróðir og Lilja giftu sig!
Til hamingju með brúðkaupsafmælið! :)

Svo ætlaði ég að skrifa eitthvað annað geðveikt merkilegt hérna en er búin að steingleyma því!

Ég er að fara til "útlanda" um helgina.. jújú förinni er heitið til The Westman Islands með Ásanum, það á að kynna grísastelpuna fyrir familíunni! Ég hlakka voðalega til.. langt síðan ég fór síðast þangað en það ku hafa verið á Þjóðhátíð 1997 og þá fannst mér ég vera með þeim elstu á svæðinu, þá var ég 21 árs gömul.. hvernig yrði þetta þá núna ef ég færi á þjóðhátíð!..

Það verður líka gaman að skoða eyjuna með allsgáðum augum, ég held það hafi kannski runnið af mér um miðjan laugardaginn á þjóðhátíð þarna í den.. en ekki mikið meira. Svo fáum við að veltast um í Jolla (Herjólfi) í 3 tíma.. mér finnst líka gaman að fara í svona skip.. ekta skemmtiferðaskip! hehe..

En þetta merkilega er ekki ennþá komið í hausinn, þannig að það hlýtur að hafa verið eitthvað ómerkilegt..

Ég horfði á Spaugstofuna á laugardaginn og grenjaði af hlátri af svona 90% af þættinum, eru þetta ellimerki?

mánudagur, febrúar 6

Ég horfði á söngvakeppnina á laugardagskvöldið og jú ég verð bara að segja að mér fannst Silvía Night GEEEEÐVEIKT GÓÐ!! Snilld.. þessi stelpa er snilldin ein! Að hún skuli þora segi ég, kjarkurinn er ekki lítill! Ég og Ási hoppuðum í sófanum með og sungum með.. katsjí tjún eins og maður segir! Auðvitað ekki vandaðasta lagið, geri mér grein fyrir því, en þetta er bara rosa töff show! Og Sigga Beinteins í bakröddunum í skærbleikum stretzbuxum með bandi undir.. ég hélt ég yrði ekki eldri!

Annars fannst mér annað lag þarna rosalega flott en það hét Útópía og Dísella nokkur söng það.. mjög flott melódía og fallegur söngur og spes. En svo þegar hinir útbrunnu skímómenn birtust með kvenmannshárkollur.. þá duttu af mér allar dauðar lýs! Langt síðan maður hefur fengið þvílíkan bjánahroll að horfá eitthvað.. þvílíkt stæling á Wig Wam.. reyna að vera eitthvað töff. Silvía Nótt er þó persóna með stíl! hehe

En þótt ég haldi með henni og vona að hún fari út í aðalkeppnina, þá eigum við nú örugglega ekkert eftir að vinna þetta eins og við höldum alltaf, en við myndum allavega ná athygli! :)

Annars fórum við Ási og pabbi á Munich í bíó í gær og ég var alveg lost.. varð játa fáfræði mína um þessar deilur milli Ísrael og Palestínu... sem ég hefi aldrei nennt að kynna mér.. þannig að pabbi upplýsingafulltrúi var mér til halds og traust og þurfa að taka mann í smá sögustund í hlénu sem var gott.. annars hefði ég bara ekkert fattað þessa mynd, sem er ansi góð. Og ekki spillti kyntröllið Eric Bana fyrir.. *slef*

miðvikudagur, febrúar 1


Guggi frændi minn bað mig um að segja einhleypu vinkonum mínum að hann sé á lausu, skellti þessari mynd af honum bara á bloggið líka.. Hann er reyndar dáldið pikkí, hann vill ekki stelpur sem eru nördalegar og fylgja ekki tískunni. Og ekki stelpur með gleraugu!
Stelpur, sendið honum bara meil á guggi@foli.is !

Ps. Hann er til í að raka yfirvaraskeggið af fyrir réttu stelpuna!

Í framhaldi af síðustu umræðu hér, þá varð ég að stela þessu af síðunni hennar Sollu!
Snilld - Ps. ekki fyrir viðkvæmar sálir gagnvart hægðum!