pælingar, nöldur og skemmtilegheit...

föstudagur, mars 31

Sniðug grein í birtu í dag!
Smellið á myndina til að stækka og lesa! :)



Annars er ég farin uppí Grímsnes í bústað með stórfjölskyldunni!
Góða helgi!

fimmtudagur, mars 30

Ok.. ég verð bara að sýna þetta brot úr viðtali við mann sem lét aðeins pínulítið mikið stækka á sér delann! Maður spyr sig bara; hvað er um að vera í hausnum á sumu fólki???

Sjá videoið hér!

Ps. Ekki fyrir viðkvæma!

þriðjudagur, mars 28

Fékk þennan brandara áðan:

A tour bus driver is driving with a bus load of seniors down a highway when he is tapped on his shoulder by a little old lady.
She offers him a handful of peanuts, which he gratefully munches up.
After about 15 minutes, she taps him on his shoulder again and she hands him another handful of peanuts. She repeats this gesture about five more times.
When she is about to hand him another batch again he asks the little old lady, "Why don't you eat the peanuts yourselves?".
"We can't chew them because we have no teeth", she replied.
The puzzled driver asks, "Why do you buy them then?"
The old lady replied, "We just love the chocolate around them."

It pays to be careful around old people.

mánudagur, mars 27


Já undur og stórmerki gerðust eftir vinnu hjá mér, já, ég fór í ræktina! Ég veit ekki hvað er langt síðan ég fór síðan en þetta er allavega í fyrsta skipti á þessu ári.. oooo mæ gad!
Þetta var bara helvíti fínt og ég hljóp og hjólaði í dágóðan tíma og fór í smá tæki og teygjur..
Og alltaf hugsar maður eftir á; afhverju?? afhverju geri ég þetta ekki oftar??

Ég ætla ekki að vera með of stór orð um að ég ætli að fara á hverjum degi.. en þetta er allaveganna byrjun!

Annars held ég að ég sé með tannpínu.. allavega eitthvað kul í jaxli uppi hægra megin.. en ég var í skoðun um daginn og þar var allt í góðu lagi.. ég er alveg steinhissa!

Í kvöld ætla ég svo bara að chilla uppí sófa og horfá 1-2 Prison Break þætti!

fimmtudagur, mars 23

Hver hefur ekki lent í vandræðum við að skræla kartöflur? Það hef ég allavega verið, þar sem ég fékk mínar alltaf skrældar á diskinn heima hjá m&p.. já það er þjónusta!
En smellið hérna til að horfá hina nýju aðferð, spurning um að prófa!



Annars var ég að lesa þessa frétt á mbl.is .. eymingjas maðurinn!

miðvikudagur, mars 22

Ég veit nú ekki alveg.. get nú ekki sagt að þetta sé satt..

Guys Like That You're Sensitive

And not in that "cry at a drop of a hat" sort of way
You just get most guys - even if you're not trying to
Guys find it is easy to confide in you and tell you their secrets
No wonder you tend to get close quickly in relationships!

þriðjudagur, mars 21

Jæja þá er ég búin að setja inn myndir frá ferðinni.. þarf endilega að henda fleiri eldri myndum inn við tækifæri.. Annars er ég bara þreytt eftir ferðina.. hef ekkert að segja í bili!

Myndir frá Bratislava

mánudagur, mars 20

Jæja þá er maður kominn heim úr óvissuferðinni. Við fengum að vita hvert við vorum komin ekki fyrr en við lentum! Og það var Bratislava í Slóvakíu! Mjög mögnuð tilfinning að vita ekkert hvert maður er að fljúga og ekkert hvenær vélin lendir.. en þetta var um 4 tíma flug.

Svo var farið með okkur á Holiday Inn hótel.. voðalega fínt og við kíktum strax niðrí bæ og fengum okkur að borða. Og það kann nánast enginn ensku þarna.. mjög erfitt að tjá sig við þjóna og afgreiðslufólk. En svo var okkur bent á að við gætum labbað í eitt mollið og gerðum við það með því að labba yfir Dóná, ég reyndi samt að finna einhverja dóna í henni en það var nú ekki! Reyndar eitt dónapar að kela á brúnni!

Svo fórum við út að borða á voða flottum veitingastað um kvöldið sem heitir Tempus Fugit, sem þýðir Tíminn flýgur.. og var það í húsi sem var byggt á 14. öld!

Svo á laugardeginum, fórum við í morgunmat kl 9.30, rosaflottur morgunmatur. Svo fórum við í annað moll og löbbuðum þangað .. rosaleg fátæktargettó þarna.. allt grátt og hrörlegt.. en vorum í mollinu til hádegis og þá fórum við í borgarferð með guide.. rosalega gaman og heimsóttum rosalega flottan eldgamlan kastala frá 13. öld, við enduðum svo ferðina á að fara og fá okkur smá mat. Og þar lenti ég í því að fá mat sem var óætur og ég þurfti að skila honum og fá nýtt. En það var bara smá krydd í tilveruna!

Svo um kvöldið var árshátíðin haldin á rosalega flottum stað, risastóra kristalskrónur í loftum og svona 8 m lofthæð og allt skreytt. Og á efri hæð sem var svona opin var Casino, sem nokkrir misstu sig í.. ég er nú svo mikil skræfa að ég horfði bara á hina! Svo var íslenskur plötusnúður með í ferðinni, DJ Júlli.. hann spilaði nánast bara íslenska músík rosa gaman.. þangað til að hann fór að spila sömu lögin 2-3svar.. en dansaði af mér fæturnar.. svo fórum við heim kl. 2 með rútu uppá hótel.

Svo vaknaði ég bara dead í gærmorgun, eins og ég hefði drukkið heilan kassa af bjór.. með þynnkuhausverk og búin í kroppnum... dreif mig í sturtu og morgunmat og svo tékkuðum við okkur útaf herberginu og skruppum í mollið og eyddum síðustu slóvakísku krónunum sem verða bara pappír eftir ár, en þá kemur evra þarna. Og fórum svo að borða á skoskum pöbb. Svo aftur uppá hótel að bíða eftir rútunum sem fóru frá hótelinu kl. fimm en þá tók við önnur bið á flugvellinum sem var algjör skítapleis. Sjoppan sem seldi lesefni var lokuð og einn matsölustaður. Og ég var ennþá þvílíkt þreytt og slöpp með hausverk og fékk 2 verkjatöflur hjá sessunaut mínum í vélinni og steinsofnaði. Vaknaði ekki fyrr en hálftíma fyrir lendingu! Algjör snilld!

Svo fór ég heim og það var svo gott að hitta hann Ása minn og sofa í rúminu mínu ahh.
Ég er ótrúlega ánægð með þessa ferð til Bratislava, en ég efast um að ég eigi eftir að fara þarna aftur í frí sko... en það var fínt að borga 10. þúsund kall fyrir svona ferð!

Ps. Á eftir að setja inn myndir frá ferðinni og fleiri..

miðvikudagur, mars 15

Hahahaha hláturinn lengir lífið!

Eftir að ég las komment frá Ölmu frá síðustu færslunni hérna fyrir neðan, þá fór ég að ímynda mér ógeðslega fyndið að mér finnst allavega; Ég og vinkonur mínar á elliheimilinu í framtíðinni, allar aftast í rútunni á leiðinni í bónus að syngja; áfram áfram áfram bííííílstjóóóórinn! Og deyja svo allar úr hlátri þegar við syngjum eins hátt og við getum; allar stelpur borða popp, allir strákar pissa í kopp!!!

Svo förum við í kapphlaup um Bónus, hver verður fyrst að versla inn, hver verður fljótust að setja í pokana og hver eyddi sem minnstu! Labba svo í hægðum okkar útí rútu og láta nokkur prump laumast út og hlæja þessi lifandis ósköp og segja svo við bílstjórann: Hvenær ætlaru að fokking drullast af stað, við erum að missa af þætti nr. 245.499 af Leiðarljósinu!!

Ætli við verðum í Diesel gallabuxum og bol úr 17 og háhæluðum kúrekabútsum, með sléttað sítt hár með strípum í? Eða munum við fara í rósóttu kjólatískuna, gráa kápu og permanent? Það er stóra spurningin sem brennur á vörum allra.. en við verðum bara að bíða og sjá til!
Nú er bara um að gera að fara að panta plássið á Hrafnistu stelpur, svo við fáum allar herbergi á sama ganginum, íííhaaaaaa!

þriðjudagur, mars 14

Ég er hætt.

Nenni þessu ekki lengur, hver er tilgangurinn?
Ég er hætt.


Hætt hverju, myndu sumir spyrja sig.. ég er hætt að vera ég, ætla að verða einhver önnur.
En hvernig er það hægt?
Ég fer bara í Hagkaup og kaupi mér nýjan persónuleika á 199 kr. stk.

_______

Vá dýpsta ljóð sem ég hefi samið..

Ég hafði nóg að gera um helgina við að sinna tengdó, og sit uppi með spennufall eftir heimsóknina, þar sem ég er búin að vera með hausverk og slappleika í gær og í dag. Sumir myndu harka af sér og mæta í vinnuna, engann eymingjaskap.. en ég tók þá ákvörðun að vera heima.

Ekki misskilja mig, það var æðislegt að hafa hana og get yfir engu kvartað, það fór ekki mikið fyrir henni. Við skruppum í Kringluna, bíó og svo í mat til mömmu og pabba og í aðra heimsókn með henni.. mjög skemmtilegt og gaman.

Ég skaust í Bónus rétt áðan og þar voru 2 rútur með elliheimilisfólki í Bónusleiðangri.. ætli maður endi svona?

föstudagur, mars 10


Smellið á myndina til að sjá restina af brandaranum!

Annars er helgin að koma og við Ási verðum bara eitthvað að dúlla okkur með mömmu hans sem er hérna í heimsókn yfir helgina! :)
Annars lenti ég í því að gleyma sjalinu mínu sem mamma vinkonu minnar heklaði og mér þykir ótrúlega vænt um, í fundahúsi nokkru hér í bæ fyrir viku síðan. Og ég var búin að gleyma að hringja alla vikuna og gá hvort það væri nokkuð þarna.. svo fór ég aftur í gær og viti menn, það hékk uppá snaga! Ég var ekkert smá ánægð, ég hafði einhvern veginn á tilfinningunni að sjalið myndi bíða þarna eftir mér.. ég var búin að treysta því að einhver æðri máttur myndi sjá um það fyrir mig! :)
En eníveis gúten helgen meine freunder!

fimmtudagur, mars 9

Svona í tilefni af fuglaflensunni þá ákvað ég að hafa kjúkling í matinn í gær, en mér finnst alltaf hálf dónalegt að láta fuglinn liggjandi svona útglenntan í ofninum, þannig að ég skellti honum í dúkkubikiní sem ég á og svona var hann þegar ég var búin að svipta af honum klæðunum!



Annars var ég að búa til könnun hérna til hliðar um uppnefni á getnaðarlimum, mér datt þetta í hug í gærkvöldi þegar ég var að hugsa um að sumir kalla kvikindið "sá eineygði" eða "eineygði snákurinn" .. klígjulegt!!!

En endilega svarið.. munið það er nafnleynd í boði!

miðvikudagur, mars 8

Ok, mjaðmatískan var soldið ýkt, en er þetta ekki aðeins of háar buxur?
Smellið á Kate til að sjá betur..


Macaulay Culkin segir leikaraferli sínum lokið

Er þetta nú einhver frétt? Hefur hann leikið í einhverju öðru en Home Alone?

Afhverju er hann hræddur við Mikjál? Eru þeir ekki vinir?


þriðjudagur, mars 7

Maður er alltaf að heyra um allskyns sora sem gengur á hérna í þjóðfélaginu nú til dags. En það var ein sem er fimmtug hérna í vinnunni að segja okkur frá því þegar hún fór í skólaferðalag með Versló fyrir 30 árum. En þá um miðja nóttina vaknar hún upp við einhver grísahljóð og fleira og hugsar með sér að það sé villidýr inní salnum sem þau sváfu öll í. Neinei þá var bara ein gellan svona 17-20 ára gömul að hleypa á sig. Og það voru 7 í röð sem tóku hana... ó mæ gad sko!

Þannig að þetta er svosem ekkert nýtt af nálinni.. bara meira talað um þetta nú til dags held ég.

Annars á hún Lilja mágkona mín afmæli í dag, orðin 26 vetra gömul snótin.. enda komin smá gömlufólkalykt af henni.. híhí.. ég fór með henni í Smjörlindina í gær og hún valdi sér Pilgrim eyrnalokka í gjöf frá mér og svo hálsmen í stíl frá mömmu og pabba.. geðveikt flott! Ég er að spá í að gefa henni bara eitthvað annað og eiga þetta sjálf! híhí dííííjók

Það verður boðið uppá fiskisúpu heima hjá Lilju í kveld.. það verður nú huggulegt!

Svo á Alda frænka mín líka afmæli í dag, hún er aðeins eldri en Lilja eða "29 vetra".. þið vitið að konur verða ekkert eldri en það! :)

mánudagur, mars 6

Hver kannast ekki við það að vakna á mánudagsmorgni, heyra í köldum vindi hvína úti og augnlokin svo þung að maður byrjar að ímynda sér að maður sé nú örugglega lasinn eða með hausverk eða með einhverja ástæðu fyrir því að fara ekki í vinnu eða skóla? Svo sparkar maður sér fram úr á síðustu stundu og klæðir sig og pínir sig út og svo þegar maður er mættur í vinnuna eða skólann þá er allt í lagi með mann! Svoleiðis var minn morgunn... langaði bara að vera heima undir sæng í allan dag. En núna er ég sko fegin að hafa drifið mig út annars hefði ég legið heima með samviskubit í allan dag. Þetta er einhver sjálfsvorkunn.. aumingja ég að þurfa að mæta í vinnu kl 9 og sitja á rassgatinu inní hlýjunni í allan dag..

En ég horfði á Touching the Void í gærkvöldi og þvílíkt og annað eins. Þessi fjallaklifrarar eru nú meiri kallarnir. Og þvílíkt kraftaverk og lífsvilji sem var til þess að annar gaurinn lifði af eftir að hrapa oní jökulsprungu.. úff.. mæli með þessari mynd fyrir þá sem ekki hafa séð hana.

Svo var ég að horfá Lost í gærdag, 15. þáttinn í seríu tvö.. og hann var bara góður.. manni langar allavega að horfá næsta! Og svo var ég líka að horfá 10 liða stelpna úrslitin í American Idol.. ótrúlegt hvað þær kunna að syngja en syngja leiðinleg lög.. ég verð nú bara að segja það!

Annars fór ég á grímuball um helgina og ákvað að fara sem Fatman og setti inn mynd af mér í búningnum hérna til hliðar.. þess má geta að ég vann í flokknum "Ofurmenni" ..

Ég er södd eftir fiskinn í hádeginu, mér líður eins og ég sé að springa, líður eins og ég sé í rauða glansgallanum á myndinni, gleymdi bara grímunni heima...

sunnudagur, mars 5

Ef ykkur langar til að sjá mjög lélega og fyrirsjáanlega kvikmynd þá skuluð þið leigja ykkur myndina Red Eye. Þvílík hörmung og klígjulegir leikarar og asnaleg mynd. Myndin byrjar með rosalegri spennumúsík en samt er það bara stelpa sem vinnur í hótelmóttöku sem er að fara í flug, sem seinkar. Þá hittir hún gaur sem er með krípíngslegustu augu sem ég hefi séð og hann er voða kammó og bíður henni í glas. Neinei svo fer hann á undan henni inní vélina en viti menn, sætið hennar er akkúrat við hliðina á honum!
Svo kemur í ljós að hann er búinn að plotta þetta því hún á að breyta um herbergi fyrir einhvern þingmann sem er að koma á hótelið sem hún vinnur hjá, því gaurinn með augun ætlar að myrða hann. Og hún er náttúrulega oft búin að hitta þennan þingmann sem er fastagestur þarna og fer að gráta. En þá hótar hann að myrða pabba hennar ef hún hringir ekki á hótelið og lætur samstarfskonu sína ekki breyta pöntunni, og samstarfskonan er auðvitað nýbyrjuð og hrædd og kann ekkert.
Æji þið getið ímyndað ykkur restina og það er örugglega rétt útkoma..

En núna ætla ég að fara að horfá Touching the Void og vona að hún sé skárri.. hef allavega heyrt fína hluti um hana! :)

föstudagur, mars 3

Mikið er gott að hafa byrjað á túr á 20. öldinni og bara þurft að nota þykk Sjafnarbindi með límrönd og poka fyrir notuð...



adopt your own virtual pet!



Ég var að ættleiða þennan grísadreng, þið megið endilega leika við hann með því að klikka á hann og gefa honum að borða og spreyja á hann vatni með því að fara í More! :)

fimmtudagur, mars 2

Jæja mér fannst kominn tími á útlits peppöppi hérna.. alveg komin með ógeð á hinu!

En allavega þá gerðum við dáldið flippað í gær, ég og Ási, eins og hjónin í fréttinni á baggalút um daginn, en ákváðum að fara í Bónus í Smáranum frekar en í Hraunbænum eins og alltaf!
Og vá við náðum að eyða dágóðum slatta þar.. miklu meira úrval og svo vorum við líka bæði svöng að versla sem er ekki sniðugt, en samt núna eigum við fulla skápa af mat sem er gaman!

Pabbi á afmæli á morgun, ár komið síðan við héldum surprise partíið fyrir hann, vá hvað tíminn er fljótur að líða! Annars er ekkert að segja.. ég er andlaus!

Ég er víst að fá tengdamömmu mína tilvonandi í næturgistingu í næstu viku.. hún þarf að fara til læknis hérna í höfuðborginni blessunin.. það verður bara fínt. Bara dáldið fyndið, maður er búinn að heyra svo margar horror tengdamömmusögur.. en ég er nú búin að hitta hana tvisvar og efast um að hún verði okkur til ama! :) Veri hún bara velkomin í kotið okkar!

Jæja vona að þið venjist nýja lúkkinu, ég varð bara að flikka upp á þetta eða hætta að blogga, er nefnilega með blogg leiða dauðans og 2 vinkonur mínar urðu alveg klikk þegar ég sagðist ætla að hætta þessu bara.....

miðvikudagur, mars 1

Ég trúi þessu ekki... ekki aftur..
Ég vaknaði kl 5.30 í morgun og byrjaði að klæða mig í hafmeyjubúninginn og græja hárið og allt það.. það tók mig um hálftíma að komast útí bíl.. erfitt að labba í svona sporð.. og ennþá lengur að keyra í vinnuna.. þar sem það er dáldið erfitt að ná á kúplinguna og bensíngjöfina í þessum djöfuls sporði.. Svo þarf ég að labba upp tröppur til að komast inná skrifstofuna.. og nei..... VITI MENN!!! Enginn annar í grímubúning.... ég lét plata mig aftur... þannig að núna sit ég geðveikt paþþetikk hérna við skrifborðið mitt í hafmeyjubúning.. og verð að vera svoleiðis til kl. 16.. ég tók engin önnur föt með mér.......Þetta var þó skárra en í fyrra á öskudaginn þegar ég fór í Spiderman búningnum í strætó í vinnuna... það var pínlegt!
___________________

Hver man ekki eftir þessu innleggi frá mér í fyrra.. og einhverjir trúðu þessu!
Múhahahhahha

Ég labbaði í vinnuna í morgun og þetta var hin mesta skemmtiganga! Grímuklæddir krakkar, ég sá einn skjálfandi Tweety labba hjá Evilfelli.. hefði átt að fara í gammósíur innan undir! Svo sá ég eina Silvíu Nótt svona 9 ára.. algjört krútt!
Annars finnst mér fyndnast að sjá alla þessa foreldra rúnta á milli fyrirtækja hérna með fullan bíl af krökkum og bíða útí bíl á meðan krakkarnir fara að syngja og nammast!

Ps. Ætli það séu engir strákar í Hommi og Nammi búningum?