pælingar, nöldur og skemmtilegheit...

sunnudagur, apríl 30

Jæja þá er ég nýkomin heim af Holtinu... ekkert smá flottur staður. Allt voða gamaldags en þvílíkt elegant og flott. Náttúrulega alvöru þjónar (þeas. lærðir) og rosalega flottur og góður matur. Fengum hvítlauksristaðan humar í forrétt, nautalund í aðalrétt og volga súkkulaðiköku og ís í eftirrétt og svo kaffi og heimalagað konfekt og koníak fyrir þá sem vildu. Enda voru menn orðnir mis ölvaðir þarna.. búið að vera allt frítt og vaðandi í víni síðan klukkan sjö!

Ég reyndi meiri að segja að smaðra við yfirmanninn, svo hann Ási komist með til Florida.. en þótt pínu ölvaður væri kallinn þótt er þetta víst vonlaust.. :( en ég hlýt að lifa án hans Ása míns í þessar tvær vikur! En Ási er sumsé að vinna í þannig vinnu að aðalvertíðin er akkúrat þarna maí-ágúst og ekkert hægt að fara neitt..

En annars var ég að finna nýjan skemmtilegan net tölvuleik á netinu.. hahaha .. já það vill svo skemmtilega til að þessi netleikur er á netinu.. og núna ætla ég að hefna mín á Elínu Sam sem að gerði mig húkt á Bubbles á sínum tíma og setja inn linkinn!
Smella hér til að spila Curveball!
Ég skora á þig Elín.. að komast uppí level 10 á undan mér!

föstudagur, apríl 28

Girnilegt?


Og svo finnst okkur Íslendingum skrítið að Kínverjar borði hunda og einhverjir aðrir steikt skordýr og ýmislegt.. mér finnst þetta ekkert skárra... mjög furðulegt að þetta skuli vera borðað enn þann dag í dag þegar nóg er úrvalið af allskonar mat..

Annars er ég að fara á Hótel Holt annað kvöld með vinnunni hans Ása pjása mínum.. það hljóta að vera einhverjir betri partar af skepnum á borðstólum þar...

Svo er lööööng helgi.. sem er goooootttttttt!

fimmtudagur, apríl 27

Ég er Íslandsmeistarinn í að segja eitthvað klígjulegt, td.:

Kanntu Annan, Kofi?

Lægð yfir landinu..

Það er blogglægð hjá öllum bloggurunum sem ég þekki.. nema þá kannski Sollu og Ásdísi.. en þær búa líka í útlöndum! Maður hefur ekkert að segja........

mánudagur, apríl 24

Við skulum hafa það á hreinu að stolnu jakkafötin á Selfossi voru klæðskerasaumuð!!
Sjá frétt hér!

sunnudagur, apríl 23

Ég er búin að vera í einhverjum nostalgíufíling að finna ýmis gömul myndbönd sem ég og vinkonurnar horfðum á í gríð og erg hérna á árunum 1988-1990 ca. Mjög gaman að horfá þetta! Góða skemmtun!

Push it - Salt'n Pepa

Girl you know it's true - Milli Vanilli

Kokomo - Beach Boys

3am eternal - KLF

Together forever - Rick Astley

MC hammer time

Step by step - New kids on the block

laugardagur, apríl 22

Ó mæ gad, ég var að finna þetta myndband sem var einu sinni uppáhaldslagið og hljómsveitin mín Technotronic.. alger snilld síns tíma!´
Fyrsta vínylplatan sem ég keypti fyrir mína eigin peninga rétt eftir að ég fermdist!

föstudagur, apríl 21

Er Tom Krús eða Bolli?

Nei maður spyr sig.. hann er aðbúinn að missa vitið, að ég held, þessi fjallmyndarlegi maður sem maður slefaði hérna yfir í den þegar hann lék í Top Gun og Coctail!
Svo gaf hann út þá tilkynningu að hann ætlaði að snæða fylgjuna og naflastrenginn þegar barnið þeirra Katie og hans myndi fæðast og að barnið myndi fæðast í þögn. Og núna var frétt á mbl.is að það heyrðist víst ekkert fyrir utan fæðingarstofuna. Greyið Katie.. ég hélt það væri svo normalt að öskra þegar kona er að fæða barn í heiminn!

Svo af því að ég er komin í slúðrið um fræga fólkið, þá les ég liggur við á hverjum degi einhverjar slúðurfregnir af Pete nokkrum Doherty, um að hann sé andfúll, fullur, handtekinn, að fara að giftast Kate Moss og ég veit ekki hvað og hvað.. en ég bara veit ekkert hvaða maður þetta er og hefi ég aldrei heyrt neitt með honum svo ég viti.. hann bara varð allt í einu frægasti skandalíserarinn eins og nafna hans Shannon Doherty (Brenda) og Winona Ryder voru á sínum tíma...

Og já; gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn fólkenz!

miðvikudagur, apríl 19

Ég var að lesa viðtal í helgarblaði DV við gaur sem kallar sig Sigga en hann fann sér brasílíska mellu á einkamál.is og fékk hana heim og svona... og það var skrifað svo oft orðið mella en ekki hóra eða vændiskona.. ég fór allt í einu að spá hvaðan þetta orð mella er komið?? Er þetta tökuorð eða íslenskt nýyrði eins og tölva var á sínum tíma?

Svo er alveg magnað þegar maður ætlar að flýta sér í búð, eins og ég áðan í hádeginu þá er allt á slow motion hraða. Stökk í Bónus í Hraunbænum bara til að kaupa mér smá lunsj og það var opið á 3 kössum og það var vesen á þeim öllum. Samt engar raðir.. bara ein þurfti að hlaupa og tékka á verði, einn var að skrifa nótu þar sem kellingin þurfti að grafa eftir kennitölu til að setja á hausinn á nótunni og þriðji var eins og vélmenni í slooooooooow motion og þurfti svo að hefta og labbaði í hææææægðum sínum á annan kassa að ná í heftara.. ohhh djöfull verður maður pirraður. Þannig að klukkan var orðin 12.16 þegar ég loksins komst út!

Hvað er að verða um starfsfólk í þjónustufyrirtækjum nú til dags? Það er rennur varla í þessu blóðið og ekki stígur það mikið í vitið ... þótt það sé auðvitað lið inná milli sem tekur vinnuna sína alvarlega. Ég man bara þegar ég var að vinna á kassa í Hagkaup og í öðrum búðum þá reyndi maður að afgreiða hratt og segja upphæðina hátt og skýrt og svona.. núna vinnur þetta lið á lúsahraða og kann ekki tala!

Ok búin að losa mig við pirring dagsins sem var hundlatt kassastarfsfólk!

mánudagur, apríl 17

Jæja þá er ég komin aftur "uppá land" eins og það kallast á Vestmannaeyísku :)
Þetta var hin fínasta ferð og lögðum við af stað kl 12.00 á skírdag frá Þorlákshöfn og vorum komin í Heimaey um 15 leytið.. þá var tekið á móti okkur með bakkelsi og fíneríi. Svo tók við heimsóknir og kaffiboð alla daga fram að páskadag, þá fórum við frá eyjum kl 16.00 og vorum komin hingað heim um kl 20. Þá var tekið meira tjill með hamborgaraveislu og dvd glápi.



Ég lenti í smá "slysi" í Herjólfsdal á laugardaginn.. eða sko ég stóð í þessari rólu sem er hérna á myndinni og bað Ása um að ýta mér og snúa, sem og hann gerði. Og svo þegar ég var komin á fullt sving þá var ég öskrandi "ekki meir ekki meir" og Ási hélt ég að ég vildi meira.. en það endaði með því að himininn hringsnerist og ég missti jafnvægið og datt úr rólunni beint á mölina.. í pilsi og alles.. og Ási var í sjokki og hélt ég væri stórslösuð og kom og spurði hvort það væri ekki í lagi með mig, og ég bara jújú og í því kom rólufjandinn (dekkið) á fullri ferð úr hinni áttinni og beint í hausinn á mér.. hehe þetta var nú dáldið fyndið.. ég meiddi mig ekkert en hefði nú getað slasað mig. Þannig að ef þið ætlið að róla; fariði varlega!

Nú svo komum við með fullan bíl tilbaka, peyjinn alltaf látinn taka hálfar búslóðir með sér.. þannig að bíllinn var fullur af borðstofustólum og hjóli og pokum og drasli.. þannig að það er nú komið nýtt look á eldhúsið!

Annars er ég bara búin að hanga heima í dag og taka til og vesenast með Ási þurfti að fara að vinna. Og svo þarf maður bara að vinna í 2 daga og svo frí og svo vinna einn og svo frí! Jibbí.. svona á þetta að vera!

miðvikudagur, apríl 12

Fyndið þegar maður vinnur á skrifstofu, hvernig húmor er í gangi. Svona skrifstofuhúmor eða þá skrifstofupirringur. Maður verður pirraður útí ljósritunarvélina og faxið. Og að heftið sé akkúrat núna búið í heftaranum. Og svo gleðin þegar maður fær eitthvað nýtt á skrifborðið, td. penna eða nýju tippexmúsina sem ég var að fá.. hún er geðveikt töff! Ég tala nú ekki um nýja stærð á umslögum!

Svo er líka svona fíbblagangur og prakkarastrik. Eins og í morgun þá fór ein inn til eins gaurs sem er með svo hryllilega leiðinlega hringingu á gemsanum og breytti hringingunni og svo var hann að koma tilbaka og hún var ennþá inni hjá honum, þurftum við að tefja hann og ein konan bauð honum páskaegg og hann bara: "hvað er eitur í þessu, þið hafið aldrei verið svona góðar við mig?" og svo kom hin út með glott dauðans! Og núna erum við allar að bíða eftir að síminn hans hringi ... og við erum að tala um að yngsta manneskjan hérna er 28 ára! hahahhaha .. fyndið!

Annars erum við Ási að klára púslið góða, við erum að púsla 1000 stykkja púsl nefnilega, búin að vera að því í 2 vikur held ég.. rosa gaman að púsla og maður fer í einhvern ham eftir smá tíma.. svona eins og þegar maður er búinn að vera að spila lengi sama spilið og kominn galsi í mann! Þá á maður bara að hætta og fara að sofa!

En vííííí 5 daga frí á næsta leyti...... GLEÐILEGA PÁSKA!

mánudagur, apríl 10


Jæja var að henda inn myndum úr bústaðarferðinni um þar síðustu helgi og fyrir þá sem ekki vissu var ég búin að setja inn fleiri myndir um daginn!

Skoða myndirnar hér!


Þessi kvikmynd varð til þess að ég fékk fuglafóbíuna góðu.. reyndar hefur hún aukist með árunum.. ég veit ekki hvað málið er.. en ég bara fæ hroll við tilhugsunina að fugl snerti mig og þá sérstaklega goggurinn. Og krummar og starrar og svona svartir fuglar eru verstir.. oj oj oj!


Ég meina.. er ég eina í heiminum sem myndi fá flog við að mæta svona fuglaflokki ??

föstudagur, apríl 7

Ég sé mig í anda bjóða mig fram í þetta!

Hahhaaha ég var að fá þetta í meili frá frænku minni, snilld.. ég er sporðdreki og fann mig alveg í þessari lýsingu....... sem er nú ekki mjög jákvæð.. en endilega lesið um ykkar merki! Góða helgi!

Hrútur (20. mars - 20. apríl): Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti, góður að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp og láta aðra þrífa upp skítinn. Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og slá tilgangslaus högg útí loftið. Þú ert kvikindi, en það hjálpar hversu einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.

Naut (20. apríl - 21. maí): Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu staðnaður og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi eru það eina sem þú hugsar um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki úr stað og selur sannfæringu þína hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en stífluð rotþró.

Tvíburi (21. maí - 20. júní): Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað, með hundrað ókláruð járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að gefa loforð sem þú getur ekki staðið við. Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum þínum í blaður og óþarfa.

Krabbi (21. júní - 23. júlí): Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig, nema með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum minningum. Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur og sjálfsvorkunnsamur.

Ljón (22. júlí - 23. ágúst): Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar ekki eða öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.

Meyja (23. ágúst - 23. september): Þú ert einn leiðinlegasti maður í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki, en segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar en stormur í tebolla. Þú ert stressuð taugahrúga.

Vog (23. september - 22. október): Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvaðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of latur til að hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum.

Sporðdreki (23. október - 21. nóvember): Þú ert frekur og valdasjúkur, færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast útaf engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er annað hvort frábært eða ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila sama lagið.

Bogmaður (22. nóvember - 21. desember): Þú ert týpan sem grautar í öllu, en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr einu í annað. Þú átt erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika þína. Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki við.

Steingeit (21. desember - 20. janúar): Þú ert stífur og vansæll vinnualki, fastur í tilgangslausum siðum og reglum, alltaf að skipta þér af öðrum og segja þeim að gera það sem þú getur ekki gert sjálfur. Þú ert snobbaður og þráir stöðutákn, enda með minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að breiða yfir með titlum og merkjavöru.

Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig eða getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika, að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.

Fiskur (19. febrúar - 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.

fimmtudagur, apríl 6

Ég verð nú að segja að hann Damien French frá Wales sé fyndin fyllibytta.. brjálaður skandall í gangi .. kemur meiri segja í Morgunblaðið á Íslandi.. er gúrkutíð? nei maður spyr sig!

Lesa fréttina hérna!

Ég veit nú um fólk og sjálfa mig sem hefur gert ýmsa skandala á fylleríum en þeir hafa nú ekki lent á blaðsíðum útlenskra fréttablaða... svo ég viti!

Nema þarna einu sinni þegar ég var 15 ára niðrí bæ á fylleríi, í brúnum rússkinsjakka af pabba, með sítt hár skipt í miðju, með kringlótt sólgleraugu að spá fyrir fólki með Pétur Pan spilum...... eða nei.. það fór aldrei í fréttirnar!

þriðjudagur, apríl 4

Er blogg orðið hallærislegt? Maður spyr sig...

Ég held ég sé búin að vera bloggandi núna í 3 ár samtals.. tíminn sem maður hefur eytt í þetta sko! Og núna er ég varla að nenna þessu.........

Samt finnst mér gaman að lesa annarramannarra blogg.. enda er maður hættur að hitta vini sína liggur við eftir að geta bara lesið allar fréttir af þeim á netinu.. varla góð þróun það!

Annars fórum við skötuhjúin í bústað með stórfamilíunni um helgina. Var það kokkabústaður í Grímsnesinu. Mjög fín helgi og maður náði að koma sér aðeins útúr borgarstressinu.. það er alveg yndislegt að skreppa svona aðeins út fyrir bæinn.

Við fórum Gullna hringinn á laugardaginn, þeas. Geysi og Gullfoss og kíktum á Trailor trash hverfið þarna á Laugarvatni.. það er alveg magnað að taka rúntinn þar, reyndar mun skemmtilegra á sumrin þegar eitthvað líf er þarna.

Svo er stefnan tekin á sveitasæluna aftur um páskana!