föstudagur, maí 26
föstudagur, maí 19
miðvikudagur, maí 17
Nei nú líst mér ekki á blikuna.. kókið með helmings meiri vinsældir er pepsíið! Uss uss uss.. ekki nógu gott!
Ég fylgist alveg spennt með júróvisjónfaranum henni Silvíu Nótt, í öllum fréttum og á vefum og svona og hlakka mikið til að horfá keppnina annað kvöld. Ég ætla að vona að hún haldi sér á mottunni þangað til að hún stígur á stokk.. annars mun hún náttúrulega ekkert stíga á stokk.
Hvað er annars málið með þetta orðatiltæki; að stíga á stokk ? Hét svið einu sinni stokkur, eða steig einhver einu sinni á eldspýtustokk og sagði brandara og söng þrjú lög og eftir það var skemmtiatriði kallað að stíga á stokk? nei.. bara að spá!
En svona.. ég var geðveikt mikill aðdáandi hennar Silvíu.. en svo fór hún aðeins yfir strikið með að fylgja ekki blótsyrðareglum Júróvisjón keppninnar, en svo er hún öll að mildast þótt að hún sé ennþá með einhverja prímadonnustæla.. en það er bara hennar karakter...
Þannig að stórfjölskyldan er að fara að mæta í grill og júró annaðkvöld til mömmu og pabba, það verður stuð!
Ég segi bara Áfram Ísland.. áður en ég ætla að segja Til hamingju Ísland! *krossafingur*
laugardagur, maí 13
föstudagur, maí 12
Foreldrahittingurinn í gærkvöldi gekk bara svona glimrandi vel.
Þetta var bara mjög gaman og mikið talað og hlegið. Pabbi eldaði rosa gott kjöt í karrí og maður borðaði vel.
Svo var bara kaffi og Remi með (rétt upp hend sem veit ekki hvað Remi er!) og pabbar okkur voru báðir í essinu sínu. Pabbi hans Ása var að galdra fyrir okkur, alveg magnað hvað hann er klár. Og pabbi fékk smá útrás í sýningarþörfinni sinni og sýndi okkur gamla riffilinn sinn, sem er víst haglabyssa, fornaldarborvélina og gamlan hníf og ýmislegt!
Allir voða happy og gaman. Svo á mamma hans Ása afmæli á morgun og þá ætlum við í bíltúr austur fyrir fjall, þar sem þau eru í bústað í Ölfusborgum!
Annars er bara helgin að detta inn og jibbí jæ kei moðafokka!
fimmtudagur, maí 11
Í kvöld er "The parents meet the parents" kvöld hjá mér og Ása.
Jújú foreldrar hans eru uppá landi núna í viku og þau eru að kom með okkur í mat til mömmu og pabba í kvöld.. þetta verður kannski eitthvað fyndið.. maður hefur aldrei gert þetta áður!
En samt bara krúttlegt!
Ætla að vona að þetta verði samt ekki eins og í Meet the Fockers... enda eru litlar líkur á því þar sem foreldrar hans Ása eru ekki hippar þótt pabbi minn sé undercover leynilögga!
þriðjudagur, maí 9

Já það breyttist margt á þessum 100 árum.. og núna 16 árum seinna er þessi fatnaður frá 1990 orðinn skemmtistaðarfatnaður ungra stúlkna liggur við.. hvar endar þetta?
Nei ég segi bara svona.. en eru allir bara niðrí Nauthólsvík eða?
Mér líður eins og ég sé ein í heiminum á netinu.... kannski vegna þess að ég er ekki á msn á daginn.. Jæja best að drífa sig út í góða veðrið!
mánudagur, maí 8
Vá ég var að sjá svo sæta stelpu syngja af þvílíkri innlifun, sérstaklega blálokin á myndbandinu.. þvílík tilþrif.. hún stefnir í að vera Idol stjarnan 2015 .. en ekki 2000 slétt eins og ég sagði um helgina..
Smella hér til að sjá krúttið!
Annars var helgin góð, grillhelgin mikla.. við skötuhjúin fjárfestum í gasgrilli og það var grillað líkt og vindurinn alla helgina.. rosa gaman!
Svo kíktum við Auður Aþena frænka í sund og afmæli til Elínar litlu systur Lilju mágkonu í gær.
Mergjað veður búið að vera í dag og í gær!
fimmtudagur, maí 4
Fyndið samtal..
Ég var spurð í morgun hvort ég væri ekki með góða bragðkirtla.. jújú hugsaði ég með mér og svo spurði viðkomandi mig: "Viltu ekki taka þátt í vínsmökkun hérna einu sinni í viku?"..... Ég bara; "Nei, ég drekk ekki áfengi" .. þá sagði viðkomandi; "nei sko, þetta er bara smökkun.." ég greip kurteisilega fram í fyrir henni og sagðist ekki drekka áfengi.. með ákveðnum tón og þá sagði hún; "nú jæja.. aaallt í laaagi" ...
En ef ég væri að vinna hjá Nóa Siríus og spurð hvort ég vildi vera einu sinni í viku í nammismökkun.. það hefði nú verið annað mál!
miðvikudagur, maí 3
Þessi bloggfærsla er tileinkuð Önnu B. vinkonu minni, sem er ennþá að hlæja!


Já nei þetta er ekki nöttkeisið sjálft hann Tom Cruise heldur eru þetta myndir úr atriði í Scary Movie 4 sem ég fór á í fyrradag. Og þetta var ýkt fyndið, en þar sem ég hafði ekki séð orginalinn.. eða þegar Tom mætti til Oprah þá varð ég að grafa það upp og fann í morgun.. guð minn góður.. Kallinn er bara búinn að missa það.. ég segi það enn og aftur!
Sjá hérna þegar Tom Cruise kom í heimsókn til Oprah!
Annars er ég bara komin á breytingarskeiðið, er búin að vera að kófsvitna í allan dag og líða eitthvað asnalega.. best að fara og kaupa Menopause!


