pælingar, nöldur og skemmtilegheit...

fimmtudagur, júní 29

Súrasta lag og myndband sem ég hef séð!

Hahaha ég varð nú að stela þessu af blogginu hennar Maju litlu!

Skoðiði þessa fyrirsögn og fréttina!



mánudagur, júní 26

Hversu miklu útilegudóti er hægt að koma fyrir í Yaris? Svar: Helling!



Já við skötuhjúin fórum í útilegu á Laugarvatni um helgina með vinnunni hans Ása það var rosagaman. Við vorum að prufu keyra nýja/gamla tjaldið sem við keyptum notað um daginn og vorum við eina fólkið á svæðinu sem var í tjaldi. Allir hinir í fellihýsum eða tjaldvögnu, já eða húsbílum. En við vorum í tjaldhýsi.. það er miklu flottara! :)

Við náðum að gera helling, td. að fara að skoða Laugarvatnshelli, fara í tívólí á Selfossi, minigolf, leggja okkur, grilla og syngja og tralla fram eftir.. sem sagt bara mjög skemmtilegt! Svo er það næsta helgi, en þá erum við að fara til Eyja í brúðkaup hjá vini hans Ása! Fullt að gerast bara!

Og auðvitað settum við stafina okkar líka í hellinn:



Ekki flott? :)

Ps. Ég var búin að steingleyma að Billy og Amanda yrðu par í MP!

föstudagur, júní 23

Ég hrýt víst eins og herforingi er mér sagt. Þetta vissi maður nú ekki þegar maður var single hérna fyrir rúmu hálfu ári síðan..

Ég vaknaði við það um kl. 6.40 að hann Ási minn var klípa í nefið á mér, og fannst hann vera voða fyndinn. Mér fannst það ekki, enda frekar þreytt eftir að hafa hangið á kaffihúsi til að verða 1 í nótt.. og náttúrulega vegna þess að ég var svona grumpy fannst honum ennþá fyndnara að stríða mér. En ég ætlaði að sofa til 7.30.

Svo rak ég hann fram og lokaði augunum og þegar ég er alveg að falla aftur í svefn þá heyri ég hann hlæja prakkarahlátri frammi og kemur inní herbergi og springur úr hlátri.. þá er hann mættur með gítarinn og byrjar að syngja "Anna ó Anna" .. en hann gat ekki meir því hann var að deyja úr hlátri yfir sinni eigin fyndni.. þannig að ég gat nú ekki annað en farið að hlæja sko.. mjög fyndið. En svo um leið og hann fór út kl. 7.03 sofnaði ég aftur og þurfti að berja mig á fætur kl 7.40, þá búin að snúsa einu sinni!

Þess vegna setti ég þessa nýju snúskönnun hér til hliðar. Þar sem snús (enska:snooze) hefur eyðilagt líf mitt. Síðan ég fékk mína fyrstu útvarpsvekjaraklukku á fermingardaginn minn þann 16. apríl 1990 þá hef ég misnotað þennan fítus útí ystu æsar!

Eru fleiri með sama vandamál, ójá ég veit að svo er!

fimmtudagur, júní 22

Ævintýrið mitt byrjaði sumarið eftir að Geirfinnur hvarf. Enginn vissi að ég hafði verið á kojufylleríi með honum í heimahúsi í Keflavík tveim dögum fyrir hvarfið, enda kom ég hvergi nálægt þessu. Ég var kominn í vinnu austur á Neskaupsstað, þar sem ég hafði fengið það gott tilboð að ég gat ekki hafnað því. Ég var að vinna á krá sem hét Neskráin. Ég vissi alltaf að það myndi borga sig að fara í The Cocktail School í Birmingham veturinn '63 þar sem ég hafði útskrifast með hæstu einkunn.

Allir skunduðu á Neskránna eftir vaktirnar á vertíðinni til að fá sér frábæra kokteila, enda var enginn bjór í den tid. Ég var allt í einu farinn að taka eftir að laglegur stúlknahópur kom á hverjum degi, þær voru vitlausar í Pina Colada. Ég tók sérstaklega eftir einni stúlkunni, lítil budda, ljóshærð með fallegt bros sem gat látið hinn fúlasta mann hætta að vera í fýlu. Eitt sinn þegar hún var að panta fyrir allar vinkonurnar, notaði ég tækifærið og spurði hana hvort hún væri til í að hitta mig einhvern tímann. Hún roðnaði niðrí tær og hvíslaði svo að mér að hún væri búin að hugsa slíkt hið sama. Ég get ekki lýst tilfinningunni sem ég fann fyrir þegar hún sagði þetta.

Við fórum að hittast á frívöktum, hún var að vinna í síldinni, ég á Neskránni. Það var nú ekki mikill tími sem við gátum eytt saman, því ég var að vinna á kvöldin en hún á daginn og stundum fram á kvöld. Þannig að snemma á morgnana var okkar ástartími. Eftir rúman mánuð, ákváðum við að hætta að vinna á Neskaupsstað. Hún var frá Patreksfirði. Ég var frá Grenivík. Við ákváðum að flytja og opna krá í Vík í Mýrdal, sem við og gerðum. Kránna skírðum við Mík í Výrdalskráin. Við elduðum súpu í hádeginu handa hungruðum gestum og vorum með írska kráarstemmningu á kvöldin.

Það endaði með því að fólk var farið að flytjast til Víkur allstaðar að, bæjarlífið blómstraði. Það þurfti að byggja fleiri hús, en þar sem svæðið er svo lítið, það var farið útí það að byggja skýjakljúfa. Eftir nokkur ár voru komin um fimmtíu háhýsi og fólk var farið að kalla bæinn Míkhattan. Maður frétti að það væri orðið ansi tómlegt í Reykjavík. Enda bara um þúsund hræður eftir þar og komin um kvartmilljón fólks í Vík í Mýrdal. Þannig að ríkisstjórnin ákvað að flytja höfuðborgina til Víkur en í leiðinni var hún skírð Míkhattan. Reykjavík var bara orðið smáþorp.

Sjálfur réði ég ekki við álagið, og þar sem Mík í Vírdalskráin hafði malað gull á gullaldarárum Míkhattans, þá ákvað ég að setjast í helgan stein og við fjölskyldan fluttum til Monaco fyrir nokkrum árum og erum þar enn. Ég hef ekki mikið samband við ættingjana heima á Íslandi en ég las það á netinu að það hefði stór flugvél lent í einum skýjakljúfnum í gær. Það er haldið að þetta sé hryðjuverk. Ég vona bara að ég hafi ekki átt þátt í því, þó svo að ég hafi neitað arabanum um Pina Colada þarna um árið.. en hvað veit maður!

Höf: Anna Sig.

þriðjudagur, júní 20

Já nei þetta er ekki nýjasta regnfatatískan, heldur er þetta sundfatnaður fyrir múslímakonur. Þeir sem ekki trúa mér, geta skoðað þessa fataheimasíðu fyrir þessar konur! :)

Annars er maður bara í vinnugírnum hérna.. og er búin að vera í fjölskyldugírnum síðustu daga, þar sem systir hennar mömmu sem býr í Englandi er búin að vera hérna í heimsókn síðan á laugardaginn.

Haldiði ekki að maður ætli að skella sér á Þjóðhátíð í Eyjum í ár!
Ég hefi nú ekki farið á þjóðhátíð síðan 1997 og þá var grenjandi rigning og frekar boring eitthvað.. og mér fannst ég vera elst á svæðinu... þannig að hvernig verður það núna?

Ég vona allavega að það verði gott veður! Það er fyrir öllu!

föstudagur, júní 16

Sex á hraðferð og einn þurfti drátt eftir umferðaróhapp

Ekki grín, þetta er fyrirsögn á frétt hjá Víkurfréttum, sjá hér!

Hvað ertu kölluð/kallaður á rússnesku?
Settu nafnið þitt í dálkinn og ýttu á enter!
http://www.callme.nm.ru/

Ég var að spá í gærkvöldi.. ef maður borðar rosalega mikið af kúlum í einu.. já eða bara karamellum.. og þarf svo að gubba eftir svona klukkutíma. Gæti maður þá gubbað einum stórum hnulla upp í einu? Þetta hlýtur að þjappast saman og mynda kúlu í maganum á manni..

Einu sinni var geðveikt mikið í tísku að láta víra saman á sér kjálkanna í megrunarskyni, þannig að fólkið gat ekki gleypt heilu og hálfu kjötstykkin og hvað sem fólk er að borða! En fólk kunni nú víst ráð við því, það bara hakkaði allt niður og saug það upp á milli tannanna.. þá erum við að tala um dáldið veika matarfíkla held ég, svei mér þá!

En allavega þá höfum við Einar bróðir stundum verið að grínast með það að ef fólkið væri búið að éta geðveika steik og svona soldið stóra bita rétt áður en það lét víra saman kjálkanna og svo þurfti það að gubba, þá myndi maður bara kafna í eigin ælum.. skrítið að æla með samanbitnar tennur allavega! Og við getum endalaust hlegið af þessu! Prófið bara að þykjast æla með samanbitnar tennur!

miðvikudagur, júní 14

Biker chicks..



Ps. þetta á hún Magga Linda mín eftir að hlæja að!

þriðjudagur, júní 13


Jæja ég er komin heim frá Orlando, Florida eftir 2 vikna vel heppnaða ferð með stórfamilíunni.. ég var ekki að nenna að hanga inní tölvu þarna úti.. en ég er búin að setja myndir frá ferðinni inní albúmið mitt!
Skoða myndir hérna!

Ps. ég nenni varla að blogga nema að hingað berist tugir áskoranna um að halda áfram.. sem sagt í kommentakerfinu!