Ég kíkti inná síðuna áðan og hélt það væru tugir kommenta með skömmum um að hafa ekki staðið við áður gefið loforð, semsagt að byrja að blogga aftur 7. ágúst. En þið eruð svo góð, já og þolinmóð öllsömul að bíða eftir mér. Bíða eftir að
grísastelpan stigi aftur á stokk.
Maður myndi halda að ég gæti skrifað heilmargt eftir að hafa ekki verið að hella úr skálum mínum hérna í mánuð.. en samt er ég voðalega tóm!
Júlímánuður leið furðuhratt og ég man bara ekkert hvað ég er búin að vera að bauka. Annað en að vinna, sofa, éta og glápa á sjónvarpið.. fara í bíó, útað borða, matarboð til familíunnar, fá tengdó í heimsókn, fara í tívólíið, horfá Ása minn skjótast 30 metra uppí loft í kúlu, fá himnasæng yfir rúmið, setja 1500 stk. púslið í ramma, horfá Magna brillera í Superstar og ýmislegt fleira skemmtilegt örugglega, en gullfiskaminniskortið mitt rúmar ekki fleiri hluti á einum mánuði!
Og talandi um Magna, þá hef ég nú ekki verið mikill aðdáandi hans í sveitaballahljómsveitinni Á móti sól, en ég hef samt vitað hver kauði er síðan að hann tók lagið í Söngkeppni framhaldsskólanna 1996, þar sem hann tók lagið Undraveggurinn (Wonderwall) unplugged bókstaflega, þar sem að magnarinn hans klikkaði og hann tók lagið á kassagítarinn! Já ég er lúði, ég var að horfá þessa keppni aftur í síðustu viku.. ég get svo svarið það að ég hafði ekki horft á hana í 2-3 ár!
En fyndið að einmitt í þessari keppni árið 1996 voru nokkrir söngvarar sem hafa "meikað það" á Íslandi síðan, td. Jónsi í Svörtum fötum, Regína Ósk, Hreimur, Hálfdán Steinþórsson (djúpulauginni) og Magni litli, sem var þá hormjór með sítt hár!
En mér finnst hann semsagt vera kominn á réttan stað, í rokkið þeas. Rosalega er mikið af fólki sem þarf endalaust að dissa manninn, ég meina.. mér fannst ekki "keyrðu mig heim, ég er fullur" skemmtilegt en vá hvað hann er mikill töffari úti!
Þannig að já, ég held með honum og svo Dilana.. mér finnst hún algjör kúlisti og töffari!
Jæja er þetta ekki fínt fyrir fyrsta blogg eftir frí.. svo þegar maður er að stelast í vinnunni líka!
Have a nice day!