Það er aldeilis selskapslífið á mér um þessar mundir og alltaf eitthvað með vinnunni. Í kvöld erum við konurnar á skrifstofunni að fara útað borða af því að ein er að hætta á morgun. Og ætlum við að fara á Apótekið, ég hef nú bara farið þangað að fá mér kaffisopa hingað til og er soldið spennt yfir því að fara út að borða þarna.
En svo var ég að skoða matseðilinn og finnst hann heldur framandi fyrir mitt leyti. Skoðið hér. En ég er að hallast að folaldalundinni eða nautalundinni (fyrst ég er ekki að borga híhí) .. en finnst ykkur þetta ekki framandi matseðill? Þetta er mjög spennó!
Svo annað kvöld er sko Keilumót hjá vinnunni og það verða veitt verðlaun fyrir bestu liðsbúningana og held ég að hin liðin verði að vera ansi flott til að toppa okkur hérna á skrifstofunni. En við verðum í sérsaumuðum skær-neon-bleikum tjull pilsum og í skærbleikum bolum með mynd af hauskúpu og liðsnafninu sem er The Mean Team! úúúú og fyndnast er að það er einn strákur í liðinu híhí!
Ég hef ekki farið í keilu síðan Ómar hafði hár, þannig að ég veit nú ekki hvernig ég verð. Ég er mest hrædd um að festa puttana í götunum á kúlunni og hendast með henni inná brautina... það væri örugglega mjög fyndin sjón.. en kannski ekki mjög fyndið fyrir ástandið sem er á manni!
En já djöfull hlýt ég að vera mikill menningarpúkólingur því ekki er ég að gráta yfir þessari kárahnjúkastíflu í dag og ekki ætla ég að slökkva öll ljósin klukkan 22.00 í kvöld.. ég veit ekki einu sinni afhverju það á að gera það.. en mér skilst að það sé eitthvað útaf einhverju leiklistardæmi.. þannig að ég býst við að það verði bara dimmt í 101 Reykjavík með allri virðingu fyrir listafólkinu sem býr þar! :)
Jæja best að vinna smá áður en ég fer heim! :)

