Tölvan mín heima vill ekki leyfa mér að blogga á blogspot draslinu.. ég sem var búin að skrifa ýkt mikið á föstudaginn.. peista því hérna að neðan bara:
Jæja loksins að ég skrifi eitthvað hér.
Ég er búin að vera í fríi síðan síðasta föstudag og það er búið að vera mjööög næs skal ég segja ykkur. Við skötuhjúin fórum í bústað uppí Húsafell á mánudaginn, pínulítill og kjút bústaður. Elduðum okkur nautasteik með bernaissósu og horfðum á þáttinn um þróun fósturs fyrsta kvöldið og fórum svo í pottinn og horfðum á stjörnurnar. Nóttin var svo soldið strembin að því leyti að ég vaknaði í hvert skipti sem ég hreyfði mig, svo mjótt var rúmið, svona ein og hálf breidd neðri koja.
En svo á þriðjudaginn fórum við svo í göngutúr og svona og kíktum svo í tvær heimsóknir seinni partinn. Fyrst til Sigrúnar vinkonu uppá Hvanneyri en ég hafði aldrei farið til hennar (búin að búa í 1 ár þarna, shame on me) og það var rosa fínt og bakaði hún hjónabandssælu handa okkur og bauð okkur svo í grænmetislasagne, þannig að við fórum södd og sæl frá þeim mæðgum um kvöldið. Þá brunuðum við í Borgarnes að heimsækja Svölu vinkonu sem er nýflutt í draumahús, já ég segi það bara, ég væri alveg til í að búa í því. Raðhús á einni hæð og bílskúr og allt svo nýtt og flott þarna og kostar jafnmikið og 3ja herbergja blokkaríbúð í borginni. Þar var Kristján Ari í fullu fjöri og algjört krútt. Hann er 15 mánaða og ekkert smá skemmtilegur og fyndinn. Svo lögðum við af stað uppí Húsafell og kvöddum sætu fjölskylduna.
Sem betur fer vorum við með GPS tækið hans pabba í láni því það er alveg hægt að villast þarna þegar maður er kominn framhjá Baulu skal ég segja ykkur. Og það var þvílíkt niðamyrkur. Ég komst að því að ég er nú bara dáldið myrkfælin svona útí sveit. Var svo hrædd um að það myndi eitthvað birtast í myrkrinu og þegar við lögðum við bústaðinn var ég svona hálfsmeyk við að labba útúr bílnum.. samt var ENGINN þarna! Ekkert smá klikkuð! Þá um nóttina ákváðum við að Ási myndi sofa í efri kojunni svo við hefðum meira pláss. Þá ætlaði ég aldrei að sofna, fannst ég svo óörugg þarna niðri, sko ef einhver ribbaldi myndi ráðast inní bústaðinn, þá yrði ég fyrsta sem hann myndi finna. Þannig að við vöknuðum eldsnemma alveg. Svo þegar leið á daginn, þá var okkur farið að leiðast pínku og ákváðum bara að bruna í bæinn. Og já það er nú alltaf best að lúra í sínu eigin rúmi!
Svo í gærmorgun kíktum við uppí skóla til mömmu og pabba og fengum okkur morgunmat og kíktum svo aðeins í Limalind þar sem við freistuðumst til að kaupa fyrstu fötin á soninn.. ekkert smá spennandi! Svo erum við bara búin að hanga heima og mygla á meðan þið öll eruð að vinna eða læra múhahhaha! En svo þarf ég víst að fara að vinna á mánudaginn.. en Ási verður í fríi í 2 vikur í viðbót og ætlar eitthvað til Eyja að gera við íbúðina sína þar.

Hérna er gallinn sem við keyptum,
mamman pínku montin!
Smella á myndina til að stækka