Fyndið hvað það má ekki heyrast píp í manni núna. Ég er td. frekar bregðin manneskja, semsagt þarf lítið til að mér bregði .. og oftast kemur ósjálfráður píkuskrækur í kjölfarið. Og núna þegar ég er ólétt, þá fær fólk sjokk ef það heyrist í mér. Eins og fyrrakvöld þá var ég að fara á klósettið, og sumir höfðu gleymt að setja niður klósettsetuna og ég settist beint á ískalt postulínið, sem var nú ekki tipptopp hreint og ég öskraði þvílíkt, því mér brá svo og fannst þetta svo ógeðslegt! Þá fékk Ási áfall inní herbergi og hélt liggur við að krakkinn væri kominn í heiminn! Líka hef ég verið eitthvað að öskra svona heima hjá mömmu og pabba og þá fá þau sjokk! Fyndið! En samt ekki fyndið ef ég er að öskra útaf því að krakkinn er á leiðinni og þau öll bara; æjj alltaf sömu lætin í henni Önnu!
Annars var ég að horfá fyndinn Fóstbræðraþátt um daginn, þar sem Gyða Sól var að eignast krakkann. Það gekk ekkert og þá bað hún alla á fæðingarstofunni að hvetja, og allir alveg; Gyða Sól, Gyða Sól, Gyða Sól og þá skaust barnið í hendurnar á lækninum! Geðveikt fyndið.. ég ætla að láta alla hvetja mig, Anna Anna Anna Anna!! Svo þegar þau voru að fara heim af fæðingarstofunni, flýtti hún sér í bílinn og settist auðvitað undir stýri og var geðveikt fúl og kallinn hennar spurði hvað væri að, þá sagði hún; "Þetta er bara svo lítið!" Hann; "hvað ertu að tala um?" Gyða Sól; "Nú barnið, þetta er svo lítið, ég get ekki látið sjá mig á landsmótinu í sumar!"
Snilld!





