Jæja, smá skrif. Ég er bara ekki búin að nenna að skrifa neitt, því mér finnst ég aldrei hafa neitt að segja. Lífið er voða mikið bara sofa, vinna og borða og hanga fyrir framan tölvu eða sjónvarp. Svo er ég búin að þræla mér nokkrum sinnum í jólaverslunarleiðangra og er alveg dauð eftir þá. Fæ verki frá hælum, ökklum, grind og mjóbak.. mjög skemmtilegt :) En það er búið núna, vúhú!
Svo er bara að þrauka út þessa viku í vinnunni, mér er sko alveg búið að langa að vera bara í fríi eins og skólafólkið, finnst ég eiga það svo skilið! hehe :)
En ég ætla svo að skella mér í smá snyrtidekur á Þorláksmessu, en þá ætla ég í andlitsbað og augnbrúnastúss á snyrtistofu, í boði bróður míns og fjölskyldu! :)
Ási verður með mér um jólin og ég er rosalega ánægð með það og munum við snæða og vera með mömmu og pabba og ömmu á aðfangadag. Einar og Lilja ætla í fyrsta sinn að halda sín eigin jól, það verður örugglega voða kósí hjá þeim. Svo er auðvitað jólaboð á jóladag, hryggur á annan.
Svo eru tengdaforeldrar mínir tilvonandi (orðið tilvonandi er notað spes fyrir mömmu)að koma uppá land eins og það heitir hjá Vestmannaeyjingum milli jóla og nýárs og munu koma í dinner og áramótskaup á gamlárskvöld til foreldra minna, voða gaman, allir saman! :)
En annars fyrir þá sem ekki vita þá gat ég ekki beðið lengur og bjó til síðu á barnalandi fyrir bumbulíusinn og er hægt að skoða hana hérna: Ásmundsson :)
Gleðileg jól allir!

