pælingar, nöldur og skemmtilegheit...

mánudagur, janúar 29

Nú er ég brjáluð útí KB banka.. eða Kaupþing eða hvað sem þetta heitir. Ekki útaf kannski einhverju sem þið haldið, varðandi viðskipti mín við þennan banka eða neitt svoleiðis. Heldur útí dagatalið þeirra 2007! Nú kunna sumir að spyrja sig; hvers vegna í ósköpunum??

Jú vegna þess að dagatalið frá þeim 2006 var þannig að fyrsti dálkurinn var fyrir sunnudag og aftasti fyrir laugardag og þannig er maður búinn að horfá þetta í heilt ár. Nei svo núna 2007 breyta þeir uppsetningunni og hafa fyrsta dálkinn með mánudag og aftasta fyrir sunnudag. Kannski dáldið erfitt að útskýra þetta.. en allavega þá horfi ég alltaf vitlaust á dagatalið núna, og ég var búin að bíta það í mig að 1. febrúar væri núna á miðvikudaginn! But nooooooo hann er ekki fyrr en á fokking (afsakið frönskuna mína) fimmtudaginn!

Sem þýðir að ég byrja ekki að vinna hálfan daginn fyrr en á fimmtudaginn :( .. ég sem hélt ég væri að byrja á miðvikudaginn í hálfu starfi... ohh hvað ég er svekkt!

Fyrir utan það að ég er alltaf að ruglast á dögum og dagsetningum eftir áramót útaf þessu ljóta dagatali.. en best að vera ekki að rífa upp blóðþrýstinginn útaf þessu.. ég vinn bara svo til 16. febrúar og þá er ég komin í frí! Ætla að slaka á heima þangað til að barnið fæðist... næææææs :) vona svo bara að hann komi á settum tíma.. svo ég þurfi ekki að hanga of lengi!

Jæja ég vona að þið þessar örfáu hræður sem eruð ennþá að kíkja á þessa síðu séuð ekki í sjokki yfir kjaftinum á mér .. ég lofa að hætta að blóta þegar barnið fæðist! Eða ætla allavega að reyna að vinna í því!

Á ég kannski að byrja að tala um undankeppnina í Júróvisjón? .. hmm nei ég held ekki.. en ég er ekki alveg að fíla þessi lög sem eru komin.. hlustaði samt á lagið aftur með Sjonna sem allar stelpur í Seljaskóla slefuðu yfir og á hérna í den og fannst það dáldið katsjí! En Eiríkur.. neihh... held ekki! Þó svo ég fíli Eika alveg þá held ég að hann sé bara góður í Kontrapunkti .. búinn með sinn tíma í Júróvisjón! Og hvað er málið með Pétur Jesús?? Er hann bara þáttakandi í öllum lögunum.. en hann er krútt þannig að það er í lagi! :)

Ó ég hélt ég ætlaði ekki að tala um Júró! Greinilega farið að slá útí fyrir manni.. segir maður þetta ekki þannig annars??

föstudagur, janúar 19

Ég ætla nú ekki að gerast svo djörf að sýna myndband allra tíma hérna, með honum Gvendi í Byrginu.. en ég verð að setja link á dáldið grín, sem að fólki sem sá Kompás þáttinn fræga þekkir kannski.. en það eru mms skilaboðin frægu með lille ven som aldrei stannar:
Horfa á Lille ven hérna!

Annars sá ég hinn viðbjóðinn og verð aldrei aftur söm.. en ég horfði á þetta af fúsum og frjálum vilja.. þannig að ég get ekkert sagt, en mér skilst að helmingur landsmanna hafi náð að sjá þetta.. þannig að það sýnir kannski hversu pervertísk þessi þjóð er!

Annars skilst mér að aðal bóndadagsgjöfin í ár séu rafmagnsblöðkur fyrir rassa og dildóar .. smart! híhí :D

miðvikudagur, janúar 17

Þessi blogger er nú dáldið þreytandi.. ég get ekki lengur publishað í tölvunni heima.. og svo er alltaf nóg að gera í vinnunni (þótt ég sé að stelast til að skrifa smá núna), það er hrikalega þreytandi þegar maður er búinn að skrifa heilmikið og svo virkar þetta drasl ekki! En nóg um það!

Ég var að velta fyrir mér orðinu ógleði í fyrradag.. afhverju er það notað bara yfir flökurleika? Auðvitað er það ekki mikil gleði að vera flökurt og jafnvel æla.. en er ekki líka ógleði þegar maður er leiður og fer að gráta? Gæti maður þá ekki sagst vera með ógleði, td. morgunógleði ef maður er leiður snemma að morgni og tárin streyma út? Nei ég bara spyr :)

Ég fór örugglega að pæla í þessu í fyrradag útaf því að þá var ég með morgunógleði, mætti hingað í vinnuna eftir viku veikindi, fékk flensu dauðans, og á móti mér mættu bunkar dauðans á borðinu mínu sem biðu eftir að vera handfjatlaðir af mér! Og þetta þyrmdi svolítið yfir mig, þá þurfti Ási minn endilega að hringja og spyrja hvort allt væri í lagi og þá kom ógleðin yfir mig, tárin spruttu út.. í vinnunni! Ekkert smá hallærislegt! Svo stuttu seinna þá voru konur að spyrja mig hvernig ég hefði það, hvort þetta væri ekki erfitt að vera svo ólétt og lasin og jú viti menn, ógleðin þyrmdi yfir mig aftur og tárin láku í stríðum straumum, í vinnunni!

Alltaf gaman að vera þrítug að grenja í vinnunni, en ég ætla að kenna óléttunni um þetta! Vissulega myndi maður oft vilja bara grenja en maður getur hamið sig.. en það er ekki í boði núna! Þannig að ef þið hittið mig á förnum vegi og tárin byrja að spretta, ekki taka því persónulega.. því það virðist ekki skipta máli hvort það sé neikvætt eða jákvætt, tárin hafa sjálfstæðan vilja!

En það er gott að gráta, vorkenni þeim sem geta það ekki..

Grátmaur kveður að sinni! :)

mánudagur, janúar 8

Það er alveg magnað hvað ég er búin að vera löt að skrifa hérna undanfarið.. en talandi um magnaða hluti þá fékk maður sjokk að lesa fréttayfirlýsinguna með Magna "okkar" og Eyrúnu konu hans í gær.. en fyrir þá sem eru alveg útúr heiminum er hægt að lesa hana hérna! Ég varð bara hálf leið að lesa þetta, manni fannst þau eitthvað svo sæt fjölskylda!

Ég er búin að vera að skoða bloggin hjá öðrum og margir með voða flottar samantektir fyrir árið 2006, ég nenni nú ekki að gera svona ítarlegt en það breyttist margt á árinu. Ási flutti hingað inn á gamlársdag 2005 til reynslu í eina viku.. hún er aldeilis búin að lengjast þessi vika, því enn búum við saman og gengur bara vel. Í júlí komumst við að því að við ættum von á barni, það var alveg mögnuð tilfinning. Svo tók við skemmtilegt tímabil sem einkenndist af ógleði, höfuðverk og uppköstum í ca. 2-3 mánuði en það er allt gleymt og grafið. Svo í október fengum við að vita að barnið væri strákur sem kom okkur báðum mjög á óvart, þar sem við vorum búin að ákveða að þetta væri stelpa!

Síðan hefur tíminn bara liðið, vinna sofa og borða eins og maður segir stundum, en með einhverjum skemmtilegheitum inná milli, td. þrítugsafmælið mitt í nóvember, svo jólastúss og áramótastúss. Áttum mjög svo góða og skemmtilega hátíð.

Og núna er kominn janúar 2007 og 2 mánuðir í gær í áætlaðan fæðingardag og við erum bara farin að bíða. Okkur hlakkar svo til að fá litla kútinn í hendurnar!

Ég er að reyna að skrifa smá í vefdagbókina á barnalandssíðunni á ca. vikufresti ef fólki langar að fylgjast með. En það er ekki mikil hreyfing á myndum eða neinu.. þar til aðal ljósmyndunarefnið kemur í heiminn!

Síja, vúldent vonna bíja! tíhí ;)